Morgunblaðið - 06.05.1984, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 06.05.1984, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MAf 1984 39 Hjólað í þágu fatlaðra barna KVENNADEILD Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra gengst næstkomandi laugardag fyrir hjólreiðadegi og fjár- söfnun til styrktar Dvalar- og í Reykjadal í Mosfellssveit. bekk grunnskólanna hjóla í það ekki. Munu börnin hefja fjár- söfnun í upphafi þessarar viku. Helga Jóhannsdóttir, formaður stjórnar kvenna- deildar SLF, sagði í samtali við Morgunblaðið, að mikil- vægt væri að byggja upp að- stöðu félagsins í Reykjadal, þar sem augljós skortur væri á möguleikum fatlaðra barna til leikja og hvíldar í um- hverfi, sem þeim hentaði. Því héti deildin á vinsemd og að- stoð almennings og treysti því að börnunum yrði vel tek- ið við fjársöfnunina. Hjólreiðaleiðir hafa enn ekki endanlega verið valdar en börnin munu hjóla frá ; hvíldarheimili fatlaöra barna Munu þá börn úr 4., 5. og 6. þágu þeirra barna, sem geta skólum sínum í Reykjavík, Kópavogi og hugsanlega Garðabæ klukkan 13.30 og safnast saman á Lækjartorgi um klukkan 14.30. Á Lækjar- torgi verða útihátíðahöld, þar sem Hornaflokkur Kópavogs og Lúðrasveit Laugarnes- skóla leika, Olla og AIli koma í heimsókn og fimleikastúlk- ur úr Gerplu leika listir sínar. Auk þess verður boðið upp á gosdrykki og sælgæti. Náin samvinna verður höfð við lögregluna og mun hún fylgja börnunum frá viðkomandi skólum á leið þeirra á Lækj- artorg. Kaffisamsæti Snæfellinga og Hnappdæla SUNNUDAGINN 13. maí heldur Félag Snæfellinga og Hnappdæla árlegt kaffiboð sitt fyrir eldri hér- aðsbúa, sem flutt hafa á höfuð- borgarsvæðið. Að lokinni guðs- þjónustu í Bústaðakirkju hefst kaffisamsætið klukkan 15 í Fé- lagsheimili Bústaðakirkju. Fyrirlestur um jarðfræði MÁNUDAGINN 7. maí flytur prófessor Brian Whalley frá Bel- fast fyrirlestur um landmótum í háfjöllum, og nefnist hann Hich Mountain Geomorphology. Pró- fessor Whalley tekur dæmi sín mest úr fjöllum Afganistan, en einnig hefur hann kannað land- mótun hér á landi, í Alaska og víðar. Fyrirlesturinn er á vegum Jarðfræðafélags Islands. Hann hefst kl. 20.30 í stofu 101, Lög- bergi, Háskóla íslands. Miklaholtshreppur: Sannkallað vorveð- ur undanfarna daga Borg, Miklaholtshreppi, 2. maí. UNDANFARANDI daga hefur verið sannkallað vorveður, hitinn 6 til 8 stig flesta daga, en dálítil úrkoma stundum. Gefur það manni góða von um að vorið sé að koma, klaki virðist vera lítill, sums staðar eru klaka- lausir blettir i túnum. Ekki er unnt að sjá ennþá hvort kal muni vera, því að stórir skaflar eru þar sem lautir eru, en ólíkur svipur er á öllu nú eða á sama tíma í fyrra. Vegir eru blautir og holóttir. Veldur það auknum óþægindum og kostnaði við flutninga á vörum að og frá heimilum. Ekki hefur það farið framhjá þeim, sem land- búnað stunda, að köldum gusti hefur andað til bænda frá sumum þingmönnum, sem hæst gala nú í þingsölum. Hvar er nú umhyggjan fyrir þeim, sem hafa fengið bogið bak af löngum vinnudegi? Mætti sú rödd einhvern tíma heyrast, þegar kjör bænda eru rædd. Nýlega fundust 4 kindur skammt frá Mýrdal í Kolbeins- staðahreppi. Hafa þær gengið úti í allan vetur og er útlit þeirra furðugott, þótt oft hafi um þær gustað. Þrjár kindanna voru frá Mýrdal og ein frá Hraunsmúla. Sauðburður mun víðast hvar hefj- ast upp úr 10. maí. f gær buðu félagar í Lionsklúbbi Hnappdæla Biskup fékk fyrsta silfur- peninginn í MYNDATEXTA á bls. 18 í Morgunblaðinu á föstudag, þar sem skýrt var frá landssöfnun Lionsmanna til Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri, láð- ist að geta þess, að Hörður Svanbergsson, sem er með biskupi Islands á myndinni, er að afhenda honum fyrsta pen- inginn af 30 silfurpeningum, sem slegnir voru í tilefni söfn- unarinnar og verða seldir til ágóða fyrir hana. Hörður er umdæmisstjóri umdæmis 109B, sem nær frá Akranesi norður um og til Þórshafnar. öllum í góðan mannfagnað, sem á þeirra svæði eru 60 ára og eldri. Var þessi samkoma í félagsheimil- inu á Breiðabliki. Vel var veitt og rausnarlega með ágætri dagskrá, sem félagarnir stóðu að. Hafið þið heila þökk fyrir ógleymanlega stund. - Páli Úthafsrækjuveiðar fyrir Norðurlandi: Bannaðar stærri skip- um innan ákveðinnar línu Sjávarútvegsráðuneytið hefur nú ákveðið að skipum 200 brúttórúm- lestir að stærð og stærri verði óheim- ilar rækjuveiðar innan 66. gráðu og 40. mínútu norðlægrar breiddar á svæðinu frá Horni og austur að Rauðanúpi. í frétt frá ráðuneytinu segir ennfremur, að vegna fyrirsjáan- legrar fjölgunar báta á úthafs- rækjuveiðum í sumar hafi þeir að- ilar, sem þessar veiðar hafi stund- að á undanförnum árum á smærri bátum látið í ljósi ugg vegna mik- illar ásóknar á nærliggjandi mið fyrir Norðurlandi. Því hefði ráðu- neytið ákveðið, að fenginni um- sögn Fiskifélags íslands, að koma til móts við þessa aðila og banna stærri skipunum veiðar á upt- ræddu svæði. Bannið tekur gildi frá og með 15. maí næstkomandi. Þá segir í frétt ráðuneytisins, að þann 15. maí falli úr gildi leyfi til úthafsrækjuveiða og þurfi þeir, sem þær veiðar hyggist stunda eftir þann tíma, að sækja um eða endurnýja eldri umsóknir. Metsölubkid ú hverjum degi! Fjölbreytt vöruúrval Vaskar, margar stærðir. Hillur fyrir geymslur, lagera og verslan- | Blöndunartæki fyrir eldhús. ir, margar stærðir. Auðveld uppsetning. Harðplast frá Perstorp. H/F OFNASMIÐJAN HÁTEIGSVEGI 7, S: 21220 SMIÐJUBÚÐIN HÁTEIGSVEGI 7, S: 19562-21220

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.