Morgunblaðið - 06.05.1984, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MAl 1984
Frumvarp um Húsnæðísstofnun:
59 tillögur stjórn-
arandstöðu felldar
22 breytingartillögur stjórnarliöa samþykktar
FRUMVARP um Húsnæðisstofnun
ríkisins var afgreitt til síðustu um-
ræðu í fyrri þingdeild sl. fbstudag,
eftir að gengið hafði verið til at-
kvæða um 80 breytingartillögur, þar
af nokkrar við nafnakall. Tæplega
60 tillögur stjórnarandstöðu við
frumvarpið vóru felldar en 22 breyt-
ingartillögur stjórnarliða samþykkt-
Halldór Blöndal, (S) framsögu-
maður meirihluta félagsmála-
nefndar, gerði grein fyrir atkvæði
sínu í einni atkvæðagreiðslunni,
efnislega á þessa leið:
• Ríkisstjórnin hefur hrundið í
framkvæmd verulegri hækkun á
lánum úr Byggingarsjóði, jafn-
framt því sem greiðslu lána hefur
verið flýtt til þeirra sem byggja í
fyrsta sinn.
• Við þau erfiðu efnahagsskilyrði
sem við búum við er þess ekki að
vænta að unnt sé að auka fjárveit-
ingar til húsnæðismála verulega.
• Það er hlutverk Byggingarsjóðs
að veita lán til byggingar leigu-
íbúða, sem ætlaðar eru fyrir al-
mennan markað, að dómi meiri-
hluta félagsmálanefndar.
Tillaga til þingsályktunan
Stöðva ber framkvæmd-
ir við útvarpshúsið
„ALÞINGI ályktar að fela ríkiæ
stjórninni aö stöðva framkvæmdir við
svonefnt útvarpshús. Gaumgæfileg
athugun verði gerð á því áður en
framkvæmdir hefjast að nýju hvernig
hagnýta megi þetta mannvirki. Sér-
staklega verði athugað hvort hugsan-
legt sé að koma fyrir í því smáíbúð-
um, en ella efnt til hugmyndasam-
keppni um notkun þess.“
Þannig hljóðar tillaga til þings-
ályktunar sem Eyjólfur Konráð
Jónsson hefur lagt fram á Alþingi.
í greinargerð segir efnislega að
stærð hússins sé slík að ekki sé
unnt að ímynda sér, „hvernig þessi
ósköp ætti að nota til útvarps-
rekstrar, nema e.t.v. eitthvert horn
hússins". Mikil verðmæti séu bund-
in í byggingunni og þau beri að
hagnýta eins og bezt verður á kos-
ið.
Frá framkvæmdum við Dalvfkurhöfn.
Dalvík:
Framkvæmdir
við höfnina
Dalvík, 27. apríl.
HAFNAR eru að nýju framkvæmdir
við endurbætur á Dalvíkurhöfn, en
þær lágu alveg niðri á síðastliðnu
ári. Allmiklar framkvæmdir eru
fyrirhugaðar á þessu ári við norður-
garð hafnarinnar og er áætlað að
verja um 10 millj. króna til þessa
verks.
Árið 1982 var hafist handa um
þessar endúrbætur með því að
rammað var niður stálþil frá efri
enda garðs 76 m fram. Þá var skil-
ið eftir 94 m langt tréþil sem nú á
að skipta um og setja stálþil þess i
stað. Segja má að gamli garðurinn
hafi þjónað vel sínu hlutverki í
hartnær 45 ár og er vel að því
kominn að fá andlitslyftingu.
Gamli skjólvarnargarðurinn sem
mest hefur mætt á gagnvart norð-
anáttinni verður nú brotinn niður
og annar gerður í hans stað og
mun athafnapláss á garðinum
breikka við það.
Verkstjóri við þessar fram-
kvæmdir er Aðalsteinn Aðal-
steinsson, þrautreyndur á þessum
sviðum en þetta mun vera 30.
höfnin sem hann sér um uppbygg-
ingu á.
Fréttaritarar.
Upprunalegu kálgarðs-
börnin koma í haust
MORGUNBLAÐIÐ sagði nýlega frá því að kálgarðsbörnin svonefndu
væru nú komin á innlendan markað, og var þá um að ræða dúkkur sem
framleiddar eru á Ítalíu. Kálgarðsbörnin eiga hins vegar uppruna sinn
að rekja til Bandaríkjanna, eins og hönnuður þeirra, Xavier Roberts,
sem merkir hverja dúkku rækilega
hennar.
Kálgarðsbörn Xavier Roberts,
eða „Cabbage Patch Kids“, eins
og þau nefnast á frummálinu,
koma á íslenskan markað næsta
haust, en fyrirtækið Tölvuspil sf.
hefur tryggt sér nokkur þúsund
eintök af dúkkunum. Að sögn
Þorsteins Garðarssonar, hjá
Tölvuspili sf., eru dúkkurnar
framleiddar hjá Coleco-fyrir-
tækinu, sem er bandarískt/-
kanadískt, og hafa á þessu ári
borist pantanir fyrir um 19
milljón dúkkur, en framleiðslu-
með nafni sínu á annarri rasskinn
geta fyrirtækisins er um 15
milljónir dúkka á ári.
Aðspurður sagði Þorsteinn að
verð fyrir hverja dúkku yrði um
eitt þúsund krónur. Dúkkurnar,
sem hafa náð miklum vinsæld-
um um heim allan, eru þannig úr
garði gerðar, að engar tvær eru
eins. Þær er hægt að skoða í um-
búðunum, hver á sitt eigið nafn
og þeim fylgja „fæðingarvott-
orð“, „persónuleikaágrip" og
„ættleiðingarskjöl".
Auðlegð þjóðanna:
Hemlar og hemlakerfi er mikilvægasti öryggisþátturinn í öllum akstri
og meöferð ökutækja og vinnuvéla. Þetta vita allir.
í því sambandi skiftir mestu, sé fyllsta öryggis gætt; að vel sé séð fyrir
viðhaldi og umhirðu allri. Þetta vita líka allir.
Við erum sérfræðingar í allskyns hemlum og hemlakerfum.
1. flokks varahlutaþjónusta. Við bjóðum orginal varahluti, beint frá
framleiðendum, — á ótrúlega góðu verði.
Yfir 20 ára þjónusta fagmanna tryggir öryggið.
LLING ”
Sérverslun með hemlahlutí.
Skeifunni 11 Sími: 31340,82740,
Þorsteinn Garðarsson með tvö kálgarðsbörn. Ef vel er að gáð má sjá
eiginhandaráritun hönnuðarins, Xavier Roberts, á annarri dúkkunni.
ísland
úr 4. í
12. sæti
Ljósm. Mbl./ Júlíus.
Samkvæmt skýrslum Efnahags- og
framfarastofnunarinnar í París var
ísland í fjórða sæti með þjóðartekjur
á mann árið 1981. Árið 1982 féll fs-
land niður í sjötta sætið. í ár sitjum
við í tólfta sætinu. Þetta er svipuð
staða og 1975 og 1976. Þannig komst
Steingrímur Hermannsson, forsæt-
isráðherra, efnislega að orði, er hann
mælti fyrir stjórnarfrumvarpi (band-
ormi) um ráðstafanir í ríkisfjármál-
um á Alþingi í gær. Við stóðum
frammi fyrir þeim vanda, sagði fjár-
málaráðherra efnislega, þrátt fyrir
verulegan útgjaldaniðurskurð við
gerð fjárlaga, að á skorti tvo millj-
arða ríkissjóðstekjur til að mæta út-
gjöldum ársins. Kostirnir vóru þeir:
1) að leggja á nýja skatta á almenn-
ing, ofan á kjaraskerðingu fyrra árs
og setja jafnvel samkomulag á vinnu-
markaði í hættu, 2) víkja frá upphaf-
legum áformum í lánamálum og 3)
fresta hluta vandans til næsta árs.
Að mínu mati komu skattahækkanir
ekki til greina.
Forsætisráðherra sagði „farið út
á yztu mörk með erlendar lántök-
ur“ en- þó ekki yfir 60% af hundr-
aði þjóðarframleiðslu. Verðbólga
yrði 10% í lok ársins en 13—14%
frá upphafi til loka árs. Erfiðleikar
í efnahagsmálum okkar væru nú
þeir mestu, sem við hafi verið að
glíma frá stofnun lýðveldisins, og
mun stærri fyrir þá sök, að ekki
náðist samkomulag um harðar við-
námsaðgerðir á árinu 1982 og í
upphafi árs 1983.
Með þessum ráðstöfunum er
gengið eins skammt og frekast er
unnt í íþyngjandi aðgerðum á al-
menning, sagði fjármálaráðherra.