Morgunblaðið - 06.05.1984, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 06.05.1984, Blaðsíða 45
MÖRGtÍNÉtX'tíltí,' ytMítttíÁ'&Uri iste4 45 Skálað í kampavíni. Starfsmenn og stjórn Orðabókar Háskólans fagnar þessum merka áfanga, hundrað þúsundasta ordinu. Morgunbladid/KÖE „Fagnaðrtíðindi“ Hundrað þúsundasta orðið slegið inn í tölvubanka Orðabókar Háskólans ORÐIÐ fagnaðartíðindi var táknrœnt meðal starfsmanna og stjórnar Orða- bókar lláskólans í gær, fóstudag. I>á sló Hólmfríður Sigurpálsdóttir, „aðal- ritari Orðabókarinnar", inn hundrað þúsundasta orðið í tölvubanka Orða- bókarinnar og svo skemmtilega vildi til að það reyndist „fagnaðartíðindi". llm það orð segir nú í tölvubankanum: „fagnaðartíðindi: npl sl6, s!9 » s Jer. 20, 15 (GÞ)“ Lesendum til nánari skýringar merkja táknin að orðið sé nafnorð í fleirtölu, elzta dæmi i seðlasafni Orðabókarinnar sé frá síðari hluta 16. aldar og það yngsta frá síðari hluta þeirrar 19., að í safninu séu dæmi um orðið fleiri en 5, að orðið sé samsett og sé elzta heimild þess úr Guðbrandsbiblíu. Áætlað er að í aðalsafninu, sem nær yfir prentað mál frá 1540 fram á þennan dag, séu rúmlega tvær millj- ónir seðla eða um 600.000 ólík orð. Til samanburðar má geta þess, að Árni Böðvarsson, ritstjóri Orðabók- ar Menningarsjóðs, telur að um 85.000 uppflettiorð séu í þeirri bók. Þó aðeins sé nú kominn einn sjötti hluti orðasafnsins inn á tölvubank- ann hefur vinnu miðað vel áfram og er haldið áfram af fullum krafti. Tölvuvinnslan á skrám Orðabók- arinnar auðveldar verulega aðgang að safninu og veitir aukna mögu- leika á notkun þess, bæði fyrir starfsmenn og almenning, sem þarf á því að halda. Telja forráðamenn Orðabókarinnar, að nú virðist ekki fjarri lagi að ætla að innan fárra ára verði að finna skjái á almennings- bókasöfnum, sem verði tengdir tölvu Orðabókarinnar. Þannig gæti hver sem er leitað vitneskju í orðabank- ann. Hólmfríður Sigurpálsdóttir, „aðalritari Orðabókarinnar“ við tölvuna. Slrá: C.fl JflT Fyrr« orð: 1. Ord(f/l»): fagnaiartiainji 2. öraflokkur: 3. ftiáor: •16, .19 4. FjölJi imm: > S. Orð««rð: • 6. Eista kciaiU: Jer. 28, 15 <»> UeUu vlielftmlí aðyerð: Hundrað þúsundasta orðið, fagnaðartíðindi, á tölvuskerminum. U6RZLUNRRBRNKINN Bankastrsti 5 Grensásvcgi 13 Umferöarmiftstöóinni Vatnsnesvegi 14, Keflavík Húsi verslunarínnar, Amarbakka 2 Laugavegi 172 v/Hringbraut Þvcrholti 6, Mosfellssveit nýja miöbænum Allt að 22,1% ársávöxtun. Sparisjóðsskírteini Verzlunarbankans sem bundin eru í 6 mánuði bera 6% vaxtaálag umfram almenna sparisjóðsvexti sem nú eru 15%. Með því að endumýja skírteinin eftir 6 mánuði fæst 22,1% ársávöxtun. Skattfrjáls. Sparisjóðsskírteini Verzlunarbankans eru skattfrjáls sem og annað sparifé. Þú ræður upphæðínni. Þú ræður auðvitað þínum eigin spamaði og velur því upphæðina sjálf(ur) þó að lágmarki kr. 1.000. Taktu hæstu innlánsvexti fyrir sparifé þitt. sem í boði eru

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.