Morgunblaðið - 06.05.1984, Page 46

Morgunblaðið - 06.05.1984, Page 46
flokki. Þorleifur Karlsson Birgir Karl Ólafsson Steingrímur Walter Arnar Bragason Kristján Hauksson sigradi í sínum flokki í göngu annaö ériöíröö. Krislinn Björnsson, Ólafsfiröi. Sig- urvegarí í stökki og svigi. Fjórmenningarnir sem keppa i Andrésar andar-leikunum i Noregi á næsta iri. Frá vinstri: Jón Sísí Malmquist Ólafur Árnason, ísafiröi, Jóhannes Baldursson, Akureyri, Margrét Rúnarsdóttir, ísafiröi, og Ása Þrastardóttir, Akureyri. Morgunblaötó/ Sígfús Karlsson. „Allir aðilar mjög ánægðir með mótið“ Þröstur Guðjónsson mótsstjóri „ÞETTA HEFUR gengið ljóm- andi vel — veðrið lék við okkur alla keppnisdagana og allir aðilar hafa verið mjög ánægðir með mótið," sagði Þrðstur Guðjónsson, móts- stjóri Andrésar andar-leikanna, í samtali við blm. Mbl. að mótinu loknu. Keppendur á leikunum voru 424 — flestir voru frá Reykjavík, 84, 55 voru frá Akureyri og 53 frá ísafirði. Að meðtöldum fararstjór- um og þjálfurum voru alls um 600 manns sem voru viðloðandi mótið. Þröstur sagði að tímasetningar á mótinu hefðu tekist vel og mótið hefði verið mjög skemmtilegt í alla staði. „Krakkarnir höfðu allir gam- an af þessu — og þau unnu öll stærsta sigurinn: að vera með,“ sagði Þröstur. Þröstur vildi koma á framfæri þakklæti til foreldrafélagsins innan SRA — „foreldrar krakkanna unnu geysimikið starf, komu óbeðnir í Fjallið á hverjum morgni og hjálp- uðu til við mótshaldið. Þá vil ég þakka starfsfólki Skíðastaða, kepp- endum og fararstjórum fyrir mjög ánægjulega samvinnu. Svona mót er ekki hægt að halda nema sam- vinna allra sé góð og hún var það,“ sagði Þröstur. A kvöldin var ýmislegt til skemmtunar fyrir krakkana í Lundarskólanum, þar sem þau bjuggu á meðan á leikunum stóð — dans, kvöldvökur og skemmtiatriði, og geislaði ánægjan af krökkunum er Mbl.-menn litu þar inn. And- rúmsloftið var vægast sagt stór- kostlegt hjá krökkunum og allir skemmtu sér konunglega. Sigurvegarinn í göngu 9 ára: „Sigurinn mikið pabba að þakka“ „Þetta var frekar erfitt," sagði Hulda Magnúsdóttir, Siglufirði, skömmu eftir að hún hafði komið í mark sem sigurvegari f skíðagöngu 9 ára. Hún sagði þetta í þriðja skipti sem hún keppti á Andrésar andar-leikunum. í fyrra hefði hún einnig unnið en árið þar áður orðið í fimmta sæti. Hulda er dóttir Magnúsar Ei- ríkssonar og Guðrúnar Pálsdóttur sem bæði eru þekktir skíðagöngu- menn, þannig að ekki hefur hún langt að sækja hæfileikana. „Eg æfi sund auk skíðanna en vil ekki gera upp á milli þessara tveggja íþróttagreina. Báðar eru þær mjög skemmtilegar. En ég kem örugglega á Andrésar andar-leik- ana aftur næsta vetur og ætla að reyna að vinna þá líka. Já, ég bjóst við að vinna núna. Sigur minn er mikið pabba að þakka, hann hefur hjálpað mér mikið." Hjálmdís Tómasdóttir: „Ofsalega gaman“ „Þetta hefur verið ofsalega gam- an,“ sagði Hjálmdís Tómasdóttir frá Neskaupstað en hún vann bæði svig og stórsvig í 7 ára flokki. „Það er auðvitað skemmtilegt að ná að vinna báðar greinarnar. Ég byrjaði að æfa þegar ég var fimm ára og ætla sko örugglega að halda áfram að æfa og keppa,“ sagði þessi bráðefnilega skíðastúlka. Steingrímur Walter frá Reykjavík: Skíthræddur í fyrsta stökkinu „Ég hef aldrei stokkið áður, aldr- ei æft stökk að minnsta kosti, en það er mjög gaman að þessu,“ sagði Reykvíkingurinn Steingrímur Walter, 12 ára, sem varð í þriðja sæti í stökkinu. „Það er enginn stökkaðstaða á Reykjavíkursvæðinu og ég hef að- eins stokkið er ég hef búið til snjó- hengjur sjálfur. En ég er viss um að ef aðstöðu yrði komið upp í Bláfjöll- um þá yrði stökkáhugi mikill í Reykjavík og margir krakkar kæmu á æfingar." Steingrímur sagðist ekki hafa átt von á því að komast á verðlauna- pall: „Ég var skíthræddur er ég lagði af stað í fyrstu ferðina en eftir fyrsta stökkið var ég sko ekkert hræddur ..." Jóhannes Baldurs- son frá Akureyri: Stefni að því að verða besti skíða- maður íslands Jóhannes Baldursson frá Akur- eyri sigraði í svigi og stórsvigi I 12 ára flokki og vann þar með ferð til Noregs næsta vetur, á Andrésar- andar-leikana. „Ég átti ekkert frekar von á að vinna þessar greinar, taldi mig þó eiga möguleika á því þar sem mér hefur gengið mjög vel ( vetur,“ sagði Jóhannes, „og þar hafa góðir þjálfarar mínir mikið aö segja, þeir Valþór Þorgeirsson og Ásgeir Magnússon." „Þetta hefur verið æðislega gam- an og eftir þessa sigra er ég í sjöunda himni. Ég byrjaði að keppa á skíðum er ég var átta ára og hef keppt mikið síðan." Jóhannes sagðist staðráðinn í að standa sig vel í Noregi á næsta ári. „Ég ætla að æfa mjög vel fram að þeim tíma. f framtfðinni stefni ég að því að verða besti skíðamaöur íslands." Arnar Bragason, Húsavík: Hef æft lítið í vetur „Ég hef æft lítið í vetur því lítill snjór hefur verið á Húsavík í vet- ur,“ sagði Arnar Bragason, sigur- vegári í stórsvigi 11 ára. Arnar sagði Andrésar andar- leikana hafa verið frábæra að þessu sinni sem áður og aðstaða hefði ver- ið frábær á Akureyri. „Ég datt i sviginu og var rosalega svekktur, en ég ætla að einbeita mér áfram að skíðaíþróttinni því hún er mjög skemmtileg. Ég stefni að því að vinna öll helstu mót sem ég keppi á í framtíðinni." Sigurvegarinn í svigi 10 ára: „Hefekki keppt áður í vetur“ „Ég byrjaði að æfa er ég var fimm ára — ég hef ekki keppt neitt áður í vetur og bjóst ekki við að vinna því ég hef æft svo lítið í vetur vegna snjóleysis heima," sagði Hrannar Pétursson, en hann sigr- aði í svigi í 10 ára flokki. Hrannar er frá Húsavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.