Morgunblaðið - 06.05.1984, Síða 48
Optó öll fimmtudags-, töstudags-,
laugardags- og sunnudagskvöld.
AUSTURSTRÆTI 22,
INNSTRÆTI,
SÍMI 11633
Opið alla daga frá
kl. 11.45-23.30.
AUSTURSTRÆTI22,
INNSTRÆTI,
SÍMI 11633.
SUNNUDAGUR 6. MAÍ 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR.
Landleiðir
í verkfall?
HAFI samningar ekki tekist á milli
Landleiða og bílstjóra þeirra á mid-
nætti í kvöld, vofir yfir tveggja daga
verkfall bílstjóra Landleiða, sem
hefði það í för með sér að engar stræt-
isvagnaferðir yrðu á milli Reykjavíkur
og Hafnarfjarðar.
Samningafundir hjá ríkissátta-
semjara stóðu fram á kvöld í fyrra-
dag og fundir hófust á nýjan leik kl.
15 í gær. Ágúst Hafberg, fram-
kvæmdastjóri Landleiða sagði í
samtali við blm. Mbl. í gær þegar
hann var spurður hvort enn bæri
mikið í milli, að allt annar og já-
kvæðari skilningur væri kominn í
viðræðurnar, og því fyndist honum
að það kæmi vel til greina að fara
fram á að þessu tveggja daga verk-
falli yrði frestað, ef samningar
væru í sjónmáli seinni hlutann í
dag. Sagðist hann ekki trúa öðru en
menn hefðu skilning á því að fara
ekki að rjúka í verkfall að ástæðu-
lausu, þegar svo mikilvæg almenn-
ingsþjónusta eins og strætisvagna-
akstur væri annars vegar.
Nýr dýra-
spítali í
Reykjavík
NÝR dýraspítali tekur til starfa í
Reykjavík seinni partinn í sumar og
verður þar bæði aðstaða til að leggja
inn sjúk dýr til lækninga og geymsla
fyrir hunda og ketti. I»að eru dýra-
læknarnir Árni Mathiesen, Brynjólf-
ur Sandholt og Magnús Guðjónsson
sem standa að stofnun spítalans og
hafa þeir fengið lciguhúsnæði frá
borginni undir starfsemina.
Að sögn Magnúsar Guðjónsson-
ar dýralæknis, verður húsnæðið
afhent hinn 1. júlí nk. og verður þá
hafist handa við innréttingar og
uppsetningu tækjakosts, en alls er
húsnæðið um 160 fermetrar.
„Það má segja að þetta sé á|
frumstigi ennþá og lítið hægt að
segja nákvæmlega um þjónustu-
getu okkar, en það kemur í ljós
eftir að við fáum húsnæðið afhent
og getum farið að innrétta það, en
spítalinn verður búinn fullkomn-
ustu tækjum," sagði Magnús.
„Ástæðan fyrir því að við förum út
í þetta er fyrst og fremst að sinna
þeirri brýnu þörf, sem er fyrir
þjónustu sem þessa, þar sem ekki
hefur tekist samkomulag við dýra-
spítala Watsons um að hafa þar
dýralækni, en þar er nú eingöngu
rekin dýrageymsla," sagði Magnús
Morgunblaöio/ kaa.
Sviðsmyndin á Skógasandi þar sem kvikmyndataka Enemy Mine hefst í fyrramálið. Hafa risafururnar verið byggðar fyrir myndatökuna. Á innfelldu
myndinni má sjá aðalleikarana, Louis Gossett jr. (Lv.) og Dennis Quaid (Lh.) við komuna til Hellu í gær.
20th Century Fox flytur yfir á Skógasand
ífTARFSMENN 20th Century Fox mynduðu í gær loftbrú milli Vest-
mannaeyja og lands, er þeir hófu flutning fólks og búnaðar frá Eyjum, en
kvikmyndatökum þar er nú lokið. Kvikmyndatökum mun síðan haldið
áfram á Skógasandi.
Það var leiguflug Sverris Þóroddssonar, sem sá um myndun loft-
brúarinnar og var fólkið, rúmlega 100 alls, flutt til Hellu, Víkur og
Skógasands. Bílar og þyngstu tækin fóru síðan með Herjólfi til
Þorlákshafnar og verða þau flutt þaðan austur. Áætlað er að flutn-
ingum þessum ljúki í dag, sunnudag og verður fólkinu komið fyrir á
Hellu, Hvolsvelli og Skógasandi. Áætlað var að alls yrðu flognar 15
ferðir vegna þessa milli lands og Eyja um helgina.
Sjá frásögn af kvikmyndatökunni á bls. 72 og 73.
Dæmdar 11 mílljónír fyrír
fjölföldun efnis í skólum
RÍKISSJÓÐI var gert að greiða 6 milljónir króna til samtaka höfunda fyrir
ólöglega fjölloldun á verkum þeirra í skólum samkvæmt gerðardómi, sem
kveðinn var upp í fyrradag. Nær greiðsla þessi fyrir tímabilið frá gildistöku
böfundalaga 1972 til 1. september 1982. Jafnframt var gjaldskyldur blað-
síðufjöldi vegna fjölföldunar í skólum fyrir tímabilið 1. sept. 1982 - 1. sept.
1984 ákveðinn 6V2 millj. hvort árið og ríkissjóði gert að greiða 40 aura á
hverja blaðsíðu það er 5,2 milljónir kr. fyrir bæði árin.
dómsmanna kr. 450 þúsund.
Mál þetta var höfðað á grund-
velli tveggja samninga, sem sam-
Þá var ríkissjóði jafnframt gert
að greiða sóknaraðilum kr. 540
þúsund krónur í málskostnað svo
og þóknun og kostnað gerðar-
tök Blaðamannafélags Islands,
Skotmaöurinn í Vesturbænum:
Krafa um gæzluvarðhald
og geðheilbrigðisrannsókn
„VIÐ MUNUM setja fram kröfu í
Sakadómi Reykjavíkur um gæzlu-
varðhald yfir manninum og að hon-
um verði gert að sæta geðheilbrigðis-
rannsókn," sagði Arnar Guðmunds-
son, deildarstjóri í Rannsóknarlög-
reglu ríkisins í samtali við Mbl. í
gær. Fyrirhugað var að yfirheyrslur
yfir manninum, sem gekk berserks-
gang í vesturbæ Reykjavíkur á
fóstudagskvöldið, hæfust um miðjan
dag í gær. Umsátursástand ríkti
vestast ( vesturborginni í um
klukkstund á meðan maðurinn
skaut nokkrum tugum haglaskota úr
byssu, sem stolið var úr trillu f
Reykjavíkurhöfn aðfararnótt föstu-
dagsins.
Skotmaðurinn er 31 árs gamall
Akurnesingur. Hann var ölvaður
þegar hann gekk berserksgang og
hótaði að drepa alla, sem nálguð-
ust hann. Maðurinn olli nokkru
tjóni. Að minnsta kosti þrír bílar
urðu fyrir höglum og skemmdust.
Þá skaut maðurinn í gegn um
glugga og hurðir í húsum á Vest-
urgötu, auk þess sem minni háttar
tjón varð á húsum þegar högl
lentu á þeim. „Það gengur krafta-
verki næst að enginn skuli hafa
slasast eða fallið," sagði Erlendur
Sveinsson, varðstjóri í lögregl-
unni, en hann var í fylkingar-
brjósti þeirra sem veittu mannin-
um eftirför og að lokum náðu að
róa manninn niður svo hann lagði
byssuna frá sér og gafst upp.
Félags íslenzkra bókaútgefenda,
Rithöfundasambands íslands,
Tónskáldafélags íslands og Sam-
bands tónskálda og eigenda
flutningsréttar (STEF) gerðu við
menntamálaráðuneytið 6. maí
1983. Þar var kveðið á um skipun
gerðardóms „til að úrskurða gjöld
fyrir ljósritun og hliðstæða eftir-
gerð rita í skólum, sem reknir eru
af íslenzka ríkinu eða styrktir af
almannafé".
„Ég er sáttur við þennan dóm,
bæði forsendur hans og niðurstöð-
ur og tel hann vel viðunandi fyrir
höfunda," sagði Sigurður Reynir
Pétursson hrl. í viðtali við Morg-
unblaðið í gær, en hann var aðal-
flutningsmaður málsins af hálfu
höfunda. „Ég fagna því, að dómar-
arnir eru sammála um niðurstöð-
ur dómsins og tel, að dómurinn sé
til styrktar og framdráttar höf-
undarrétti í landinu," sagði Sig-
urður Reynir ennfremur.
Gerðardómurinn, sem kvað upp
dóm þennan, var skipaður þeim
dr. Gauki Jörundssyni prófessor,
sem var formaður dómsins, Magn-
úsi Thoroddsen hæstaréttardóm-
ara og Ragnari Aðalsteinssyni hrl.
Auk Sigurðar Reynis Péturssonar
hrl. fluttu málið fyrir höfunda
þeir Magnús Sigurðsson hdl. fyrir
Blaðamannafélag íslands, Guð-
mundur Ingvi Sigurðsson hrl.
fyrir Félag íslenzkra bókaútgef-
enda og Birgir Sigurðsson rithöf-
undur fyrir Rithöfundasamband
íslands. Málflutningsmaður
menntamálaráðuneytisins var
Ásmundur Vilhjálmsson lögfræð-
ingur.
Mikil ölvun í Reykjavík:
Rýma varð
fangaklefa
svo fleiri
kæmust að
MIKIL ölvun var í Reykjavík á
föstudagskvöldið og aðfaranótt
laugardagsins. Allar geymslur
lögreglunnar fylltust svo rýma
varð klcfa til þess að bæta nýjum
við. Scxtán ökumenn voru teknir
grunaðir um ölvun við akstur,
þar af sex í gærmorgun.
„Fólk hefur fengið útborgað
um mánaðamótin og einnig er
útborgun orlofsfjár hafin.
Sjálfsagt hefur þetta hvort
tveggja átt þátt í hinni al-
mennu ölvun, sem var á föstu-
dagskvöldið og langt fram eftir
nóttu,“ sagði lögreglumaður í
samtali við blm. Mbl.