Morgunblaðið - 15.06.1984, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ1984
39
Golfleikarar eiga að geta fundið velli viö aitt hæfi í Michigan, en í ríkinu
eru hvorki fleiri né færri en 160 golfvellir. Golfbílar eru til reiöu fyrir þá
fótalúnu.
Útsýni af 74. hæö Renaissance
Center. Detroit-áin rennur á
landamærum Bandaríkjanna og
Kanada. Kanadíska borgin
Windsor á vinstri hönd.
lega jazz-hátíö i ágúst, þar sem
fram koma listamenn eins og Art
Blakey og hljómsveit, Teddy Wil-
son, Dizzie Gillespie, Betty Carter
og Modern Jazz Quartett, svo ein-
hverjir séu nefndir. Þá má nefna aö
dagana 22.-24. júni veröur einn
hluti heimsmeistarakeppninnar í
kappakstri, Formula eitt, haldinn í
borginni. Þetta er eini hluti keppn-
innar, sem fram fer á strætum
stórborgar í heiminum, en ekiö er
um götur í miðborg Detroit. Þessi
keppni var fyrst haldin 1982 og
sigraöi þá Bretinn John Watson.
Allir helstu ökuþórar heims veröa
meöal þátttakenda í ár. Fleira
mætti telja upp, s.s. glæsileg lista-
söfn og listsýningar.
Ferdast um
Michigan
I sumar veröa Flugleiöir aöeins
meö eina ferö til Detroit. Flogiö er
frá Luxemborg á föstudögum,
millilent í Keflavík og þaðan flogiö
beint til Detroit. í bakaleiöinni er
ekki lent í Keflavík, svo islenskir
feröalangar sem leggja leiö sína til
Detroit, veröa aö fljúga heim aftur
frá New York, Chicago eða Balti-
more. Væntanlega veröur feröum
á þessari leiö fjölgaö síöar meir ef
reynslan af þessu fyrsta sumri
verður góö. íslenskur feröamaöur,
sem fer til Detroit og ætlar heim
aftur i gegnum Chicago, getur
skoöaö margt á ökuferö milli þess-
ara tveggja borga. i stuttri ferö
eins og þeirri, sem undirritaöur fór
var ekki mögulegt aö sjá nema
brot af því. Skal hér aöeins staldr-
aö viö tvennt. í borginni Flint fékk
hópurinn aö sjá gríöarlega stóran
skemmtigarö, sem heitir Auto
Rannsóknarstofa Edisons. Þarna
geröi hann margar sínar merk-
ustu uppfinningar. Innanhúss er
allt meö sömu ummerkjum og
þegar Edison var aö brjóta þar
heilann og prófa sig áfram.
World og kosta mun 70 milljónir
dollara eöa 2.100 milljónir íslensk-
ar aö setja upp. Erfitt er aö lýsa
meö orðum öllu því sem þarna
verður aö sjá og upplifa. En í stór-
um dráttum verður saga bílsins
rakin og beitt viö þaö öllum hugs-
anlegum amerískum brellum svo
aö áhorfandinn fái þaö á tilfinning-
una aö hann sé sjálfur aö upplifa
atburðina. Garöurinn veröur
opnaöur 4. júlí nk. Hitt, sem vert er
aö nefna er Gerald Ford-safniö í
borginni Grand Rapids. i þessari
borg fæddist Ford og í safninu er
aö finna geysimargt um ævi þessa
fyrrum Bandaríkjaforseta. Flest er
þaö merkilegt og sögulegt en sumt
afkáralegt, svo sem sokkar, sem
Betty Ford forsetafrú notaöi þegar
hún var lítil!
Matur er mannsins
megin
Ekki er hægt aö skilja svo viö
Ameríku i þessum stutta pistli án
þess aö minnast á mat. Engri þjóö
hefur undirritaöur kynnst þar sem
matur skiptir jafn miklu máli. Flest-
ar auglýsingar í sjónvarpl snerust
um mat og þaö var sama hvert
komið var, alls staöar var fólk aö
boröa mat eöa narta í ís eöa ann-
aö slikkerí. Enda voru margir vel í
holdum. En Bandaríkjamenn eru
ekki aöeins áhugamenn um mat.
Áhugi á líkamsrækt er útbreiddur
og óteljandi möguleikar fyrir feröa-
menn í þeim efnum. Má t.d. nefna
aö í Michigan eru 160 golfvellir.
íslenskir áhugamenn um mat og
líkamsrækt hafa um margt aö velja
leggi þeir leiö sína til Michigan.
— SS
Gífurlegt
úrval
af fallegum
barnafatnaði
fyrir
þjóðhátíðina
KARNABÆR
BARNA- OG UNGLINGADEILD
A US TURS TRÆTI 22 — REYKJA VÍK.
SÍMI FRÁ SKIPTIBORDI 45800.