Morgunblaðið - 01.07.1984, Page 35

Morgunblaðið - 01.07.1984, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 1. JÚLÍ1984 35 Heræfingar Varsjár- bandalagsins MoNkvu, 27. júnf. AP. SOVÉSKAR herdcildir í Austur- l>ýskalandi, Póllandi og Tékkóslóv- akíu munu á nsstunni efna til her- æfinga undir stjórn Dimitri Ustinovs varnarmálaráðherra, að sögn Moskvu-útvarpsins. í fréttinni sagði enn fremur, að æfingar þessar tækju bæði til landhers og flota og næðu yfir sunnanvert Eystrasalt, auk fyrr- nefndra þriggja Austur-Evrópu- ríkja. Mæðgur myrtar í Angólu Jóhunnesurborff, 29. júnf. AP. HVÍT kona frá Suður-Afríku, sem barist hefur gegn aðskilnaðarstefnu stjórnvalda þar í landi, og sex ára gömul dóttir hennar, létu lífið þegar sprengja sem falin var í póstpakka sprakk á heimili þeirra í Angólu. Faðir konunnar, Janette Scho- on, sem var 35 ára gömul, sagði að sprengjan hefði verið svo öflug að mæðgumar hefðu látist sam- stundis. Hann kvað engin vitni hafa verið að atburðinum og ekki væri vitað hver hefði sent hinn banvæna pakka. Einstaklega falleg og nytsöm gjöf fyrir heimili þitt og annarra. Fallegar gjafaumbúðir. TEKK* 7 eða 11 einingar í pakka. ^ KRIST VLL Kr. 1.550.- og 2.450.- V Laugavegi 15 simi 14320 Kynnið ykkur okkar fallega úrval afpostulíns matar- og kaffistellum-ennfremur Mollensku stálhnífapörin spegilslípuðu. Áttræður á morgun: Sveinbjörn Árna- son kaupmaður Sumarferð Félags óháðra borgara Á morgun, mánudaginn 2. júlí, verður Sveinbjörn Árnason kaup- maður í Fatabúðinni áttræður. Hann er án alls efa meðal mæt- ustu borgara í Reykjavík, á að baki samfellt nálega 65 ára starf við verslunarstörf hér í borginni. Fyrst í Haraldarbúð en frá 1959 kaupmaður í eigin verslun. Sveinbjörn er fæddur í ólafsvík 2. júlí 1904, sonur hjónanna Ingi- bjargar Jónsdóttur og Árna Sveinbjörnssonar. Aðeins 9 ára að aldri missti hann föður sinn í sjó- slysi. En móðir Sveinbjarnar missti ekki kjarkinn heldur kom barnahópnum sinum til manns. Ég kynntist lítillega Ottó bróður Sveinbjarnar, sem var virtur þegn í Ólafsvik og í forsvari þar vestra. Sveinbjöm hóf störf hjá Har- aldi Árnasyni kaupmanni 15 ára að aldri i Haraldarbúð. Reykvík- ingar, sem nú eru á miðjum aldri og eldri, muna vel þessa myndar- legu verslun í Austurstrætinu. Það var sannkallaður heimsborg- arbragur, sem þar sveif yfir öllum vötnum, jafnt utan sem innan dyra. Og hver man ekki starfs- mennina, sem Haraldur Árnason réði til sín og gerði að yfirburða- mönnum við verslunarstörf. Næg- ir að minna á Kristján L. Gests- son, Pál Ámason, Sigurð Hall- dórsson, Guðrúnu Árnadóttur, Pétur Sigurðsson og ólaf Marlus- son auk Sveinbjarnar Árnasonar. Þessi Austurstrætisverslun, og þeir sem þar störfuðu, setti svo sannarlega svip á bæinn. Það segir e.t.v. meira en mörg orð um Har- ald Árnason og konu hans Guð- rúnu Bartels, að fyrsta starfsdag Sveinbjarnar, 17. jan. 1920, bauð Haraldur þessum unga utanbæj- arpilti heim til málsverðar og hélst svo allan veturinn. Og það er ekki að orðlengja, að starfsdagurinn sem hófst 17. jan. 1920 stendur enn og á vonandi langt í land. Enn rækir þessi hugljúfi maður starf sitt hvern dag af því ljúflyndi, þeirri skyldu- rækni og smekkvísi, sem einkennir hann svo mjög. Sveinbjörn ber hag og metnað verslunarstéttar- innar mjög fyrir brjósti. Honum hafa verið falin margvísleg trún- aðarstörf verslunarmanna og kaupmanna. Kaupmannasamtök fslands hafa sæmt hann gullmerki samtakanna, æðsta heiðursmerki þeirra. Gæfa Sveinbjarnar Árnasonar hefur ekki einskorðast við árang- ursríkt og farsælt ævistarf. Hjónaband þeirra Súsönnu Grímsdóttur spannar 53 ham- ingjusöm ár, þar af hafa þau búið í húsi sínu Hávallagötu 35 í 48 ár. Þau eiga þrjár dætur, Stefaníu, Ernu og Karolínu, sem allar bera föðurgarði fagurt vitni. Barna- börnin eru 10 og barnabarna- börnin eru 4. Kaupmannasamtök íslands FÉLAG ÓHÁÐRA borgara í Hafn- arfirði efnir til skemmtiferðar laugardaginn 14. júlí. Lagt verður af stað frá ráð- húsinu kl. 8 árdegis stundvíslega og ekið austur yfir Hellisheiði til Víkur í Mýrdal. Á leiðinni verður m.a. farið að Dyrhólaey og um Reynishverfið. Snæddur verður kvöldverður í félags- heimilinu að Hvolsvelli. Þetta verður 14. sumarferð fé- lagsins og hafa þær allar tekist með miklum ágætum. Fólki er ráðlagt að tryggja sér far sem fyrst, þar sem stundum hafa færri komist með en vildu. Þátttöku þarf að tilkynna í síð- asta lagi mánudaginn 9. júlí. Leiðsögumenn verða í bílun- um. Farmiðar verða seldir að Austurgötu 10 og í Bókabúð Böðvars. Sala farmiða hefst eft- ir helgina. (Fréttatilkynning) árna Sveinbirni og fjölskyldu hans allra heilla og vonast til að njóta hollráða hans og drengskapar enn um langa framtíð. Sveinbjörn tekur á móti gestum á afmælisdaginn f Oddfellow- húsinu kl. 5—7 s.d. Sigurður E. Haraldsson piasimiiwMapf® Gódcin daginn Tilvalið í öll „party Þessar formfögru postulínsskálar bjóða upp á ótrúlega marga möguleika vid uppröðun á matborðið, og þú getur komið gestum þlnum skemmtilega á óvart. <v> TIFISCHENREUTH GERMANY

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.