Morgunblaðið - 01.07.1984, Qupperneq 36
36
Terry Madden, framkvæmdastjóri i
tökustað.
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR L JÚLÍ 1984
Hazel Crombie og Jón Þór Hann-
esson, annar tveggja eigenda Saga
film i skrifstofunni i Höfn.
Arthur Wooster, leikstjóri hópsins (tv.), og Peter Bennet, aóstoóarleikstjóri.
ísjakinn sem notaður er við kvikmyndatökurnar.
Rúningadeildin að störfum, f.v.: Árni Árnason, Alpaklúbbs- Ekki verður sagt að stóll leikstjórans liti mikið yfir sér.
maður, Ragnheiður Harvey, umsjónarm. búninga og Martin
Grace, ihættuleikari.
Isjakmn sjaldnast þar aö morgni
sem skid var viÖ hann aö kvökH
Kvikmyndagerðarmenn við Jökulsárlón á Breiðamerkusandi,
þar sem unnid er að Bond-myndinni „A View to a Kill“ heimsóttir
MYNDIR OG'TEXTI; VILBORG EINARSDÓTTIR
JÖKULSÁRLÓN i Breiðamerkur-
sandi hefur löngum heillað margan
útlendinginn og ferðamenn haldið
þaðan með myndrænar minningar i
filmum. Enn á ný eru útlendingar að
mynda við lónið, en i nokkurn ann-
an máta en tíðkast hefur til þessa.
28 Bretar og um 20 íslendingar
vinna þar við kvikmyndatökur fyrir
upphafsatriði næstu myndar um
meistara Bond. Hún mun bera yfir-
skriftina „A View to a Kill“, sem
útleggst á íslensku „Víg í sjónmáli“.
Framleiðandi er Albert Broccoli og
er þetta 14. Bond-myndin sem hann
framleiðir. Aðstoðarframleiðandi er
Tony Pevsner, en kvikmyndafyrir-
tækið á bak við myndina er E.O.N.
Production Ltd. Handritið við sögu
lan Flemmings gerðu Michael Wil-
son og Richard Maibaun.
Kvikmyndatökuhópur 2 nefnist
sá sem vinnur við lónið, en hann
annast tökur án leikara. Er um að
ræða kvikmyndatökur með stað-
genglum og áhættuleikurum og
eru það flestar útitökur í mynd-
inni. Leikstjóri hópsins er Arthur
Wooster og aðstoðarleikstjóri við
íslandstökurnar er Peter Bennett.
ísland er fyrsti viðkomustaður
hópsins, sem á eftir að taka í
Sviss, París og í San Fransisco á
næstu sex mánuðum. Kvikmynda-
hópur 1 hefur vinnu sína í ág-
ústmánuði, en áætiað er að mynd-
in verði frumsýnd í janúar 1985.
Kvikmyndatökur fara fram á
Jökulsárlóni og á Breiðamerkur-
jökli, sem lónið kemur undan. Við
lónið hefur hópurinn komið sér
upp vinnubúðum í tjöldum, en tíu
litlir bátar eru notaðir til að flytja
fólk og farangur á tökustaðina.
Þegar blm. Mbl. heimsótti hópinn
á dögunum var blíðskaparveður
eins og það gerist best og tökur í
fullum gangi. Rigningin var þó að
vanda ekki langt undan og gerðu
veðurskipti lítil boð á undan sér.
Aðspurður um áhrif veðursins á
kvikmyndatökur sagði Bennett að
enn sem komið væri hefði það ekki
haft teljandi áhrif, en tökurnar
hér yrðu gerðar í góðviðri, eins og
reyndar Bond-myndir almennt.
„Birtan hér er það góð að við þurf-
um ekki að nota endurkastsspegla
við tökurnar og hún setur okkur
engar skorður hvað varðar töku-
tíma á hverjum degi, enda er
vinnudagurinn við lónið um 12
stundir. En það fer náttúrulega
ekki allt í tökur,“ sagði Bennett.
„Það tók okkur tvo daga að
finna hentugan ísjaka til nota við
tökur og Það eina sem við eigum í
erfiðleikum með straumurinn í
lóninu. Hann er í sjálfu sér ekki
mjög mikill, en nægur til þess að
ísjakinn sem við notum við kvik-
myndatökurnar er sjaldnast á
sama stað þegar við komum að
honum á morgnana og við skildum
við hann að kvöldi. Þetta getur
haft með sér nokkra örðugleika
varðandi bakgrunninn, en þar
þurfum við að hafa jökulbrúnina.
Það hefur ýmislegt verið reynt til
að stöðva þetta flakk á ísjakanum,
með misjöfnum árangri. Enn hef-
ur þetta ekki komið að sök, en
gæti orðið vandamál," sagði hann.
Peter Benett starfar nú við sína
fjórðu Bond-mynd, en flestir Bret-
anna í hópnum hafa áður átt þátt
í gerð James Bond-myndar. Má
þar nefna Terry Madden, fram-
kvæmdastjóra á tökustað sem er
að vinna við sína 3. og áhættuleik-
arann Martin Grace, sem er stað-
gengill Rogers Moore og starfar
nú í 5. sinn við Bond-mynd.
íslendingarnir sem vinna við
myndina eru þar á vegum Saga
film, fyrirtækis Jóns Þórs Hann-
essonar og Snorra Þórissonar, sem
er íslenskur umboðsaðili myndar-
innar. í þeim hópi eru Ágúst Bald-
ursson, sem ásamt Philip Kohler
er umsjónarmaður á tökustað,
Vera Siemsen, hjúkrunarfræðing-
ur og Ragnheiður Harvey, bún-
ingameistari. Létu þær aðspurðar
vel að öllum aðbúnaði og Ragn-
heiður sagði sína vinnu vart felast
í öðru en að hafa eftirlit með bún-
ingunum og sjá um smávægilegar
breytingar sem gera þyrfti, því að
fyrir þá átta menn sem mögulega
þyrftu búninga i tökunum hér,
Grace og varamann hans, þyrlu-
flugmanninn og aðstoðarmann,
auk íslensku skíðamannanna,
hefðu komið komið þrír aukabún-
ingar við hvern og einn aðalbún-
ing-