Morgunblaðið - 01.07.1984, Side 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. JÚLÍ 1984
Loksins fyrir Islendinga
12 daga gönguferö 6. og 20. júlí 1984.
Hekla, Eldgjá, Þórsmörk og Skógar.
Gist veröur í tjöldum. Torfærubifreiö flytur mat og farangur.
Einstakt tækifæri fyrir íslendinga,
sem vilja kynnast eigin landi.
Verð kr. 12.000. — Allt innifalið.
FERÐASKRIFSTOFAN
Miðnætursól
Laugavegi 66, 101 Reykjavík
Sími 23577 (kvöldsími 13781)
Telex 2068 Miönætursól/Skipatækni
Ökuleikni
á ísafirði
ínfírAi, 28. jnit.
ÍSAFJARÐARDEILD Bindindisfé-
lags ökumanna efnir til árlegrar
keppni í ökuleikni nk. sunnudag 1.
júlf.
Keppnin hefst kl. 13.00 með þrí-
hjólakeppni barna 3—5 ára og er
gert ráð fyrir hörkukeppni. Síðan
tekur við reiðhjólakeppni þátttak-
enda sex ára og eldri. Þegar
keppni á mannorku-farartækjum
lýkur, má reikna með að fjör fær-
ist í leikinn því þá taka vélhjólin
við. Þar verður keppt bæði á létt-
um bifhjólum og alvöru mótor-
hjólum. Hápunktur keppninnar er
svo ökuleiknikeppnin á bifreiðum,
en norðurlandameistari kvenna
frá síðasta ári, Auður Yngvadótt-
ir, er ísfirðingur og mun líklega
taka þátt í þessari keppni og ef
piltarnir fara ekki að taka sig á
gæti svo farið, að hún sigraði i
Islandsmeistarakeppninni sem
haldin verður í Reykjavík 8. sept-
ember i haust. 23 önnur bæjarfé-
lög taka þátt í keppninni.
Norðurlandakeppni verður ekki
þetta árið, en íslandsmeistaranum
verður boðið til Amsterdam í sig-
urlaun. Keppnin á sunnudaginn
fer fram í kringum nýja sjúkra-
húsið á Torfunesi og mun Reynir
Ingason, formaður ísafjarðar-
deildar BFÖ, ásamt Einari Guð-
mundssyni, framkvæmdastjóra,
sjá um keppnina ásamt fleirum.
Úlfar
Útifundur á
Lækjartorgi
Alþýðubandaiagið, Alþýðuflokkur-
inn, Bandalag jafnaðarmanna, og
Samtök kvenna á vinnumarkaði
gangast fyrir útifund á Lækjartorgi á
mánudaginn klukkan 17.30. Kjörorð
fundarins eru: Hrindum árásinni á
kjörin — Til baráttu í haust.
Ræðumenn fundarins verða:
Ásdís Leifsdóttir, verkakona,
Birna Þórðardóttir, læknaritari,
Jón Baldvin Hannibalsson, alþing-
ismaður, Ragnheiður Ríkharðs-
dóttir, kennari, Sigurbjörg Sveins-
dóttir, iðnverkakona, Stefán Bene-
diktsson, alþingismaður, og Svav-
ar Gestsson, alþingismaður. Fund-
arstjóri verður Guðrún Jónsdóttir,
borgarfulltrúi.
(Fréttatilkynning.)
Fagverk sf.
— verktakafyrirtæki
sími 26098
tekur aö sér eftirfarandi:
1. Sprunguviögeröir meö bestu fáanlegum efnum
sem á markaðnum eru. Efni þessi standast vel
alkalísýrur og seltuskemmdir. Hefur mikla
teygju og góöa viöloðun.
2. Þök: Tökum aö okkur allar viögeröir og breyt-
ingar á þökum. Þéttum bárujárn, skiptum um
járn o.fl. (Erum með mjög gott þéttiefni á slétt
þök).
3. Sjáum um allar viðgerðir og breytingar á glugg-
um. Kíttum upp glugga, setjum opnanleg fög,
glerísetningar o.m.fl.
4. Málning: Onnumst alla málningarvinnu utan-
húss sem innan.
Áhersla lögö á vönduö vinnubrögö og viöur-
kennd efni, vióráöanleg kjör og góöa þjónustu.
Komum á staöinn, mælum út verkiö, sýnum
prufur og sendum skrifleg tilboö.
Pantið tímanlega, sími 26098.