Morgunblaðið - 05.07.1984, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ1984
27
Þau standa að ratþrautinni, f.v. Erna Arnardóttir og Páll Guðmundsson hjá Auglýsingastofunni Örkinni, Gunnar
Gestsson og Hafþór Ferdinandsson, fjallagarpur, annar tveggja manna sem vita hvar hlutinn segulmagnaða er að
finna.
Feluleikur fyrir ratvísa
ferðamenn á miðhálendinu
„Tilgangurinn með þessari
þraut er að stuðla að aukinni úti-
vist fslendinga í eigin náttúru og
verðlauna ratvísan ferðalang,"
sögðu aðstandendur ratþrautar á
miðhálcndi fslands, sem nú er ver-
ið að hleypa af stokkunum, á
blaðamannafundi þar sem þeir
kynntu fyrirætlanir sínar.
Þeir sem standa að þrautinni
eru umboðsaðili SEIKO á ís-
landi, Þýsk-íslenska verslunar-
félagið, Auglýsingastofan Örkin
og Gunnar Gestsson, en sá síð-
astnefndi átti hugmyndina að
fyrirtækinu.
Inntak ratþrautarinnar er í
stórum dráttum það, að u.þ.b.
33,5 kílómetra í réttvísandi vest-
ur frá Arnarfelli litla í Hofsjökli
hefur verið komið fyrir auð-
kennilegum, segulmögnuðum,
hlut. Innan í hlut þessum er
rörbútur með áskrúfuðum botn-
lokum og hefur hann að geyma
ávísun á verðlaun, sem sá hlýtur,
er fyrstur finnur og hefur sam-
band við ofangreinda aðila.
Þrautinni er þannig háttað, að
sem flestir geti tekið þátt í
henni. Svæðið, sem hluturinn er
á, er sumarbílfært og auðvelt er
að komast fótgangandi þangað
frá Kerlingarfjallaafleggjara,
mátuleg dags gönguferð fyrir
Gunnar Gestsson fékk hugmyndina
aó ratþrautinni við það að horfa á
sjónvarpsklukkuna á skjánum eitt
kvöldið, en Arnarfell hið litla f
Hofsjökli er þar sem vísar hennar
snúast um ásinn. Hluturinn sem rat-
þrautin snýst um að fínna er í 33,5
km fjarlægð í réttvísandi vestur frá
Arnarfelli, en þeirri staösetningu
getur skeikað um 500 metra til eða
frá. Finnandi hlutarins getur til-
kynnt fundinn í síma 82677 eða
79414.
fjölskyldur og aðra ferðamenn,
innlenda jafnt sem erlenda.
Hugmyndina að þrautinni,
sem kennd er við SEIKO, fékk
Gunnar Gestsson kvöld eitt, er
hann virti fyrir sér sjónvarps-
klukkuna á skjánum heima hjá
sér. Kom honum þá til hugar, að
koma mætti eítirsóknarverðum
hlut fyrir á miðju landsins, eða
þar sem vísar sjónvarpsklukk-
unnar mætast í miðju ássins á
sjónvarpsskjánum. Eftir ljós-
myndun og samanburð á kortum
reyndist sá staður vera við Arn-
arfell hið litla, í Hofsjökli. En
þar sem það svæði er hættulegt
og illt yfirferðar, var horfið frá
því, að fela hlutinn þar og varð
að ráði, að koma honum fyrir
vestar, á aðgengilegra svæði. Um
síðustu helgi fóru síðan tveir
reyndir ferðamenn, þeir Hafþór
Ferdinandsson og Stefán Jóns-
son, upp á miðhálendi og komu
hlutnum fyrir og eru þeir þeir
einu sem vita upp á hár, hvar
hann er að finna. Leiðbeiningum
um nákvæma staðsetningu hlut-
arins verður dreift til allra
SEIKO-úrsmiða og hótela á ís-
lensku og ensku, og er öllum öðr-
um en starfsmönnum þeirra
fyrirtækja er að henni standa
heimil þátttaka í þrautinni.
Hluturinn er ofanjarðar, sýni-
legur berum augum og aðstand-
endur þrautarinnar lögðu sér-
staka áherslu á, að fólk ætti ekki
að þurfa að standa í torfæru-
akstri til þess að hafa upp á hon-
um, heldur vonuðust þeir til, að
þessi ratþraut yrði fjölskyldum
og öðrum ferðamönnum tilefni
til þess að stunda heilbrigða úti-
vist á hálendinu.
Nokkrum skiltum hefur verið komið fyrir á svæðinu þar sem hlutinn er að fínna, ferðalöngum til glöggvunar og
hvatningar.
Athugasemd við fréttatil-
kynningu frá Biskupsstofu
Morgunblaöinu hefur borist eftir- araldri rétt á að sækja? Hvers
farandi athugasemd: „I fréttatil-
kynningu frá Biskupsstofu segir, að
sótt hafí verið um tvö prestaköll af
sex. Þar er einni umsókninni sleppt,
frá sr. Herði Þorkeli Ásbjörnssyni,
sem sótti um eitthvert eitt hinna
prestakallanna (þ.e.a.s. sem enginn
annar sótti um).
Ástæður fyrir því að ég sótti um
þannig eru: 1. Vegna vinnu hjá Af-
urðasölu SÍS hentaði betur að bíða
eftir sumarleyfistímanum til þess
að fara í prestaköllin og kynna sér
þau áður en guðsþjónusta og kosn-
ing umsækjanda færi fram. 2. Eg
sótti um ákveðið prestakall (nafn
tilgreint) 1 mars sl., en að loknum
umsóknarfresti kom í ljós að ann-
ar umsækjandi var þar, sem vegna
vensla við sóknarprest hlaut að fá
brauðið. Þá var mér ekki gefinn
kostur á að sækja um neitt hinna
prestakallanna í staðinn en aðeins
tilkynnt að umsóknarfrestur um
það væri liðinn. Hvers vegna? í
tilkynningu frá Biskupsstofu nú er
tekið fram, að nýútskrifaðir guð-
fræðikandídatar geti nú sótt og
verði þau auglýst aftur að ári
liðnu. Hvers vegna aðeins ný-
útskrifaðir? Eiga ekki allir fyrr-
verandi sóknarprestar á umsókn-
Ættarmót í Steins-
staðaskóla
vegna reyna kirkjuyfirvöld að
mismuna guðfræðingum og prest-
um?
Ég leyfi mér hér með að krefjast
þess, að bæði biskup íslands og
núverandi kirkjumálaráðherra,
sem einnig fékk umsókn mína á
skrifborð sitt, svari því opinber-
lega hvort þeir ætli ekki að taka
umsókn mína gilda.
Hörður Þorkell Ásbjörnsson, síð-
asl sóknarprestur á Bíldudal.
Úrvals
nautakjöt
Ættarmót niðja Soffíu Zophaní-
asdóttur sem bjó á Brekku í Svarf-
aðardal og síðar á Sauðárkróki
verður haldið í Steinsstaðaskóla,
Skagafirði, 5.-8. júlí.
Mætum öll. (Fréttatilkynning.)
SPECK
Lensi-, slor-, skolp-,
sjó-, vatns- og
holræsa-dælur.
Útvegum einnig dælu-
sett meö raf-, Bensín-
og Diesel vélum.
SöyirOaiyigjiuiir
Vesturgötu 16,
sími 13280
Það munar um minna
U.N.I. gæöaflokkur
Okkar Skráð
verð verð
Nautasnítchel 375 590
Nautagullasch 327 487
Nauta roast beet 347 535
Nauta T-bone stelk 245 377
Nauta fillet 490 709
Nauta mörbrá 490 709
Nauta grillsteik 170 227
Nauta bógsteik 170 227
Nautahakk 195 332
10 kg. nautahakk pr. kg. 175 313
Nautahamborgari pr. stk. 14 kr. 24
Mánudaga, þriðjudaga og
miðvikudaga opið til kl. 7.
Opið fimmtudaga til kl. 20.
Opið föstudaga til kl. 20.
Visa — Kreditkorta-
þjónusta
Laugalæk 2
Verð
58.560/48.560.
COMBH3AIVIP
Verð
79.700/69.700.
COMBtCAMP
Verö
96.800/86.800.
í tilefni af 10 ára afmæli á samstarfi Benco og
Combi Camp gefum viö í sameiningu 10.000 af-
slátt af öllum 3 geröunum næstu 10 daga.
Benco
Bolholti 4, Reykjavík,
sími 91-21945 / 84077.