Morgunblaðið - 29.07.1984, Qupperneq 8
64
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ 1984
„Sonur okkar
skaut forsetann“
Hinckley-hjónin tala um gedveiki sonarins
Allt virtist leika í lyndi hjá Hinckley-fjölskyldunni fyrir rúmum þremur árum. Olíufyr-
irtækiö gekk vel, hjónabandið var gott og vinir og kunningjar mátu fjölskylduna mikils.
I»au hjónin voru sannkallaðir góðborgarar. En allt breyttist einn eftirmiðdag í mars þegar
yngsti sonurinn tók upp á því að skjóta sex skotum í átt að Ronald Reagan, Bandaríkja-
forseta, og særði hann og þrjá fylgdarmenn. Sonurinn var sýknaður og settur á geðveikra-
hæli en heiður fjölskyldunnar hafði verið svertur fyrir lífstíð. Bréf bárust víða að og í einu
stóð: „Nafn ykkar er einskis virði. Þið hafiö engu að tapa. Af hverju segið þið ekki frá
syni ykkar?“ l»au hjónin ákváðu að gera það og hafa helgað sig upplýsingastarfsemi um
geðheilsu og vona að þannig geti kannski eitthvað gott sprottið af geðveiki sonar þeirra.
Hinckley-hjónin hafa helgað sig upplýsingastarfi um geðheilsu.
John Hinckley, eldri, er 58
ára. Hann ferðast nú um
með Jo Ann, konu sinni, og flyt-
ur erindi um geðheilsu sonarins.
„Sonur okkar skaut forsetann,“
eru ávallt opnunarorð hans.
Hann vonast til að geta hjálpað
öðrum sem eiga í erfiðleikum
með sín börn. „Við viljum benda
fólki á aðvörunarmerki sem
fylgia geðveiki. Aðrir ættu að
átta sig á einkennum sem við
tókum ekki eftir. Á endanum
ætti að vera hægt að tala opin-
berlega um geðveiki eins og aðra
sjúkdóma," segir Hinckley.
Þau hjónin stofnuðu í fyrra
sjóð, sem þau kalla American
Mental Health Fund, og tekjur
Hinckleys fyrir ræðuhöldin
renna í hann. Þau vonast til að
sjóðurinn verði einn góðan veð-
urdag jafn áhrifamikill og
bandaríska krabbameinsfélagið,
sem hefur unnið geysilegt starf á
sviði krabbameinsmála.
Scott, eldri sonurinn, hefur
tekið við rekstri Vanderbilt-
orkufyrirtækisins og einbýlishús
fjölskyldunnar í Colorado hefur
verið leigt. Hjónin búa í tveggja
herbergja íbúð í McLean, út-
hverfi Washington DC, og heim-
sækja John yngri á spítalann
einu sinni í viku. Þar eru þau í
meðferð með s; ninum hjá sál-
fræðingi og segja það gagnlegt
en engan dans á rósum.
(Þýtt og endursagt, ab.)
Frá V-Þýzkalandi skrifar 29 ára
þriggja barna húsmóðir með mik-
inn Islandsáhuga:
Christa Köster,
Gustavstrasse 3,
4620 Castrup-Rauxel II,
W-Germany.
Læknastofa
Hef opnaö læknastofu aö Álfheimum 74.
Tímapantanir í síma 686311.
Andrós Sigvaldason.
Sérgrein: Lungnasjúkdómar og
almennar lyflækningar.
Legsteinar
granít — marmari
Opið kvöld Unnarbraut 19, Seltjarnarnesi,
og helgar sími 620809 og 72818.
Frá Ástralíu skrifar 24 ára karl-
maður með áhuga íþróttum og úti-
veru:
Alexander Dordevic,
26 Turner Street,
Greensborougb 3088,
Australia.
Bandarískur háskólastúdent með
áhuga á íslandi:
Joseph V. Castillo,
P.O. Box A-E nr. 5224,
C58490 San Luis Obispo,
California 93409,
U.S.A.
Átján ára piltur í Ástralíu með
áhuga á ferðalögum og ljósmynd-
un:
Lino Franich,
31 Windsor Road,
Wanneroo 6065,
Western Australia.
LE( MC Hamarsh tSTEIN, 4R .F. i81960
>SAIK H öfða 4 — Sím
Legsteinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf um gerð og val legsteina.
i { S.HELGASON HF ISTEINSMIÐJA ■ SKBvWUÆGI 48 SiMt 76677
★ ★ ★ ★ ★
ÓLYMPÍULEIKARNIR
í LOS ANGELES
NORÐURLANDAMÓT
UNGLINGA í KNATTSPYRNU
ÍSLANDSMÓTIÐ í
KNATTSPYRNU
ítarlegar og spennandi íþróttafréttir
AUGLYSINGASTOFA