Morgunblaðið - 29.07.1984, Side 28
84
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ 1984
1983 Unlv.r.il Pr... S.ndlcl.
„Gtetufbu ekk\ minn'st eitth\ja£><x
db Hún eiqi ekki a& \jera~ ob vasasi
i 5tereá-grdcjunum mínum."
ást er...
... eins heit og sandurinn
á sólarströnd
TM Rea U S Pat Ott — all rights reserved
«1984 Los Angeles Times Syndicate
&
Ekki veit ég hvort dóttir mín hefur
sagt þér að stundum missi ég
stjórnina á sjálfum mér, þegar hún
er ekki heima á þeim tíma sem
hún stefnir vinum sínum hingað?
Eyrirgefðu pabbi, ég hélt þú svæf-
ir?
HÖGNI HREKKVtSI
„ BG 'ALÍTAP jpú skfZT KVEFAPUR.."
íslensku Ólympíufararnir.
Erfitt að gera svo öllum líki
íþróttamaður skrifar:
Mikið hefur verið rætt og ritað
um afsögn Haraldar ólafssonar
lyftingamanns úr Ól-liði íslands
vegna óánægju hans með skipaðan
þjálfara og fararstjóra á Ólympíu-
leikana.
Sem íþróttamaður langar mig
til að segja hér nokkur orð varð-
andi þetta mál, þar sem ég er
kunnug Guðmundi Þórarinssyni
og hef reynslu af fararstjórn hans
og aðstoð í landsliðsferðum hjá
f rj álsíþróttalandsliði.
Haraldur segir í útvarpsviðtali
Sigríður skrifar:
Kæri Velvakandi!
Heldur þykir mér leitt að þurfa
að amast við armóðum starfs-
mönnum Tollstöðvarinnar, en svo
er komið fyrir mér að ég fæ ekki
orða bundist.
Um daginn þurfti ég að leysa út
pakkakríli mér sent erlendis frá,
og varð það erindi mitt ekki
áreynslulaust. Ég er gömul kona,
keyri ekki og fór því með strætis-
vagni ofan úr Breiðholti. Og ferð-
irnar urðu fleiri en ein, því ekki
fékk ég liðlega afgreiðslu f Tollin-
um.
Fyrst var ég send milli hæða, þá
milli húsa og svo loks heim, engu
nær pakkanum mínum en áður.
26. júlí, að Guðmundur sé ekki
hæfur til að gegna hlutverki farar-
stjóra og þjálfara á ól-leikunum.
Þetta kemur mörgum á óvart sem
Guðmund þekkja og þá sérstak-
lega frjálsíþróttamönnum. Hann
hefur bæði verið fararstjóri og
þjálfari hjá landsliðinu í frjálsum
íþróttum í mörg ár og ætíð staðið
sig mjög vel. Og ekki þjálfar hann
alla í landsliðinu.
Haraldur segir það tvennt ólíkt
að keppa í frjálsum íþróttum og
lyftingum. Það er rétt hjá honum,
Heimsóknir mínar í Tollinn urðu
þrjár. Ég var með öll tilskilin
skjöl í höndum, en afgreiðslufólk-
inu virtist vera meira í mun að
koma afgreiðslu málsins yfir á
næsta mann og veitti mér loðin
svör.
Ekki fann ég neitt upplýsinga-
búr í þessu völundarhúsi, þar sem
leið mín hefði getað verið greidd. í
staðinn var ég send heim í tví-
gang, dauðlúin og með útrunninn
skiptimiða.
Vil ég beina þeim tilmælum til
starfsfólks Tollstöðvarinnar að
það reyni að létta viðskiptavinum
sínum róðurinn í skerjagarði
tollskjala og myndi það farsælleg-
ast öllum.
þetta eru ólíkar keppnisgreinar,
en er ekki sami keppnisandinn og
einbeitingin ríkjandi á svo stórum
mótum sem ólympíuleikarnir eru,
þar sem vanir keppendur eiga að
vera hæfir til að standa á eigin
fótum? Haraldur segir í sama við-
tali, að hann geti ómögulega keppt
á leikunum nema þjálfari hans sé
á staðnum og aðstoði hann. Hann
segir líka, að þjálfari hans gefi
ráðleggingar sínar og æfingaplön í
gegnum sína, enda búi þeir tveir á
sitt hvorum landshlutanum.
Nú spyrja sjálfsagt margir: Er
ekki eins statt fyrir þjálfaranum
og Guðmundi að sjá Harald aðeins
í keppni? Það er alltaf erfitt að
velja fararstjórn og þjálfara I
utanlandsferðir íþróttafólks svo
öllum líki og á þetta sjálfsagt við
um flestar greinar íþrótta. En eitt
er víst, að í þessar stöður eru aldr-
ei valdir menn sem ekki valda
þeim. Ég harma það að Haraldur
Ólafsson lét sérþarfir sínar aftra
sér frá þátttöku í stærsta íþrótta-
móti sem sögur fara af.
Lyftingamenn, hafið þetta hug-
fast: Sameinaðir stöndum vér,
sundraðir föllum vér.
Þessir hringdu . . .
Myndum samtök
SJ. hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja:
Mig langar til að koma hér
dálitlu á framfæri varðandi
heimavinnandi húsmæður og
skattamálin.
Þær konur sem fara út á
vinnumarkaðinn slá því gjarn-
an fram, að þær verði að fara
út að vinna. Það má hins vegar
hafa það í huga að margar hús-
mæður verða að vera heima, og
á ég þá sérstaklega við að
bjarnafjöldi hamli því, að þær
geti farið út á vinnumarkað-
inn. Þær konur eiga engra
kosta völ, frekar en hinar sem
verða að fara út að vinna.
Hinar síðarnefndu sleppa
hins vegar miklu betur i skatt-
amálum, en í staðinn niðst á
þeim heimavinnandi. Þvi er e-
kki hægt að hafa þarna réttlát-
an hátt á og láta heimavinn-
andi konu fá helming af tekj-
um eiginmannsins yfir á sig?
Ég skora nú á heimavinn-
andi húsmæður að mynda með
sér samtök til að koma málum
sfnum á framfæri, þannig að
þær séu ekki niðurníddur þjóð-
félagshópur sem á er traðkað.
Strætisvagnaferðir gömlu konunnar í Tollinn urðu allmargar áður en hún
fékk afgreiðslu þar.
Loðin svör