Morgunblaðið - 03.08.1984, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 1984
37
Farþeginn
á toppnum
— Haukur Sigfússon
Jú, á þessum 18 árum sem óg
er búinn að vera á rútunum
hafa óhjákvæmilega mörg
spaugileg atvik komiö fyrir. En
maöur er líka fljótur aö gleyma
þeim og stundum má nú satt kyrrt
liggja!“ sagöi Haukur Sigfússon,
þegar viö slógum á þráöinn austur
á Reyöarfjörö og inntum hann eftir
skemmtilegu atviki úr rútubrans-
anum.
„Annars var þaö á síldarárunum
aö ég var einu sinni aö keyra
áhöfn, sem var aö koma aö sunn-
an úr helgarleyfi og var ekki laust
viö aö ástand sumra skipverja
bæri þaö meö sér. Einn þeirra var,
aö mér fannst, óþarflega drukkinn,
þannig aö ég ákvaö aö skilja hann
eftir. Sendi manninn aftur inn í
flugstööina viö Egilsstaöi og ók af
staö. Nú þegar viö erum komnir
inn í Egilsstaöi fara skipsfélagar
mannsins aö hafa orö á því hvort
ekki sé oröiö tímabært aö hleypa
manninum af toppnum. Ég ansaöi
þessu ekki, enda fullviss um aö
strákurinn væri í flugstöðinni.
Þegar viö erum síöan komnir í
Egilsstaöaskóg kemur skipstjórlnn
fram í til mín og spyr hvort aö óg
ætli aö drepa drenginn, hann hafi
séö í fæturna á honum uppi á
toppnum. Ég spyr þá skipstjórann,
sem aldrei smakkaöi vfn, hvort aö
hann sé nú oröinn fullur líka. „Nei,“
segir hann, „en þessi strákur
þarna á toppnum er á bát frá
Hafnarfiröi, sem hefur ekkert feng-
iö í sumar. Ég veit aö þaö vantaöi
tvo af áhöfninni þegar aö við fórum
frá Reykjavík og ef þú síöan drep-
ur þann þriöja þá kemst báturinn
ekki út.“ Hann hafði ekki fyrr
sleppt oröinu en aö „HJÁLP“ heyr-
ist öskraö af öllum lífs og sálar
kröftum uppi á þakinu. Þá fór óg
nú svona aö trúa því aö eitthvað
væri ekki alveg eins og þaö ætti aö
vera, stoppaöi bílinn og fór út. Þá
var stráksi aö staulast niöur af
þakinu og oröinn ódrukkinn meö
öllu, enda búinn aö þvælast á þak-
inu í tfu mínútur. Ég tók hann auö-
vitaö inn í bílinn og haföi hann
fram í hjá mér þaö sem eftir var
feröarinnar.
Það sem haföi gerst var aö þeg-
ar bílinn fór af staö viö flugstööina
haföi hann hlaupiö á eftir, náö í
stigann aftan á, klifraö upp á þak
og þar hélt hann sér í. Ég heyröi
þessa sögu nú þannig um daginn
aö ég heföi keyrt meö manninn á
toppnum alla leiö á Reyöarfjörö,
en það var nú ekki alveg svo."
— Þekkir þú ekki alla Austfirö-
inga eftir 18 ára keyrslu?
„Jú ég er allavega farinn aö
kannast viö flest andlitin. Og Aust-
firöingar eru þrælgott fólk aö ferð-
ast meö, eins og reyndar fleiri is-
lendingar," sagöi Haukur.
VE
HJÁESSO
Þrír bráöskemmtilegir
útileikir fyrir fjörmiklar fjölskyldur.
Ánægjuleg og góð hreyfing
hvar og hvenær sem er:
• í feröalaginu
• / garöinum heima
• / sumarbústaönum
Allt í einum, ótrúlega
ódýrum poka. Aðeins 298 kr.
Fjörpokinn fæst á bensínstöðvum
OLÍUFÉLAGIÐ HF
GRIÐLAND
SÆl-
KERANS
r
A hverjum degi bjóð-
um við úrval kjöt- og
fiskrétta af sérlega glæsi-
legum sérréttamatseðli
svo og rétti dagsins.
Renndu við, slappaðu
af og dekraðu við bragð-
laukana í Veitingastof-
unni Þyrli -griðlandi sæl-
kerans.
Veitingastofan
Opið frá kl. 8:00 til 23:30
Sími 93-3824