Morgunblaðið - 03.08.1984, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 1984
47
HVAD ER AÐ GERAST UM HELGINA?
Listasafn Einars
Jónssonar:
Sýning í Safna-
húsi og högg-
myndagarði
Listasafn Einars Jónssonar hef-
ur nú verið opnaö eftir endurbæt-
ur. Safnahúsiö er opiö daglega,
nema á mánudögum, frá kl.
13.30—16 og höggmyndagaröur-
inn, sem í eru 24 eirafsteypur af
verkum listamannsins, er opinn frá
kl. 10—18.
Mosfellssveit:
Grafík Lísu K.
Guðjónsdóttur
Lísa K. Guöjónsdóttir, mynd-
listarmaöur, sýnir nú í bókasafni
Mosfellshrepps í Markholti. Á sýn-
ingunni eru 20 grafíkverk og 9
smámyndir og er hún opin alla
virka daga kl. 13—20. Henni lýkur
10. ágúst.
Akureyri:
Verk Örlygs
Kristfinnssonar
Örlygur Kristfinnsson kynnir nú
verk sín í Alþýöubankanum á Ak-
ureyri. örlygur hefur haldiö fjórar
einkasýningar áöur, en aö sýning-
unni í Alþýöubankanum standa,
auk bankans, Menningarsamtök
Norölendinga.
Eden:
Jóna Rúna Kvar-
an
f Eden í Hverageröi stendur nú
yfir sýning á verkum Jónu Rúnu
Kvaran. Á sýningunni eru 40
myndir, málaðar með akrýllitum og
eru þær allar frá þessu ári. Myndir
Jónu Rúnu eru innsæismyndir og
aö sögn listakonunnar er dular-
gáfa hennar styrkur myndanna.
Sýningunni lýkur á þriðjudag.
SAMKOMUR
Árbæjarsafn:
Fiskafólk og
Gullbor
Árbæjarsafn er nú opiö alla
daga nema mánudaga kl.
13.30—18. Lokaö veröur á frídegi
verslunarmanna.
Þar stendur nú yfir sýning frá
Færeyjum, sem nefnist „Fiskafólk“
og fjallar hún um líf og störf fólks í
Færeyjum á árunum 1920—1940.
„Gullborinn“, sem notaöur var á
árum áöur viö gullleit í Vatnsmýr-
inni, veröur til sýnis og kaffiveit-
ingar veröa í Dillonshúsi.
FERÐIR
Feröafélag íslands:
Hveravellir og
Lakagígar
Feröafélag fslands fer í 9 helgar-
feröir (4 daga) um verslunar-
mannahelgina til eftirtalinna staöa:
Ábending
ÞEIM aðilum sem hafa hug á
að senda fréttatilkynningar I
þáttinn „Hvaö er aö gerast um
helgina?*' er bent á aö skila
þeim eigi síðar en kl. 18.30 á
miövikudögum. Efni ( þáttinn
er ekki tekið í gegnum síma,
nema utan af landi.
Asmundarsalur:
Magnús Heimir
MAGNÚS Heimir Gíslason, byggingarfræöingur, opnar á morgun
sýningu á um 40 vatnslitamyndum í Ásmundarsal við Freyjugötu í
Reykjavík. Á sýningunni, sem er fyrsta einkasýning Magnúsar
Heimis, veröa landslagsmyndir og myndir frá sjávarsíöunni, þ.á m.
myndir af nokkrum gömlum vitum. Sýningin stendur til sunnu-
dagsins 12. ágúst og veröur opin frá kl. 16—22 vírka daga og kl.
14—22 um helgar.
Dagur í Djúpinu
DAGUR opnar á mánudag, 6. ágúst, málverkasýningu t Djúpinu aö
Hafnarstræti 15. Á sýningunni veröa 17 myndir, málaöar meö akrýl-
litum og eru þær flestar málaöar á síöastliönu ári. Sýningin stendur
til loka ágústmánaöar.
Þórsmerkur, Nýjadals, Hveravalla,
Landmannalauga, Alftavatns,
Lakagíga, Skaftafells, Hrútfjalls-
tinda og Fimmvöröuháls. Á morg-
un er fariö í tvær feröir, til
Snæfellsness og Breiöafjaröareyja
og til Þórsmerkur. Dagsferöir eru á
sunnudag og mánudag kl. 13. Á
sunnudeginum er gengiö í kring
um Stóra-Meitil, en á mánudag er
gengiö frá Þríhnjúkum í Grinda-
skörö.
Útivist:
Kjölur og ðræfi
Útivist fer í kvöld í helgarferöir til
Þórsmerkur, Lakagíga, Kjalar og
Kerlingarfjalla, Skaftafells, Purk-
eyjar og á Hornstrandir, en þang-
aö veröur fariö frá Isafiröi kl. 14 i
dag. Á morgun kl. 8 er Þórsmerk-
urferö og þá og á mánudag eru
einnig dagsferöir í Þórsmörkina. A
sunnudag kl. 13 er ganga á Ker-
hólakamb í Esju og á mánudag
verður gengin gömul kaupstaöar-
leiö úr Osabotnum hjá Höfnum aö
gamla verslunarstaönum Básend-
um.
NVSV:
Þingvellir:
Gönguferðir
i sumar eru skipulagöar göngu-
feröir um Þingvelli. Föstudaga til
þriöjudaga gengur starfsmaöur
þjóögarösins með gestum frá
hringsjá á brún Almannagjár til
Lögbergs, „Kastala" og á Þing-
vallastaö. Feröin hefst kl. 8.45. A
föstudögum og laugardögum kl.
14 er gengið frá „Köstulum" að
Skógarkoti og Leirum. Sömu daga
kl. 16 er gengiö frá Vellandkötlu aö
Klukkustíg. i öllum þessum feröum
njóta þátttakendur leiösagnar.
NÁMSKEIÐ í heföbundnum hleösluaöferöum verður haldið á Há-
degisholti viö Leirvogsvatn ( Mosfellssveit um verslunarmanna-
helgina. Aö námskeiöinu standa útgefendur tímaritsins Torfumóö-
ir, sem fjallar um hleðslulist á íslandi og veröa Samtök áhugafólks
um hleöslulist stofnuö á þessu námskeiöi. Þar munu fimm hleðalu-
menn hvaöanæva af landinu leiöbeina fólki viö grjót- og torf-
hleöslu, efnistöku, skurö og hleðslu úr klömbru, avo fátt eitt sé
nefnt. Öllum er velkomiö aö koma viö é Hádegisholti um helgina.
Láttu þérlíðavel
Gefjunarteppi er góður ferðafélagi. Það skýlir,
yljar og prýðir. Taktu það með í ferðalagið
hvert sem er - hvenær sem er ^
sumar, vetur, vor og haust. yðSJjiÍD
LEIÐANDI í LIT OG GÆÐUM