Morgunblaðið - 04.08.1984, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 1984
21
Noregur:
Fyrsta lengingaraö-
gerð á Norðurlöndum
Osló, 3. ágúsL Frá Jan Erík
Lanre, fétUritara Mbl.
SAUTJÁN íra gömul stúlka,
Wenche Silseth, fri Gjemnesi i
Mæri, er nú í sjöunda himni. Hún er
nefnilega orðin sex og hilfum senti-
metra hærri en hún iður var.
Þetta hefur tekist eftir margar,
erfiðar aðgerðir, þar sem læknar
hafa lengt báða fætur stúlkunnar.
Er þetta í fyrsta skipti á Norður-
löndum sem slík aðgerð á sér stað.
Wenche hefur verið lágvaxin
alla ævi. Bekkjarfélögum hennar
fannst það aðhlátursefni, að hún
skyldi ekki vera hærri en 151
sentimetri. Þeir gerðu grín að
henni, og litlu stúlkunni þótti lífið
ömurlegt.
Svo las hún í vikublaði nokkru,
að stúlka hefði verið stytt um þó
nokkra sentimetra fyrir tilstilli
lækna. Þá ætti alveg eins að vera
hægt að lengja mig, hugsaði
Wenche með sjálfri sér og hafði
samband við sjúkrahús í Osló.
Með þvingum, aðfengnum bein-
merg og beinflísum hefur tekist á
nokkurra mánaða tímabili að
„prjóna við“ stúlkuna 6,5 senti-
metrum.
Hingað til hafa aðgerðirnar
kostað yfir 200.000 n.kr. og verið
greiddar af ríkinu. Litið er svo á,
að það hefði verið svo íþyngjandi
fyrir Wenche að vera svo stutt
sem hún var, að allur kostnaður
vegna aðgerðanna greiðist úr
sjúkratryggingum.
Samstöðuleiðtogar
vara við áfenginu
Varajá, 2. áfrÚKt. AP.
PÓLSKA kirkjan hefur tekið undir
þá áskorun, sem leiðtogar Samstöðu
hafa sent frá sér, þar sem hvatt er til
að Pólverjar dragi úr áfengisneyzlu.
Segir í áskorun kirkjunnar, að
hún beini þeim tilmælum til fólks
að neyta ekki áfengis í þessum ný-
byrjaða ágústmánuði. Síðan megi
svo sjá hver árangur þessa áróðurs
verði. Pólverjar neyta mikils vodka
eins og kunnugt er.
1 plaggi kirkjunnar sagði að lfta
mætti á þetta sem táknræn mót-
mæli gegn þeim „sem hafa kúgað
og undirokað okkur".
í AP-fréttum segir, að áfengis-
neyzla sé mjög alvarlegt félagslegt
vandamál. Sumir verkalýðsleiðtog-
ar hafa staðhæft að verð á vodka sé
haft svo lágt, að menn freistist til
að kaupa það og áfengineyzla sé til
þess eins að draga úr baráttuanda
og djörfung verkalýðsins.
Framseldur
Seamus Shannon úr írska lýðveldishernum (IRA), sem lýst var eftir vegna morðanna á fyrrverandi forseta
þingsins á Norður-írlandi, Sir Norman Strong, og syni hans, framseldur norður-írskum lögreglumönnum á
landamærum frska lýðveldisins og Norður-írlands. Shannon var framseldur samkvæmt úrskurði hæstaréttar
frska lýðveldisins.
Fellibylur á Englandi
Gofham. Kmrlandi. 3. áirúst AP. ^
Gotham, Knglandi, 3. ágúst AP.
FELLIBYLUR fór um bæinn Got-
bam á Mið-Englandi í gær og olli
skemmdum á um 50 húsum, auk
þess að rífa tré upp með rótum og
valda öðrum minniháttar skemmd-
um.
Lögreglan telur mildi að enginn
skyldi hafa hlotið meiðsl í felli-
bylnum, sem aðeins stóð yfir í
nokkrar minútur. Tryggingamenn
hafa metið tjónið i Gotham á um
200.000 sterlingspund, eða rúm-
lega átta milljónir ísl. króna.
Hraði fellibylsins var um 160
km á klukkustund og fór hann um
150 metra breitt svæði, að sögn
starfsmanna veðurstofunnar í
Nottinghamshire. Þeir segja að
nokkrir fellibyljir fari um Eng-
land á hverju ári, en þeir haldi sig
aðallega við opin svæði og fáir
verði þeirra varir.
|
Við eram komin í eina sæng
Bókaverslun Snæbjarnar er nú flutt á einn staö, í gjörbreytt og rúmbetra
húsnæöi aö Hafnarstræti 4. í hinni nýju verslun veröur einungis boöiö upp
á enskar og íslenskar bækur, auk fjölbreytts úrvals kennslugagna á spólum
og myndböndum.
Bókaverslun Snæbjarnar var stofnuö 1927. Þaö var yfirlýst stefna Snæ-
bjarnarJónssonaraðhafaeinungisvandaðarbækuráboðstólum, ogmun
hin nýja verslun starfa í anda stofnanda síns.
í hver mánaðarlok verður kynning á völdum bókum, sem boðnar veröa á
sérstöku kynningarveröi.
Sntrbj ör nUónss on^ Co.h.f
Hafnarstræti4, simi 14281
%
VERIÐ VELKOMIN í BÓKAVERSLUIM SNÆBJARNAR AÐ HAFNARSTRÆTI 4.