Morgunblaðið - 17.08.1984, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.08.1984, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1984 Yfirlýsing forstjóra Rainbow Navigation: „Trúi þessu illa fyrr en ég sé það gerast“ - segir aðstoðar- framkvæmdastjóri skipadeildar SIS „ÉG TEK þessum fréttum meö hæfi- legri varúö. Mér þykja yfirlýsingar for- stjóra bandaríska skipafélagsins hljóma einkennilega,** sagði Ómar Jó- hannsson, aðstoðarframkvæmdastjóri skipadeildar Sambandsins, í samtali við blaðamann Mbl. í framhaldi af við- tali blaðsins við Mark W. Yonge, for- stjóra Rainbow Navigation Inc., þar sem hann lýsti þvf yfir aö félag hans myndi á næstunni minnka flutninga sína til íslands um nærri 40%. Síðan í vor hefur Rainbow Navigation flutt yf- Þorsteinn Pálsson: skipti Stjórnvöld sér ekki af launabilum „Kjarasamningar eiga að vera verkefni aðila vinnumarkaðarins. Það er þcirra að ákveða launa- hlutíoll í samningum sfn á milli, en á hinn bóginn hefur ríkisvaldið að- stöðu til þess að jafna aðstöðu fólks í þjóðfélaginu, annars vegar með sköttum og hins vegar með tryggingabótum," sagði Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðis- flokksins, m.a. er blm. Vlbl. spurði hann í gær álits á þeim ummælum Steingríms Hermannssonar for- sætisráöherra í NT í gær f viðtali við NT í gær, þar sem forsætisráðherra er spurður hvort laun hljóti ekki að hækka í komandi kjarasamningum, seg- ir forsætisráðherra orðrétt; „... það hefur orðið launaskrið og ég óttast að það sé orðið meira launabil en æskilegt er. Ég get ekki leynt þeirri skoðun að lægstu launin verði að hækka eitthvað, þó ég vilji ekki nefna neinar prósentutölur þar um.“ Þorsteinn Pálsson sagði jafn- framt að það að beita sköttum og tryggingabótum væru tæki stjórnvalda til þess að aðstoða þá sem verst væru staddir, og það myndi ríkisstjórnin auðvitað gera áfram, en að öðru leyti yrði það að vera verkefni aðila vinnu- markaðarins að ákveða launa- hlutföll í samningum. „Einhvern veginn sýnist mér kröfugerðin núna miða að því að auka launabil og að verkalýðs- félögin séu fremur að stilla upp kröfum sinum núna til þess að vinna upp þá launajöfnun sem orðið hefur á siðustu mánuðum. Það er hins vegar þeirra mál, og stjómvöld eiga ekki að hafa af- skipti þar af,“ sagði Þorsteinn jafnframt. irgnæfandi meirihluta alls varnings til varnarliösins á Keflavíkurflugvelli. fs- lensku skipafélögin Eimskip og Haf- skip hafa flutt liðlega 16% varnings- ins. „Ég skil ekki hvað liggur á bak við ef þeir vilja ekki nýta skipin að fullu, eins og þeir hafa gert að und- anförnu. Ég trúi þessu illa fyrr en ég sé það gerast," sagði ómar. „Mið- að við þá taxta, sem þeir hafa notað fyrir flutninga til Varnarliðsins, þykir mér ósennilegt að þeir ætli að gefa eftir allt að 40% til að eiga möguleika á að flytja vörur fyrir Is- lendinga. Taxtarnir, sem hafa gilt fyrir flutninga á vegum Bandaríkja- hers, hafa þótt allgóðir, enda hefur varan í mörgum tilvikum verið öðruvísi samsett en vörur, sem fluttar eru á vegum íslenskra aðila. Það er ástæðan fyrir því, að farm- gjöld fyrir Varnarliðið hafa al- mennt verið ívið hærri en þau, sem íslenskir aðilar greiða." Ingvi S. Ingvarsson, ráðuneytis- stjóri í utanríkisráðuneytinu, sagði að íslenskum stjórnvöldum hefði enn ekki borist formleg tilkynning um þær breytingar, sem forstjóri Rainbow Navigation boðaöi í Morg- unblaðinu í gær. „Eimskipafélag ts- lands hefur metið þetta svo, að bandaríska félagið sé fyrst og fremst að bæta eigin afkomu á þess- ari flutningaleið. Við bíðum eftir nánari fréttum af þessu og málið hlýtur að skýrast fljótlega." Um það hvort hér kunni að vera tilraun Rainbow Navigation til að koma til móts við kröfur íslenskra stjórnvalda og skipafélaga sagði ráðuneytisstjórinn: „Það er gefið i skyn að svo sé. Við höfum ekkert formlegt í höndunum þar um.“ Reykjavíkur-maraþon árlegur viðburður Nú fer hver að verða síðastur til að skrá sig í Reykjavíkurmaraþon, sem fer fram 26. ágúst nk. Þegar hafa skráð sig um 150 manns þar af um 100 útlendingar, flestir frá V-Þýskalandi, Bretlandi og Banda- ríkjunum. Á meðal þeirra eru nokk- ur þekkt nöfn, þar á meðal breski heimsmeistarinn í 50 mílna hlaupi, Leslie Watson. Forráðamenn maraþonhlaups- ins fengu blaðamenn á sinn fund til að kynna þeim hlaupið. Á fundinum kom fram að hlaupið er fyrst og fremst fyrir hinn al- menna hlaupara. Hægt er að skrásetja sig i einn af fjórum flokkum, þ.e. maraþonhlaup, hálf- maraþonhlaup, 8 km hlaup, og sveitakeppni í 8 km hlaupi. Tekið skal skýrt fram að ekki er hægt að mæta rétt áður en hlaupið fer fram og segjast ætla að hlaupa heldur þarf að skrá sig til hlaups- ins, og rennur sá skráningarfrest- ur út næsta mánudag. Séretök keppnisskrá verður gef- in út með nákvæmu korti af hlaupaleiðinni og öðrum upplýs- ingum fyrir keppendur, og aðra áhugasama. Á kortinu verða vegalengdir merktar og drykkj- arstöðvar sýndar sem verða með um 5 km millibili. Læknar og hjúkrunarfólk verður keppendum til aðstoðar, bæði á meðan á hlaupinu stendur og er hlauparar koma i mark. Allir keppendur fá viðurkenn- ingu, og verða verðlaun afhent fimm fyrstu konum og fimm fyrstu körlum er koma í mark í hverjum flokki. Færeyingar að ljúka loðnukvóta sínum: Munu ekki leita eftir frekari veiðiheimildum FÆREYINGAR hafa nú ákveðið að fara ekki fram á frekari veiðiheim- ildir hjá Efnahagsbandalaginu á loðnumiðunum milli Grænlands og Jan Mayen gagnstætt því, sem áður var fyrirhugað. Nú eru þrjú færeysk skip á þessum miðum og munu þau Ijúka heildarkvótanum, 7.000 lest- um, í þessari veiðiferð. Halldór Ásgrímsson, sjávarút- vegsráðherra, sagði í samtali við Morgunblaðið, að hann væri ánægður með þessa ákvörðun Færeyinga og síðan væru fram- undan viðræður um framtíðar- skipan þessara mála, þegar Græn- land væri endanlega gengið úr EBE. „Grænlendingar taka við þessu málum sjálfir þegar þeir ganga úr EBE og við gerum ráð fyrir því að ganga frá samningum við þá um þessa veiði. Ég hef gert bæði Fær- eyingum og öðrum grein fyrir því, að við munum leggja á það áherzlu, að sem allra minnst verði veitt af öðrum á þessu svæði. Þeim mun færri, sem þarna stunda veiðar, þvi verður auðveldara að hafa stjórn á þeim, við verðum að ná betri stjórn á þessum málum. Við erum búnir að reyna það í mörg ár að ná samkomulagi um veiðar þarna, en það hefur ekki tekizt enn. Ég hef farið fram á það við Færeyinga að þeir hætti þessum veiðum og ítrekað það nú. Pauli Ellefsen, lögmaður Færeyja, mun funda um þessi mál í Færeyjum á næstunni og síðan liggur það fyrir að almennar samningaviðræður þurfa að hefjast um næstu áramót um samskipti Islendinga og Fær- eyinga. Þeir hafa tjáð mér það, að þeir muni ekki leita eftir frekari veiðiheimildum hjá EBE og þar með tel ég málið leyst í bili,“ sagði Halldór Ásgrímsson. 15%vextir betri ávöxtun en 5 % „ÞAÐ er eins með þessa reikninga og aðra að innstæðurnar stjórna því hvaða þýðingu vextirnir hafa. Og þaö liggur í augum uppi að reglurnar Innlánsstofnanir: Lausafjárstaðan nei- kvæð um 2,5 milljarða LAUSAFJÁRSTAÐA innlánsstofn- ana í lok júlímánaðar var neikvæð um rúmar 2.500 milljónir króna og hafði versnað frá lokura júní sam- kvæmt bráðabirgðatöhim Seðla- bankans um 500 til 600 milljónir króna, en þar af eru skuldir við út- lönd 400 milljónir. Staða viðskipta- bankanna er mjög misjöfn. Búnaðar- bankinn stendur best að vígi, en Út- vegsbankinn versL í lok júní var lausafjárstaða viðskiptabankana neikvæð um 2.015 milljónlr króna. Heildarinnlán f Útvegsbankan- um voru í júnílok 2.085 milljonir,- en lausafjárstaöan var neikvæð um 669 eða 32,09% af innlánum. Hjá Búnaðarbankanum var þetta hlutfall 5,31%, innlán 3.863 og lausafé neikvætt um 205 milljónir króna. í Samvinnubankinn 3tend- ur var lausafjárstaðan neikvæð um 183 milljónir króna eða 13,69% af innlánum, sem námu 1.337 roilljónum króna. I lok júní voru innlán hjá Landsbankanum 8.115 milljonir króna en lausafjárstað- an neikvæð um 753 milljónir eða 9,28% af innlánum. Hjá Iðnaðar- bankanum var hlutfallið 7,3%, innlán námu 1.439 milljónum króna, en lausafjárstaðan var neikvæð um 105 milljónir. Innlán hjá Verzlunarbankanum voru 760 milljónir króna og lausafjárstað- an neikvæð um 65 milljónir eða 8,55% af innlánum. Hlutfall Al- þýðubankans var 8%, innlán voru 437 milljónir króna en lausafjár- staðan neikvæð um 35 milljonir króna. um útreikning vaxta af innstæðum á ávísanareikningum tóku ekki breyt- ingum og hafa verið eins í tugi ára. En 15% vextir hljóta hvernig sem reiknað er að gefa betri ávöxtun en 5% vextir," sagði Stefán Gunnars- son, bankastjóri Alþýðubankans, þegar blaðamaður Morgunblaðsins bar undir hann ummæli Stefáns Hilmarssonar, starfsbróður hans í Búnaðarbankanum í Morgunblaðinu í gær, þar sem hann sagði að vextir af ávísanareikningum hefðu í flest- um tilfellum litla þýðingu fyrir launafólk. Vextir f Búnaðarbankan- um eru 5% á umræddura reikning um, en 15%hjá Alþýðubankanum. — Hefur það komið til tals að reikna dagvexti af ávísanareikn- ingum? „Ég hugsa að það þyrfti sam- þykki Seðlabankans til þess. Við höfum ekki sótt um að fá að gera slíkt. Fyrir nokkrum árum var sótt um slíkt leyfi af bðnkunum, en Seðlabankinn neitaði. Þá höfðu sumir bankar reiknað dagvexti af ávísanareikningum hátekjumanna en það var tekið fyrir það,“ sagði Stefán að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.