Morgunblaðið - 17.08.1984, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 17.08.1984, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1984 29 Coca Cola-mótiö Opna Coca Cola-golfmótiö veröur haldiö á Nesvellinum helgina 18. og 19. ágúst. Er þetta mót þaö elsta sinnar teg- undar, en þaö er opiö öllum kylfingum. Þaö er Nesklúbbur- inn sem sér um framkvæmd mótsins og eins og nafnið bendir til, gefur Coca Cola verölaun. Skráning er þegar hafin. Fannasbikar Opin kvennakeppni í golfi fer fram á Grafarholtsvelli um helgina, hinn svokallaöi Fann- arsbikar. Bakhjarlar mótsins eru Hanna og Valur Fannar og gefa þau öll verölaun á mótinu, en þaö eru glæsilegir skart- gripir. Aukaverölaun veröa veitt þeirri konu sem fer næst holu á 2. braut í fyrsta teig- höggi. Ræst veröur út á laugardag- inn klukkan 10.00 en klukkan 13.00 á sunnudaginn. Jafn- framt fer fram á Grafarholts- velli JónsAgnarsmótiö, sem er unglingakeppni. Hitachi-mót Golfklúbbur Selfoss heldur sitt árlega Hitachi-mót á Al- viðruvelli viö Sogiö, laugar- daginn 18. égúst. Keppt verö- ur meö og án forgjafar og veröur raast út frá klukkan níu um morguninn og til eitt eftir hádegiö. Glæsileg verölaun gefa þeir Vilberg og Þorsteinn, má nefna aö litsjónvarp fæst fyrir holu í höggi á einni braut og mynd- segulband fyrir sama afrek á annarri braut. Þeir sem fara næst holu á umræddum braut- um fá einnig glaöning. 5. flokkur Úrslitakeppnin í hraömóti fimmtaflokks mun fara fram á KR-vellinum um helgina. Keppnin hefst á morgun kl. 10 og lýkur meö úrslitaleiknum á sunnudaginn um kl. 15.15. Leikið er á tveimur völlum og því nóg um aö vera hjá þeim yngstu. Blikadagur HINN árlegi Blikadagur knatt- spyrnudeildar UBK veröur hald- jnn nk. laugardag 18. ágúat. Dagskráin veröur fjölbreytt aö vanda og má þar nefna kappleiki í ýmsum aldursflokkum og mæt- ast m.a. „Kópavogsrisarnir“ Breiöablik og Augnablik í spenn- andi uppgjöri. Tívolí, minigolf, knattþrautir, vítaspyrnukeppni o.fl stendur þeim sem mæta á þessa fjölskylduhátíö til boöa aö taka þátt í. öll fram- angreind atriöi fara fram á Kópa- vogsvelli frá klukkan 10.00—16.00. í Félagsheimili Kópavogs veröur kaffisala og hefst hún klukkan 15.30 og þar veröur síöan haldiö Biikaball um kvöldiö. Óskar Jakobsson hættur að keppa: „Vinur minn, veistu ekki að ástin er þyngdarlaus?“ Frá Sveini Sveinssyni, fréttaritara Mbl. í Bandaríkjunum. ÓSKAR Jakobsson, kúluvarpari í fremstu röð, var ekki meöal íalensku keppendanna. Þótti mörgum þaö skarö fyrir skildi, því hann var aö komast í góöa æfingu og farinn að kasta kúlunni reglulega yfir 20 metra, er hann varð fyrir þeim meiöslum sem komu í veg fyrir aö hann keppti fyrir íslands hönd i Los Angeles. Óskar var staddur í LA og fylgdist þar meö leikunum. Blm. náöi tali af honum áöur en hann hélt til Austin í Texas á nýjan leik. Er þaö rétt aö þú sért búinn að leggja kúluna á hilluna? „Já, ég er hættur sem kúluvarp- ari, hér eftir verður kúluvarp bara leikur. Ég er búinn aö vera aö kasta í 14 ár og er oröinn saddur á kúlunni. Þaö er líka kominn tími til að snúa sér aö öörum þáttum í lífinu og fara heldur mjúkum hönd- um um konuna en ekki kúluna til tilbreytingar. Ég er 29 ára og búinn aö vera í stífri æfingu síöustu 8 árin.“ Spila meiðslin inn í ákvöröun þína? „Fyrir ári síðan ákvað ég að taka mér ársfrí frá námi til að undirbúa mig fyrir Ólympíuleik- ana og hætta eftir það. Eg er í mjög góðu formi og mér datt ekki til hugar að eitthvað þessu líkt gæti komið fyrir mig, ég var far- inn að henda yfir 20 metra á æf- ingum.“ Hvað var þaö sem kom fyrir? „Ég var aö kasta á einni æfing- unni og allt gekk fullkomlega vel þar til i einu kastinu. Þá rann kúlan til í greipinni rétt áöur en ég lét hana flakka. Kúlan rann þannig til, aö of mikiö átak kom á vísifingur og var sem rýtingi væri stungiö í handarbakið á mér og hrært í. Sinafestingar í handarbakinu slitn- uöu. Þaö er ákaflega erfitt aö sætta sig viö svona lagað á síöustu stundu, en ekki skal gráta Björn bónda því svona eru jú íþróttirnar. Eins árs uppbygging getur hruniö á nokkrum sekúndubrotum. En getur þú ekki kastaö kringlu eftir sem áöur? „Ja, ætli ég dundi mér ekki frek- ar viö hana svona í rólegheitum mér til skemmtunar. Ég er ekki hættur líkamsrækt og mun halda mér í sæmilegu formi. Ég hef mjög gaman af þessu og sé ekki eftir tímanum sem ég hef fórnaö í íþróttirnar. Ánægjustundirnar hafa veriö ófáar og reynslan ómetan- leg.“ Ætlar þú aö halda sama trölls- lega vextinum, eöa grenna þig eitthvaö? „Ha ha, ætli ég fari ekki niður í svona 110 kg, létti mig um ein 10 kg.“ Kvartar konan þín ekkert und- an þyngdinni? „Nei vinur minn, veistu ekki aö ástin er þyngdarlaus?" Hvaö tekuröu þér fyrir hendur? „Ég á eftir nokkrar einingar í námi viö Austin-háskóla í Texas og lýk þar gráöu í íþróttafræðum næsta vor. Þar sem ég er ólækn- andi sport-„idjót“, ætla ég aö reyna fyrir mér sem þjálfari.“ Kemur þú þá heim eftir námiö? „Þaö er nú óráöiö, en helst vildi ég geta miölaö af reynslu minni til ungs og upprennandi íþróttafólks á íslandi. Möguleikarnir eru meiri hér vestra og eins og þróunin hef- ur verið, þá sækir íþróttafólk hingaö í aöstööuna sem er ekki sambærileg viö aöstööuna heima. Þaö er heilmikiö af efnilegum íþróttamönnum heima sem þarf aö virkja.“ Snúum okkur aö ööru, hvenær byrjaðir þú í íþróttum? „Ég byrjaði sem smágrislingur í fótbolta milli hliöa í Sigluvoginum og aö kasta grjóti úti á róló. Eftir aö metnaöurinn varö meiri fór ég aö fullnægja honum og læddist þá út á róló með fyrstu kúluna mína. Ég var þá svona 12 ára gamall. Síöan gekk ég í ÍR og hef veriö aö þessu á fullu meira og minna síðan ég var 15 ára. Ég haföi skilnings- ríka atvinnuveitendur og vann lík- amlega erfiöa vinnu, þannig byggöi ég mig upp bæöi á og utan vinnutíma." Hefur þetta ekki veriö dýrt og andjega erfitt í gegnum árin? „Ég fékk mikinn andlegan styrk • Óskar er búinn aö kveðja keppnisvellina. frá foreldrum mínum og ákveönum velvildarmönnum. Metnaöur minn var lika svo mikill, aö ég horföi allt- af fram á viö. Sumarkaupið fór allt i íþróttavörur og utanlandsferöir." Hvernig hefur sambandiö viö fyrirmenn í íþróttamálum heima verió? „Þaö hefur veriö gott og er rétt aö geta þess hvaö gott samband milli þeirra og íþróttafólks er mik- ilvægt. Þó að fé til íþróttamála sé yfirleitt af skornum skammti er ákaflega mikilvægt aö halda góöu persónulegu sambandi milli stjórn- armanna og upprennandi íþrótta- fólks. Unglingar sem eru aö byrja þurfa á fræöslu, uppörvun og persónulegum stuðningi aö halda. Persónuleg símtöl og hvatningar- kort voru mikill andlegur stuðning- ur og mega stjórnarmenn gera meira af þessu.“ Hvað finnst þér um notkun hormónalyfja í íþróttum? „Ja, úr því þú minnist á þetta vil ég nota tækifærió og mótmæla óraunhæfum og ósmekklegum aö- dróttunum í garö íþróttafólks í USA sem birtust i reykvísku dag- blaöi síóasta vetur eöa vor. Þar var þvi haldiö fram af fréttaritara og viömælanda hans að viö notuöum öll hormónalyf í okkar uppbygg- ingu. Fulltrúi frá „dópnefndinni" mætti og geröi mælingar sem sönnuöu aö fullyröingarnar áttu viö engin rök aö styöjast. En þegar eitri er stráó í akur bíöur hann þess seint bætur og afleiöingar þessara skrifa uröu til þess aó ýmsir aðilar sem höföu ætlað sér aó styrkja umrætt íþróttafólk, drógu sig til baka. Annars er þróunin í íþróttamálum nú sú, aó sálfræöin er oröin mikilvægari þáttur í uppbyggingu líkamans. Hormónar eru sem betur fer á hrööu undanhaldi. Sálfræóin er oröin einn stærsti þátturinn í íþróttafræöum í dag.“ Er völlur IA ónothæfur? NU ÞEGAR rignt hefur avo til stanslaust hér á suövesturhorni landsins eru knattspyrnuvellir á því svæöi mjög illa farnir og má segja aö sumir þeirra séu aö veröa ónothæfir sökum bleytu. Viö höföum samband viö Jón Gunnlaugsson, vallarstjóra á Akranesi og spuröum hann hvernig ástandiö hjá íslands- og bikarmeisturum ÍA væri. „Þaö er alveg Ijóst aö ef þaö á aó leika hér á grasvellinum á laug- ardaginn, en þá eiga Skagamenn aö leika viö KA, þarf veöriö aö lag- ast mikiö og ég efast reyndar um aö þaö myndi naBgja til aö völlur- inn yröi leikhæfur," sagöi Jón. Hann sagói aö í vikunni fyrir verslunarmannahelgi heföi veriö ráöist í aö endurbæta völlinn, hann heföi verió tekinn upp á um 300 fermetra svæði og settar á hann nýjar þökur, en síöan þá heföi ekki stytt upp á Akranesi og því væri allt á floti og auk þess væri þetta nýja sem í völlinn heföi veriö sett ekki gróiö. „Þaö er alveg Ijóst aö ef á aö leika þennan leik á laugardaginn hér á Akranesi þá veröur aö leika leikinn á mölinni en hvort það veröur gert get ég ekkert sagt um,“ sagöi Jón aö lokum. Við höföum einnig samband viö Hörö Helgason, þjálfari Skaga- manna, og spuröum hann aö þvt hvernig ástandiö væri á vellinum. Höröur sagöi aö völlurinn væri alveg á floti, þaö rinni bara ekki af honum vatniö, enda hefði rignt mjög mikið á Akranesi aö undan- förnu. Hann sagöi aö þaö væri fyrst íþróttabandalagiö sem tæki ákvöröun um þaö hvort þeir fengju aö leika á grasvellinum og ef þaö fengist ekki þá væri þaö ákvöröun knattspyrnuráös hvar leikiö yröi. „Ég veit ekki hvaö veröur gert í þessu máli, en þaö mun allt skýr- ast á morgun, föstudag, og þá verður tekin ákvöröun um hvernig tekiö veröur á þessu máli. Aö mínu áliti er þaö algjört neyöarúrræöi aö leika leikinn á malarvelli, en þaö er knattspyrnuráös aó ákveöa þaö endanlega," sagöi Höröur aö lok- um. Máli Gylfa áfrýjað EINS og Morgunblaöiö skýröi fré ó sínum tíma þá fundust merki þess aö Gylfi Gíslason, lyftinga- maður fré Akureyri, heföi notaö ólögleg lyf og var hann dæmdur í keppnisbann vegna þessa. Nú hefur lyftingasambandi íslands borist skýrsla um þetta mál og hefur málinu veriö áfrýjaö. Guömundur Þórarinsson, for- maóur lyftingasambandsins. sagöi í samtali viö blaöió aö á fundi sem lyftingasambönd Noröurlanda héldu í Los Angeles á meöan Ólympíuleikarnir stóöu yfir, heföi veriö ákveöiö aö áfrýja þessu máli og var þaö gert. Að þessari áfrýjun stóöu öll Noröurlöndin og sagöi Guömund- ur aö nú væri ekkert annaö aö gera en aö biöa og sjá til hverja lausn þetta mál fengi hjá alþjóóa- lyftingasambandinu. Hann sagðist vonast til aö afgreiösla þessa máls tæki ekki langan tíma en nú væri ekkert hægt aö gera annaö en biöa og vona.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.