Morgunblaðið - 17.08.1984, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 17.08.1984, Blaðsíða 13
 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1984 13 Grænland: Danskur rækju- togari sekkur Kaupmannahörn, 16. áffúst Frá Niels J. Bruun, (irænlandsrréUaritara Mbl. EINN af stærstu rækjutogurum Dana sökk snemma í raorgun í Dav- issundi, 200 sjómflur undan vestur- strönd Græníands. Áhöfninni, 28 manns, var bjargað um borð f fær- eyskan togara. Danski togarinn, Ocean Prawn, 722 tonn, var að rækjuveiðum í Davissundi í vondu veðri þegar hann rakst á ísjaka, sem reif stórt gat á síðuna. Skipið sökk á hálfum öðrum tíma en áhöfninni, 25 Dön- um og þremur Kanadamönnum, var bjargað um borð í færeyska togarann Fame. Var hann vænt- anlegur með skipbrotsmennina seinna í dag til Holsteinsborgar. Þess má geta, að Ocean Prawn hefur oft landað rækju á tsafirði. Thailand ekki tengt kynsvalli Kangkok, 16. ágúst AP. FERÐAMÁLARÁÐ Thailands hefur lagt fram ýmsar tillögur sem miða að því að breyta skoðun margra ferðamanna á því, að þar sé kynsvall eitt það helzta sem ferðamönnum er boðið upp á, segir f AP-frétt frá Bangkok. Verður beitt hinum ýmsu ráðum í þessu augnamiði og refs- ingar þyngdar gagnvart þeim sem reyna að færa sér í nyt þessa skoðun ferðamanna. Ferðamálaráðið hefur einnig á prjónunum að hafa meiri fjöl- breytni í skoðunarferðum og segir, að Thailand hafi upp á flest að bjóða sem glatt geti ferðamenn í leyfum sínum á uppbyggilegan og siðsaman hátt og því sé rangt að ferðamenn virðist tengja Thailand kynsvalli og hvers kyns svinaríi og öfuguggahætti. Svíþjóð: Eru kafbátar enn á kreiki? Stokkhólmi, 16. kgútH. Frá Erik Lidén, frétUriUra Mbl. í SVÍÞJÓÐ eru nú í uppsiglingu heitar deilur, sem hófust með því, að forsvarsmenn hersins lýstu því yfir, að kafbátar væru enn á kreiki innan sænskrar lögsögu. Varnarmálaráð- herrann hefur brugðist ókvæða við þessum yfirlýsingum og segir þetta nýjar fréttir fyrir sig. Claes Thornberg, sjóliðsforingi, lýsti þessu fyrst yfir þegar blaða- mönnum var kynntur ýmis bún- aður, sem herinn ætlar að nota við kafbátaleit, og síðar kom það sama fram í viðtali Svenska Dagbladet við Lennart Ljung, yf- irmann sænska heraflans. Anders Thunborg, varnarmálaráðherra, sem er í sumarfríi, tók þessum tíð- indum illa og krafðist tafarlaust skýringa á því hvers vegna hann hefði ekki verið látinn vita af þessu sem varnarmálaráðherra. í yfirlýsingu, sem Lennart Ljung hefur nú látið frá sér fara, dregur hann nokkuð í land og seg- ir, að „líklegt sé“ að erlendir kaf- bátar séu enn tíðir gestir í sænskri landhelgi. Claes Thornberg, sjó- liðsforingi, segist hins vegar ekki taka neitt aftur. Járnbrautar- brú hrundi Nýja Delhi, 16. áKÚxt. AP. AÐ MINNSTA kosti 25 manns lét- ust og á annað hundrað manns slösuðust í dag, þegar brú yfir fljót sem var í vexti, hrundi, þegar járnbrautarlest var að fara yfir hana. Ekki er vitað hversu margir voru í lestinni og því gæti tala lát- inna hækkað. Víðar á Indlandi hafa verið flóð og vatnavextir og manntjón og eignaskemmdir orð- ið. íbúar Scoresbysunds frábitnir hafnargerð Kaupmannahörn, 15. ágúsl Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Mbl. FULLTRÚAR grænlensku lands- stjórnarinnar eru um þessar mundir í Scorebysundi á austurströnd Grænlands til þess að ræóa vió heimamenn um staðsetningu birgða- hafnar vegna væntanlegra umsvifa við olíurannsóknir. Hingað til hafa samtök útgerð- armanna og sjómanna verið frá- bitin slíkum framkvæmdum þar sem þær mundu trufla og jafnvel útiloka veiðar í Scorebysundi og aðliggjandi fjörðum. Þeir sem fengið hafa leyfi til oliurannsóknanna vilja að höfnin verði í einum af útfjörðum Score- bysunds, Hurry-firði, sem skerst inn í landið að norðanverðu við sundið. Heimamenn hafa kraflst þess. að höfnin verði gerð fyrir norðan Jameson-land, þar sem rannsókn- irnar eiga að fara fram, í Carls- berg- eða Flemmingfirði, en þeirri hugmynd hafa olíufélögin vísað á bug. Sendinefnd landsstjórnarinnar hafði i farangri sínum tilboð handa heimamönnum um gerð flugvallar fyrir plássið, sem væri mun nær en völlurinn í Meistara- vík, sem danska ríkið áætlar að leggja niður, sennilega innan árs. En eftir því sem fram kom í grænlenska útvarpinu hefur tilboð sendinefndarinnar ekki orðið til þess, að heimamenn skiptu um skoðun. Þeir hafna samningum á sömu forsendu og áður, að hafnar- gerðin muni trufla og jafnvel úti- loka veiðar á þessum slóðum. TILBOÐ A RAR HREINLÆTISVORUM SPAR þvottaefni 3 kg. 119,95 SPAR mýkingarefni 4,0 I 84,20 SPAR mýkingarefni 2,0 I 45,50 SPAR hreingerningalögur 0,75 I 32,40 SPAR uppþvottalögur/toft 1,0 I 21,25 SPAR þvottaklór 1,0 I 28,70 SPAR ræstiklór 1,0 I 19,30 SPAR ræstikrem 0,5 I 25,65 SPAR uppþvottal. sítrón 0,5 I 24,40 SPAR uppþvottal. sterkur 0,5 I 23,95 HAGKAUP Reykjavík Akureyri Njarðvik

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.