Morgunblaðið - 17.08.1984, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 17.08.1984, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1984 Greiðslukortafyrirtækin um uppsögn matyörukaupmanna: Frjálsir að því að eiga við- skipti við þá sem þeir vilja „GreiðslukortafyrirUekjunum hefur verið sent bref þar sem farið er fram í frekari viðræður og jafn- framt höfum við óskað sérstaklega eftir því að rætt verði um þá mögu- leika að annaðhvort verði gert upp tvisvar sinnum ( mánuði við mat- vörukaupmenn eða að sá kostnaður sem matvöruverslanir bera í formi þjónustugjalds, sem nú er 2—3%, verði að mestu leyti felldur niður,“ sagði Gunnar Snorrason í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann vildi þó benda á að þó svo gengið yrði að annarri hvorri tiliögunni þá stæði sá kostnaður eftir sem nauðsynleg- ur væri vegna pappírsvinnu. „Við erum samt sem áður reiðubúnir til þess að ræða allar þær hugmyndir sem geta orðið til samkomulags i þessu máli en ef það ekki næst þá munu uppsagn- imar koma til um næstu mánaða- mót.“ Gunnar sagði ennfremur að matvörukaupmenn myndu kynna viðskiptavinum sínum þessa upp- sögn á næstunni með ýmsum hætti. Morgunblaðið spurðist fyrir um það hjá greiðslukortafyrir- tækjunum Visa ísland og Kredit- kortum hf. hvaða áhrif þessar uppsagnir hefðu á fyrirtækin. Einar S. Einarsson, fram- kvæmdastjóri Visa ísland, sagði, að þeim hefði borist bréf frá þeim matvörukaupmönnum sem sagt hefðu upp samningunum þar sem farið væri fram á frekari viðræð- ur og þá sérstaklega um tvær hugmyndir. Sagði hann að þegar hefði verið reynt að komast að samkomulagi og matvörukaup- mönnum þegar verið boðin mikil lækkun þjónustugjalda. Hann kvað þó stjórn fyrirtækisins ræða um þetta mál á fundi sínum í dag og athuga það nánar. „Það eru hins vegar ekki nema 23 matvöruverslanir, af 78 mat- vöruverslunum á höfuðborgar- svæðinu sem bjóða upp á notkun kortanna, sem hafa sagt upp og helmingur þeirra eru smáversl- anir sem hver um sig veltir ekki nema um 250 þúsundum króna í gegn hjá okkur á mánuði og borga um 7—8 þúsund á mánuði í þjónustugjald," sagði Einar. „Þessir aðilar eru hins vegar frjálsir að því að eiga viðskipti við þá sem þeir vilja. Ég fæ bara ekki betur séð en að þeir séu að bægja frá sér stórum hópi við- skiptavina sem einfaldlega munu leita þangað sem þeim verður gert kleift að versla á þann hátt sem þeir óska,“ sagði Einar að lokum. Haraldur Haraldsson, fram- kvæmdastjóri Kreditkorta hf, sagði að fyrirtækið hefði fengið ósk um viðræður og þeir væru reiðubúnir til þess að reyna að finna lausn á málinu. „Mér sýnist samt að þeir vilji að við sitjum og stöndum eins og þeim líst best,“ sagði Haraldur. „Ef þeir vilja eiga við okkur viðskipti þá verður að komast að samkomulagi um þau. Við lifum i frjálsu landi þar sem hægt er að gera frjálsa samninga og ef einhverjir vilja ekki eiga viðskipti við þá sem nota plastkort í staðinn fyrir peninga þá eru þeir frjálsir að því.“ Aðspurður um hvaða áhrif það gæti haft ef ekki næðist sam- komulag og til uppsagnanna kæmi, sagði hann að það kæmi til með að minnka veltuna að ein- hverju leyti en það væri ekki ólíklegt að þeir sem á annað borð notuðust við greiðslukort beindu viðskiptum sínum þangað sem kortin væru tekin góð og gild. „Sköpun,“ höggmynd Helga Gísla- sonar, sem í sumar veróur komið fyrir í Grasagarðinum í Laugardal. „Sköpun“í grasagarðinn í Laugardal „Sköpun“, bronshöggmynd Helga Gíslasonar, verður nú í sumar sett upp í grasagarðinum í Laugardaln- um í Reykjavík. Borgarráð samþykkti á fundi sínum 10. ágúst síðastliðinn að höggmyndin „Sköpun", sem borgin keypti af Helga Gíslasyni á sýn- ingu hans í febrúar á síðasta ári, verði komið fyrir í grasagarðinum í Laugardal. Til stendur að setja höggmyndina upp áður en sumri lýkur, en Helgi Gíslason og Haf- liði Jónsson garðyrkjustjóri borg- arinnar fundu höggmyndinni stað í sameiningu. Kamarorghestarnir. Frá vinstri eru Þorbjörn Erlingsson, Kristján Þór Sig- urðsson, Olafur Sigurðsson, Lísa Pálsdóttir og Björgúlfur Egilsson. Þau leika í Félagsstofnun stúdenta íkvöld og annað kvöld frá kl. 22. „Kamarorghestamir** á Islandi: „Spilum ruddarokk með blöðrupoppívafi" C'aster skipherra segir blaðamönnum eitt og annað um sögu skipsins. Bandaríski ísbrjóturinn Northwild heimsóttur „VIÐ KÖLLUM okkur „Kammer- rock“ í Danmörku — bæði er óhægt að snara nafninu „Kamarorghest- arnir“ yfir á dönsku og auk þess þykir danska nafnið penara," sögðu nokkrir liðsmenn íslensku rokk- hljómsveitarinnar þegar þeir áttu leið um miðborg Reykjavíkur í gær. „Kamarorghestarnir“ er fimm manna hljómsveit, skipuð ungum ís- lendingum, sem allir hafa verið bú- settir í Kaupmannahöfn undanfarin ár. Hljómsveitin hefur verið á ferða- lagi um ísland undanfarnar vikur en í lok þessa mánaðar halda þau utan aftur. Kamarorghestarnir hafa starf- að meira og minna óslitið í hart- nær áratug. Hljómsveitin var stofnuð sem einskonar leik- og kabaretthópur heimilisfólksins i kommúninni „Skúnknum", sem þá var til í Hveragerði. Um tíma voru liðsmennirnir átta og stundum níu en fyrir fimm árum varð breyting á: þá fækkaði þeim niður í fimm og hópurinn sneri sér að því að spila hressilega rokktónlist. Þeim vefst tunga um tönn þegar þau eru beðin að skilgreina tónlist sína — „neo post-punk“ hefur hún verið kölluð og stundum „ruddarokk með blöðrupoppívafi". En hvernig hefur svo gengið í sumar á hringveginum? „Æ,“ segir Lísa Pálsdóttir, söngvari sveitarinnar, „þetta hef- ur verið hálfgert leyniferðalag enda höfum við lítið verið auglýst. Hinsvegar hefur okkur verið mjög vel tekið af þeim, sem komið hafa á dansleiki okkar og hljómleika. Við ætlum að klykkja út með því að spila í Félagsstofnun stúdenta föstudags- og laugardagskvöld og svo erum við að velta fyrir okkur •,að spila á Austurlandi um aðra ' helgi-. ,Þar er okkar fólk — ein- spillir ekki að þar er jafnan miklu betra veður en hér sunnan!ands.“ Kamarorghestarnir gerðu hlé á samstarfinu í fyrra þar til þau tóku upp þráðinn aftur í vor. Nú hyggjast þau snúa aftur til Dan- merkur, leika þar eftir því sem að- stæður leyfa og snúa sér að gerð nýrrar hljómplötu. Fyrsta plata flokksins, „Bísar í banastuði", kom út fyrir fjórum árum og er nú ill- fáanleg. „Það ævintýri gekk.ekki nægilega vel,“ sögðu þau og glottu undirfurðulega. „Dreifingaraðil- inn hérlendis stóð ekki í stykkinu og svo spillti það verulega fyrir að tvö lög, sem þóttu hafa óviður- kvæmileg heiti, voru bönnuð í Ríkisútvarpinu. Við seldum rest- ina af upplaginu í Atlavík um verslunarmannahelgina. Nýja platan verður í nokkuð öðrum dúr en sú fyrri og við get- um leyft okkur að vinna hana í rólegheitum, því tveir okkar eiga hljóðver í Kaupmannahöfn. Á meðan reynum við að finna okkur útgefanda — það er nóg að gefa út eina plötu á eigin reikning. Text- arnir, sem við notum í Danmörku, eru flestir á ensku enda þýðir ekk- ert að bjóða Dönum upp á íslenska texta. Það þýðir að við myndum aðeins spila einu sinni á hverjum stað.“ Fimmmenningarnir — Lísa Pálsdóttir, Björgúlfur Egilsson (bassi), Kristján Þór Sigurðsson (gítar), Ólafur Sigurðsson (trommur) og Þorbjörn Erlings- son (hljómborð) — stunda ýmsa vinnu í Kaupmannahöfn: leigu- bílaakstur, skrifstofustörf, nám, hljóðfæraleik og einn vinnur á dönsku hagstofunni. Hvort þau koma aftur til íslands að ári segja þau að fari eftir ýmsu — allt gæti gerst. En þau segjast ákveðin í að halda áfram að spila glaðlega Að dvelja á ísbrjótnum Northwind í nokkra mánuði myndi ekki vera við hæfi margra. Á skipinu starfa 140 skipverjar og er ekki hægt að jafna dvölinni þar við veru á skemmtiferðaskipi, því æði þröngt er á þingi þar. Skipið er 40 ára gam- alt og hefur það oft lent í kröppum leik á heimshöfunum og á það að baki mörg björgunarstörf. Blaðamönnum var boðið um borð og sýndur farkosturinn sem nú liggur við festar í Sundahöfn. Skiphera ísbrjótsins, Caster, bauð upp á kaffisopa og fræddi blaðamenn um eitt og annað í tengslum við skipið. Hann sagði að fyrir einum og hálfum mánuði hefðu festar verið leystar í heima- höfn skipsins, Wilmington og var áð í Söndre Stromf jord ellefu dög- urrr f.cinrá Þar unnu skrpverj'ar að uppsetningu radíóvita og lögðu bauju við festar. Þaðan var haldið norður eftir endilangri strand- lengju V-Grænlands, til Thule og sama leið var sigld til baka. A leiðinni til íslands var komið við á mörgum stöðum, en á Grænlands- sundi hreppti skipið svo slæmt veður að flýta varð för þess um einn dag. Helstu verkefni ísbrjótsins eru fylgdarstörf á þeim svæðum sem mikið er um ís og ísrek. Þó er einnig fengist við ýmislegt annað svo sem björgunarstörf. ísbrjótar Bandaríkjamanna heyra undir strandgæsluna, sem lýtur stjórn samgöngumálaráðu- neytisins, og er því strandgæsla eitt af verkefnum skipsins. Á ÓfHðarjtímum getur forseti Banda- ríkjáóna gefrð á'it !ög sem innlíma strandgæsluna í herinn. Verkefn- um hefur t.d. verið sinnt við Bahamaeyjar og björgunaraðgerð- ir hafa komið við sögu skipsins. ísbrjóturinn Northwind er 40 ára gamall og kemur það meðal annars fram í rými og ýmsum þægindum sem á nýrri skipum væri að finna. Skipið er búið öllum nýjustu siglingatækjum eins og gervihnattasiglingatækjum. Caster skipherra sagði að sam- starf við íslenska aðila væri mjög gott og mætti til dæmis nefna Landhelgisgæsluna. Enfremur sagði hann að vegna góðrar legu væri ísland mjög hagstæður við- komustaður og væri gjarnan staldrað hér við. Héðan fer (sbrjóturinn North- wind í rannsóknarleiðangur til austurstrandar Græníands með vísindamenn. « > j ' •

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.