Morgunblaðið - 17.08.1984, Blaðsíða 32
OPIÐ ALLA DAGA — ÖLL KVÖLD
AUSTURSTRÆTI22
INNSTRÆTI, SÍMI 11340
OPIÐALLA DAGA FRÁ
KL. 11.45-23.30
AUSTURSTRÆTI22
INNSTRÆtl. SlMI 11633
FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Bótakrafa vegna
meintra mistaka
fæðingarlækna
HJÓN í Reykjavík fhuga nú kæru á
hendur Rikisspítölunum vegna
meintra mistaka lækna og hjúkrun-
arliös i fæðingardeild Landspítal-
ans.
Málavextir eru þeir, að konan
var lögð inn á fæðingardeildina
haustið 1982 og kom þá í ljós að
fóstrið var ekki í réttri stöðu.
Venja mun að gera keisaraskurð í
slíkum tilfellum. Lögmaður hjón-
Nýtt hjarta-
þræðingatæki
STJÓRN Ríkisspítalanna ákvað á
fundi sínum sl. þriðjudag að festa
kaup á nýju hjartaþræðingatæki af
gerðinni Siemens, en tækið kostar
tæplega 16 milljónir króna. Einnig
var ákveðið að bjóða út og kanna
tilboð í uppfyllingu á einnar hæða
byggingu á lóð Landspítalans, þar
sem fyrirhuguð er aðstaða fyrir
hjartalækningar.
Davíð Gunnarsson, forstjóri
Ríkisspítalanna, sagði í samtali
við Morgunblaðið að væntanlega
yrði hafist handa við fram-
kvæmdir við bygginguna nú á
næstu dögum, en reiknað er með,
að starfsemi hinnar nýju hjarta-
lækningadeildar geti hafist í
byrjun næsta árs. Davíð sagði
ennfremur að með þessu væri
verið að koma aðstöðu til rann-
sókna á hjartasjúkdómum í svip-
að horf og best gerist í heiminum
og mætti segja að hér væri um að
ræða fyrsta skrefið í þá átt að
hefja hjartaskurðlækningar hér
á landi.
BSRB frest-
ar ákvörðun
um verkfalls-
aðgerðir
STJÓRN og trúnaðarmannaráð
BSRB samþykkti á fundi sínum í
gær að skora á þá sem með for-
sjá ríkisfjármála fara að gera
BSRB gagntilboð og ganga til
samningaviðræðna hið allra
fyrsta, samkvæmt því sem Har-
aldur Steinþórsson varaformaður
BSRB upplýsti blm. Mbl. í
gærkveldi. Hann sagði að þessi
ályktun hefði verið samþykkt
einróma, með 52 atkvæðum við-
staddra.
Ályktunin er svohljóðandi:
„Sameiginlegur fundur stjórn-
ar og samninganefndar BSRB
skorar á forsvarsmenn ríkisins
og sveitarfélaga að leggja fram
gagntilboð og ganga til við-
ræðna við BSRB og aðildarfé-
lögin með það í huga að ná
samkomulagi sem allra fyrst.
Fundurinn ákveður að ef við-
unandi árangur næst ekki í
samningaviðræðunum verði
boðað til sameiginlegs fundar
stjórnar og samninganefndar
eigi síðar en 3. september nk.
til að taka ákvörðun um verk-
fallsboðun."
anna, Jón Steinar Gunnlaugsson,
sagði í samtali við blaðamann
Mbl., að það hefði þó ekki verið
gert. „Það var gerð svokölluð ytri
vending, sem hvorki er venjuleg
né eðlileg við slíkar aðstæður og í
því eru mistök lækna og hjúkrun-
arliðs fólgin,“ sagði Jón Steinar.
„Barnið leið af súrefnisskorti i
fæðingu og hlaut af varanlegan
heilaskaða."
Lögmaðurinn sagði enn fremur,
að hann hefði sent bréf til Ríkis-
spítalanna þar sem málavöxtum
er lýst og þvi, að þarna hefðu orðið
mistök, sem Ríkisspítalarnir bæru
ábyrgð á. í bréfinu er óskað eftir
afstöðu Rikisspítalanna til þessa
máls og það reifað, að spítalarnir
séu bótaskyldir. Er óskað eftir að
þeir viðurkenni ábyrgð sína. Jón
Steinar Gunnlaugsson sagði, að
neituðu Ríkisspítalarnir ábyrgð á
þessu hörmulega atviki færi málið
fyrir dómstóla. Ekki hefur áður
verið höfðað mál vegna meintra
mistaka lækna og hjúkrunarliðs
við fæðingu.
Slegið með gamla laginu
Hann Tóti á Finnbogastöðum gefur sér tíma til að líta upp frá slættinum og skyrpa hressilega á brýnið
áður en hann brýnir ljáinn að hann bíti betur. Hann veit sem er, að þrátt fyrir nýtízku tæki og vélar létu
forfeður hans orfið og Ijáinn duga til að fella grasið og með þrautseigju kemur hann heyinu í hlöðu.
Sjömannanefnd skilar bráðabirgðaáliti:
Búvörur verði háðar
framleiðsluleyfum
HIN svokailaöa sjömannanefnd sem
Jón Helgason landbúnaðarráðherra
skipaði í aprfl síöastliðnum til að
huga að bættu skipulagi framleiðslu
landbúnaðarvara og fleira, hefur
skilað bráðabirgðaáliti til landbún-
aðarráðherra. Nefndin leggur meðal
annars til að stjórnvöld og bænda-
samtökin semji um að framleiðend-
um verði tryggt fullt verð fyrir
ákveðið heildarmagn mjólkur og
sláturafuröa. Jafnframt yrðu gerðir
framleiðslusamningar við alla bænd-
ur þar sem þessu heildarmagni yrði
skipt i milli þeirra og þeir gætu síð-
an ekki vænst þess að fá neitt fyrir
það sem þeir framleiddu umfram
það.
Nefndin leggur einnig til að öll
búvöruframleiðsla, sem ætluð er
til sölu á almennum markaði,
verði háð framleiðsluleyfum þar
sem tiltekið væri um hámarks-
magn og tegund framleiðslu.
Sveinbjörn Dagfinnsson ráðuneyt-
isstjóri í landbúnaðarráðuneytinu
sem er formaður sjömannanefnd-
arinnar, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að tilgangur nefndar-
manna með þessari tillögugerð
væri fyrst og fremst sá að meiri
stjórnunarleg tök náist á fram-
leiðslunni en það væri i allra þágu,
Seðlabankinn:
Vextir gamalla skulda-
bréfa 23%eftir 11. ágúst
Hækkunin nemur tveimur prósentustigum
SEÐLABANKINN hefur ákveðið að hæstu lögleyfðu vextir á skuldabréfum
útgefnum fyrir II. ágúst skuli frá og með 20. ágúst vera 23% og er hækkunin 2
prósentustig.
Nokkur óvissa hefur verið innan
bankakerfisins um hverjir hæstu
lögleyfðu vextir séu í raun og hefur
verið vitnað til vaxta á viðskipta-
skuldabréfum Búnaðarbankans,
sem eru 28% með samþykki Seðla-
bankans. Hefur einnig verið vitnað í
lög um okur, dráttarvexti og fleira
nr. 58 1960, en þar segir í 2. grein að
heimilt sé að taka ársvexti af skuld
með veði í fasteign eða með hand-
veði, sem séu jafnháir þeim vöxtum
er stjórn Seðlabankans leyfir bönk-
um og sparisjóðum að taka hæsta.
Margir bankamenn hafa lagt
þann skilning i þessi lög að hæstu
lögleyfðu vextir á skuldabréfum séu
því 28%, hvort sem þau eru gefin út
fyrir 11. ágúst eða eftir þann tíma
og því ættu vextir að hækka um 7%.
„Hæstu löglegu vextir eru ákveðn-
ir fyrir einstaka lánaflokka og af
skuldabréfum eru þeir 28% eftir 11.
ágúst,“ sagði dr. Jóhannes Nordal
Seðlabankastjóri þegar hann var
spurður álits á umræddu atriði. Að
sögn Jóhannesar Nordal eru það
eingöngu viðskiptaskuldabréf sem
bera svona háa vexti og eingöngu
þau sem gefin eru út eftir 11. ágúst.
Á almennum skuldabréfum útgefn-
um fyrir sama tíma geta vextir
hæstir orðnir 26% hjá Samvinnu-
bankanum. Eldri skuldabréf munu
hins vegar samkvæmt ákvörðun
Seðlabankans bera frá og með 20.
ágúst hæst 23%, eins og áður segir.
„Varðandi gömlu skuldabréfin er
á það að benda að í þeim flestum er
beinlínis höfðað til vaxtaákvarðana
Seðlabankans. Það er því óhjá-
kvæmilegt til þess að skapa eitt-
hvert réttaröyggi í þeim samningum
að Seðlabankinn ákveði þá vexti. öll
ný lán sem veitt eru bera þá vexti
sem bankarnir hafa auglýst." Að-
spurður sagði Jóhannes Nordal það
mat Seðlabankans að ákvörðun
Seðlabankans um vexti á skulda-
bréfum útgefnum fyrir 11. ágúst
stæðist að lögum.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur ákvörðun Seðlabank-
ans vakið nokkra óánægju meðal
bankamanna sem hafa bent á að
annað hvort verði Seðlabanki að
horfast í augu við gerðan hlut eða
draga aftur til baka leyfi Búnaðar-
bankans og annarra banka sem hafa
vexti á skuldabréfum hærri en þeir
geta sætt sig við. Þá óttast margir
að hætta sé á að nú sé verið að
draga í land hvað varðar frelsi inn-
lánsstofnana til að ákvarða vexti.
bæði bænda og neytenda. Sagði
hann að ef hugmyndunum yrði
hrint í framkvæmd þá ætti einnig
að verða auðveldara fyrir stjórn-
völd að halda utan um þessi mál,
þau vissu um hvaða stærðir væri
að ræða.
Sveinbjörn sagði að nefndar-
menn hefðu verið sammála um
þessar hugmyndir en vildu að
þeim yrði komið í framkvæmd á
rúmum tíma. Tók hann fram að
þetta væru frumhugmyndir sem
alveg væri eftir að vinna úr. í sjö-
mannanefndinni eiga sæti auk
ráðuneytisstjórans, Ingi Tryggva-
son formaður Stéttarsambands
bænda og fimm bændur: Birkir
Friðbertsson í Birkihlíð, Sigurður
Þórólfsson I Innri-Fagradal, Jó-
hannes Torfason á Torfalæk,
Þórður Pálsson á Refsstað og Her-
mann Sigurjónsson í Raftholti.
Söl handa veð-
hlaupahestum
Miðhús, 16. íkúsI.
í GÆR voru tíu manns frá Þörunga-
vinnslunni á sölvafjöru suður f
Saurbæ í Dalasýslu. Þegar heim er
komið eru sölin þurrkuð og möluð,
síðan eru þau flutt út til Bandaríkj-
ana, en þar eru þau notuð sem fjör-
efni í fóðurblöndur fyrir veðhlaupa-
hesta.
Verðið er allgott eða 3,4 dollarar
fyrir kílóið, sem samsvarar 105
krónum islenskum. Þar sem hér er
um lítið magn að ræða, er það eng-
inn sérstakur búhnykkur fyrir
Þörungavinnsluna nú, en séu þess-
ar ferðir upphaf að nýtingu sölva
til manneldis, þá er betur af stað
farið en heima setið.
— Sveinn