Morgunblaðið - 17.08.1984, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1984
Náttúruvemdarfélag Suðvesturlands:
Grasgarðurinn
í Laugardal
Holtasóley (dryas octopetala, L) óblómguð, oft kölluð rjúpnalauf og þegar
hún hefur þroskuð aldin, hármey eða hárbrúða.
NVSV, Náttúruverndarfélag Suð-
vesturlands, fer ekki í ferð laug-
ardaginn 18. ágúst. Þeim sem ekki
fara úr bænum um helgina er bent
á að skoða grasagarðinn í Laug-
ardal en þar er að sjá um 300 teg-
undir íslensku flórunnar auk
' Tjölda erlendra tegunda. í garðin-
um er afmarkaður reitur þar sem
íslenskum plöntum hefur verið
komið fyrir á mjög skemmtilegan
hátt. Það er því aðgengilegt fyrir
fólk að kynna sér íslenskar jurtir
þarna og gefst þátttakendum úr
ferðum félagsins og öðrum, gott
tækifæri til að rifja upp kunnáttu
sína og njóta um leið útiverunnar
í gróskumiklu umhverfi.
Þó margar plöntur séu komnar
langt á þroskabrautinni vegna
hlýindanna framan af sumri og
sumar hverjar jafnvel búnar að
fella fræ er enn ýmislegt athygl-
isvert að sjá.
Plöntúr, sem blómstra seint á
sumri, standa nú í fullum blóma.
Af íslenskum tegundum má nefna
blákollu, lyngbúa, rauðkoll, blá-
klukku og beitilyng. Undafíflarnir
ættu að skarta sínu fegursta ef
sólinni þóknast að láta sjá sig.
Ýmsar plöntur standa með full-
þroska fræjum. Nú fara að verða
síðustu forvöð að fylgjast með ald-
inþroska, þar sem starfsfólk
garðsins fer brátt á kreik og hirðir
fræin. Hvannir, mjaðjurt, súr-
mæra, lækjasóley og flestar teg-
undir af krossblómaætt bera nú
þroskuð fræ. Fræhirslur fjólanna
og dúnurtanna opna sig væntan-
lega í næsta sólskini.
Ýmsar hávaxnar iniifluttar
blómplöntur fóru heldur illa í
hvassviðrinu eftir verslunar-
mannahelgina, en samt er ekki
allt farið forgörðum í þeim hluta
garðsins. Lyklarnir (primula) eru
margir afar fallegir núna, sömu-
leiðis margar murur (poetentilla),
klukkur (campanula), vendir
(gentiana) og rósalauf (acaena). í
ertublómaættinni og körfublóma-
ættinni má einnig finna ýmislegt
athyglisvert, bæði blóm og fræ.
Vert er að vekja athygli á
nokkrum skemmtilegum risa-
hvönnum í suðurhluta garðsins.
Þær gefa frá sér sterkan ilm og
draga að sér fjölda skordýra.
Af runnum má nefna kvisti
(spirea), roðaber (berberis), og
rósir, sem mikið úrval er af hér og
hvar í garðinum. Þess má geta að í
uppeldi eru nú 109 rósategundir
sem aldrei hafa verið reyndar hér
á landi áður. Tré og runnar eru í
ágætu ástandi þrátt fyrir regnið,
eins og vaxtarsprotar sýna.
í sumar hefur verið plantað út
úr gróðurhúsi í uppeldisreit mikl-
um fjölda nýrra jurta og runna, og
vera kann að einhverjum þyki
fróðlegt að skoða.
Mikið er af spörfuglum í Laug-
ardalnum t.d. skógarþröstum,
máríuerlum og auðnutittlingum.
Fuglarnir í garðinum eru alveg
einstaklega spakir og elta stund-
um starfsfólkið, einkum ef verið er
að reita arfa eða róta í moldarbeð-
um. Tjarnirnar í íslenska garðin-
um njóta einnig vinsælda hjá
þeim, til baða.
Nýlega er búið að endurnýja og
bæta inn merkispjöldum og eru nú
flestar tegundir vel og greinilega
merktar með latnesku heiti og ís-
lensku ef það er til. Fólk er beðið
að ganga vel um garðinn og taka
ekki plöntur til þurrkunar, þar
sem slíkt rýrir mjög fræuppskeru
ársins.
Drifum okkur öll í grasagarðinn
í Laugardal. Hann er opinn frá
10.00 til 22.00 um helgar og frá kl.
8.00 til 22 virka daga.
Bestu óskir um góða skemmtun
og sól um helgina.
(Frá NVSV.)
Kór Víðistaðasóknar. Fremst er stjórnandi hans, Kristín Jóhannesdóttir.
Hafnfirskur kór til Finn
lands og Álandseyja
TUTTUGASTA og sjöunda júní sl.
lagði kór Víðistaðasóknar í Hafnar-
firði upp í söngferðalag til Finnlands
og kom m.a. til Alandseyja þar sem
hann tók þátt í 10 ára afmælishátíð
l „Álands Orgel Festival“. Voru þar
haldnir tveir konsertar fyrir húsfylli,
annar í St. Görans-kirkju og hinn í
Lumparland-kirkju, en auk þess
söng kórinn utan dagskrár á elli-
heimilum.
Á Álandseyjum sat kórinn veg-
lega veislu íslenska konsúlsins
þar, Williams Nordlunds, og konu
hans, frú Maggie, en meðal gesta
voru finnsku sendiherrahjónin á
íslandi, Martin og Ulla Isaksson,
og ýmsir frammámenn lands-
stjórnarinnar á eyjunum. Að
Álandseyjaferðinni lokinni var
haldið til Hámeenlinna, vinabæjar
Hafnarfjarðar í Finnlandi, og var
I þar tekið á móti kórnum með kost-
um og kynjum. Voru þar setin há-
degisverðarboð bæði sóknarnefnd-
ar og bæjarstjórnar og síðan farið
í skoðunarferð um nágrennið, sem
lauk með saunabaði að finnskum
hætti og grillveislu, sem Norræna
félagið stóð að ásamt bæjarstjórn.
Síðustu dögunum eyddu kórfé-
lagar í Helsinki þar sem Islandia-
félagið bauð til skoðunarferðar
um borgina. Lauk henni með
stórkostlegum móttökum á hinum
fallega herragarði íslandsvinarins
prófessors Ahlströms.
Öll ferðin var einstaklega
ánægjuleg og gætti hvarvetna
mikils hlýhugar í garð Islendinga.
Fóru kórfélagar heldur ekki í
grafgötur með, að þar nutu þeir
ekki síst Vigdísar Finnbogadóttur,
forseta, en heimsókn hennar til
Finnlands fyrr í vor vakti mikla
athygli og var ákaflega góð land-
kynning.
Sendiherra Finna á Íslandi,
Martin Isaksson, vann mikið og
gott starf við undirbúning ferðar-
innar ásamt frú Barbro Þórðar-
son, sem var fararstjóri, og án
þeirra framlags hefði þessi ferð
aldrei orðið að veruleika. Söng-
stjóri kórs Víðistaðakirkju hefur
frá upphafi verið Kristín Jóhann-
esdóttir.
Danskir búnaöarskóla-
nemendur í heimsókn
UM 30 nemendur danska bænda-
skólans Nordisk Landboskole á
Fjóni, voru staddir hér á landi fyrir
skömmu, ásamt skólastjóra skólans,
skólanefndarformanni og eiginkon-
um þeirra, auk fleiri skólanefndar-
manna og kennara. Var hópurinn
hér á landi fyrir tilstuðlan Guð-
mundar Jónssonar fyrrverandi
skólastjóra Bændaskólans á Hvann-
eyri, sem skipulagði ferðina og var
ásamt Magnúsi Óskarssyni kennara,
fylgdarmaður hópsins hér á landi.
Guðmundur Jónsson fyrrver-
andi skólastjóri Bændaskólans á
Hvanneyri sagði í samtali við
blaðamann Mbl. að danski skólinn
hefði upp á fjölbreytilegt nám að
bjóða, auk ýmiskonar norrænna
námskeiða og hefði skólinn tekið á
móti um 15—20 íslendingum án
endurgjalds í gegnum árin. Flestir
þeirra sem farið hafa til náms við
Nordiske Landboskolen eru frá
Bændaskólanum á Hvanneyri og
þar af hafa nokkrir þeirra farið í
framhaldsnám sem skólinn býður
upp á, en hópurinn sem staddur
var hér á landi er einmitt í þann
mund að hefja nám við fram-
haldsdeildina.
„Það er orðinn árviss viðburður
að þeir sem hefja nám við fram-
haldsdeildina, fari í ferðalag til
útianda,“ sagði Guðmundur.
„Þetta er í fyrsta sinn sem hópur
frá skólanum kemur hingað til
lands, og ennfremur í fyrsta sinn
sem danskur búnaðarskóli heim-
sækir ísland. Hópurinn kom til
landsins 1. ágúst síðastliðinn og
ferðaðist um landið. Fyrsta dag-
inn var Reykjavíkurborg skoðuð
með leiðsögumanni sem borgin lét
í té og einnig veitti borgin ágætar
veitingar að ferðinni lokinni. Þá
var ekið vestur og norður, um
Borgarfjörð, Snæfellsnes, Húna-
vatnssýslur, Skagafjörð, Eyjafjörð
og S-Þingeyjarsýslu og þaðan suð-
ur Sprengisand um Suðurland og
til Reykjavíkur, þar sem gestirnir
voru kvaddir í ágætu kaffiboði
Jóns Helgasonar landbúnaðar-
ráðherra.
í ferðinni um landið skoðaði
hópurinn Bændaskólana á Hvann-
eyri og Hólum, Garðyrkjuskóla
ríkisins, mjólkurbú, Landgræðsl-
una í Gunnarsholti og Landsvirkj-
un. Einnig var komið við hjá bún-
aðarsamböndum, bændum og
fleiri aðilum. Víðast voru vejttar
ágætar veitingar, sem gestirnir
þáðu með þökkum. Móttökur voru
þjóð okkar til sóma og fóru gest-
irnir ánægðir heim að kvöldi 12.
ágúst,“ sagði Guðmundur Jónsson
að endingu.
Frá kaffisamsæti sem Jón Helgason landbúnaðarráðherra hélt danska hópn-
um. Á myndinni eru talið frá vinstri: Magnús Óskarsson kennari við bænda-
skólann á Hvanneyri, en hann var einnig fylgdarmaður hópsins hér á landi,
Jsrgen Isaksen, skólanefndarformaður danska bændaskólans, Jón Helga-
son, landbúnaðarráðherra, Guðmundur Jónsson, fyrrverandi skólastjóri
bændaskólans á Hvanneyri, sem skipulagði dvöl dönsku gestanna hér á
landi, og lengst til hægri á myndinni er Frits Teichert, skólastjóri Nordiske
Landboskolen.
[ raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
| húsnæöi i boöi | 3ja herb. íbúð í miðbænum til leigu í eitt ár. Árs fyrirframgreiðsla. Sími getur fylgt. Upplýsingar í síma 20756 milli kl. 6—8 til laugardags. húsnæöi óskast
Einbýlishús til leigu Til leigu er einbýlishús viö Oddagötu. Húsið er ca. 180 fm, meö stórum grónum garði. Leigist í 3—4 ár. Leiga greiöist fyrirfram a.m.k. fyrir 6 mánuöi. Tilb. sendist augl.deild Mbl. sem fyrst merkt: „O — 2806“. Húsnæði óskast Óskum eftir aö taka einbýlishús á leigu. Nauösynlegt er aö bílskúr fylgi. Vinsamlegast hringiö í síma 33050 eöa 687828 milli kl. 8 og 16.