Morgunblaðið - 24.08.1984, Blaðsíða 1
64 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
190. tbl. 71. árg.
FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Hershöfð-
ingi fórst
í Líbanon
Beirút, 23. ágúst AP.
FORSETI herrráðs Líban-
onshers, Nadim Hakim, fórst í
dag í þyrluslysi í fjöllum
Norður-Líbanons ásamt níu
öðrum, þar á meðal tveimur
hernaðarráðgjöfum og þremur
liðsforingjum samkvæmt frétt
í útvarpsstöð stjórnarinnar.
Hakim, sem var æðsti yfir-
maður drúsa í hernum, var ætl-
að mikilvægt hlutverk í að
endurbæta öryggisáætlun , sem
miðar að því að færa stjórnvöld-
um aftur í hendur stjórn á
fjallasvæðum er nú eru á valdi
drúsa.
Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og George Bush varaforseti rabba hér saman léttir í lund ásamt konum sínum eftir
að þeir voru tilnefndir í embætti forseta og varaforseta á flokksþingi repúblikana í Dallas.
Sigurvissa einkennir
flokksþing repúblikana
„Við erum flokkur grósku, demó-
kratar flokkur stöðnunar,“ —
sagði Reagan í útnefningarræðu
DalUs, 23. ágúst AP.
RONALD REAGAN forseti sagði í út-
nefningarræðu sinni á þingi repúblik-
ana í Dallas í nótt að þeir heyrðu til
flokki gróskunnar en demókratar
flokki stöðnunar og bað um stuðning
manna úr báðum flokkum.
Fulltrúar á flokksþinginu eru vissir
um að Reagan nái endurkjöri með
stuðningi kjörmanna allra rfkja Banda-
ríkjanna nema Vestur-Virginíu og
District of Columbia.
Reagan var útnefndur forsetaefni
með atkvæðum 2.233 þingfulltrúa og
George Bush hlaut nánast sama
stuðning til varaforsetaframboðs.
í ræðunni gerði Reagan grein fyrir
viðhorfunum þegar hann tók við
embætti, því sem hann hefði komið í
verk síðan og verkefnunum næstu
fjögur ár.
Bush varaforseti sagði um forseta-
frambjóðanda demókrata, Walter
Mondale, i sinni tilnefningarræðu:
„Þú hefur misst af tækifærinu. Þinn
tími er liðinn.“
Varaforsetinn sagði að Reagan
væri styrkur leiðtogi, sem væri ekki
hræddur við að taka erfiðar ákvarð-
anir. Nú væri ekki lengur talað um
að starf forseta væri of erfitt fyrir
einn mann og skuldinni ekki lengur
skellt á bandarísku þjóðina þegar
eitthvað færi úrskeiðis.
„Ég er hreykinn af því að starfa
fyrir forseta, sem vinnur að friði og
biðst ekki afsökunar á Bandaríkjun-
um. Menn hafa gleymt hiki og veik-
leika Carter-Mondale-áranna. þegar
messað var yfir hausamótunum á
vinum okkar og þeir voru slðan
skildir eftir á köldum klaka.“
Bjartsýni repúblikana í Dallas
stingur í stúf við svartsýni demó-
krata á þingi þeirra í San Francisco,
þar sem aðeins 33% spáðu Mondale
sigri. { Dallas spáðu 94% Reagan
sigri.
78% töldu að efnahagsmálin
sterkustu hlið repúblikana, 7% rýrn-
un verðbólgu. 45% töldu fjárlaga-
hallann veikasta blettinn.
í morgun gagnrýndi Reagan and-
stæðinga hugmynda sinna um setn-
ingu laga um daglegar bænastundir i
skólum landsins: „Stjórnmálamenn
þurfa á leiðsögn trúarbragða að
halda,“ sagði hann. Torskilið væri
hvernig unnt væri að snúast gegn
hugmyndinni í nafni umburðarlynd-
is og frelsis.
Paul Laxalt öldungadeildarmaður
Bretland:
Ha fnar verkamenn
boða verkfall á ný
l.uníiunum. 23. á*ú*L AP.
Verkalýðsleiðtogar lýstu yfir í
dag, að efnt yrði til verkfalls
hafnarverkamanna á Brctlandi
á morgun, föstudag, í annað
sinn á þessu sumri.
Þessi ákvörðun var tekin eftir
að stáliðnaðarmenn hófust handa
við að skipa upp kolafarmi flutn-
ingaskips frá Panama í Skotlandi
í dag. Áður höfðu verkalýðsfor-
ingjarnir bannað uppskipun til að
lýsa yfir stuðningi við verkfall
kolanámumanna.
Skoskir verkalýðsleiðtogar
sögðu að höfnum í Skotlandi yrði
einnig lokað lokað á morgun.
Forsvarsmenn stáliðnaðar-
manna, sem fylgdust með því þeg-
ar kolafarmi skipsins var skipað
upp, lýstu yfir því, að þeir gætu
ekki steypt sér í glötun með því að
styðja verkfall kolanámumanna.
Skýrt var frá því í Bretlandi í
dag að tjónið af völdum verkfalls-
hafnarverkamanna, sem stóð 11
daga í júlí, hafi numið 650 milljón-
um punda.
Atvinnumálaráðherra Bret-
lands, Tom King, bað hafnar-
verkamenn í dag að endurskoða
hug sinn, þar sem verkfall þeirra
kæmi öllum illa. „Annað hafnar-
verkfall mun stefna atvinnu mörg
hundruð þúsunda manna í hættu,“
sagði ráðherrann.
sagði: „Valið stendur milli ótta
Walters Mondale við framtíðina og
varanlegar og staðfastrar bjartsýni
Ronalds Reagan.“
Yelena
Bonner
dæmd í
útlegð?
Washington, 23. áxúsL AP.
TALSMAÐUR bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins sagði í dag að
hann vissi ekki um sannleiks-
gildi fréttar þess efnis að eigin-
kona sovéska andófsmannsins
Andreis Sakharovs, Yelena
Bonner, hefði verið leidd fyrir
rétt og dæmd í flmm ára útlegð
fyrir róg um Sovétríkin. Lýsti
dómurinn mannfyririitningu
Sovétmanna ef sannur væri.
Talsmaðurinn sagði að
bandarískir embættismenn
gætu ekki staðfest fréttina, en
hún vekti ugg.
Hann sagði ennfremur, að
samkvæmt fréttinni hefði
réttarhöldunum lokið 17. ág-
úst. Með því að útvega mynd-
bandasnældur með Sakhar-
ov-hjónunum til sýninga í
bandarísku sjónvarpsstöðinni
ABC reyndu Sovétmenn að
dreifa athygli frá frétt um
réttarhöld yfir Yelenu Bonn-
er. Eins ættu snældurnar að
styðja staðhæfingar Sov-
étmanna að Sakharov-hjónin
væru við góða heilsu þrátt
fyrir hungurverkfall þeirra og
einangrun frá umheiminum.
Sjá frétt um Sakharov-hjónin
á bls. 17.
Ögnaratburður í Iran
Lögreglumenn og björgunarfólk sjást hér að störfum í grennd við aðaljárnbraut-
arstöð Tehcrans, þar sem öfhig sprengja sprakk í gærmorgun, með þeim afleið-
ingum að 17 manns biðu bana og yflr 300 manns særðust. Sjá: Standa harðvítugir
öfgamenn að baki sprengingunni í fran? á bls. 17.