Morgunblaðið - 24.08.1984, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 24.08.1984, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 1984 lltofgiiiililftftife Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aöstoöarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 275 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 25 kr. eintakiö. Fjölmiðlarnir og réttarkerfið Pólitískt Samskipti þýsku ríkjanna sem járntjaldið skiptir milli austurs og vesturs hefur borið hátt í fréttum undanfar- ið í tilefni af því að hægri- stjórnin í Vestur-Þýskalandi og kommúnistastjórnin í Austur-Þýskalandi hafa verið að nálgast hvor aðra. Kreml- verjar sem þola engar breyt- ingar í austanverðri Evrópu hamast nú við að hræða Erich Honecker, ríkisleiðtoga í Austur-Þýskalandi, frá því að heimsækja Helmut Kohl, kanslara Vestur-Þýskalands. Þessi stórpólitíska hlið á sambúð þýsku ríkjanna hefur dregið athyglina frá þeirri staðreynd að á milli þeirra er mun nánara samband en ætla skyldi við fyrstu sýn. Þannig er til dæmis Austur-Þýska- land í raun eina kommúnista- landið sem nýtur hins sama innan Evrópubandalagsins og formleg aðildarríki þess, frá þessu var gengið með samn- ingum við Vestur-Þjóðverja á sínum tíma en þeir hafa stuðl- að mjög að viðskiptum milli landanna. Austur-Þjóðverjar eru und- ir sama ok settir og aðrar þjóðir er búa við miðstýrt hag- skipulag kommúnista, fátækt- arokið. Til að bæta efnahaginn hafa austur-þýsk stjórnvöld um langan aldur stundað póli- tískt mansal, í þess orðs fyllstu merkingu. Talið er að frá því að þessi verslun með fólk hófst á milli þýsku ríkj- anna fyrir um tuttugu árum hafi vestur-þýsk stjórnvöld borgað austur-þýskum sem svarar til 15 milljarða ís- lenskra króna fyrir 22 þúsund pólitíska fanga. Löngum hefur verið samvinna um það milli stjórnvalda í Bonn og ritstjóra vestur-þýskra blaða að þessi hlið á viðskiptum þýsku ríkj- anna sé ekki rædd opinber- lega. Á því er nú að verða breyting. Nýlega birtist hér í blaðinu stutt yfirlitsgrein um þetta pólitíska mansal eftir fréttamann The New York Times í Vestur-Þýskalandi og nú hefur Die Welt rofið þögn- ina og skýrt frá því að í ár muni stjórnin í Bonn greiða um 1.100 milljónir króna fyrir um 2.000 austur-þýska, póli- tíska fanga. Hér er lýst einhverjum ógeðfelldasta þættinum í sam- skiptum austurs og vesturs. Eftir að kommúnistar reistu Berlínarmúrinn 1961 hófu þeir að selja fólk úr landi. Með mannúðarrök í huga hafa vestur-þýsk stjórnvöld keypt menn úr fangelsum eða vinnu- búðum kommúnista æ síðan. „Honecker sækir Vestur- mannsal Þýskaland heim í haust, og lit- ið verður á hann sem verðugan þjóðhöfðingja; en enginn tekur eftir skósveini hans, sem hirð- ir peningana," var haft eftir Erich Mende, sem var ráð- herra þýskra málefna í Bonn, þegar hið pólitíska mansal hófst. Talið er að 70% þeirra sem Bonn-stjórnin kaupir nú sé fólk sem handtekið hefur verið vegna þess að það reyndi að flýja yfir dauðagildrur kommúnista á landamærum þýsku ríkjanna. Kommúnistunum sem stjórna Austur-Þýskalandi þykir sjálfsagt að breyta frels- isþrá þegnanna í peninga sem því að selja þá pólitísku man- sali. í löndum kommúnista er litið á manninn eins og hverja aðra eign ríkisins sem gengur kaupum og sölum eftir því sem hentar hverju sinni. Útsala Alþýðubanda- lagsins Nokkrir helstu foringjar í liði kommúnista á íslandi og fyrrum ráðherrar Alþýðu- bandalagsins hafa sótt þekk- ingu til pólitískra uppeldis- stofnana í Austur-Þýskalandi. Þeir hafa kannski kynnst því þar að til framgangs sósíal- isma sem oft er kenndur við mannlega reisn af tals- mönnum hans utan lands og innan helgi tilgangurinn með- alið, allt skuli gert til að halda í völdin. Helstu stefnumál Alþýðu- bandalagsins hafa verið á út- sölu síðan Alþýðubandalagið fékk þrjá ráðherra (þar af tvo með gömul tengsl við Austur- Þýskaland) haustið 1978. Nýj- asta dæmið um þessa útsölu eru yfirlýsingar Svavars Gestssonar á Þingvöllum um „samnefnara í utanríkismál- um sem dugir". Þessi orð verða ekki túlkuð á annan veg en þann að Svavar geri sér ljóst að hann nái ekki að nýju að setjast í ráðherrastól nema með því að hætta að berjast gegn NATO og varnarliðinu. Rétt er að minnast þess að þótt pólitíska mansalið hafi létt efnahagsþvingunum Kremlverja af austur-þýskum stjórnvöldum ganga þau enn erinda heimskommúnismans. Innan eigin raða rökstyður forystusveit Alþýðubanda- lagsins útsöluna á þann veg að því aðeins sé unnt að koma á raunverulegum sósíalisma að stundaður sé ráðherrasósíal- ismi. Inngangsorð Þórs VUhjálms- sonar á 30. norræna lög- frœðingamótinu „Fjölmiðlarnir og réttarkerfið“ kallaðist umræðuefnið á lokafundi 30. norræna lögfræðingamótsins, sem haldið var í Osló 15.—17. ágúst. Fyrir þinginu lá skýrsla norsks prófessors um málið, annar norskur prófessor flutti inngangs- fyrirlestur, en síðan fengu orðið í pallborðsumræðu 5 lögfræðingar, einn frá hverju landi. Þór Vil- hjálmsson forseti Hæstaréttar var þeirra á meðal, og hefur verið sagt frá inngangsorðum hans í útvarps- fréttum. Morgunblaðið birtir nú þessi inngangsorð. Þegar ég tók í fyrsta sinn þátt í norrænu lögfræðingamóti, það var 1960, var rætt um Friðhelgi einkalífs á allsherjafundinum fyrsta morguninn. Árið 1966 var fjallað um Persónuvernd og fjöl- miðla á allsherjarfundinum síð- asta morguninn, og 1978 hélt danski dómsmálaráðherrann, sem þá var, inngangsfyrirlestur um Réttarvernd einstaklinga í nútímaþjóðfélagi. Á dagskrá deildarfundar var Vernd mann- helgi í fjölmiðlunum. Og nú ræð- um við þessi vandamál enn á ný, sennilega af þeirri ástæðu, að mönnum þykja ekki hafa fund- ist fullnægjandi svör við mikil- vægum spurningum. Raunar er það svo, að á fyrri mótum hafa menn ekki ætíð verið á einu máli um, að hér sé um alvarleg vandamál að ræða. Þeirrar skoðunar var einkum annar framsögumannanna 1966, og hann hélt fram viðhorfum sín- um af krafti og mælsku. En ekki voru margir sammála honum. Ég hef spurt sjálfan mig, hvort nokkuð hafi gerst í um- ræðunni eða réttarþróuninni á fslandi síðan fjallað var um málin á lögfræðingamótinu fyrir 6 árum, sem verið gæti, að þeir sem hér eru hefðu áhuga á að heyra. Ef til vill það, að það verður æ ljósara, hve lítið rétt- arkerfið og fjölmiðlarnir eiga sam- an að sælda. Lagaeftirlitið með fjölmiðlunum er ekki virkt. Og við það bætist, að hið ólögfesta eftirlitskerfi, sjálfsögunin, hef- ur enga þýðingu, eða að minnsta kosti næstum enga. í landi mínu eru, eins og á öðrum Norðurlöndum, reglur um meiðyrði, um friðhelgi einkalífs o.s.fr.v og við og við eru kveðnir upp dómar um sekt- ir, bætur, ómerkingar, upptökur og annað, sem til heyrir. En þessir dómar hafa sjaldnast verulega þýðingu fyrir dómþola. Fjölmiðlamenn virðast ekki taka því með ýkjamikilli alvöru, að dómar gangi gegn þeim á þessu sviði, — siðferðisleg áhrif eru með öðrum orðum ekki mik- il. Spurningin, sem dæmdur rit- stjóri lætur sig varða, virðist fremur vera sú, hve mikið hann þarf að borga. Og réttarvenja í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.