Morgunblaðið - 24.08.1984, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 1984
yl(*S=S3j|*
Ronald Reagan og Nancy kona hans fagna útnefningu hans, sem
forsetaefnis Repúblikanaflokksins í Dallas í fyrrakvöld.
Suður-Afríka:
30 % kynblendinga
greiddu atkvæði
Jóhannesarborg, Suóur-Afríku, 23. ágúst
P.W. BOTHA forsætisráðherra við-
urkenndi í dag, fimmtudag, að and-
stæðingum kosninganna, sem fram
fóru í gaer, hefði tekist að draga
verulega úr kjörsókn.
Kynblendingar kusu í
kosningum til sérstakrar þingdeild-
ar, sem suður-afríska stjómin sagði
stórt framfaraskref í kynþáttamál-
um.
Kjörsókn varð innan við 30% af
yfir 900.000 skráðum kjósendum.
Verkamannaflokkurinn hlaut 76
af 80 sætum þingdeildarinnar,
smáflokkur fékk tvö sæti og óháð-
ir tvö.
En mál málanna var kjörsóknin.
Þeir sem andstæðir voru kosn-
ingunum hvöttu fólk til að hunsa
þær, annars vegar af því að þing-
deildin sem kosið var til er aðskil-
in aðalþinginu, sem hvítir einir
sitja, og þar að auki undir það
sett, hins vegar af því að meiri-
hluti Suður-Afríku-manna, svert-
ingjar, höfðu ekki fengið atkvæð-
isrétt.
Andstæðingar kosninganna
hafa hrósað sigri, en stjórnin segir
kjörsókn hafa verið fullnægjandi.
í morgun beitti lögregla tára-
gasi og gúmmíkylfum til að hafa
hemil á um 1.500 ungmennum sem
grýttu bíl í eigu ríkisins og réðust
á aðsetur borgarstjóra í einni af
hyggðum svertingja.
I kvöld sprakk sprengja nálægt
menntamálaráðuneytinu í Booys-
ens, einni útborg Jóhannesarborg-
ar, að sögn lögreglu.
Ekki er vitað til að manntjón
hafi orðið.
Áhyggjur V-Þjóðverja
vegna skops Reagans
Hunborg, 23. igúM. AP.
SKOÐANAKÓNNUN sem vestur-
þýska vikuritið Stern hefur gert leið-
ir í Ijós að Vestur-Þjóðverjar hafa
meiri áhyggjur af skopskyni Reag-
ans Bandaríkjaforseta en Banda-
ríkjamenn sjálfir. Könnunin leiddi í
Ijós að 45 % Vestur-Þjóðverja telja að
gamanyrði forsetans á dögunum um
Líbería:
Hermenn skutu á
háskólastúdenta
Losdon, 23. ágúst AP.
HERMENN skutu í gær á stúdenta,
sem efnt höfðu til mótmælafundar
við háskóla Líberíu í höfuðborginni
Monroviu, að því er breska útvarpið,
BBC, hefur eftir heimildarmönnum
sínum, sem voru sjónarvottar að at-
burðinum.
Samkvæmt frétt BBC voru 13
manns fluttir á sjúkrahús eftir að
hafa orðið fyrir byssukúlum her-
manna. Ekki er vitað hvort ein-
hver hafi látið lífið.
Háskólanum hefur verið lokað
og öllu starfsliði hans verið sagt
upp störfum. Telur Líberíustjóm
að hann hafi ekki verið lærdóms-
setur heldur vettvangur stjórn-
málaáróðurs.
að sprengjuárás hefði verið fyrirskip-
uð á Sovétríkin sýni „duldar óskir“
hans, en aðeins 17% Bandaríkja-
manna eru sömu skoðunar.
Könnunin náði til eitt þúsund
manna í Bandaríkjunum og 540 í
Vestur-Þýskalandi og var fram-
kvæmd dagana 15,—17. ágúst sl.
64% Vestur-Þjóðverja töldu að
ummæli forsetans sköðuðu sam-
búð austurs og vesturs. 44%
Bandaríkjamanna voru sömu
skoðunar. 23% Vestur-Þjóðverja
og 43% Bandaríkjamanna töldu
að slík ályktun ýkti áhrif orða
hans.
Spurt var hvort menn teldu að
þessi umdeilda gamansemi forset-
ans drægi úr möguleikum hans til
að ná endurkjöri í nóvember. 35%
Bandaríkjamanna töldu svo vera,
en 50% þeirra töldu það af og frá.
3% þátttakenda í Bandaríkjunum
töldu að ummæli forsetans ykju
frekar sigurlíkur hans en hitt.
Rama Rao í Nýju Delhí:
„Stuðningsmönn-
um boðnar mútur“
Nýju Delkf, 23. áplirt. AP.
RAMA Rao, sem fylkisstjóri Andhra
Pradesb-fylkis á suður Indlandi hef-
ur vikið úr embætti forsætisráðherra
þar, sagði á blaðamannafundi í dag,
að menn á vegum flokks Indiru
Gandhis, forsætisráðherra Indlands,
Kongress-flokksins, hefðu boðið
þingmönnum i fylki sínu jafnvirði
750 þúsund ísl. króna í mútur ef þeir
hættu stuðningi við stjórn sína.
Rama Rao kvaðst vera aö skipu-
leggja mótmælafundi í Andhra
Pradesh-fylki til að krefjast þess
að fylkisþingið fengi aö koma sam-
an og lýsa yfir stuðningi við stjórn
sína. Hann hefur fengið 161 þing-
mann, sem er meirihluti á fylkis-
þinginu, með sér á fund Zail Singh,
forseta Indlands, til að sýna að
stjórn hans nýtur trausts, gagn-
stætt því sem fylkisstjórinn full-
yrðir. Forsetinn lofaði að tryggja
Rama Rao réttlæti „innan ramma
stjórnarskrárinnar", en kvaðst
ekki hafa vald til að setja hann i
embætti á ný.
Mál þetta hefur komið Indiru
Gandhi í nokkra klípu. Hún segist
ekkert hafa vitað af því fyrr en
Rama Rao, sem vikið hefur verið
úr embætti forsætisráðherra í
Andhra Pradesh-fylki á Indlandi.
eftir á að Rama Rao hefði verið
settur af, en margir draga þau orð
hennar í efa.
Pólland:
Enginn árangur
viðræðunum um
efnavopn í Genf
1
Hóta að fangelsa
Samstöðumenn á ný
ERLENT
Varsjá, 23. igúM. AP.
PÓLSKA stjórnin hefur varað tvo af
forystumönnum Samstöðu, sem nýlega
voru látnir lausir úr fangelsi, við því að
sakaruppgjöf þeirra kunni að verða aft-
urkölluð. Er þeim borið á brýn að
valda uppþotum og spilla almannafriði.
Menn þessir eru þeir Jan Rulewski og
Wladyslaw Frasyniuk.
Geaf, 23. ígÚKL AP.
FULLTRUAR Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna á afvopnunarráðstefn-
unni í Genf sökuðu í gær hvor annan
um að koma í veg fyrir allt sam-
komulag um samning varðandi bann
við framleiðslu og meðferð efna-
vopna. Yfirlýsingar beggja full-
trúanna gáfu til kynna, að risaveldin
tvö eru jafn fjarlæg því og áður að
ná samkomulagi um slíkan samning,
en George Bush, varaforseti Banda-
ríkjanna, lagði fram tillögur að slík-
um samningi í aprfl sl. Gert er ráð
fyrir, að fundum ráðstefnunnar Ijúki
að sinni í næstu viku.
Louis Fields sendiherra, aðal-
fulltrúi Bandaríkjanna á ráðstefn-
unni, sagði í gær, að afstaða Sov-
étríkjanna til samningstillagn-
anna væri „óraunsæ" og hélt því
fram, að Sovétríkin hefðu meiru
að tapa en Bandarikin með því að
skýra frá geymslu- og framleiðslu-
stöðum efnavopna sinna. „Sov-
étríkin virðast greinilega telja
mikla hernaðarlega áhættu vera
fólgna í því að skýra frá efnavopn-
um sínum og það gefur til kynna,
að þessi vopn séu miklu þýð-
ingarmeiri i hernaðaráætlunum
Sovétríkjanna en Vesturlanda,"
var haft eftir Fields.
Þá sagði Fields, að Sovétmenn
hefðu ekki lagt fram neinar gagn-
tillögur í staðinn fyrir þann hluta
samningstillagnanna, sem þeir
teldu óaðgengilegan.
Victor Issraelyan sendiherra,
fulltrúi Sovétríkjanna, svaraði
með því að segja, að Sovétríkin
hefðu skilaö áliti sínu á samn-
ingstillögum Bandarfkjamanna og
endurtók fyrri ásakanir Sov-
étmanna um, að með þeim hefðu
„viðræðurnar aðeins færzt aftur á
bak“. „Ef samkomulag á að nást
um alþjóðlegan samning, þá verð-
ur að taka afstöðu annarra með I
reikninginn," sagði Issraelyan I
yfirlýsingu sinni.
Sovétmenn hafa mótmælt þeim
ákvæðum samningsuppkastsins
sem ósanngjörnum, þar sem gert
er ráð fyrir eftirliti með fram-
leiðslu á efnavopnum.
I tilkynningu, sem saksóknari
ríkisins gaf út i morgun og birt var i
öllum helztu dagblöðúm Póllands,
var sagt, að þessir menn hefðu reynt
að valda truflunum i kirkjumessum.
Rulewski skýrði fréttamönnum hins
vegar svo frá í dag, að eftir messu 13.
ágúst sl. í Bydgoszcz í Norður-Pól-
landi, hefði hann stigið upp í prédik-
unarstólinn og þakkað þeim 3.000
manns, sem komin voru til þess að
fagna honum. Síðan las hann upp
Ijóð, sem tileinkað var þeim námu-
mönnum, sem drepnir voru í átökum
við lögreglu eftir setningu herlaga i
Póllandi 13. desember 1981.
Slmamynd AP.
Peres þarf þrjár vikur
Shimon Peres, leiðtogi Verkamannaflokksins í ísrael, sem nú reynir stjórn-
armyndun, sagði í gær, að hann þyrfti að minnsta kosti þrjár vikur til að
mynda meirihlutastjórn. Áður höfðu bjartsýnisraddir talað um að stjórn yrði
mynduð innan viku. Það sem kveikti bjartsýni var sú ákvörðun Ezer Weis-
mans, leiðtoga Yahad-flokksins, að styðja Peres í embætti forsætisráðherra.
Á myndinni sjást þeir saman, Peres (t.v.) og Weizman, eftir að samkomulag
þessa efnis var gert.
Heræfing-
ar Varsjár-
bandalags
Png, Tékkóslóvakíu, 23. ógúuk AP.
Varnarmálaráðberra Tékkóslóvakíu,
Martin Szur, sagði í dag, að heræfingar
Varsjárbandalagsins, sem haldnar
verða í Tékkóslóvakíu f næsta mánuði,
mundu leiða f Ijós „siðferðilegan og
pólitískan styrk“ hernaðarsamvinnu
ríkjanna, að því er fréttastofan CTK
hcrmdi.
Fyrst var sagt frá fyrirhuguðum
heræfingum fyrr í þessum mánuði,
en fjölmiðlar austantjaldsríkjanna
hafa ekki tiltekið neina dagsetningu
fremur en venjulega.