Morgunblaðið - 24.08.1984, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 1984
17
Kvikmyndin af Sakharov-hjónunum:
„Sannar
ekkert“
— segir bandaríska utanríkisráðuneytiö
Slasaður maður úr sprengingunni í Teheran er fluttur burt af hjúkrunarfólki í gsrmorgun. Talið er, að sprengjan hafi
verið falin á bak við vagn ávaxtasala og sprakk hún á mesta umferðartíma að morgni dags.
New York, 23. *£Uf,l AP.
BANDARÍSKA sjónvarpsstödin ABC
sýndi í gærkvöldi Ijóstnvndir úr kvik-
mynd þeirri sem vestur-þýska dagblað-
ið Bild Zeitung upplýsti í gær að það
hefði í fórum sínum, en kvikmyndin,
sem er 18 mínútna löng og á myndb-
andi, sýnir sovéska andófsmanninn
Andrei Sakharov og konu hans, Yelenu
Bonner, á lífi í júlí sl. Sést m.a. þegar
hjúkrunarkona afhendir Sakharov ein-
tak af bandaríska fréttaritinu News-
week frá því í júlí með forsíðumynd af
söngvaranum Michael Jackson.
Aðrar sjónvarpsstöðvar hafa
greint frá því að þær hyggist sýna
Standa
að baki
Teheran, 23. ipiflL AP.
SPRENGJA sprakk í morgun á fjöl-
förnu stræti nærri járnbrautarstöð-
inni í Teheran, höfuðborg frans,
með þeim afleiðingum að 17 manns
biðu bana og yfir 300 manns særð-
ust, sumir þeirra lífshættulega.
Hafði sprengjunni verið komið fyrir
í vagni ávaxtasala og sprakk hún á
aðal morgunumferðartíma borgar-
innar.
Útvarpið í Teheran skellti strax
skuldinni á „útsendara Banda-
rikjamanna, sem gera allt til þess
að kasta skugga á afrek írönsku
harðvítugir öfgamenn
sprengingunni í íran?
byltingarinnar". Samtök andstæð-
inga írönsku stjórnarinnar í París
fordæmdu sprenginguna harðlega
i morgun og sögðust enga ábyrgð
bera á henni.
Abolhassan Bani-Sadr, fyrrver-
andi forseti írans, sagði i dag, að
sennilega hefðu hér verið að verki
harðvítugir öfgamenn, sem glatað
hefðu stuðningi Khomeinis trúar-
leiðtoga og reyndu með þessum
hætti að styrkja völd sín. „Nú fer
fram ofsafengin valdabarátta í ír-
an,“ sagði Bani-Sadr. „Til þessa
hefur Khomeini alltaf stutt harð-
línumennina."
Þá er marxistahreyfingin
„Mujahedeen Khalk“ hugsanlega
talin bera ábyrgð á þessum verkn-
aði, en hún stóð að miklum
hryðjuverkum á árunum
1981—1982, þar sem fjöldi manns
var drepinn, þar á meðal ýmsir
háttsettir menn úr stjórn lands-
ins.
í hópi þeirra, sem biðu bana í
sprengingunni í morgun, voru tvö
börn og átta konur.
kvikmyndina i heild innan skamms
og hluta úr henni í kvöld.
Stjúpdóttir Sakharovs, Tatiana
Yankelevich, sem er búsett í Banda-
ríkjunum, segir að svo virðist sem
Sakharov hafi elst mjög. „Hann er
líka mjög horaður aö sjá,“ sagði hún.
Tatiana kvaðst þó hvorki treysta sér
til að staðfesta að kvikmyndin væri
ófölsuð né lýsa því yfir að hún væri
ekta, enda hefði hún ekki séð nema
hluta af henni. „En það gleður okkur
mjög að svo virðist sem þau séu á
lífi,“ sagði hún.
Alan Romberg, formælandi
bandaríska utanrikisráðuneytisins,
sagði í dag aö kvikmyndin „sannaði
ekkert“ og þar kæmi ekki fram
hverjir væru líkamlegir og andlegir
hagir Sakharov-hjónanna um þessar
mundir.
Romberg kvaðst telja líklegt að
Sovétmenn hefðu komið myndinni á
framfæri með hjálp blaðamannsins
Victor Louis, og Henri Kissinger,
fyrrum utanrikisráðherra Banda-
rikjanna, sagði í gærkvöldi að það
væri umhugsunarefni hvað Sovét-
mönnum gengi til með þessu. Sjálfur
kvaðst hann telja að þeir væru að
reyna að friða menn á Vesturlöndum
og þagga niður i þeim sem krefjast
frelsis til handa Sakharov og konu
hans.
* [1 fH ? rít V
u . k ' t
iÝ* * t
'miL-
rt1 ... -----— ,
Akrópólis sést hér í baksýn Aþenuborgar. Efst á hæðinni stendur Parþenon,
hof Aþenu.
Grikkland:
Komið í veg fyrir
hrun úr Akrópólis
Aþenu, 23. á(rúst. AP.
GRÍSKUM verkfræðingum hefur
tekizt að koma í veg fyrir frekara
hrun grjóts og kletta úr hlíðum Akr-
ópólis, en ofan á þessari sléttu hæð
stendur Parþenon-hofið. Húsum
þeim, sem standa í hlíð hæðarinnar,
hefur verið mikil hætta búin af grjóti
og klettum, sem þar standa, en losn-
að geta hvenær sem er.
„Hæðin sjálf er mjög merkileg
vegna fornlefa sinna. Hellarnir
þar voru helgidómar í fornöld,"
sagði frú Eva Toulupa í dag, en
hún stjórnar eftirliti með Akróp-
ólis. Hæðin rís um 180 metra yfir
sjávarmál og i hiíðum hennar er
aragrúi af hellum. Akrópólis, sem
þýðir einfaldlega „háhluti borgar-
innar“, var notuð sem virki á
styrjaldartímum í fornöld.
Ofan á hæðinni stendur fjöldi af
styttum og hofum frá gullöld
grískrar fornmenningar. Frægast
þeirra er Parþenon, hof Aþenu,
sem var verndargyðja borgarinn-
ar. „Hofin eru byggð á traustu
bergi og þau eru ekki í neinni
hættu með að hrynja. En í ald-
anna rás hafa vetrarrigningar
hreyft til jarðveginn í hlíðum
Akrópólis og valdið því, að þar
standa heilu klettarnir, sem geta
tekið upp á því að falla niður
hvenær sem er,“ var haft eftir
Dionyssis Monokroussos verk-
fræðingi í dag, en hann stjórnar
þeim verklegu aðgerðum, sem nú
er verið að framkvæma við Akróp-
ólis.
BROGA
skór fyrir siglingamenn
Verð: 1.360 kr.
Stærðir: 38—46V2
Litir: hvítt
blátt
brúnt
Efnið og munstrið í
sólanum eru bylting
í framleiöslu á sigl-
ingaskóm.
Skórnir þola salt og bleytu, vegna
sérstakrar meöhöndlunar leðursins.
KUKMtn
Ánanaustum
Sími 28855