Morgunblaðið - 24.08.1984, Page 18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 1984
18
PC LtNi'
Víetnamar:
Segjast hafa hrak-
ið Kínverja brott
Bugkok, 23. igúsL AP.
VÍETNAMAR héldu því
fram í dag að kínverskir her-
menn hefðu tvívegis að und-
anfornu farið inn á víet-
namskt landsvæði, en verið
hraktir brott í bæði skiptin
og hefði þá mikið mannfall
oröið í liði þeirra.
Útvarpsstöðin „Rödd Víet-
nams“ sagði að kínversku her-
mennirnir hefðu farið inn i Lang
Son-hérað 19. og 20. ágúst, en
víetnamskar hersveitir, sem þar
hafa bækistöðvar, og þorpsbúar í
grennd hefðu stöðvað þá og „gert
marga óvirka", eins og það var
orðað. Engar tölur um fjölda
fallinna eða særðra voru nefnd-
ar.
Leiðtogi Sovétrikjanna hefur ekki sést í 6 vikur:
Orðrómur um yeik-
indi Chernenkos
Nicaraguæ
Stjórnin lýsir andstöðu-
flokka sína ólöglega
Fá ekki að halda uppi stjórnmálastarfsemi framar
Managu*, 23. ágúaL AP.
STJÓRN Nicaragua lét í dag
lýsa þrjá stjórnarandstöðu-
flokka í landinu ólöglega og bar
það fyrir sig, að þeir hefðu ekki
hirt um að láta skrá þátttöku
sína í þingkosningum þeim, sem
fyrirhugaðar eru 4. nóvember
nk. Flokkarnir þrír hafa fimm
daga til þess að fara fram á, að
þessi ákvörðun verði afturkölluð
og einn mánuð til þess að áfrýja
henni til hæstaréttar landsins.
Flokkar þessir höfðu myndað
með sér bandalag, Lýðræðis-
samsteypuna svonefndu, ásamt
með tveimur óbundnum verka-
lýðssamböndum. Var talið, að
bandalag þetta ætti eftir að
verða helzta stjórnarandstöðu-
Leiðrétting
í FRÉTT á forsíðu Mbl. f gær,
fimmtudag, var ranglega sagt að
Ezer Weizman væri áhrifamaður í
Likud-bandalaginu í ísrael. Þar
átti aö standa að hann væri fyrrum
áhrifamaður f flokknum, sem
hann hefur fyrir nokkru sagt skil-
ið við.
aflið gegn vinstri stjórn sandin-
ista, er gengið yrði til kosn-
inganna, en þar verður kjörinn
forseti, varaforseti og löggjafar-
samkunda landsins.
Hugo Mejia, forseti í
svonefndu flokkaráði í landinu,
sagði í dag, að flokkarnir þrír
hefðu glatað tilverurétti sínum
Moakra, 23. i(úiiL AP.
YUMJAGIIN Tsedenbal,
sem verið hefur leiðtogi
Mongólíu í tæpa þrjá áratugi,
hefur verið leystur frá em-
bætti af heilsufarsástæðum,
að því er hin opinbera frétta-
stofa landsins og TASS í
Moskvu greindu frá í dag.
Við embætti hans tekur Jam-
byn Batmunkh, núverandi
forsætisráðlierra. Hann er 58 ára
að aldri.
sem löglegir stjórnmálaflokkar,
eftir að ráðið hefði samþykkt
með 6 atkvæðum gegn 2 að lýsa
flokkana þrjá ólöglega. Eftirleið-
is fá flokkarnir þrír ekki að
halda stjórnmaálafundi, né held-
ur mega þeir dreifa áróðri eða
standa fyrir kosningabaráttu,
sagði Mejia.
Tsedenbal, sem er 67 ára gam-
all, hefur ætíð verið tryggur fylg-
ismaður Sovététjórnarinnar. Tal-
ið er að hann hafi verið heilsu-
tæpur um hrið og mun hann m.a.
hafa leitað sér lækninga í Sovét-
ríkjunum. Ekki er vitað hvar
hann er nú niðurkominn.
í opinberri tilkynningu Komm-
únistaflokksins í Mongólíu segir,
að Tsedenbal hafi fallist á að láta
af embætti og eru honum þakkir
færðar fyrir óeigingjörn störf í
þágu alþýðu og sósíalisma.
Leiðtogi Mongólíu
leystur frá starfi
Monkra, 23. igúsL AP.
KONSTANTIN Chernenko, leið-
togi Sovétríkjanna, hefur ekki
sést opinberlega í hálfan annan
mánuð og velta margir því fyrir
sér hvort hann kunni að vera
sjúkur.
Chernenko, sem er 74 ára að
aldri, kom síðast fram opinber-
lega snemma í júlí og gagn-
stætt því sem venja er þar aust-
ur frá hefur hann ekki átt fundi
með erlendum leiðtogum sem
komið hafa í heimsókn á meðan
hann er í orlofi.
Chernenko var ekki viðstadd-
ur setningu svonefndra „Vin-
áttuleika" í Moskvu fyrir
nokkrum dögum, en þar var af-
tur á móti Mikhail Gorbachev,
sem margir telja annan valda-
mesta mann í Sovétríkjunum
um þessar mundir.
Vestrænir stjórnarerindrek-
ar í Moskvu segjast hafa heyrt
orðróm þess efnis að Chern-
enko hafi fyrr í ágústmánuði
snúið til Moskvu frá sumar-
Sri Lanka:
Afbrot hermanna
til rannsóknar
YFIRMENN hersins á Sri Lanka
hafa fyrirskipað 33 hermönnum að
vera um kyrrt í bekistöðvum sinum i
meðan rannsókn fer fram 4 þætti
þeirra i uppþoti sem varð í þorpinu
Mannar á norðurhluta eyjarinnar 12.
ágúst sl.
Lalith Athulathmudali, öryggis-
málaráðherra Sri Lanka, segir að
grunur leiki á því að sex hermann-
anna hafi stofnað til óeirðanna, sem
höfðu það m.a. i för með sér að mörg
heimili og fyrirtæki tamlla, sem eru
minnihlutahópur á eynni, voru
brennd og lögð í rúst.
í bréfi sem höfuðflokkur tamíla,
Sameinaði þjóðfrelsisflokkurinn
(TULF), sendi Juniusi R. Jayeward-
ene, forseta Sri Lanka, segir að
fimm manns hafi látið lifið og 103
fyrirtæki verið eyðilögð f óeirðunum.
Krefst flokkurinn þess að hersveitir
verði tafarlaust kallaðar brott frá
Mannar og þeir sem ábyrgir séu
fyrir ofbeldisverkum verði leiddir
fyrir rétt.
Heræfingar á
vegum NATO
BrUssel. 22. AgiuL AP.
SVEITIR úr flugherjum ríkja Atl-
antshafsbandalagsins taka þátt í
tveggja vikna heræflngum f Hol-
landi, Belgíu, Lúxemborg og
Vestur-Þýskalandi í næsta mánuði.
Æfingarnar hefjast 13. sept-
ember, að því er greint var frá í
höfuðstöðvum Atlantshafs-
bandalagsins í dag.
Dikko-ránið í London:
Einn fjórmenninganna, Níger-
íumaðurinn Mohammed Yusufu,
hefur krafist þess að fá að fara úr
landi þar sem hann sé stjórnarer-
indreki. Breska utanríkisráðu-
neytið segist engin gögn hafa í
höndum sem sanni þá fullyrð-
ingu.
Dikko var samgönguráðherra
Nígeríu þegar herforingjar undir
forystu Mohammadu Buhari
rændu völdum 31. desember sl.
Hin nýja ríkisstjórn krefst þess
að hann mæti fyrir rétt í Lagos
og svari til saka fyrir spillingu í
embætti.
Umaro Dikko
Konstantin Chernenko
dvalarstað sínum á Krímskaga
þar sem hann hafi þurft að
leita sér læknisaðstoðar, en
engin staðfesting hefur fengist
á því og vestrænir sendiráðs-
starfsmenn í borginni telja
ólíklegt að hann sé alvarlega
sjúkur.
Þrír ísraelar og einn
Nígeríubúi ákærðir
London, 23. ágúsL AP.
TILKYNNT var í London í
dag að fjórir menn, einn frá
Nígeríu og þrír frá ísrael,
muni innan skamms verða
leiddir fyrir rétt sakaðir um
að hafa staðið fyrir hinu mis-
heppnaða ráni á Umaru
Dikko, fyrrum ráðherra í rík-
isstjórn Nígeríu, í London í
síöasta mánuði.
VIN ATTULEIKARNIR
SCvJET i
..J ,
./..f x7 1 i
WÉUéMá
„Vináttuleik«rnir“ í Moskvu í augum teiknarans Lurie. Til leikanna var boðað í framhaldi af Ólympíuleikunum í
Los Angeles, sem Sovétrikin og fylgiríki þeirra tóku ekki þátt í.