Morgunblaðið - 24.08.1984, Page 30

Morgunblaðið - 24.08.1984, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 1984 n Rafveita Vatnsleysustrandarhrepps: 45 ára gömul háspennulína endurnýjuð Vogum, 15. ágúst. ÞAÐ HEFUR verið unnið við það undanfarið að endurnýja 45 ára gamla háspennulínu Rafveitu Vatnsleysustrandarhrepps frá að- veitustöð Rafmagnsveitna ríkisins við Vogastapa og að byggðinni í Vog- um. Skipt hefur verið um þverslár á rafmagnsstaurunum, alla ein- angrara og rafmagnsvírana. Voru þessir hlutir úr sér gengnir. I dreifibréfi sem rafveitan hefur sent raforkunotendum segir að hiklaust aukist rekstraröryggi á dreifikerfi rafveitunnar verulega, og komi öllum notendum til góða. E.G. Tónlistarskólinn í Reykjavík: Námskeið fyrir píanóleikara DAGANA 27.—31. ágúst nk. mun próf. Edith Picht-Axenfeld frá tónlist- arháskólanum í Freiburg, V-Þýska- landi, halda námskeið fyrir píanó- kennara og lengra komna píanónem- endur á vegum Tónlistarskólans í Reykjavík. Viðfangsefni námskeiðsins er Vínar-klassík (píanótónlist eftir Haydn, Mozart, Beethoven og Schu- bert) og fer það fram í sal Mennta- skólans við Hamrahlíð daglega frá 9-12 og 2-5. Námskeið sem þetta krefst mikils undirbúnings þeirra, sem koma fram sem virkir þátttakendur, þ.e. leika hin ýmsu klassísku verk fyrir áheyrendur. Hafa um 18 nemendur verið að undirbúa sig fyrir þetta námskeið að undanförnu, en alls munu þátttakendur líklega verða um og yfir 100 manns. Námskeið þetta er ekki síður gagnlegt fyrir þá, Edith Picht-Axenfeld sem taka þátt sem áheyrendur og fylgjast með kennslunni. Auk námskeiðsins mun Edith Picht-Axenfeld halda hér tónleika fyrir Tónlistarfélagið í Reykjavík og Musica Nova, sem verða tilkynntir síðar. í sambandi við námskeiðið mun hún einnig halda tónleika-fyr- irlestur um píanóverk Schuberts. Próf. Edith Picht-Axenfeld kom hér fyrir nokkrum árum og hélt námskeið á ráðstefnu norrænna tónlistarkennara (NMPU) þar sem fjallað var um píanósónötur Beet- hovens. Þátttakendur á námskeið- inu voru sammála um, að sjaldan hefðu þeir heyrt eins vandlega og djúpt farið í viðfangsefnin og um þau fjallað frá jafnmörgum hliðum. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Tónlistarskólans i Reykjavík. (Úr fréttatilkynningu) Sjávarútvegsráðuneytið: Togveiðiheim- ildir rýmkaðar Sjávarútvegsráðuneytið hefur nú gefíð út reglugerð í þeim tilgangi að rýmka togveiðiheimildir út af Breiðafírði, Vestfjörðum og Héraösflóa í því skyni að auka veiðar á skarkola og steinbít. 1 frétt ráðuneytisins segir, að reglugerðin taki gildi 1. sept- ember og vari til 31. desember á þessu ári. Þrátt fyrir ákvæði B-, F- og G-liðar 3. greinar laga nr. 81, 31. maí 1976, sé öllum skipum heimilt að stunda veiðar með botnvörpu á eftirgreindum svæðum á fyrrnefndu tímabili: A. f Héraðsflóa frá línu rétt- vísandi aust-norðaustur af Bjarnareyjarvita að línu réttvís- andi aust-norðaustur af ósfles (65° 37’8 N, 13° 55’3 V) utan línu sem dregin er í 3ja sjómílna fjarlægð frá fjörumarki megin- landsins. B. Utan Breiðafjarðar norðan 65° og utan fjögurra sjómílna frá línu, sem dregin er úr Önd- verðarnesvita í Bjargtanga (65° 30’2 N, 24° 32’1 V). Að norðan markast svæðið af línu dreginni réttvísandi i vestur frá Bjarg- töngum. C. Fyrir Vestfjörðum utan línu, sem dregin er 8 sjómílur utan viðmiðunarlínu samkvæmt lögum 81/1976, frá línu dreginni réttvísandi í vestur frá Bjarg- töngum að línu, sem dregin er 317° réttvísandi frá Óshólavita í ísafjarðardjúpi. Norðan línu, sem er dregin 317° frá Óshóla- vita norður um að 22° 40’0 V lgd., eru togveiðar með botn- vörpu heimilaðar utan fjögurra sjómílna frá viðmiðunarlínu. Á meófylgjandi korti eni þau svæði, sem togveiðar verða leyfðar á, sýnd. Leyfilegt verður að stunda veiðar milli örvanna og utan línunnar á milli þeirra. Þakklæti Ég minnist þess óljóst, líkt og úr hálfgleymdum draumi að hafa lesið í fornum ljóðum, kannski eftir Snorra Sturluson, um norn, eða gyðju sem sat alein og gleymd í afhelli einum langt inni í hömrum fjalls. Hún hét Þökk og hafði það hlutverk að spinna heillaþráð manna. En þeir áttu að færa henni efni sjálfir með þakklæti sínu. En flestir gleymdu að færa henni efnið í þennan hamingju- þráð sinn. Snældan var því oftast tóm. í stað þess að ljóma af starfs- gleði yfir snældu sinni, sat Þökk auðum höndum langleið og blökk á svip. Eða þá, að stundum fyllt- ist snældan af þræði, sem ekki var annað en bláþræðir, hnökrar og hólar gleymsku og vanþakk- lætis. Þetta minnir á aðra helgisögn. Hún er víst austan úr löndum. Ævintýrið um englana tvo, sem sendir voru hvor með sína körfu af himni. Þær voru tómar. Annar átti að safna óskum og kröfum manna. Hinn átti að tína saman þakkir þeirra f sína körfu. Hinn fyrri kom aftur með sína körfu að vörmu spori. Hún var kúfuð svo út úr flóði. Hinn síðari var mörg ár að safna og kom loks til baka með botnhyl í sinni byttu. „Hvar eru hinir níu?“ spurði meistarinn mikli, Jesús frá Naz- aret, þegar aðeins einn, sem var þó talinn vantrúargrey á Guðs vegum, kunni þakkir fyrir lækn- ingu af einum hryllilegasta sjúkdómi jarðarbarna. Ennþá á þessi örstutta spurn- ing svo angurværan hljóm: „Hvar eru hinir níu?“ Við finnum vonbrigði og sárs- auka í þessum fjórum örstuttu orðum. Satt að segja þekkjum við flest gleymsku og vanþakklæti bæði í eigin barmi og frá þeim, sem við töldum okkur hafa verið vel og því verð þakka. Ég minnist þess í skóla fyrir mörgum árum, að nemendur áttu að skrifa stíl um eldri kynslóðina. Satt að segja hélt ég að æska síðustu áratuga á íslandi hefði margt að þakka. En þarna var vitnisburður æskunnar um eldri kynslóð vægast sagt án þakklæt- is. Hefur kannske engum dottið í hug að bera saman aðstöðu æsk- unnar nú til gleði og lífs yfirleitt og kjör ungmenna fyrir nokkr- um áratugum, þótt ekki væri nú horfið alla leið til síðustu alda- móta ekki sízt í sveitum, sem nú eru komnar í eyði. Munurinn er svo algjör til náms og leikja, starfa og mennta, að syngja mætti lofsöngva og þakklæti Þökk daglega, þótt aðeins einn af tíu hefði lært að þakka. Vart er hugsanlegt, að æska nokkurs lands sé hamingjusam- ari en hin frjálsa æska íslands í föðurlandi friðarins. Og satt að segja er sú æska ein hin fræknasta í heimi, þótt ekki sé þakkað, svo sem skyldi. Höfum við ekki gleymt þætti þakklætisins í uppeldi þjóðar- innar og um leið virðingu og við- urkenningu þess, sem hverfandi kynslóðir hafa veitt af dug og dáðum, framsýni og fórnarlund. Skólar og heimili ættu að vera samtaka um að efla þátt eða þætti þakklætis í vitund barna og unglinga. Þar eru kennarar í sögu og kristnum fræðum sjálf- sagðir foringjar. I kirkjur koma hins vegar fáir þeirra, sem helzt þurfa að hlusta. En ekki er það samt af- sökun fyrir presta. Þakklæti er sannarlega einn af silfurþráðum samfélags og heilla. En hlustum á són og söngva hversdagsins i fjölmiðlum, á fundum og þingum. Lesum og hlustum á allt nöldrið, kröfurn- ar, gagnrýnina, aðfinnslurnar, og óðar en varir róg, níð og blekkingar jafnvel um hið bezta. Allt er haft á hornum sér. Og oft eru þeir svívirtir mest, sem helzt ætti að þakka og meta. öllu er snúið til hins versta, vanmetið og vanþakkað. Heilir flokkar, viö gluggann eftirsr. Árelíus Nielsson starfsstéttir og stofnanir er dæmt úr leik og brugðið um allt hið versta. Auðvitað er margt, sem unnið skyldi betur. En ætli sú aðferð til bóta væri ekki heillavænlegra að viðurkenna fyrst það sem vel er gert — jafnvel hjá andstæð- ingi — og þakka það, en benda síðan á það, sem betur mætti fara. Vinna síðan að þvi f ein- ingu, samstilltum hugum og höndum. „Vex hver við vel kveð- in orð.“ Öll hljótum við að minnast hve jafnvel nokkur hrósyrði og þakklætisbros, viðurkenning frá mömmu eða pabba, kennara, presti, verkstjóra eða vini gat verkað eins og sólargeisli f myrkri eða dögg yfir skrælnaðan akur vonbrigða, vantrausts og uppgjafar. „Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt," er speki sem aldrei má gleymast. Bros þakk- lætis og virðingar eru aldrei ein- ungis vorblær og sólskin í sam- félagi manna á heimilum, vinnu- stöðum, skólum og skemmtistöð- um, heldur eru þau einnig snar þáttur menningar og manngöfgi hverrar sálar í minjahirzlum hjartans og hugans og hafa ei- lífðargildi til góðs. En samt er þakklætið aldrei þýðingarmeira en handa þeim öldnu og jafnvel horfnum kynslóðum og afrekum þeirra, sem aldrei mega gleym- ast, sem gott fordæmi og fyrir- mynd í nútíð og framtíð til heilla öldum og óbornum. Einu sinni varð manni að orði við prest sinn, sem átti að kveðja konu hans hinztu kveðju: „Segðu að hjarta mitt hafi verið barmafullt af þakklæti til hennar, þótt ég tjáði það aldrei með orðum.“ Sjálfsagt er betra en ekki að bera þökk í huga og hjarta. En gæti ekki þakklæti, sem aldrei kemst fram á varir, né til að bæra hendur til átaks, orðið líkt og lind undir klaka, sem hvorki svalar né gleður. Gleymum því ekki að gefa hinu góða og fagra dýrðina á hverjum degi. Það er sæmd hverri þjóð að heilladísin eða örlaganornin Þökk hreyfi rokkinn í helli sín- um bak við hamra mannlífs með fullum snældum af hamingju- þræði þakklætis og virðingar. Reykjavík, 25. júlí 1984, Árelíus Níelsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.