Morgunblaðið - 24.08.1984, Page 35

Morgunblaðið - 24.08.1984, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 1984 35 Guörún Guðmunds döttir — Minning Fædd 23. nóvember 1906 Dáin 15. ágúst 1984 Guðrún Guðmundsdóttir, hús- móðir, Langholtsvegi 46, Reykja- vík, andaðist í Borgarspítalanum 15. ágúst sl., eftir stutta legu, 77 ára að aldri, en hún hafði átt við nokkra vanheilsu að striða síðustu árin. Útför hennar verður gerð í dag, frá Aðventkirkjunni í Reykjavík. Guðrún fæddist á ísafirði þann 23. nóvember 1906. Foreldrar hennar voru Anna Torfadóttir frá Súðavík og Guðmundur Guðnason frá Bolungarvík. Guðrún á einn al- bróður á lífi, Guðmund Guðna, rit- höfund, f. 1912, nú búsettur í Kópavogi. Guðrún átti og tvo hálf- bræður, Svein, sem nú er látinn, og Auðun, bónda á Dvergasteini við Álftafjörð. Guðrún ólst upp hjá móður sinni á Isafirði til 16 ára aldurs. Á ísafirði vann móðir Guðrúnar fyrir sér með sauma- skap og fór þá Guðrún með móður sinni víða bæði til Bolungarvíkur, Hnífsdals og Súðavíkur og kynnt- ist þar högum fólks við mismun- andi aðstæður. Árið 1922 þegar Guðrún var 16 ára gömul, fluttust þær mæðgurnar til Reykjavíkur og var Guðrún um skeið í vist á ýmsum heimilum í Reykjavík. í nóvember 1928 kvæntist Guð- rún eftirlifandi eiginmanni sínum, Friðbergi Kristjánssyni frá Hell- issandi. Settu þau á stofn heimili sitt í Reykjavík og bjuggu þar all- an sinn búskap, utan tvö ár sem þau bjuggu á Hellissandi. Börn Guðrúnar og Friðbergs eru, talin í aldursröð: Kristján, f. 5. júní 1930, forstöðumaður, Kumbaravogi við Stokkseyri, kvæntur Hönnu Halldórsdóttur, og eiga þau tvo syni, Guðna, kvæntur Kirsten Larsen frá Danmörku, en börn þeirra eru Karl og Anna; Halldór, sem er ókvæntur; Geir, hjúkrunarfræð- ingur, f. 2. janúar 1932, sem býr í Kópavogi, kvæntur Hólmfríði Geirdal Jónsdóttur og eiga þau tvo syni, Össur og Berg; Edda, sjúkra- þjálfari, f. 23. mars 1941, gift séra Ole Bakke frá Danmörku, en þau eru búsett í Kaliforníu í Banda- ríkjunum.og eiga þau tvö börn, Önju og Barry; Guðni Gils, f. 1. júlí 1945, ókvæntur og býr í Ósló í Noregi, hann á eina dóttur, Krist- ínu. Guðrún og Friðberg bjuggu á ýmsum stöðum í Reykjavík fyrstu búskaparár sín, en í stríðslok byggðu þau sitt einbýlishús að Langholtsvegi 46 og bjuggu þar síðan. Þar bjó Guðrún manni sín- um og börnum gott heimili, sem ávallt bar hlýleik hennar og smekkvísi vitni. Guðrúnu þótti mjög vænt um heimili sitt og gerði það að mjög hlýlegu athvarfi fyrir börn sín og síðar barnabðrn. Guðrún unni börnum sínum og barnabörnum mjög, og átti um- hyggja hennar fyrir þeim sér eng- in takmörk. Umönnun hennar við þau var mjög eftirtektarverð. T.d. kom aldrei sá afmælisdagur í fjöl- skyldu Guðrúnar að hans væri ekki minnst með veglegum gjöf- um, símtali eða símskeyti. Sama átti við um þá fjölmörgu sem Guð- rún hafði komist í kynni við. Guðrún var mjög trygglynd kona. Kom það m.a. fram í þeirri tryggð sem hún sýndi móður sinni, en hún bjó hjá henni og andaðist á heimili Guðrúnar háöldruð 1956. Aldrei kom til mála að móðir hennar yrði send utan heimilisins meðan mögulegt var að annast hana heima. Taldi Guðrún sig ávallt mjög lánsama að hafa getað hlúð að móður sinni og haft hana hjá sér á heimili sínu þar til yfir lauk. Guðrún unni gróðri og ræktun, og bar garðurinn að Langholtsvegi 46 þess merki. Það voru meðal mestu ánægjustund Guðrúnar þegar hún var úti í garði að gróð- ursetja plöntur og tré. Hún hlúði að gróðrinum með sömu nærgætni og einkenndi öll mannleg sam- skipti hennar. Saknaði hún þess mjög síðustu árin, eftir að heilsa hennar bilaði, að geta ekki unnið f garðinum, fá ekki snertingu við moldina. Guðrún var sjálfstæð kona og reyndi oft á sjálfstæði hennar og dugnað um ævina. Hún ólst upp föðurlaus með móður sinni, sem var fyrirvinna og vann utan heim- ilisins. Síðar þegar eiginmaður hennar varð fyrir endurteknum áföllum og veikindum, varð Guð- rún að sýna sjálfstæði, kjark og áræði. Þyngsta raunin var sjálf- sagt þegar Friðberg veiktist af berklum í stríðslok, einmitt þegar vinnan var að aukast og menn gátu séð fram á betri tíð. En Frið- berg varð þá að dvelja 8 ár í Víf- ilsstaðaspítala. Á þeim árum var einmitt verið að fullklára hús þeirra hjónanna og mæddi það mjög á Guðrúnu. Henni tókst með fádæma dugnaði, elju og góðri hjálp sona sinna að klára húsið, þrátt fyrir að eiginmaðurinn væri í sjúkrahúsi. Kynni okkar Guðrúnar hófust þegar systir mín, Hanna, giftist Kristjáni, syni Guðrúnar, árið 1953. Fáum árum síðar veiktist maðurinn minn og varð að fara til Danmerkur í erfiða læknisaðgerð. í dag verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík, ólafur Sigurðsson, sjómaður, en hann lést í Landspítalanum 19. ágúst síðastliðinn, eftir skamma legu, en hann hefði orðið 87 ára í haust, sem er hár aldur fyrir erfiðismann er var á sjónum allt sitt líf, eins og sagt er. Ólafur Sigurðsson var ættaður frá Eyrarbakka, sonur hjónanna Viktoríu Þorkelsdóttur frá Hólum (1859—1914) og Sigurðar Jónsson- ar verslunarmanns frá Litlu-Há- eyri (1857—1901), en þau bjuggu á Akri á Eyrarbakka, en hún síðar í Reykjavík, eftir að börnin voru flest farin suður. ólafur var af traustri og þekktri ætt, en hann var yngstur fimm systkina, en þau voru Jón Sigurðs- son, skipstjóri, i Reykjavík (1888—1973) er lengi stýrði togar- anum Hilmi, Hannesína Sigurð- ardóttir (1890—1962) er átti Þor- leif Guðmundsson, kaupmann og alþingismann í Þorlákshðfn, Kol- Eftir að við hjónin komum heim úr þeirri ferð urðum við að dvelja í Reykjavík um nokkurra vikna skeið, þannig að hægt væri að vera nálægt sjúkrahúsi. Guðrún mætti okkur þá, sem alltaf síðar, með opnum örmum. Opnaði hún heim- ili sitt og bauð okkur að vera hjá sér þann tíma sem við þurftum með. f nokkur ár þar á eftir þurft- um við hjónin stundum að koma til Reykjavíkur og vera um nokk- urn tíma vegna sjúkdómsins, og ávallt stóð heimili Guðrúnar okkur opið. Gerðu þau Guðrún og Friðberg allt sem í þeirra valdi stóð til að gera veru okkar að heiman sem þægilegasta. Vil ég sérstaklega minnast þess með þakklæti nú að leiðarlokum. Hjartahlýja og góðvild Guðrún- ar kom einnig fram, er dætur okkar hjónanna voru við nám upp á landi, eins og við Vestmanney- ingar köllum það stundum. Þá höfðu þær ávallt skjól hjá Guð- rúnu þegar þær þurftu á því að halda. Ekki var nóg með að dætur okkar gætu átt athvarf hjá Guð- rúnu heldur og vinkonur þeirra og vinir, sem löðuðust að þessu vin- gjarnlega heimili. Guðrún var trúuð kona. Fljót- lega eftir að hún kom til Reykja- víkur upp úr 1920, kynntist hún boðskap Aðventsafnaðarins i Reykjavík, og tók tryggð við þann söfnuð. Trúin var alla tíð mikill aflvaki í lífi Guðrúnar, og þeir, sem til hennar þekktu, vita að það traust og sú huggun sem trúin veitti henni létti henni alla erfið- leika og áföll, sem veikindi eig- inmanns hennar vissulega voru. Guðrún var mjög umhugað um að glæða með börnum sínum og barnabörnum virðingu fyrir Guði og sköpunarverki hans. Hún lifði og trú sína. Kærleiksboðorðið um að „allt það sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra“ var henni ofarlega í huga. Allra götu vildi hún greiða og þótt oft væri þröngt í búi hefði hún verið tilbúin að láta síðasta matarbitann til einhvers sem á honum þyrfti að halda. beinn Sigurðsson, skipstjóri í Reykjavík (1892—1973), er lengi var skipstjóri á Kveldúlfstogurun- um og Þórdís Sigurðardóttir, er dó á öðru ári (1895-1897). Sem áður sagði, var ólafur yngstur systkinanna frá Akri, en hann var fæddur þar 30. nóvember árið 1897. Ólafur byrjaði snemma sjó- mennsku, fyrst úr háskalegum lendingum hér syðra, en síðar á þilskipum. Meðal annars Frances Hyde, en hann aflaði sér ekki rétt- inda; kaus að stunda sína sjó- mennsku framan við forsigluna, eins og stundum er sagt. Var alla ævi háseti, en eftirsóttur sjómað- ur þó og í góðum plássum. Olafur mun hafa byrjað sjó- mennsku á þilskipum 19 ára að aldri, og sigldi hann síðan á ýms- um skipum, þar af um 12 ára skeið á dönskum og amerískum, og hann var því víðförull, reyndur, bæði úr lendingunni heima og eins verald- arhöfunum þremur, en eftir að heim kom fyrir um það bil hálfri öld, var hann fyrst í plássi á tog- urum og á kaupförum, en lengst var hann háseti á skipum Skipaút- gerðar ríkisins, eða á strandferða- skipunum. Ólafur hætti sjómennsku árið 1962, en vann eftir það sem hafn- arverkamaður og vaktmaður hjá Skipaútgerðinni og síðar Eim- skipafélagi íslands, þar sem hann var síðast er hann lét af störfum 72 ára að aidri. Ég kynntist ólafi Sigurðssyni snemma. Var honum aukin heldur samskipa um tíma. Og þótt hinn skilgreindi sjómannsframi sé yfir- ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn- ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn- ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. Minning: Ólafur Sigurðs- son sjómaður Guðrún var vel gerð og gáfuð kona. í barnaskólanum á fsafirði var hún m.a. látin fara yfir tvo bekki vegna framúrskarandi ár- angurs í námi. Lauk hún þvi barnaskólaprófi fyrr en jafnaldrar hennar. Hugur hennar stóð til áframhaldandi náms og mun einn kennara hennar á ísafirði, sem var barnlaus, hafa boðist til að kosta hana til náms til Reykjavík- ur, en bæði kom það til að hún vildi ógjarnan þiggja hjálp ann- arra, og það, að hún var tengd móður sinni sterkum böndum, að ekki varð úr að hún færi suður til frekara náms að barnaskólanámi loknu. Eftir að Guðrún kom til Reykjavíkur sótti hún nokkur námskeið, m.a. tók hún tíma í dönsku. Náði hún ágætis valdi á dönsku og gat bæði talað og ritað sendibréf á því tungumáli. Snemma hafði Guðrún mikinn áhuga á fjarlægum löndum. Kem- ur það kannski til af því að faðir hennar, sem hún kynntist ekki, fór út í heim í siglingar þegar hún var 5 ára og kom ekki aftur til íslands eftir það. Hefur barnshugurinn sjálfsagt oft dvalið við hin ókunnu lönd þar sem faðir hennar bjó. Kannski var það af þessum áhuga að hún tók upp það tómstunda- gaman að safna frímerkjum. í gegnum frímerkjasöfnunina eign- aðist hún vini i mörgum ríkjum, sem hún hélt traustu bréfasam- bandi við, sendi þeim nýjustu út- gáfur af íslenskum frímerkjum og fyrsta dags umslög og fékk í stað- inn frímerki frá þessum vinum sínum í öðrum heimshlutum. Þetta tómstundastarf hennar veitti henni mikla ánægju og kom kannski að hluta til móts við draum hennar um að sjá sig um í heiminum og heimsækja hin ólíku þjóðríki. Guðrún átti þó þess kost að fara í nokkrar utanlandsferðir og voru þær ferðir henni til mikill- ar ánægju. Guðrún var afar samviskusöm við öll þau verk sem hún tók að sér að vinna. Um tíma starfaði hún utan heimilis, m.a. við ræstingar á skipum Eimskipafélagsins og síð- ar við ræstingar í kexverksmiðj- unni Frón við Skúlagötu. Sam- viskusemi hennar var annáluð og var hún einkar vel metin af sam- starfsmönnum sínum. Það var henni mikið metnaðarmál að sérhvert verk sem hún tók sér fyrir hendur væri framkvæmt óaðfinnanlega. Að leiðarlokum og á kveðju- stund koma margar fagrar minn- ingar um Guðrúnu fram í hugann. Á þær ber engan skugga. Það vek- ur nú söknuð að öllum samskipt- um skuli lokið. En þegar aldur færist yfir og líkamsþrótturinn dvínar er dauðinn oft kærkominn og hvíldin þakksamlega þegin. Guðrún Guðmundsdóttir hefur kvatt okkur, sátt við allt og alla. Sofnuð, i trú á Guð sinn, og í full- vissu um, að á eftir dauðanum fylgir upprisan til eilífs lífs, svo sem ritningin boðar. Við Doddi sendum eftirlifandi eiginmanni, börnum og öðrum að- standendum innilegar samúðar- kveðjur. Guð blessi minningu hennar. Ingibjörg Haraldsdóttir leitt hafður í lyftingunni, eða í stóru vélarrúmi, þá nutu vaskir hásetar, reyndir við segl og drag- reipi og við öll þau verk er vinna verður á þilfari skipa, virðingar og álits. Og þótt ólafur segði eigi sögur, vissum við að þessi hægláti maður stóð í mörgu feti framar, ef á hásetann reyndi. Ólafur mun hafa farið suður, al- farinn innanvið tvítugt, og átti heimili eftir það í Reykjavík, ef frá eru talin árin tólf, sem hann var í siglingum með Dönum og Ameríkönum, og árið 1938 kvænt- ist hann eftirlifandi eiginkonu sinni, Guðrúnu Jónsdóttur f. í Reykjavík 6. nóvember árið 1903, en Guðrún var dóttir Jóns Krist- jánssonar verkamanns og vakt- manns í Reykjavík, systir Jóns Oddgeirs Jónssonar, er lengi var fulltrúi Slysavarnafélagsins, og þeirra systkina. Þau Ólafur og Guðrún bjuggu fyrst á Vesturgötu 68, en árið 1942 keyptu þau íbúðarhús á Fram- nesvegi 15 og þar stóð heimili þeirra upp frá því, og hafði ólafur því sjávargötu skamma alla ævina. Og þar ólu þau upp börnin sín þrjú, sem nú eru löngu fullvax- in og farin annað. Ég kom nokkrum sinnum á heimili þeirra fyrr á árum og þar var gott að koma og sitja yfir kaffi, eins og á svo mörgum sjó- mannsheimilum á þeirri tíð, með- an lifað var við aðra gleði og aðra þjáningu en í þeim tækniheimi er við nú búum við, ásamt allsnægt- um og þrýstingi. Börn þeirra Guðrúnar Jónsdótt- ur og Ólafs Sigurðssonar eru öll á lífi, en þau eru Jón Ólafsson, stýri- maður hjá Eimskipafélaginu kvæntur Elínu Harðardóttui Markan, Viktoría Valgerður Ólafsdóttir, en hennar maður er Guðmundur Ármannsson, bygg- ingameistari og framkvæmda- stjóri hjá Ármannsfelli, og Jó- hanna Oddný Ólafsdóttir, en hennar maður er Guðni Ottósson, húsasmíðameistari frá Fáskrúðs- firði. Þau búa öll hér syðra, dæt- urnar í Reykjavík en Jón í Hafn- arfirði. Starfsdagur Ólafs Sigurðssonar var langur. Hann stóð sína vakt lengi á sjónum og var sívinnandi eftir það í landi, meðan heilsan leyfði. Guðrún kona hans, sem nú kveður mann sinn, hefur á hinn bóginn átt við vanheilsu að búa síðari árin og dvelst nú á sjúkra- húsi með kvöldsól í augunum. Og ef maður horfir til liðinna daga við ferðalok, kveður maður eigi einn mann, heldur líka tíma. Mikla tíma er menn fóru á fjölum og vindurinn hvíslaði drauminn í reiðann, ellegar þegar hann hvessti. Siglt var gegnum tvö stríð. Gegnum stríð og frið, og svo einn daginn er farið í land í sein- asta sinn, því ferðinni er lokið. Ólafur Sigurðsson háseti hefur nú sjóbúið í seinasta sinn, og þótt í skyndingu hafi nú verið kallað til ferðar, eins og svo oft, er ég þess viss að vel búið skip hefur látið úr höfn, og nú í hinsta sinn, því þá sigla menn hátt. Blessuð veri minning hans. Jónas Guðmundsson rithöfundur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.