Morgunblaðið - 24.08.1984, Side 38

Morgunblaðið - 24.08.1984, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 1984 Enska knattspyrnan hefst á morgun Ár Manchester Utd. eöa vinnur Liverpooi aftur? Fyrstu umferð ensku deildarkeppninnar í knattspyrnu fer fram á morgun og verða þá margir athyglisverðir leikir eins og vænta mátti. Augu flestra beinast sem fyrr aö vasntanlegu einvígi risanna, Liver- pool, sem vinnur og vinnur, og Manchester Utd. sem jafnan streðar í skugganum og vantar svo herslumuninn er komast þarf yfir síöasta hjallann. Nú er staðan forvitnileg, Liverpool mætir til leiks án fyrirlið- ans Graeme Souness sem haldinn er í austurvíking til Ítalíu og lan Rush sem missir að minnsta kosti af fyrsta leiknum, kannski fleiri, vegna meiðsla. Hjá United er staðan með ððrum hsstti, en ðljós samt. Ray Wilkins er horfinn á braut, (itölsku knattspyrnuna eins og Soun- ess, en United hefur fengiö nýtt blóð svo um munar, tíðrætt hefur verið um snillingana Jesper Olsen og Gordon Strachan, einnig hinn oft markheppna Alan Brazil. Atkinson stjóri hjá MU er í þeim vanda staddur aö þurfa að setja á bekkinn þrautreynda landsliösmenn. Hvernig til tekst hjá Atkinson og hver árangur veröur skýrist auövit- aö ekki fyrr en liöiö fer aö leika. Á pappírnum er MU besta liöiö í dag, en svo sem dæmin sanna eru liðin oft önnur á pappírnum en á vellin- um og tíminn mun skera úr um hvort hiö óviöjafnanlega saman- safn af stórstjörnum sem fyrir er hjá MU muni ná saman sem heild. Ef þannig tekst tíl, skákar liöiö Llv- erpool sennilega. Hvaö varöar Liv- erpool er svo annar handleggur. j upphitunarleikjum hefur liöið leikiö illa, en þaö segir oft litla sögu. Spurningin snýst helst um hvernig skarö Souness veröur fyllt, hvort aö Daninn Mölby geri þaö, eöa einhver annar. En þaö fer ekki hver sem er í skarö Souness, Liverpool mun sakna hans og liöiö stendur veikara eftir. Spurningarmerki hangir einnig yfir vörn liösins. Nú er sá sem aö margra dómi hefur veriö veikasti hlekkurinn, Phil Neal, oröinn fyrirliöi og búast þvi flestir viö varnaruppstillingunni óbreyttri, auk Neals, Lawrenson, Hansen og Kennedy. Þaö hrikti í stoöum þessarar varnar oft á síö- asta tímabili og sama hefur verið uppi á teningunum i æfingaleikjum í sumar. Hvaö sem gerist, veröur einvígi risanna spennandi og hver veit nema aö fleiri liö blandi sér i slaginn og slái þeim jafnvel viö? Nottingham Forest kemur upp i hugann er spáö er í hvaöa liö kæmu helst til greina aö ógna veldi Liverpool og Man. Utd. Liöiö skaust upp fyrir United ásamt Southampton, er vindurinn lak úr leikmönnum Manchester-liösins eftir frækilega eftirför viö Liverpool allan veturinn. Þaö vantar stjörnur í liö Forest sem þarf svo sem ekki A-Þjóöverjar viöurkenna heimsmetið ÞAU tíðindi geröust í gær, aö Austur-Þjóðverjar viöur- kenndu hið nýja heimsmet Ev- elin Ashfords í 100 metra hlaupi. Það gerðu þeir eftir að Ashford hafði sigrað Marlies Gohr frá Austur-Þýskalandi á frjálsíþróttamótinu f ZUrich. Ashford átti gamla metið, sett í Colorado Springs í júlí á sfð- asta ári. Austur-Þjóöverjar viðurkenndu ekki það met. Fyrra metiö hljóöaði upp á 10,79 sekúndur, en nýja metiö hins vegar 10,76 sekúndur. Austur-Þjóöverjar yfirlýstu Marlies Gorh heimsmethafa þar til í gær, hennar besti timi var og er 10,81, tími sem hún náöi í júní á siöasta ári. Aust- ur-þýskir fjölmiölar greindu frá meti Ashfords i dag án sér- stakrar umfjöllunar og enginn þeirra minntist á að hlaupakon- urnar féllust i faöma í hlaups- lok. aö skipta máli, liöiö er samansafn ungra pilta meö nokkra eldri kappa innan um og allt eru þetta duglegir og snjallir leikmenn. Sér- fræöingar telja þó aö enginn leikmanna Forest sé sú „týpa“ aö geta tekiö leikinn í sínar hendur eins og Dalglish hjá Liverpool og Robson hjá United. Á hlnn bóginn er stjórinn Brian Clough manna snjallastur aö ná því besta út úr leikmönnum, hann hefur oft og iöulega gert landsliösmenn úr miölungsleikmönnum. Hann hefur keypt Hollendinginn John Metgod frá Real Madrid, en Metgod er sterkur miövallarleikmaöur sem gæti stjórnaö leik liösins. Southampton veröur eflaust sem fyrr í hópi efstu liöa og búast má einnig viö stórliöunum og ná- grönnunum Arsenal og Tottenham í þeim hópi. Sannarlega hafa bæöi liöin í herbúöum sínum fjölda leikmanna í hæsta gæöaflokki, en ár eftir ár hefur báöum mislukkast aö ná festu og jöfnun í leikjum. Ýmist unniö eöa tapaö og sjaldan náö góöum köflum sem spanna meira en örfáar vikur áöur en viö tekur hrina tapleikja. Þessum lið- um er einnig hættara er lykilmenn meiöast heldur en Liverpool og United, því leikmannahópurinn er ekki eins stór. Trúlega á United nú flestu varamennina í hæsta gæöa- flokki. Þetta gæti oröið ár Man- chester Utd., aö minnsta kosti eru margir sérfræöíngar á því aö veröi þaö ekki nú sé ekki ástæöa til aö ætla aö þaö veröi í bráö. Lítum aö lokum á leiki helgarinnar í 1. deild: Arsenal — Chelsea Aston Villa — Coventry Everton — Tottenham Leicester — Newcastle Luton — Stoke Manch. Utd. — Watford Norwich — Liverpool QPR — WBA Sheffield Wed. — Nott. Forest Sunderland — Southampton West Ham — Ipswich • Tvö þeirra liða i Manchester Utd. Punktar úr ensku knattspyrnunni: Palace keypti miö- vörö frá Arsenal Frá Bob Honnmy, fréttar. Mbl. I Englandl. STEVE Coppell, hin frægi fyrrum leikmaður Manchester Utd. og enska landsliösins í knattspyrnu, dró fram budduna í fyrsta skipti síðan hann tók við stjórnvölnum hjé Crystal Palace, og snaraði út 85.000 pundum fyrir Chris White, miöveröi hjé Arsenal. White þessi er stór og stæltur blökkumaður sem var ýmist í aðalliöi Arsenal eða ekki síðasta tímabil. Hann þykir vera mikiö efni og kosta- kaup hjé hinum 28 éra gamla Coppell. Bobby Ferguson framkvæmda- stjóri hjá Ipswich hefur skrifaö undir nýjan samning hjá félaginu, en samkvæmt honum veröur Bobby viö stjórnvölin hjá Anglíuliö- inu næstu tvö árin. Kom þetta kannski örlítiö á óvart, því Ipswich lék lengst af illa síöasta keppnis- tímabil og rétt mjakaöi sér úr fall- sæti á síöustu stundu. Ray Clemence, hinn kunni markvörur Tottenham og fyrrum markvöröur Liverpool og enska landsliösins í mörg ár, mun vera i byrjunarliöi Tottenham er liöiö mætir Everton á Godison Park i Liverpool á morgun. Clemence var afspyrnuslakur oft á siöasta tíma- Decker meira slös- uö en talið var — keppir ekki meira í sumar MARY Decker, bandaríska hlaupadrottningin sem komst vel í sviðsljósið é Olympíuleikunum í Los Angeles er hún hljóp aftan é Zolu Budd fré Suöur-Afríku með þeim afleiöingum aö hún stakkst é höfuðið og þeyttist út af braut- inni, keppir ekki meira í sumar, meiðsli hennar reyndust meiri en é horfðist í fyrstu. Decker hlaut meiöslin í um- ræddu falli og sagöi þjálfari hennar í dag, aö röntgenmyndir heföu sýnt fram á mun meiri meiösli en taliö var í byrjun, vöövavefir heíöu teygst og rifnaö á umtalsveröu svæöi í mjööm og nára Deckers. Hún væri þó óbrotin. Sagöi þjálfar- inn aö Decker heföi veriö skráö i all mörg mót hér og þar í sumar, til dæmis heföi hún átt aö hlaupa á einu slíku i Zúrich um þessar mundir, en af því heföi ekki getaö orðið, „meiöslin voru þaö slæm aö Mary heföi ekki getaö mætt í sum þeirra, ekki veriö undir þaö búin aö keppa í öörum. Hún veröur aö taka sér góöa hvíld, byrja svo aö æfa aftur af fullum krafti," sagöi þjálfarinn. • Graeme Souness verður fjarri góðu gamni. Hvernig skyldi Liv- erpool vegna én hans? f toppbaréttunni, Arsenal og bili og fékk á sig sæg af klaufa- mörkum. Loks missti hann stööu sína til Tony Parks sem sló í gegn, tryggöi liöinu meira aö segja UEFA-bikarinn meö frábærri frammistööu i vítaspyrnukeppni í úrslitaleiknum gegn Anderlecht, varöi þar tvær vítaspyrnur. Búist var viö því aö hann héldi stööu sinni, en Clemence lætur ekki aö sér hæöa, hefur æft sem vitlaus væri og haldið hreinu í 7 æfingar- og vináttuleikjum í röö. Dave Bennett, snjall sóknarleik- maöur hjá Coventry og áður hjá Manchester City, veröur aö leggja skóna á hilluna vegna meiösla i fæti. Hann gekkst undir uppskruö fyrir nokkru og biöu menn spennir hvernig til tækist. Meiöslin reynd- ust hins vegar þaö slæm, aö Benn- ett má ekki leika knattspyrnu framar, nema aö hann vilji taka áhættu á því aö örkumlast varan- lega. Bennett er aöeins 24 ára gamall. Hann skoraöi mikiö af mörkum sem framherji meö Man. City en lék yfirleitt sem tengiliöur hjá Coventry. Ron Saunders stjóri hjá Birm- ingham geröi eflaust góö kaup fyrir skömmu er hann greiddi 50.000 pund fyrir Dave Armstrong miö- vallarleikmanninn sköllótta hjá Southampton. Hann lék með enska landsliöinu á síöasta tímabili og þótti þá mörgum kominn tími til. Armstrong hefur veriö einn af buröarásunum í góöu liöi South- ampton í mörg ár, auöjjekkjanleg- ur á velli meö glansandi skallann sinn. Liverpool kaupir arftaka Souness Frá Bob Hennmy, fráttar. Mbl. á Englandi. ENSKU meistararnir Liverpool hafa fest kaup é danska landsliösmanninum Jan Melby sem lelkiö hefur við góðan oröstír hjé Ajax f Hol- landi. Meiby er skoðaður sem mögulegur arftaki Graem Souness fyrirlíöa é miðjunni hjé Liverpool, Melby þykir vera eigi ósvipaður leikmaöur. Molby hefur veriö til reynslu hjá Liverpool síðustu vikurnar og lék æfingaleik meö liöinu gegn írska liðinu Home Farm fyrir skömmu. Þar stóö hann sig stórvel og klykkti út meö því að skora þriöja mark Liverpool í 3—1-sigri liðsins. Stórglæsi- legt mark og geröi þaö útslagiö um aö Joe Fagan vildi reiða fram 250.000 sterlingspund til handa Ajax fyrir hinn 21 árs gamla Molby. Chinaglia kaupir Cosmos FORSTJÓRAR bandaríska knaftspyrnustórveldisins New York Cosmos hafa samþykkt aö selja félagíö hópi manna undir forsæti ítalans Giorgio Chinaglia, sem lengi lék með liðinu og skoraði gífurlega mikíð af mörkum, sem gerðu liðið fjórum sinnum é jafn mörgum érum að bandarísk- um meistara í knattspyrnu. Fyrri eigandi liðsins, Warner Comm., mun eftir sem éður eiga 40 prósent hlutabréfa f fyrirtækinu. Enginn hefur jafnast viö Chinaglia i bandarísku knatt- spyrnunni, en hann skoraöi alls 193 mörk í bandarísku deild- inni, og í stigagjöf sem allir leikmenn deildarnnar fá, er Chinaglia meö 467 stig, lang- mest allra leikmanna deildar- innar, 154 stigum meira en næsti maöur sem er Vestur- Þjóöverjinn Karl Heinz Garnitza. Sá kappi er svo með 79 stigum meira en hinn enski Alan Willey sem einu sinni lék meö Middlesbrough.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.