Morgunblaðið - 28.10.1984, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. OKTÖBER 1984
29
horfir fram fyrir sig tómu augna-
ráði, og bíður. Eftir hverju? Engu.
Hann rekur nálina ákveðið undir
húðina. Þegar hann reynir að
draga upp f sprautuna, kemur ekk-
ert blóð. Hann iosar sprautuna og
rekur hana í sig aftur, og grettir
sig um leið. Ekkert blóð.
Ég finn ekki helvftis æðina, segir
hann. Þú verður að hjálpa mér.
Ókei, segir hinn, og sest silalega
upp.
Freddý lítur undan og stífnar
allur þegar kalt stálið stingst f
hann. Hann lokar augunum þegar
ólin er losuð, og finnur eitthvað
heitt streyma inn í handlegginn.
Þessi heita gusa breiðist út um all-
an líkamann og öll skynfæri. Hann
linast upp eins og hann sé að leys-
ast í sundur, umlukinn af mjúkri
vellíðan. Hann opnar augun aftur
og sér herbergið eins og í gulri
slikju, og tekur nú fyrst eftir hvað
hvað þetta er vistlegt umhverfi.
Hann hallar sér upp að veggnum til
að njóta áhrifanna sem best. Þá er
hann allt í einu gripinn óstöðvandi
ógleði. Hann gubbar og gubbar eins
og hann ætli að selja upp lifur og
lungum. Þegar maginn er orðinn
tómur, kemur yfir hann þvflik
værð, að hann vill ekkert nema
liggja þarna fljótandi inni f sjálf-
um sér um aldur og ævi. Ekkert
annað. Aldrei nokkurn tíma neitt
annað.
Hann rankar við sér þegar ýtt er
óþyrmilega við honum.
Við skulum hypja okkur, segir
maðurinn.
Hypja okkur? Hvert? Liggur
eitthvað á?
Ég þarf að fara að vinna, segir
hann.
Vinna? Núna? Um miðja nótt?
Auðvitað maður. Ég verð að ná í
peninga fyrir næsta fixi.
Ég þarf aldrei neitt meira, segir
Freddý. Ég ætla bara að vera
svona.
Þú um það. Það kemur mér ekki
við. Ég verð að minnst kosti að ná í
peninga áður en ég verð veikur aft-
ur. Annars fer illa. Og nú förum
við. Út með þig.
Freddý vill ekki hugsa um f
hverju „vinna“ mannsins er fólgin.
Hann bröltir á fætur og fer með
honum út. Þeir skilja á sama horn-
inu og þeir hittust. Freddý - fer
heim. Honum gengur illa að kom-
ast upp í rúmið. Það er mannhæð-
arhátt og skápar undir því. Loks
tekst honum þó að klifra upp í það.
Þar hnígur hann niður. Fyrir ofan
hann rís stúlkan hans upp við dogg
og horfir á hann.
Hvað kom fyrir? segir hún. Hef-
ur eitthvað komið fyrir?
Nei, segir Freddý með erfiðis-
munum. Hann er svo sljór að hann
getur varla talað. Það hefur ekkert
komið fyrir.
Ertu búinn að selja eitthvað?
Freddý baxar við að ná pening-
unum upp úr vasa sfnum og lætur
hana hafa þá orðalaust.
Stúlkan tekur við þeim og horfir
á hann með undrun og tortryggni í
svipnum.
Hvað er að þér drengur? segir
hún. Þú ert þó ekki fullur? Ertu
algerlega stónd?
Já, drafar í Freddý. Það má víst
segja það. Ég er algerlega stónd.
Hvern andskotann hefurðu nú
tekið?
Æi, hættu nú þessu röfli mann-
eskja. Geturðu ekki leyft mér að
sofa? Ég vil fá að vera í friði.
En stúlkan lætur hann ekki í
friði. Hún hvessir á hann augun og
brettir upp skyrtuermina á vinstri
handleggnum. Og rekur upp óp.
Þú ert brjálaður, segir hún. Þú
ert farinn að fixa. Og segir mér
ekki frá þvf. Veistu hvað þú ert að
gera?
Hvað er þetta manneskja? Láttu
ekki svona. Heldurðu að það sé
kominn heimsendir þó maður fái
sér eitt fix?
Ertu búinn að gleyma hvað við
ákváðum? Að þetta myndum við
aldrei gera? Hvað sem fyrir kæmi.
Að hér myndum við stoppa.
Freddý svarar engu.
Jæja þá, segir stúlkan hörkulega.
Fyrst þú getur gert þetta, þá get ég
það líka.
Ekkert mál, umlar Freddý í
svefnrofunum.
En innst inni veit hann, að nú er
hann endanlega húkkt.
KmnMmi*
Fellagörðum ■ Breiðholti III (í dansskóla HEIÐARS)
Konur a öllum aldri!
öðlist sjálfstraust í lífi og starfi
Almenn námskeið
Karon skólinn kennir ykkur:
• rétta líkamsstööu
• rétt göngulag
• fallegan fótaburö.
Karon-skólinn leiöbeinir ykkur um:
• andlits- og handsnyrtingu
• hárgreiöslu
• fataval
• mataræöi
• hina ýmsu borösiöi og alla al-
menna framkomu o.fl.
Öll kennsla í höndum færustu sér-
fræöinga.
Allir tímar óþvingaöir og frjálslegir.
Ekkert kynslóöabil fyrirfinnst í
Karon-skólanum.
Model námskeið
Karon-skólinn kennir ykkur:
• rétta líkamsstööu
• rétt göngulag
• fallegan fótaburö
• sviösframkomu
• unniö meö Ijósmyndara
• látbragö
og annaö sem tilheyrir sýninga-
störfum.
Innritun og upplýsingar í síma 38126.
Kennsla hefst þriðjudaginn 6. nóvember.
Hanna Frímannsdóttir.