Morgunblaðið - 28.10.1984, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 1984
49
Jakob Jónsson
um við báðir ekkert eftir liggja.
Fyrir þau skemmtilegu og góðu
kynni ber mér að þakka. Oft hefir
verið fjör í fögnuði í fallega
nhjemmets hygge“-húsinu hans
við Lindargötu, þar sem húsbónd-
inn hefir jafnan verið stórveitull
og örveitull höfðingi.
Eiginkonu, börnum og tengda-
börnum, að ógleymdum barna-
börnum, óska ég alls hins bezta
um leið og ég óska Björgvini til
hamingju á þessum merku tíma-
mótum. Að lokum vil ég færa fram
eina ósk afmælisbarninu til
handa, en hún er sú, að þessi
mikla félagsvera, Björgvin, lendi
aldrei í þeim fjölmenna flokki,
sem kalla mætti á nýtízkumáli
HH-flokkinn og stæði þá fyrir
Hulduher hlandkarla, sem við ótt-
umst hvað mest, sem erum að eld-
ast. Slíkir verksmiðjugallar skap-
arans fyrirfinnast ekki hjá bless-
uðu veika kyninu af skiljanlegum
ástæðum frekar en ótal margar
aðrar brotalamir og gallar i fari
okkar karlmannanna.
Vonandi mun Björgvin halda
áfram að bregða skartsvip á um-
hverfi sitt um langa framtíð og
stíga ölduna ábúðarmikill og
eldhress eftir Laugavegi og Hverf-
isgötu, lítið eitt vaggandi í spori
eins og á siglingu hins góða skips,
Frekjunnar, á öldum Atlantshafs-
ins forðum. Gróskumikið og
grásprengt skeggið bærist þá í
andvaranum eins og fokkan eða
framseglið á flaggskipi frænda
hans, admiral Thordenskjelds.
Björgvin minn. í dag ætlar und-
irritaður ekki að biðja afsökunar á
meðfæddri frekju, en sigla undir
fullum seglum, boðinn eða óboð-
inn, beint í fögnuðinn. Þar ber að
taka lagið og syngja við raust svo
að skegg afmælisbarnsins skjálfi
og titri eins og í tólf vindstigum og
öllum ber að taka undir eins og
Stykkishólmur:
Miklar bygginga-
framkvæmdir
Stykkúfaólmi f okL
Byggingaframkvæmdir hafa verið
hér miklar í sumar og hafa báðar
trésmiðjurnar bér, Trésmidia Stykk-
ishólms og Trésmiðjan Osp, haft
mikið að gera.
Trésmiðjan ösp er nú að reisa 9.
íbúðarhúsið (einingahúsið) hér í
bænum á þessu ári og einnig hefir
hún reist 12 hús í Reykjavík og
hafa menn verið mjög ánægðir
með þau. Eftirspurn hefir ekki
verið annað. Þar starfa nú milli
40—50 manns. Trésmiðja Stykk-
ishólms hefir einnig haft nóg að
gera og aðalverkefnið hefir verið
bygging barnaskólans, sem von-
andi verður tekinn i notkun að
fullu á næsta ári. Þá hefir tré-
smiðjan í smíðum raðhús. Fram-
kvæmdastjóri Trésmiðju Stykk-
ishólms er Ellert Kristinsson
oddviti, en Trésmiðjunnar Aspar.
Gunnar Haraldsson.
þegar Thordenskjöld hleypti af
öllum kanónum samtímis og ef
sjálfur sjólinn Kristján fjórði
skyldi óvænt bætast í kórinn verð-
ur sungið með „fuld hals“: „... og
kompasen ombord, den havde vi
aldrig haft/ vi sejlede eftir bölg-
erne og skipperens gamle hat“.
örlygur Sigurðsson
langa strimla og festa svo á
léreftið í margs konar lárétt-
um og lóðréttum einingum er
eiga að mynda lífæðir mynd-
byggingarinnar. Á stundum
hlykkjast þessir einingar á
margan veg um myndflötin en
þeim er það sameiginlegt að
mynda eins konar táknræna
burðargrind.
Best tekst Jakobi uppi að
mínu mati er hann útfærir
myndir sinar hreint og mark-
visst og ofgerir þeim ekki með
of miklum táknrænum heila-
brotum. Einhvern veginn
þykja mér það ekki nægilega
haldgóð vinnubrögð að hefta
léreftsstrimlana við myndflöt-
inn því að hér má viðhafa
traustari vinnubrögð. Lista-
maðurinn nær líka ágætum
árangri er hann málar þetta
allt saman og lætur skærin
lönd og leið.
Þessi sýning er um margt
sérstætt innlegg inn í mynd-
listarumræðu haustsins og er
vel þess virði að henni sé veitt
athygli.
Bragi Ásgeirsson
í sölum Listasafns Alþýðu
hefur undanfarið staðið yfir
sýning á 53 myndverkum eftir
Jakob Jónsson myndlistar-
mann. Jakob nam í teikniskóla
Glyptoteksins í Kaupmanna-
höfn í tvö ár en að loknum
þeim undirbúningi náði hann
inngöngu í Listaháskólann og
var kennari hans þar prófessor
Sören Hjort Nielsen en þar
lauk hann námi árið 1971.
Jakob hefur áður haldið sýn-
ingar í Bogasal Þjóðminja-
safnsins (1976) og Listasafni
Alþýðu (1981).
Þessi sýning Jakobs ein-
kennist fyrst og fremst af ljós-
um og björtum litatónum
ásamt fíngerðri og næmri
meðhöndlun forma. Það er
mikil viðkvæmni yfir þessari
sýningu ef svo má komast að
orði og sýningin er einnig
helguð minningu bróður lista-
mannsins, Björns Jónssonar,
er lést á síðastliðnu ári og
hann nefnir velgjörðarmann
sinn.
Mikið ber á því á sýning-
unni, að Jakob viðhefur þau
vinnubrögð um þessar mundir
að klippa niður léreft í mis-
FLUGLEQim OG KSIOSKA
EOT HEESSU KLAPPLBI
IHQEEEBÐ HL LONDON
OGGAEDHT
DAGANA 11.-16. NÓV
atjóTÍ:
aldsson
Brottför: 11. nóv. kl. 17.00
Koxmitimi: Heathrow flugvelli
kl. 19.45
Heimferð: 16. nóv. kl. 13.15
Komutími: Keflavíkurflugvelli
kl. 16.10
Gist verður í London á Hótel
Royal National; fyrsta flokks
hótel í miðborg London.
Innifalið: Flug, gisting í tveggja
m. herb. m/baði í 5 nætur, morgun-
verður og söluskattur. Ferðir til
og frá flugvefli á Hótel Royal
National. Ferðir til og frá hóteli
á aðalleikvanginn í Cardiff
14. nóv.
Verð:
Aðeins kr.
10.995-
og 250.- kr. flugvallarskattur til
viðbótar. Staðfestíngargjald er
kr. 2.000,- „Óendurkræft".
Látið skráykkur strax í ferðlna hjá
Fluglelðum eða ferðaskrlfstofunum.
FLUGLEIDIR
Myndlist
FréttariUrí