Morgunblaðið - 28.10.1984, Side 63

Morgunblaðið - 28.10.1984, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 1984 63 Borgin og landið Myndlíst Bragi Ásgeirsson Á Kjarvalsstöðum stendur nú yfir sýning á 62 vatnslita- myndum er gert hefir Katrín H. Ágústsdóttir. Katrín er menntuð úr Mynd- lista- og handíðaskóla íslands, Handavinnudeild Kennarahá- skólans og Myndlistarskólanum í Reykjavík. Aðallega er Katrín þekkt fyrir framlag sitt við gerð batíkverka hvers konar, — vegg- mynda, kjóla o.fl. en söðlaði um yfir í vatnslitamyndatækni fyrir nokkrum árum og hefur haldið nokkrar sýningar á þeirri fram- leiðslu sinni síðan. Svo sem ég hef áður greint frá í listdómi um Katrínu er vatns- litamyndatæknin ákaflega krefj- andi og hér verður vissulega enginn óbarinn biskup. Katrín nær sem fyrr heillegustum árangri er hún vinnur einfalt og markvisst í tækninni svo sem í myndunum „Þorpsgatan" (10), „Þjóðbraut" (16), „Borgarkvöld" (22) og öðrum myndum í slíkum dúr. En myndirnar á sýningunni eru yfirleitt of lausar í sér, skortir markvissa uppbyggingu og tæknileg listbrögð. Þetta er einhvern veginn svo slétt og fellt og átakalaust. Sannverðugar lýs- ingar á myndefninu en fátt meir. Hér kemur fram kunnáttu- skortur, sem hægt væri að ráða bót á með markvissri þjálfun og miskunnarlausum aga. Katrin virðist ekki hafa bætt við sig frá sýningunni í Gerðu- bergi, sem ég fjallaði lítilsháttar um en hér verður að segjast að Kjarvalsstaðir gera aðrar og meiri kröfur en hin ýmsu félags- heimili á höfuðborgarsvæðinu, sem eðlilegt er. Væntanlega sér listakonan þetta sjálf og tekur sig á áður en hún hyggur á meiri umsvif á sýningarvettvangi. Fylgja henni hér góðar óskir mínar. 15 ungir arkitektar I Ásmundarsal við Freyjugötu sýna um þessar mundir fimmtán ungir arkitektar lokaverkefni sín er þeir hafa framið vfða um Evrópu. Það er mjög lofsvert að gefa almenningi kost á að fylgjast með framvindu mála á sviði húsagerðarlistar með hvers kon- ar sýningum á því sviði. Illu heilli uppgötvaði ég þessa sýn- ingu alltof seint svo lítið varð um þá ftarlegu skoðun, sem jafn umfangsmikil sýning krefst og verðskuldar. Hér vil ég einungis vekja athygli á góðu framtaki með stuttu almennu spjalli. Það sem einkennir þessa sýningu framar öðru er hin nákvæma, tæknilega útfærsla verkefnanna og að hér sér maður hvergi hin nauðsynlegu útskýringar- og frumriss. Ég hef margar svipað- ar sýningar séð og svo virðist að því þroskaðri og mikilfenglegri sem húsameistarinn sé því laus- ari og glæsilegri eru teikningar hans. En hér verður að gæta þess, að um lokaverkefni er að ræða en þó er manni spurn hvort sú mikilvæga undirstaða, sem felst í mótun hugmynda, sé með öllu vanrækt í arkitektaskólum til hags fyrir lýtalausar út- færsluteikningar, sem hver tæknifræðingur á að geta ráðið við. Hvað sem öðru líður þótti mér mjög fróðlegt að skoða þessaa sýningu og þá aðallega tillögur um menningarmiðstöðvar, lista- háskóla og stækkun Ásmundar- safns því að þar eru möguleik- arnir lífrænastir. Á milli tillag- anna dæmi ég alls ekki ekki eftir mína stuttu, yfirborðslegu skoð- un en hvet sem flesta er áhuga hafa á húsagerðarlist að mæta á staðinn. HFÍ HAGRÆÐINGARFÉLAG ÍSLANDS AUGLÝSING: Hagræðingarfélag íslands heldur fræðslufund aö Borgartúni 6, fjóröu hæð, mánudaginn 5. nóvember kl. 10.00 til 16.30. Dagskrá: Kl. 10.00 Notkun tölvu viö hagræöingarstörf, Gunnar Ingimundarson, viöskiptafræö- ingur. Kl. 11.00 Endurnýjun innanfrá — Framleiðniátak, Davíö Guömundsson, tæknifræöingur og Reynir Kristinsson, tæknifræöingur. Kl. 12.00 Matarhlé Kl. 13.30 Vöruþróun, Þorsteinn Óli Sigurösson, tæknifræðingur. Kl. 14.30 Hvaö er logistik?, Jón Sævar Jónsson, verkfræðingur. Kl. 15.30 Japai.^kar framleiöslustjórnunaraöferö- ir, Dr. ngjaldur Hannibalsson, verk- fræöingur. Áhugamenn um hagræöingarmál geta skráö sig inn á fundinn. Stjórnin. Námskeið í loftstýri- tækni (Pneumatics) Haldin veröa námskeiö í loftstýritækni á vegum Kúlulegasölunnar og FESTO dagana 12., 13., 14. og 15. nóvember 1984. 12. nóv. veröur kynningarnámskeiö sem fjallar almennt um notkun loftstýringa. Námskeiöiö er án endurgjalds og miöast viö 30 þátttakendur 13., 14. og 15. nóv. veröur námskeiö í loftstýritækni. Fjallaö veröur um allar byggingareiningar loftstýrikerfa. Námskeiöiö miöast viö 20 þátttakendur. Námskeiöin fara fram á ensku og byggjast á fyrirlestrum og verklegum æfingum. Nánari upplýsingar um ofangreind nám- skeið eru gefnar í símum 84779 og 84500 frá kl. 9.00—18.00 til og með 9. nóv. Kúlulegasalan hf., stýritæknideild, Suðurlandsbraut 20. 1007. MEIRI LYSING OSRAM halogen perur lýsa 100/. meira en venjulegar perur og endast tvöfalt lengur. OSRAM fæst hjá HINN VELUPPLÝSTI MAÐUR ERMEÐ PERUNA í LAGI OSRAM

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.