Morgunblaðið - 28.10.1984, Page 64

Morgunblaðið - 28.10.1984, Page 64
BTT NORT AIIS SUUMR OPIÐALLA DAGA FRÁ KL. 11.45 - 23.30 AUSTURSTRÆTI22 INNSTRÆtl, SlMI 11633 SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR. Spariskfrteini ríkissjóðs: Innlausnar- verð 3,4 millj- arðar 1985 Fjárlög gera ráð fyrir að 650 millj. kr. komi til innlausnar „ÉG GET ekki sagt um það í augnabiikinu. ViA verðum að sjálfsögðu með útgífu á rikiaskuldabréfum, skiptibréfum, til að mæta þessu eins og haegt er,“ sagði Albert Guðmundsson, fjármálaráðherra, er hann var spurður hvernig ríkissjóður bygðist standa að greiðslum ríkisskuldabréfa, sem falla í gjalddaga á nestu mánuðum. Samkvæmt upplýsingum ráðherrans er innlausnarverð spariskírteina rfkissjóðs á árinu 1985 um 3,4 milljarðar króna, en gert er ráð fyrir í Ijárlögum að 650 milljónir króna komi til innlausnar á þvi ári. Til samanburðar er innlausn spariskirteina i ár 1,4 milljarður króna, en seld spariskírteini nú í október ásamt skiptiskírteinum nema um 500 milljónum kr. þannig að nettó-útstreymi er um 900 millj- ónir kr. Fjármálaráðherra sagði rétt vera, að bankarnir væru í harðri samkeppni við ríkissjóð um þessa peninga, enda hefðu þeir frjálsa vexti. Hann var þá spurður, hvort hugsast gæti að rikissjóður færi í samkeppni við bankastofn- anir. „Ég hef alltaf verið og er á móti því að ríkissjóður sprengi upp peningamarkaðinn og það kemur ekki til mála að hann geri það. Þetta er vandamál sem kemur úr fortíðinni því þessi lán voru tekin mörgum árum áður en ég kom hingað. Afleiðingin lendir á okkur núna og þetta sýnir einfaldlega að það verður að fara varlega í fjár- mögnun ríkissjóðs," svarði fjár- málaráðberra. Þau eru mörg handtökin við sfldina, silfur hafsins, þar til hún er endanlega hæf til útflutnings. Allt frá veiðum til útflutnings leggur margur maðurinn hönd á plóginn. Eftir fyrstu söltun tekur pæklunin við og er hún ekki síður nákvæmnis- og vandaverk en aðrir þættir söltunarinnar. í Grindavík hefur mikið verið að gera í söltuninni að undanförnu og hér munda nokkur ungmenni þar dixilinn og gæta þess, að allt verði í lagi í tunnunum. í Grindavík hefur um þessar mundir verið saltað í 19.000 tunnur, unnið er nær sleitulaust og hafa margir aðkomumenn lagt leið sína þangað til að taka þátt í ævintýrinu. Sex menn inni vegna áfengisþjófnaðanna Sextán kössum af vodka stolið við Sundahöfn fyrir nokkru SEX menu sitja nú inni vegna rann- sóknar Rannsóknarlögreglu rikisins á áfengisþjófnuðum að undanförnu. Á siðustu vikum hefúr 36 kössum af áfengi veríð stolið. f byrjun október var 16 kössum af áfengi stolið úr gámi Eimskipafélags fslands á at- hafnasvæði félagsins við Sundahöfn. Um var að ræða 192 flöskur af Fin- landia-vodka. f vikunni var 10 kössum ásamt nokkru magni af tóbaki stolið úr útsölu ÁTVR á Akranesi og 10 kössum í eigu Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli var stolið úr gámi í vörugeymslu i Keflavík. Alls hefur um 430 flöskum verið stolið. Rannsókn málsins var á frum- stigi í gær þegar Mbl. fór í prentun og ekki Ijóst hvort sömu menn hafi verið að verki, þó grunur leiki á að svo sé, samkvæmt heimildum Mbl. Mennirnir sem undir grun liggja voru handteknir í fyrrinótt. RLR hafði ekki, þegar Mbl. fór í prent- un, sett fram kröfu um gæzlu- varðhald. Morgt»bb«M/KAX. Saltað í 19.000 tunnur í Grindavík • .. m. MorgunM«ðii/Friði>jAfur. Brotlending LÖGREGLAN var 1 gærmorgun kölluð að Tjörninni ( Reykjavík en þar sat ung álft föet í ís. Hún hafði komið til lendingar á fullri ferð og þunnur (sinn gefíð sig. Lögreglan fylgdist með til- raunum álftinnar til að bjarga sér. Þær gengu brðsuglega til að byrja með en um síðir tókst álftinni að gera nægilega stóra vök til að komast uppúr. Því þurfti ekki að koma til aðstoðar varða laganna að þessu sinni. Stöðug fundahöld í kjaradeilunum: Samningaviðræðurn- ar á viðkvæmu stigi MIKIL fundahöld voru í gærmorgun hjá aðilum að kjaradeilunum, eru samningantálín á viðkvæmu stigi en óvist hver tekur af skarið. í fyrrakvöld var samningafundi ríkisins og BSRB frestað til klukkan 15 í gær. Þá gerðist það í fyrrakvöld að fundi fulltrúa félaga í ASÍ og Vinnuveitendasambandsins var frestað til klukkan 13 í gær. Eftir það ræddu forystumenn Verkamanna- sambandsins og Landssambands iðnverkafólks um næstu skref og ákváðu að halda áfram viðræðum við VSÍ og útiloka engar samningsleiðir. Þá hittust fulltrúar BSRB og ASÍ ( fyrrakvöld. 1 gærmorgun kom samninganefnd ASÍ saman. Ríkisstjórnin kom saman klukkan 11 til að ræða stöðu samninga- mála en síðan var fundi hennar frestað klukkan 18. Þegar Morgunblaðið fór í prentun lágu niðurstöður þessara funda ekki fyrir. Samningafundi BSRB og ríkis- ins var frestað um miðnætti í fyrrakvöld. Á fundinum var ein- göngu rædd hugmynd BSRB um kaupmáttartryggingu en ekkert þokaðist í átt til samkomulags samkvæmt heimildum Mbl. í til- lögu BSRB er gert ráð fyrir að laun hækki í tengslum við verð- bólgu tvisvar á samningstímabil- inu. Indriði H. Þorláksson, formaður samninganefndar ríkisins, sagði að sú afstaða ríkisstjórnarinnar að ekki komi til vísitölubindingar kaupgjalds og verðlags væri ljós. Kristján Thorlacius, formáður BSRB, staðfesti neikvæð viðbrögð ríkisins. Sagðist hann þó vona að hreyfing kæmist á samningana, en það færi eftir því hvað fjármála- ráðherrp legði nú til málanna. Sagði Kristján að aðalatriðið nú væri það að menn nálguðust og væri fullur vilji fyrir því hjá BSRB. Forsvarsmenn Vinnuveitenda- sambandsins líta svo á að svo ít- arlega hafi verið rætt um alla þætti kjaramálanna við Alþýðu- sambandið að ekkert ætti að vera því til fyristöðu að aðilar geri upp hug sinn um lausn. En eins og áð- ur sagði stefnir ASÍ að því að halda öllum leiðum opnum. Er það mat þeirra sem að kjaraviðræðun- um standa, að nú sé brýnt að það skýrist á milli ASÍ og BSRB hvaða samningsleið verður valin. í við- ræðum ASÍ og VSÍ hafa menn rætt skattalækkunarleið en BSRB leggur megináherslu á beina launahækkun, hefur verið tog- streita milli þessara aðila síðustu daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.