Morgunblaðið - 18.11.1984, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 18.11.1984, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1984 Biblíuár Það ár, sem nú fer að halla, hefur verið nefnt biblíuár hér á landi af þeirri orsök, að liðnar eru fjórar aldir réttar síðan Is- iendingar eignuðust Biblíuna alla prent- aða á sinni tungu. En ár Biblíunnar eru orðin mörg, fjórar aldir eru aðeins áfangi á vegi hennar. Sagan um þann feril, sem hún hefur farið, er mikil og þó stórum auðrekjaniegri en sagan um sporin sem hún hefur markað á vegi mannkyns. Elstu hlutar Biblíunnar voru þúsund ára, þegar Jesús kom fram. Sfðan eru nær tvö þúsund ár. í nærfellt þúsund ár hefur hún verið hin heilaga ritning íslendinga. Hún hafði raunar komið hér við fyrir daga Ingólfs. Þegar norskir landnemar fóru að byggja landið, stökktu þeir á brott mönnum sem voru hér fyrir. Þeir skildu eftir muni, m.a. bækur. Af því mátti ráða, að þeir voru menn kristnir, segir Ari prestur fróði. Hvar sem kristnir menn hafa farið og verið, hafa þeir haft bækur. Það auðkenndi þá, á því þekktust þeir frá öðrum. Múhammed skipti mannkyni í tvo fiokka, fólk bókarinnar annars vegar — þar voru kristnir menn, ásamt Gyðingum — hins vegar bókiausa fólkið. Bókin var Biblían. En reyndar er hún margar bækur. Orðið Biblía er upphaflega fleirtðluorð og þýðir bækurnar, hinar helgu ritningar, sem kristnir menn tóku í arf frá Gyðingum og juku síðan að þeim ritum, sem Nýja testa- mentið geymir. Það hafði öldum saman einkennt Gyð- inga, að þeir áttu þá bók, sem allt líf þeirra byggðist á og snerist um. Það var ógrynni af trúflokkum í hinum forna heimi, vegleg musteri á hverju strái með iburðarmiklum trúarathöfnum. Gyðingar höfðu dreifst víðsvegar um lönd þegar þá og þeir áttu sín samkomuhús. í þeim voru ekki goða- myndir né neinar gersemar, aðeins eitt, sem hvergi var annars staðar í helgum húsum: Bókin. Þeir komu saman til að lesa upp úr henni og heyra hana lagða út, syngja upp úr henni bænatexta og þakk- arljóð. Hann tók bókina Þegar Jesús var að hefja starf sitt segir frá því, að hann fór að vanda sfnum á hvíldardegi í samkomuhúsið í Nazaret. Og hann tók þar bókina, lauk henni upp og las þessi orð Jesaja spámanns: Andi Drottins er yfir mér, af því að hann hefur smurt mig, hann hefur sent mig til að flytja fá- tækum gleðilegan boðskap ... Að loknum lestri sagði Jesús: I dag hef- ur ræst þessi ritning í áheyrn yðar. Hann sagði með öðrum orðum: Það er ég, sem hér er verið að tala um. Myndin, sem þessi frásögn bregður upp, sýnir tvennt: Bókina, sem var Gyðingum eitt og allt, og manninn, sem Ias þessa bók á nýjan hátt, eins og aldrei hafði verið áður gert. Jesús tók bókina og lauk henni upp. Og kirkjan hans tók síðan við henni úr hendi hans og þá var hún orðin ný. Líf hans og kenning, dauði hans og upprisa lýstu hana upp og fæddu að nýju. Síðan heitir þessi bók eða bækur Gamla testamentið (sátt- málinn), af því að hún er eldri en Jesús Kristur, hinum megin við aldahvörfin, sem hann markar. Á næstu áratugum eftir dauða Jesú urðu svo til þau rit, sem vér köllum Nýja testa- mentið. Þar eru 5 sögurit, 4 um ævi Jesú, guðspjöllin (gleðitíðindin), og svo ágrip af sögu kirkjunnar fyrstu árin, Postulasagan. Siðan koma tækifærisrit, flest sendibréf skrifuð í flýti af sérstökum tilefnum, en viðtakendur varðveittu þau með dýpstu lotningu, þau voru lesin við guðsþjónustur eins og söguritin, afrituð af einstakri alúð og nákvæmni, þeim var dreift frá einum söfnuði til annars. ÖIl þau rit, sem eru í Nýja testamentinu, voru frá fyrsta fari heilagar ritningar allra kristinna manna, lesin og hugleidd, ásamt hinum gömlu ritningum. Og alger samstaða var um nær öll þessara rita, að þau væru grunnur, viðmiðun og lífs- uppspretta kristinnar trúar og lífernis. Um það var kirkjan sameinuð f öllum meg- inatriðum löngu fyrr en hún tók sameig- inlega ákvörðun um að skipa þessum ritum í eina bók, sem skyldi verða leiðarljós hennar og úrslitavitni um þau sannindi, sem henni var trúað fyrir. Fylling tfmans Nýja testamentið er lítil bók vöxtum en varla verður um það deilt, að hún hafi haft meiri áhrif en önnur skrifuð blöð. Mestur hluti þess er skráður næstu 30—40 árin eftir dauða Jesú. Á sama árabili hafði kristnin breiðst út um iöndin kringum Miðjarðarhaf og langt austur eftir Asíu. Hliðstætt dæmi um gróskumátt verður vart fundið í sögunni. Ytri aðstæður skýra ekki hraða út- breiðslu kristninnar, því síður það andans afl, sem býr í því orði, sem brautina ruddi. En Páll postuli talar um fyllingu tímans: Þegar fylling tímans kom, sendi Guð son sinn. Þau ummæli má m.a. heimfæra til jarðneskra aðstæðna. Eitt og sama ríki hafði völdin frá Gíbraltar til Evfrat, frá Sahara til Rínar og Skotlands. Og á öllu þessu svæði var hægt að gera sig skiljan- legan á einni og sömu tungu, grísku. Vitaskuld voru fjölmörg önnur mál töl- uð. í Palestínu og grennd var t.d. töluð arameíska, náskyld tunga hebresku, hinni fornu þjóðtungu Hebrea, sem var ekki lengur lifandi mál á dögum Jesú (hún hef- ur verið endurvakin í ísrael nútímans). Jesús talaði arameísku. En vafalaust hefur hann getað bjargað sér i grísku og postul- ar hans flestir eða allir. En Jesús kenndi á móðurmáli sínu, Fjallræðan og dæmisög- urnar og önnur orð hans, sem meitluðust í minni, voru flutt á því máli. Þegar boð- skapur hans barst út fyrir Palestinu varð að þýða á grísku. Og þegar lífssaga hans var skráð var ekki umtalsmál að nota hina alþjóðlegu tungu. Hið sama gerðu postul- arnir í bréfum sínum. Stundum má merkja, að höfundar hugsa á arameísku. Nokkur arameísk orð eru í guðspjöllunum, óbreytt i öllum þýðingum, eins og þau féllu af vörum Jesú. Það er sem sé ekki nýtt, að kirkjan hafi þurft að þýða af einni tungu á aðra. En það skipti miklu fyrir frumkirkjuna, að Gamla testamentið hafði þegar verið þýtt á grísku. Það gerðu lærðir Gyðingar, búsett- ir í Alexandríu, á 3. öld f. Kr. Sú biblíuþýð- ing var stórlega mikilvæg fyrir kristniboö- ið. Fornar þýöingar En kirkjan lét sér ekki nægja að flytja orð sitt og kynna helga ritningu sína á grísku máli. Kristindómurinn var alþýðu- hreyfing og keppti að því að festa rætur í þjóðlegum jarðvegi hvarvetna. Strax á 2. og 3. öld var farið að þýða Biblíuna á lat- ínu og sýrlensku, síðan á eþíópisku, kopt- ísku (egypsku) og armenísku. Seinna komu þýðingar á slavnesku. Og á 4. öld eignuðust frændur vorir, Gotar, sína Biblíu. Þeir voru norræn víkingaþjóð, sem flæddu ræn- andi og ruplandi suður um álfuna, en sner- ust síðan til kristni, að miklu leyti fyrir áhrif kristinna herfanga sinna og þræla. Þeir eignuðust mikinn biskup, Vúlfila (afi hans og amma voru kristnir herfangar frá Kappadókíu, en faðir hans var gotneskur). Vúlfíla þýddi Biblíuna á gotnesku. Sú þýð- ing greiddi mjög fyrir kristniboðinu meðal germanskra þjóðflokka. Ríki Gota leið undir lok og sjálfir hurfu þeir af sviði sög- unnar, einu ummerkin eftir þá er hluti af Biblíu Vúlfilu biskups, eina heimildin um tungu þeirra, sem var náskyld íslensku. Hér hefur verið farið fljótt yfir mikla sögu. Ég vildi aðeins minna á þessar fornu biblíuþýðingar fyrstu aldanna. Þær voru gerðar meðan kristindómurinn átti enn mjög í vök að verjast og sætti grimmi- legum ofsóknum. Þá voru þessi afrek unn- in, sem hvert um sig mega teljast meðal meiri háttar stórvirkja i menningarsög- unni. Og þegar ofsóknir dundu yfir, var það jafnan fyrsta krafa yfirvalda, að kristnir menn skyldu afhenda helgar bæk- ur sínar svo að unnt væri að eyðileggja þær. Þetta var eitt af þvi, sem knúði á um að ákveða, hvaða rit skyldu viðurkennd sem heilög sameign kirkjunnar. Önnur rit máttu menn að ósekju láta af höndum. Hitt var að bregðast bróðurskyldu og þegnskyldu við Krist að selja fram til tor- tímingar skráðan frumvitnisburð spá- manna og postula, sem kirkjan stóð og féll með. Því verði skyldi enginn kaupa sér lífsgrið og lima. Nú hefur Biblian eða hlutar hennar ver- ið þýdd á fjölda tungumála, hátt á annað þúsund. Þessar þýðingar hafa lagt grunn að ritmáli fjölmargra þjóða viðsvegar um hnöttinn, sem áttu ekkert ritað áður. Það brautryðjendastarf hefur krafist mikils, lærdóms, þolinmæði og fórnfýsi. Sagan um það er ótrúlega stórbrotin en verður ekki rakin hér. Biblían var ekki hið fyrsta, sem skráð var á islensku, eins og var um margar aðrar þjóðtungur. En áhrif hennar fæddu af sér íslenskt ritmál. Um leið og kristni var komin i landið fóru menn að fást við „þýð- ingar helgar". Þeir sem sýsluðu við það urðu að búa til íslenskt stafróf, finna mörg nýyrði og temja tunguna við að túlka nýja hugsun sem hafði orðið til á framandi slóðum og mótast á fjarlægum hámenn- ingarsvæðum. Þessar þýðingar helgar frá fyrsta skeiði íslenskrar kristni geyma brot af biblíu- textum. Þá er til merkileg bók, norsk að uppruna, kölluð Stjórn. Þar er allmikið af Gamla testamentinu á auðveldri, fagurri íslensku. Straumhvörf En á miðöldum hafði kirkjan í Evrópu ekki áhuga á að þýða Biblíuna á þjóðtung- ur. Latínan var kirkjumálið og söfnuðum og alþýðu manna átti að duga það að heyra lærða menn endursegja efni heilagra ritn- inga, enda voru fæstir læsir og bækur næsta dýrar, meðan engar voru til nema handskrifaðar á skinn. Siðbótin olli straumhvörfum. Hún tók þá stefnu að gera almenning myndugan í andlegum efnum og fylgdi þeirri stefnu markvisst. Þess vegna lagði hún áherslu á víðtæka uppfræðslu, lestrarkennslu og út- vegun lestrarefnis. Einnig á 16. öld var fylling tímans að þvi leyti, að prentlistin var komin til sögunnar og pappírinn. Þessi nýja tækni gaf áður óþekkt úrræði i bókagerð og dreifingu bóka. Lúther vann það afrek meðal annarra að þýða Biblíuna. Þýskar þýðingar á henni voru til áður. En Lúther tók verkið nýjum tökum. Hann þýddi beint úr frummálun- um, það hafði ekki verið gert áður. Og hið þýska tungutak hans er annálað fyrir ferskleik og orðgnótt. Almennt er talið, að hann hafi öðrum fremur lagt grunn að þýsku ritmáli. Hvarvetna þar sem áhrifa hans gætti var það talin frumkrafa til kirkjunnar að gera Biblíuna tiltæka alþýðu manna á móðurmáli. íslenskir brautryðjendur Islenskir siðbótarmenn lútherskir geng- ust undir þessa köllun af fyllstu einbeitni. Þeir höfðu mikinn þjóðlegan metnað. Mönnum hefur oft sést yfir það, þeir lentu í skugganum af þeirri staðreynd, að hið danska konungsvald notfærði sér bylting- una í kirkjumálum til þess að stórauka tekjur sínar af landinu og styrkja tök sín öll i landsmálum. Við það gat enginn ráðið eins og málavöxtum var háttað. En raun- sætt viðnám Gissurar biskups Einarsson- ar við konungsvaldinu var hið merkasta, sem gerðist í stjórnmálasögu íslendinga um aldir. Gissur varð skammlífur, fékk aðeins 8 embættisár. Ef hans hefði notið lengur við má með rökum gera ráð fyrir, að margt hefði farið betur um sinn. M.a. hefði Jón Arason ekki verið tekinn af lífi. Gissur hélt hlífiskildi yfir honum og honum i skefjum jafnframt. Og segja mætti mér, að Gissur hafi ætlað vini sínum, syni Jóns biskups, sr. Sigurði á Grenjaðarstöðum, biskupsstólinn á Hólum eftir föður sinn. Því hefði hann mátt koma til vegar að sér heilum og lifandi, og þá hefði hin nýja kirkjustefna sigrað með þeim friðsama hætti, sem Gissur vildi. En merkust í þjóðernislegu tilliti var sú eindregna stefna lútherskra manna, að kirkjumálið skyldi verða íslenska. Það merki hófu þeir saman Gissur biskup og Oddur Gottskálksson. Það er ekki ólíklegt, að hlutur Gissurar í Nýja testamentisþýð- ingu Odds, sem kom út 1540, sé nokkur beinlínis. Hitt er vist, að hann studdi Odd með ráðum og dáð fyrr og síðar. Og þeir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.