Morgunblaðið - 18.11.1984, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1984
Jólakort
Styrktar-
félags van-
gefinna
KOMIN eru á markaðinn ný jólakort
meó myndum af verkum listakon-
unnar Sólveigar Eggerz Pétursdótt-
ur. Kortin verða til sölu á skrifstofu
félagsins, Háteigsvegi 6, ( verslun-
inni Kúnst, Laugavegi 40 og á heimil-
um félagsins.
Öllum ágóða af sðlu jólakort-
anna verður varið til styrktar mál-
efnum vangefinna, en félagið
stendur nú i ýmsum fjárfrekum
framkvæmdum í þágu þeirra, m.a.
byggingu sambýla, skammtíma-
heimilis og stofnsetningu verndaðs
vinnustaðar.
Af gefnu tilefni skal það tekið
fram, að kortin eru greinilega
merkt félaginu.
Sumt getur bara ekki
beðið jólanna
Bíddu ekki eftir sérstöku tækifæri til
að gefa einhverjum Parker. Penninn sjálfur er
sú ástæða sem þarf.
Við bjuggum hann til í einum tilgangi:
til að skrifa með; skrifa fallega.
Ekki svo að skilja að allt sé fyrirfram
sagt um pennana okkar. Parkergjöf hefur orðið
innblástur ótal ritgerða, snjallra athugasemda
og meistaralegra orðatiltækja. Pað er engu líkara
en að hæfni leiði til hæfni.
Gefðu einhverjum svolítinn innblástur á
næstunni. Piggjandinn mun aldrei gleyma hver
gaf honum Parkerinn sinn.
n. fí *
fJíPojá^
Tröllabókin
— ný sögu-
og myndabók
frá Iðunni
ÚT ER komin hjá bókaforlaginu Ið-
unni ný bók fyrir yngstu börnin,
Tröllabókin. Sagan er eftir Jan Lööf,
en myndlistarmaðurinn Rolf Lid-
berg hefur myndskreytt bókina stór-
um litmyndum sem prýða hverja
opnu hennar. Þorsteinn skáld frá
Hamri þýddi textann.
„Vorið var komið, og nú liðu
dagarnir hratt,“ segir í upphafi
sögunnar um litlu tröllasystkinin
Lenu og Matta og vini þeirra.
„Tröllafjölskyldan hafði tekið sér
bólfestu á árbakkanum ... „Að
hugsa sér — sumarið er komið aft-
ur!“ sagði tröllamamma. „Já, það
er ekki sem verst,“ sagði trölla-
pabbi. „í allan vetur höfum við
mátt kúra inni í þröngum kytrum.
Nú getum við verið undir beru
lofti.“ — Saga tröllanna er öðrum
þræði sagan um hina eilífu
hringrás náttúrnnar, sögð á þann
hátt sem yngstu börnin skilja og
nema. Náttúran öðlast líf i máli og
myndum og inn í sögu árstíðanna
fléttast ótal kostuleg og kímileg
atvik úr lífi litlu tröllabarnanna.
Tröllabókin er 36 bls. Hún er
prentuð i Danmörku.
„Ást og
hatur“
HÖRPUÚTGÁFAN á Akranesi hefur
sent frá sér nýja bók eftir danska
rithöfundinn Erling Poulsen. Bókin
beitir „Ást og hatur“ og er 9. bókin í
bókaflokknum „Rauðu ástarsögurn-
ar“.
í frétt frá útgefanda segir m.a.:
„Við dauða föður síns uppgötvar
Maríanna Biorck að hún er eigna-
laus og vinalaus. Hún ræðst sem
stofustúlka á ættarsetur Welling-
tonanna á Englandi og á gamla
óðalssetrinu gerast undarlegir at-
burðir. Á þeirri stundu er Marí-
anna hittir vinnuveitanda sinn,
hinn unga óðalseiganda Ronald
Wellington, tekur líf hennar nýja
stefnu. Hún kynnist leiftrandi
hamingju og algleymi ástar. Einnig
heitrofi og hatri. Hún sveiflast
milli ástar og örvæntingar, ýmist í
nútiðinni eða trufluð af skuggum
fortíðarinnar. Jafnvel hinn trausti
vinur hennar Allan Bennon virðist
grunsamlegur."
„Ást og hatur" er 171 bls. Skúli
Jensson þýddi. Prentverk Akraness
hefur annast prentun og bókband
ERLING POULSEN
ÁST OG HATUR
tPARKER