Morgunblaðið - 18.11.1984, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 18.11.1984, Blaðsíða 66
66 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1984 Úr lífi og starfi íslenskra kvenna: Úr lífi og starfi íslenskra kvenna heitir bók sem um þessar mundir er að koma út hjá bókaforlaginu Bókrún. Höfundur bókarinnar er Björg Einarsdóttir en efnið er byggt á útvarpsþáttum sem hún var með frá því í september 1983 til apríl 1984. Þar var fjallað um 37 konur í 29 útvarpserindum. Blaðamaður Morgunblaðsins rœddi við Björgu um tilkomu og efni bókarinnar og var hún fyrst innt eftir því hvað hefði vakað fyrir henni með gerð þessara þátta. Lifandi og Ljósmynd/Jóhannes Long Björg Einarsdóttir vió upptöku i útvarpsefni. sterkar persónur Rætt viÖ Björgu Einarsdóttur um bókina Úr lífi og starfi íslenskra kvenna sem vœntanlega kemur út á nœstunni FRÓÐLEIKUR FREM- UR EN SAGNFRÆÐI Þegar ég hófst handa við samn- ingu útvarpserindanna ætlaði ég mér ekki þá dul að rita sögu þeirra kvenna sem til umfjöllunar voru, til þess skorti mig efni og aðstæð- ur. Ég vildi fyrst og fremst vekja athygli á að þær ættu sér sögu sem vert væri að rita. Hin dýpri rök þess að ég hóf þáttagerðina eru ef til vill þau, að þegar íslandssagan er gaumgæfð virðist hún nær eingöngu saga karla. Það vekur þá spurningu, hvort íslenskar konur eigi sér ekki sögu. Að sjálfsögðu eiga konur likt og karlar sína sögu, en líf kvenna og störf fram að okkar tima hafa ekki lotið forsendum almennrar i söguritunar. Ljóst er að sögu kvenna verður þvf að segja með einhverjum öðrum hætti og bein- ast lá við að rekja æviþráð hverr- ar fyrir sig. Ekki má ætla þáttum mínum í útvarpinu að vera sagnfræði í eig- inlegum skilningi, þeir eru miklu fremur fróðleikur um ævi og störf þessara kvenna, sem ég hefi safn- að og sett saman. AF NÓGU AÐ TAKA Af nógum efnivið er að taka og oft réð kylfa kasti hvaða konur urðu fyrir valinu, allar hafa þær sér til ágætis nokkuð og stundum réð einfaldlega hvort auðvelt var að afla sér heimilda ef tími var naumur. En til þess að setja ein- hverjar skorður afréð ég að ræða nær eingöngu um konur, sem vegna aldurs gætu verið mæður, ömmur eða langömmur núlifandi fólks. VIÐBRÖGÐ HLUSTENDA Fljótt varð ég þess vör að efnið hafði hljómgrunn meðal hlust- enda. Jafnan var mjög hringt til mín eftir hvern þátt, ýmist til að leiðbeina mér, auka við upplýsing- um og benda á hvar frekari fróð- leik væri að finna. Nokkrir sem einungis vildu vita hvað kynn- ingarlagið, sem leikið var í upp- hafi og endi hvers þáttar, og aðrir sem töldu sig fróðari eftir en áður um formæður sínar. Útgáfa erindanna hvarflaði ekki að mér í fyrstu, en þegar fram í sótti tóku að renna á mig tvær grímur hvað það snerti. Margir höfðu óskaö eftir að fá handrit þáttanna léð til aflestrar og mér varð ljóst að í raun og veru væri réttast að gefa þá út á prenti svo allir sætu við sama borð í því efni. En bókaútgáfa er fjárfrekt fyrirtæki, jafnvel hjá bókaþjóð. Úrslitum réð eindregin áskorun sem mér barst í aprílmánuði síð- astliðnum frá Kvenfélagasam- bandi tslands um að gefa erindin út í bók. Til að kanna hvort grundvöllur væri fyrir útgáfunni voru aðildarfélögum þess sendir áskriftarlistar. Á miðju sumri mátti ráða það af undirtektum fé- laganna, að allur dráttur á útgáf- unni væri einungis framtaksleysi af minni hálfu. ERINDIN AÐ MESTU ÓBREYTT Um lítilsháttar frávik verður óhjákvæmilega að ræða, en það skal skýrt tekið fram að hér er verið að gefa út erindi sem samin voru til flutnings — ekki ritgerðir sérstaklega samdar til birtingar. Skal ég fara aðeins nánar út i þetta atriði hvað erindum mínum viðkemur. í þeim eru eðli máls samkvæmt mörg mannanöfn og staðarheiti, ártöl og aðrar tíma- setningar, atriði sem fljót eru að líða úr minni þegar hlustað er. Af þeim sökum var í flutningi öðru hverju lykkjað upp það sem á und- an var komið, hlustendum til glöggvunar og er allt þess háttar að mestu fellt burt. Oft varð að fella út atriði í lestri vegna tímaskorts en þau eru nú á sínum stað í bókinni. Þá hafði ég þann háttinn á að tengja í upphafi þáttar efni hans við næsta þátt á undan. Það virtist mér ekki fara vel í bók og varð því oftast að semja upphafið á ný. Að öðru leyti hygg ég að þættirnir í bókinni séu eins og þeir voru I útvarpinu. MARGVÍSLEGT MYNDEFNI Eins og fram er komið voru er- indin sem ég flutti í útvarpið síð- astliðinn vetur 29 talsins. Reynd- ist það vera of mikið efni í eina bók. Að þessu sinni koma fyrir sjónir manna 22 fyrstu erindin í þeirri röð sem þau voru flutt og þar er fjallað um 27 konur. Þau 7 erindi sem eftir standa hefi ég í hyggju, að öllu óbreyttu, að gefa út síðar ásamt viðbótarerindum. Allmiklu myndefni hefur varið safnað og myndir einnig sérstak- lega teknar vegna útgáfunnar. Má því segja að bókin sé myndum prýdd en hún verður um 400 síður. Þegar séð varð að grundvöllur myndi að líkindum vera fyrir út- gáfunni tókum við okkur saman fimm konur og mynduðum með okkur útgáfufélagið Bókrún. Okkar starf um þessar mundir er að mestu við þessa útgáfu. ALLAR JAFN HUGLEIKNAR Elst kvennanna, og sú fyrsta sem sagt er frá, er Ástríður Guð- mundsdóttir í Skáleyjum á Breiðafirði, fædd um 1770. Hún var amma Matthíasar Jochums- sonar, skáldtvíburanna Herdísar og Ólínu Andrésdætra og systr- anna Ásthildar Thorsteinsson og Theódóru Thoroddsen. Yngsta konan, sem fjallað er um, Þuríður Þorbjarnardóttir markgreifaynja af Grímaldi fæddist 1891. Sú sem lengst lifði þessara kvenna var Kristólína Kragh, fyrsti íslenski hárgreiðslumeistarinn, sem lést 1973 þá 90 ára að aldri. Sagt er frá konum sem voru brautryðjendur á ýmsum sviðum svo sem í verslun og verkalýðs- málum, listum og vísindum, skóla- málum og stjórnmálum, líknar- málum og fleiru. Allar eru þær áhugaverðar hver á sfnu sviði og fyrir mér lifandi og sterkar per- sónur. Þessar konur eru aðeins úr- tak sem sýnir hvern hlut íslenskar Gripið niður í bókina: Alþingishúsið sem fiárhús Thora Friðriksson (1866—1958) Thora Friðriksson fæddist í Kirkjustræti 12 (síðar Líknar- húsið, nú í Árbæjarsafni). Faðir hennar var yfirkennari í Latínu- skólanum, alþingismaður og bæjarfulltrúi í Reykjavík. Al- þingishúsið var byggt svo að segja í kálgarði yfirkennarans. Þegar það gerðist var Thora telpuhnokki og enda þótt eftir- sjón væri í góðum kálgarði voru byggingarframkvæmdirnar spennandi. Þegar hún var átta ára gömul fylgdist hún vel með umstanginu við þjóðhátíðar- haldið í höfuðstaðnum árið 1874. En kunnust er Thora Friðriks- son fyrir áhuga sinn á franskri menningu, ötulleik við að kynna hana og frönskukennslu í ára- tugi. Lengi starfrækti hún ásamt Kristínu Sigurðsson verslunina París í Hafnarstræti. „...Æskuvinkonur Thoru voru þær Anna og Olufa, dætur Hilmars Finsen lands- höfðingja. Bjó sú fjölskylda í húsi því sem nú er Stjórnarráðs- húsið við Lækjartorg. Eru marg- ar sögur sagðar af þeim stall- systrum. Þegar bygging Alþing- ishússins stóð yfir fylgdust þær náið með framvindu verksins og eins og Thora segir sjálf „flækt- umst við þarna fram og aftur alla daga“. Byggingameistarinn, danskur maður, Bald að nafni, var heimagangur hjá Halldóri Friðrikssyni meðan á bygging- unni stóð. Hann hafði fengið til ráðstöfunar þrjá boðsmiða á vígsluhátíðina 1. júlí 1881, bauð hann vinkonunum þremur og sá til þess að þær fengju sæti í fremstu röð því eins og hann sagði þá hefðu engir „fylgst með byggingu þessa húss af meiri áhuga og hrifningu". Raunar var þinghúsið komið í gagnið fyrir vígsluna og segir Thora frá því I grein sinni um Alþingishúsið sem hér er vitnað til. Meðan hús- ið var í byggingu, veturinn 1880—1881, gerði mikil frost og ótíð var. Lækurinn stíflaðist og flæddi í bænum. Þegar flæða tók í fjós og fjárhús Halldórs yfir- kennara, sem voru undir hús- vegg nýja þinghússins, bauð Bald honum að skjóta skjólshúsi yfir kindurnar í því húsi sem var orðið svo vel múrað að ekki flæddi inn. „Kátínu vakti,“ segir Thora, „að rollurnar sem gistu í þinghúsinu voru 32 að tölu, jafn margar þeim þingmönnum, sem þá áttu sæti á þinginu."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.