Morgunblaðið - 18.11.1984, Side 29
MORGUNBLAÐH), SUNNUDAGUR 1R NÓVEMBBR 1984
829
Friðarsinni
í Moskvu
handtekinn
Wortn, 16. Dóvember. AP.
Vladimir Brodskj, sem er félagi í
friAarhreyfingii, sem ekki er í náð-
inni hji stjórnvöldum, var handtek-
inn í dag af einum einkennisklædd-
um og tveimur óeinkennisklæddum
lögrcgluþjónum er hann átti fund
við vestrtenan fréttamann á götu
Moskvuborgar.
Brodsky er félagi í samtökum,
sem nefnast „Nefnd til að efla
traust milli Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna“. Átti hann stefnu-
mót við Peter Millar fréttaritara
Reuters utan við leikbrúðuleikhús
Moskvuborgar. Millar reyndi að
fylgja hersingunni eftir er
Brodsky var færður á brott, en
hlaut viðvörun lögreglumanna.
Brodsky var einn stofnenda
samtakanna, sem stofnuð voru í
júní 1982. Hefur hann sætt harð-
ræði af hálfu yfirvalda öðru
hverju síðan. Hann sagði á mið-
vikudag að tveir aðrir stofnendur,
Vladimir og Maria Fleishgakker,
hefðu fengið leyfi til að yfirgefa
land og flogið þá samdægurs til
Vínarborgar.
Deilt um fána
á Grænlandi
Grcnludi, 16. nóvember. Frá Nils Jttrgen
Bruun, frélUriUra Mbl.
GRÆNLGNDINGAR hafa mikinn
áhuga á að koma sér upp sínum eig-
in þjóðfána eins og þau samfélög
önnur á Norðurlöndum, sem heima-
stjórn hafa, Ld. Færeyingar og
Álendingar. f þessu efni sem öðrum
sýnist þó sitt hverjum.
Þegar rætt var um fánamálið á
grænlenska landsþinginu kom það
fram, að 600 tillögur lægju fyrir
um gerð fánans. Flokkarnir eru
raunar ekki svo margklofnir í af-
stöðu sinni. Stjórnarandstöðu-
flokkurinn Atassuet vill hafa
krossfána eins og gerist annars
staðar á Norðurlöndum en vinstri-
flokkurinn Inuit Ataqatigiit vill
ekki krossfána, heldur eitthvert
merki, sem sýnir menningarlega
uppruna þjóðarinnar sem esk-
imóa. Stærsti flokkurinn veit ekki
enn hvað hann vill en líklega mun
verða úr þessu skorið á þingi í
febrúar nk.
Barizt í Zaire
Kimhasa, 16. sórember. AP.
FALLHLÍFARMENN og fótgöngu-
liðar frá Zaire neyddu „vopnaða inn-
rásarmenn frá Tanzaníu" til að
börfa frá litlu þorpi I austurhluta
Zaire eftir „minna en 24 klukku-
stunda bardaga". Skýrði Sakombi
Inongo upplýsingamálaráðherra
Zaire frá þessu í dag.
Stjómvöld í Kinshasa halda því
fram, að innrásarmennirnir hafi
verið úr hópi andstæðinga stjórn-
arinnar, sem hafizt við í Tanzaníu
og fjalllendinu í austurhluta
Zaire. Hafi yfir 100 þeirra verið
felldir í bardögunum nú.
Svanur í
merki Norður-
landaráðs
Stokkbólmi, 16. nÓTember.
HVÍTUR svanur á bláum
grunni verður merki Norður-
landaráðs og norrænu ráð-
herranefndarinnar í framtíð-
inni. Greinast vængirnir á
táknrænan hátt í átta hluta, en
merkið gerði finnski hönnuð-
urinn og grafíklistamaðurinn
Kysti Varis prófessor.
25.980,- stgr. eða 29.980 afb.
Útborgun kr. 5.000,-
Eftirstöðvar á allt að 8 mán.
línan 1985
Gullna
SKIPHOLTI 19, SÍMI 29800
MERKI UNGA FÓLKSINS
Ennþá
fallegri,
ennþá
betri
Nú er gullna línan árgerö 1985 komin, hlaöin gæöum
og ennþá fallegri.
GULL-SYSTEM-1 2X40 WÖTT
Þetta er samstæöa meö öllu: útvarpi, magnara, segul-
bandstæki, plötuspilara, tveimur hátölurum og skáp.
Um gæöin þarf ekki aö fjölyrða, Marantz-gæðin eru
löngu landsþekkt. Ekki spillir veröiö eöa kjörin því viö
bjóöum þessa frábæru Marantz-samstæðu á
ómótstæöilegu tilboöi: