Morgunblaðið - 18.11.1984, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1984
55
Skálholt gefur
út hljómplötu:
„Og það
varst þú“
ÚTGÁFAN Skálholt hefur nú gefiö
út vandaða barna- og fjölskyldu-
hljómplötu, sem ber nafnið „Og það
varst þú“. Á hljómplötunni er safn
tónlistar, sem orðið hefur vinsæl
víða erlendis. Flest eru lögin samin
af séra Lars Áke Lundberg, sænsk-
um presti, sem getið hefur sér frægð-
ar á Norðurlöndum fyrir ritstörf og
tónsmíðar.
Yfir 40 flytjendur koma við sögu
á þessari plötu, þ.á m. barnakór úr
Fossvogsskóla og Melaskóla, Jón-
as Þórir, Sverrir Guðjónsson, Páll
Hjálmtýsson, Pálmi Gunnarsson,
Ásgeir óskarsson, Tryggvi Hiibn-
er o.fl. Upptökur og hljóðblöndun
að hluta fóru fram í Stemmu und-
ir stjórn Sveins Ólafssonar.
Hljóðblöndun var gerð í Hljóðrita
undir stjórn Jónasar R. Jónssonar.
Jónas Þórir útsetti tónlistina,
hafði yfirumsjón með hljóðritun
og hljómblöndun, auk þess að æfa
barnakór o.fl. Flesta texta þýddi
séra Kristján Valur Ingólfsson, en
einnig á Iöunn Steinsdóttir texta á
plötunni o.fl.
í frétt frá útgefanda segir m.a.:
„Óhætt er að fullyrða að mikill
faglegur metnaður hafi stjórnað
ferðinni við gerð þessarar hljóm-
plötu. Allt var gert til að árangur-
inn yrði vönduð og uppbyggjandi
plata fyrir alla fjölskylduna. T.d.
var platan skorin með svokallaðri
DMM-aðferð (Direct Metal Mast-
ering) hjá TELDEC í V-Þýska-
landi. Að dómi sérfræðinga fást
með þessari aðferð allt að 30%
betri hljómgæði en með hinni
hefðbundnu aðferð."
Dreifingu „Og það varst þú“
annast Fálkinn.
veitingahúsin skarta gjarnan karía ámatseðlum
sínum og erþá oít mikið við hatt í matreiðslunni.
En karíi er ekkert háður ílókinni matargerð,
sérstaklega ekki BÚRKARFINN, því hann er ílakaður,
roðlaus og beinlaus.
BÚRKARFI íœst í góðum matvörubúðum.
Honum má því kippa með á leiðinni heim úr vinnu
og á hann þarí ekki annað en rasp, salt og pipar.
Þetta heitir: ,Að hœtti eldhússins heima"
og bragðast aldeilis stórvel.
Noregur:
Of mikið pen-
ingamagn
(Mí, 16. ■Arember. AP.
NORSK stjórnvöld hafa bannað
sölu til útlendinga á ríkisskuld-
abréfum og öðrum opinberum
skuldabréfum í norskum krón-
um. Var tilkynning um þetta birt
af hálfu Noregsbanka í dag.
Um nokkurt skeið hefur ver-
ið fyrir hendi heimild handa
útlendingum til þess að kaupa
verðbréf i norskum krónum
fyrir allt að eina milljón nkr.
Ákvöröunin nú var tekin með
tilliti til þess, að mikið að-
streymi hefur verið á fjár-
magni til Noregs vegna sölu á
norskum verðbréfum erlendis.
Þetta hefði leitt til þess, að of
mikið peningamagn hefði
komizt í umferð í Noregi.
B 1 101 1 I
NÝJAUNAN FRÁORION
Auðvítað má líka nota hveiti. egg, mjólk og annað krydd.
Og hvort með honum eru bornar íslenskar. íranskar eða íranskislenskar kartöílur,
sitrónusaíi, remolaðisósa eða kokteilsósa og salat. breytir engu.
Allt þetta íellur undir heitið góða. ,Að hœtti eldhússins heima', en nauðsynlegt
er það ekki eins og áður sagði. og verð steikarinnar er nánast hlœgUegt.
„Það er kominn matur"!
*Ath. Verðið miðast við 150 gramma Burkaríailak roðlaust og beinlaust (auðvitað).
Áskriftarsíminn er 83033
Gylmir