Morgunblaðið - 18.11.1984, Page 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1984
ÞINGBRÉF
eftir STEFÁN FRIÐBJARNARSON
Umsyif sendiráða:
Áttatíu í Reykjavík
en fjórir í Moskvu
— Búseta í gettói — ferðafrelsi skert
Eitt er það mál sem verið hefur eins konar fastagestur á dagskrá Alþingis gengin ár: umsvif erlendra
sendiráða hér á landi. Þar hefur kastljós athyglinnar einkum beinst að Sovétríkjunum, sem hér hafa
mest umsvif, eða 86 manna sendiráð (15 erlendir starfsmenn með diplómatísk réttindi, 23 aðrir erlendir
starfsmenn, 33 makar erlendra starfsmanna og 15 böm, samkvæmt upplýsingum frá í maí 1983).
Sovétríkin hafa hér húsnæði sem nemur 8.400 rúmmetrum og lóðir sem era um 4000 fermetrar að
flatarmáli. Fjórir fslendingar starfa hinsvegar í sendiráði okkar í Moskvu, sem þar er í leiguhúsnæði.
Samanburður á sovézku og
íslenzku sendiráði
Sendiráð Sovétríkjanna er
stærsta erlenda sendiráðið hér á
landi, hvort heldur sem miðað er
við fjölda Sovétþegna, er því heyra
til, eða húsnæði, sem það og
starfsfólk þess hefur til umráða.
Sovétríkin hafa hér 38 skráða er-
lenda starfsmenn (1983), auk þess
sem 33 makar starfsmanna og 15
börn heyra því til. Sovézka sendi-
ráðið sker sig og úr öðrum erlend-
um sendiráðum hér að því leyti, að
enginn íslendingur er í starfsliði
þess, aðeins Sovétþegnar. Þá eru
Sovétrikin með fasteignir í höfuð-
borginni sem nema rúmlega 8.400
rúmmetrum, auk mikils lóðarým-
is. Til samanburðar skal þess getið
að fjórir íslendingar starfa í
sendiráði okkar í Moskvu.
Það er fleira sem ber á milli en
fjöldi starfsmanna eða umfang
húsnæðis þegar borið er saman ís-
lenzkt sendiráð i Moskvu og og
sovézkt hér á landi. Því til stað-
festingar verða hér tíunduð um-
mæli Hjörleifs Guttormssonar
(Abl) i þingræðu, en hann er ekki
harðasti gagnrýnandi Sovétrikj-
anna á Alþingi íslendinga. Hann
sagði orðrétt:
„Lítum t.d. á nokkrar þær tak-
markanir sem settar eru á starf-
semi og ferðir íslenzkra sendiráðs-
manna í Sovétríkjunum. Þar er
sendiráð íslands i leiguhúsnæði,
sem ekki fæst keypt, það bezt ég
veit, undir starfsemina, og starfs-
mönnum sendiráðsins er úthlutað
leiguhúsnæði til íbúðar í sérstök-
um hverfum eða eins konar gett-
óum. Það á einnig við um sendiráð
annarra vestrænna ríkja, að ég
HVAÐ
ERU ÞEIR
AÐ QERA
HER?
hygg, þar sem eingöngu búa
starfsmenn erlendra sendiráða ...
Miklar hömlur eru lagðar á ferða-
frelsi erlendra sendiráðsmanna í
Sovétríkjunum sem kunnugt er,
þar eð tilkynna þarf um allar ferð-
ir út fyrir 40 milna radíus eða þar
um bil með tveggja sólarhringa
fyrirvara og greina frá ferðaáætl-
un og gististöðum ...“
Hérlendis fara Sovétþegnar
hvert á land sem þeir kjósa, hvort
heldur er um fjöll og öræfi eða
byggðarlög.
Sendiráð Bandaríkjanna
hálfdrættingur
í sendiráði Bandarikjanna hér á
landi starfa 8 erlendir starfsmenn
með diplómatisk réttindi (1983),
13 aðrir erlendir starfsmenn, auk
9 maka starfsmanna og 5 barna,
er heyra starfsliði þess til. Þetta
eru 35 manns, erlendir, á mót 86 í
sendiráði Sovétrikjanna. Banda-
ríkin eru ekki hálfdrættingur í
samanburði við Sovétríkin i tölu
erlendra starfsmanna. í banda-
riska sendiráðinu eru hinsvegar
nokkrir íslenzkir starfsmenn, auk
hinna erlendu. í islenzka sendiráð-
inu í Washington starfa aðeins 5
manns, en hliðstæð islenzk þjón-
usta (sendiráð hjá Sameinuðu
þjóðunum) er einnig í New York.
I þingræðu Hjörleifs Gutt-
ormssonar, sem fyrr er vitnað til,
reynir hann um sumt að setja
samasemmerki milli umsvifa sov-
ézka og bandaríska sendiráðsins
hér á landi. Geir Hallgrímsson
utanrikisráðherra sagði m.a., er
hann svaraði Hjörleifi:
„Ég vil í þvi sambandi aðeins
segja það, að því er stærð þessara
sendiráða í Reykjavik snertir, að
það er auðvitað ólíku saman að
jafna, sendiráði Bandarikjanna
við sendiráð Sovétríkjanna.
Bandarikjamenn eru fjölmennast-
ir ferðamanna hér á landi. Við
fáum heimsóknir þúsunda þeirra á
ári hverju og þúsundir íslendinga
heimsækja Bandarikin. Varðandi
Sovétríkin eru væntanlega is-
lenzkir ferðamenn til Sovétríkj-
anna aðeins í tugum taldir og
sömuleiðis enn færri ferðamenn
frá Sovétríkjunum til íslands.
Þegar á það er líka að líta að
Bandaríkin eru stærstu kaupend-
ur afurða okkar en Sovétríkin i
fimmta eða sjötta sæti, sem þó
skal ekki gert litið úr, það eru
okkur verðmæt viðskipti. í þriðja
lagi má svo bæta því við að banda-
ríska sendiráðið gegnir ýmsum
störfum sem bundin eru samn-
ingsskyldum þeirra i varnar-
samningi milli íslands og Banda-
ríkjanna, samningsskyldum sem
eru okkur i hag engu síður en
Bandaríkjamönnum að inntar séu
af hendi. Þannig ber allt að sama
brunni, að það eru eðlilegar skýr-
ingar á stærð bandaríska sendi-
ráðsins gagnstætt við hið sov-
ézka.“
Það er út af fyrir sig eftirtekt-
arvert að þingmenn Alþýðubanda-
lags skuli, seint og um síðir, taka
undir gagnrýni, sem er mjög al-
menn, varðandi stærð og umsvif
sovézka sendiráðsins. Hinsvegar
virðist sú gagnrýni í þeirra munni
áróðurstæknilegt vinnulag, til að
koma höggi á varnarsamstarf ís-
Evrópukeppni í
ndknattleik
Fyrsti stórleikur vetrarins
Ystad
FRÁ SVÍÞJÓÐ
í Laugardalshöllinni í kvöld
sunnudaginn 18. nóv. kl. 20.30.
Handknattleikur í heimsklassa.
Heiðursgestur: Friörik Jörgensen,
forstjóri Innkaups hf.
INNKAUP HE
ÆGISGÖTU 7. REYKJAVlK SlMI 22000