Morgunblaðið - 18.11.1984, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1984
63
(„Council of Hemispheric Af-
fairs", COHA), hefur fylgzt með
Mengele um skeið.
í sumar sagði Birns frá því að
hann hefði verið viðriðinn tilraun-
ir velefnaðra kaupsýslumanna,
sem voru fangar nazista í stríðinu,
til þess að ræna Mengele frá af-
drepi hans í Paraguay 1977 og
framselja hann ísraelsmönnum.
Þessir menn voru allir frá
Cleveland, Ohio, í Bandaríkjunum,
en áætlun þeirra var aldrei hrund-
ið í framkvæmd. Samkvæmt henni
átti að múta embættismönnum í
Paraguay, fá þá til að deyfa Meng-
ele og afhenda hann síðan sam-
særismönnunum á flugvelli.
„COHA var ljóst frá upphafi
forsetatíðar Carters að vissir
embættismenn í Paraguay væru
Adolf Eichmann. Eftir handtöku
hans fór Mengele í felur.
»Heil Hitler, Heil RaufT“ voru kveðjuorð gamalla nazista við grðf stríðs-
Slæpamannsins Walters Rauff i Santiago í Chile í vor.
„Gyðingar gátu ekki unnað sér
hvíldar fyrr en þeir vissu hvort
hann væri á lífi og höfðu haft upp
á honum."
Annar þátttakendanna í sam-
særinu um að ræna Mengele sagði
að ríkisstjórnir Bandaríkjanna og
ísraels hefðu ekki viljað eiga á
hættu milliríkjadeilur vegna
brota á fullveldi annars lands.
FBI og Mengele
Nýlega sagði Birns um Mengele:
„Upplýsinganet hans er svo gott
að hann veit um allt, sem er
áformað gegn honum. Hann ver
allt að fjórum milljónum dala á
ári til þess að greiða ýmsum emb-
ættismönnum í Paraguay fyrir að
tryggja öryggi sitt. En síðan 1979
hefur staða hans verið miklu erf-
iðari en áður.“
Árið 1979 munaði minnstu að
FBI gómaði Mengele þegar
starfsmenn alríkislögreglunnar
hugðust veita honum fyrirsát og
handtaka hann þegar hann ætlaði
í eina af tíðum ferðum sínum til
Miami.
Þeir áttu von á honum með
flugvél frá Paraguay — en einhver
hafði varað hann við og hann
hætti við ferðina. Þetta virðist
sýna að hann sé svo voldugur að
hann hafi jafnvel laumazt til
mútuþægir," sagði Birns í viðtali
við blaðið „Orlando Sentinel".
„Gerð var nákvæm áætlun með
margslungnu samstarfi fyrrver-
andi fanga, starfsmanna Gyð-
jngasamtaka og spilltra embætt-
•smanna í Paraguay um fjármögn-
un frumstigs rannsóknar á
mannráninu," sagði hann.
Birns sagði að bandarísk sjón-
varpsstöð hefði verið fús til að
taka þátt í kostnaðinum gegn því
að fá rétt til að gera kvikmynd um
mannránið. Nafni stöðvarinnar
var haldið leyndu.
„Orlando Sentinel" greindi frá
því að safnazt hefðu 500.000 doll-
arar (um 16 millj. ísl. króna).
Nauðsynlegum samböndum var
komið á, flugvél var útveguð til að
flytja Mengele frá griðastað hans,
en ekkert varð úr þessum ráða-
Kerðum.
„Áætlunin fór út um þúfur
vegna þess að Mossad (ísraelska
leyniþjónustan) hafði ekki áhuga
ó því að taka við Mengele, þegar
hann hefði verið numinn á brott
frá Paraguay, vegna neikvæðrar
umræðu um rán Eichmanns,"
sagði Birns.
Árgentína fordæmdi ísrael fyrir
ránið á Eichmann á sínum tíma,
en utanríkisráðherra ísraels,
Golda Meir (síðar forsætisráð-
herra), sagði á Allsherjarþinginu:
s ■ ...r
Walter Rauff. Óhuitur f Chile í ald-
arfjórðung.
að draga hann fyrir lög og dóm.
Og Edward Kennedy öldunga-
deildarþingmaður beitir sér fyrir
því að öll aðstoð við Paraguay
verði stöðvuð, nema því aðeins að
Mengele verði handtekinn.
Síðan þrýstingur erlendra ríkis-
stjórna neyddi Paraguay til þess
að svipta Mengele borgararétti
hefur stjórn Stroessners einræð-
isherra haldið því fram að hann
búi ekki lengur í Paraguay.
En hann hefur sézt þar á undan-
förnum mánuðum samkvæmt
leyniþjónustuheimildum og þær
herma að hann hafi einnig sézt í
öðrum ríkjum Suður-Ameríku.
í júní sl. fullyrti nazistaveiðar-
inn Símon Wiesenthal, sem átti
mikinn þátt í handtöku Eich-
manns, að Mengele hefði sézt i
BOLIVIA )
■'■jrri *
i t
H * V*
6erMnia
. í
Asunclon
£ Encamacion
ARGENTINA /
f
0 Miles 300
Á kortinu sést þýska nýlendan
Neuva Germania í Paraguay.
áhrifa í aðalstöðvum FBI í Wash-
ington.
I handtökutilskipuninni var listi
yfir öll þau dulnefni, sem Mengele
hafði notað á ferðum sínum. í
sumar reyndi Toviuh Friedman,
einn þeirra sem röktu slóð Eich-
manns og starfsmaður stofnunar
sem safnar heimildum um gerðir
fyrrverandi nazista, að fá yfirvöld
til þess að birta þennan lista að
sögn „Orlando Sentinel“.
En beiðninni var hafnað og
fyrrverandi dómsmálaráðherra
Bandaríkjanna, Jerome Sanford,
sem ætlaði að stjórna handtök-
unni á flugvellinum í Miami á sín-
um tíma, kvaðst ekki muna eftir
nöfnunum.
Hringurinn þrengist
En nú er sagt að hringurinn
þrengist um þann mann, sem
leyniþjónustum heimsins leikur
mest hugur á að handsama.
Bandarískir embættismenn
vinna að áætlunum um samninga-
viðræður um handtöku Mengele í
Suður-Ameríku svo að hægt verði
Paraguay hálfu ári áður.
Hann átti að hafa sézt í bænum
Volendem, skammt frá landamær-
um Uruguay, og dvalizt á hóteli,
sem sonur vinar hans átti. Síðan
hefði hann horfið á ný og ekki
væri vitað hvar hann væri niður-
kominn.
Wiesenthal tók undir kröfur um
að Bandaríkjastjórn neitaði að
veita stjórn Paraguay aðstoð til
þjálfunar hermanna fyrr en hún
framseldi Mengele Vestur-Þjóð-
verjum eða ísraelsmönnum. En
sem fyrr fullyrti stjórn Paraguay
að Mengele væri ekki í landinu.
„Oft í Chile“
„Mengele dvelst oftast í Chile,“
sagði embættismaður í Washing-
ton nýlega.
„Hann býr á stað, sem er kallað-
ur Colonia Dignidad, í húsaþyrp-
ingu, sem cr stranglega gætt.
Þetta er næstum því eins og fang-
elsi fyrrverandi nazista og svæðið
er umkringt gaddavír. Það þyrfti
að beita skriðdrekaherfylki til
þess að komast þangað inn. Þarna
er meira að segja flugbraut fyrir
flugvélar, sem þangað koma.“
„En enginn vafi leikur á því að
Mengele hefur enn sterk tengsl við
Paraguay," segir þessi embættis-
maður.
„Hann á hús í tveimur borgum í
Suður-Ameríku og þar getur hann
verið óhultur. t svipinn er líklegt
að hann sé annaðhvort í athvarfi
sinu í Chile eða einhvers staðar á
svæðinu milli Hohenau og Pedro
Juan Caballero meðfram Parma-
fljóti á landamærum Brazilíu og
Paraguay. Þar eru mörg afskekkt
sveitabýli og þar er auðvelt að fel-
ast.“
Afskekkt og lítt byggt fjalllendi
Paraguay hefur verið griðastaður
þýzkra öfgamanna síðan mágur
heimspekingsins Friedrich
Nietzche, dr. Bernhard Forster,
sem var Gyðingahatari, stofnaði
þar nýlendu 1886 og kallaði hana
Nueva Germania.
Fjöldi nazista flúði til þessarar
nýlendu eftir striðið. Margir þess-
ara nazista (enginn veit hvað þeir
eru margir) lifa enn kyrrlátu og
þægilegu lffi í einangruðum
sveitaþorpum. Aðrir lifa í glæsi-
legum einbýlishúsum, sem er
vandlega gætt.
Aðrir gamlir nazistar eins og
Mengele hafa neyðzt til þess að
vera á faraldsfæti af ótta við naz-
istaveiðara. Hvar sem komið er í
Paraguay má heyra sögur um
dvalarstað hans.
„Herbergi Mengeles“
í litlu sveitaþorpi, Bella Vista,
rétt hjá landamærum Paraguay
og Argentínu, er keiluspilsstaður,
sem staðhæft er að Mengele hafi
oft sótt. Skammt frá þorpinu er
geysistórt einbýlishús, þar sem
sagt er að Mengele sé stundum
gestur. 1 gistihúsi þorpsins, Hotel
Tyrol, er blaðamönnum boðin gist-
ing í „herbergi Mengeles".
I Neuva Germania þjáðist öldr-
uð kona nýlega af holdsveiki og
sagt var að Mengele hefði eitt sinn
stundað hana.
Þegar Mengele skaut upp kollin-
um einu sinni sem oftar fyrir tæp-
um tveimur árum, þá skammt frá
landamærum Paraguay og Bóli-
víu, sagði Wiesenthal að hann
dveldist í nýlendu Mennoníta, evr-
ópskra mótmælenda, sem neita að
vinna eiða, bera vopn og gegna
opinberum embættum.
Mennonítar, sem búa aðallega i
bænum Filadelfia, um 300 km frá
landamærunum, brugðust reiðir
við og báru þetta til baka.
Enn í Paraguay?
„Nú gerir Mengele sér grein
fyrir því að hringurinn þrengist
um hann og nokkrir menn, sem
hafa komizt of nálægt honum,
hafa verið myrtir,“ sagði banda-
rískur embættismaður fyrir
skömmu.
Heimildamiðstöð Símons Wies-
enthal I Los Angeles fylgist líka
með hverju fótmáli Mengeles. „Við
erum sannfærðir um að hann sé
enn í Paraguay og nágrenni,“ segir
Gyðingapresturinn Abraham
Cooper, starfsmaður stofnunar-
innar, sem er kennd við nazista-
veiðarann fræga.
„Hann ferðast mikið, því að
hann hefur aldrei átt í fjárhags-
erfiðleikum," segir Cooper. „En
miklu meiri leynd hefur hvílt yfir
ferðum hans síðan 1979 en áður.
Hann veit að það er fylgzt með
honum.“
Og þar sem hópar Gyðinga og
samtök einkaaðila hafa lagt fé til
höfuðs honum má vera að þess sé
skammt að bíða að hann verði
loksins handtekinn.
Lawrence Birns segir: „Áhuginn
á því að draga þennan mann fyrir
lög og dóm er geysimikill. Hann
hefur látið mikið fé af hendi rakna
til þess að láta nafnleysi skýla sér
og lifa óhultur það sem eftir er
ævinnar. En þeir eru fjölmargir,
sem eru reiðubúnir að láta nógu
mikið fé af hendi rakna til þess að
koma í veg fyrir að honum takist
það.“
í vor lézt Walter Rauff, sem var
sakaður um að bera ábyrgð á
dauða 200.000 manna, þar af
margra Gyðinga, í Austur-Evrópu
í stríðinu. Þetta fólk var myrt f
flutningabílum á þann hátt að
eitrað útblástursgas var leitt inn í
loftþétt farangursrými þeirra.
Rauff lézt í Chile, sem var grið-
land hans um aldarfjórðungs
skeið. Jafnframt framseldi Bóliv-
íustjórn Klaus Barbie, „slátrarann
frá Lyon“, Frökkum í fyrra.
En Mengele, illræmdasti stríðs-
glæpamaður nazista sem enn er á
lífi, gengur enn laus og helzti að-
stoðarmaður Eichmanns, Alois
Brunner majór, býr óhultur í
Damaskus að því er virðist. Sögu
landflótta nazista og leitarinnar
að þeim er því ekki að fullu lokið.
{h: bygjft á „SUr" of fleiri beimildum.