Morgunblaðið - 18.11.1984, Side 67
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1984
67
AsU von Jaden barónessa f brnðarklcóum 1899. Leiðir hennar og Hans von
Jaden baróns í Vínarborg ligu saman i þjóóhitíð að Rauðari við Reykjavík
2. igúst 1897 eins og fram kemur í þættinum „Aðalskonurnar þrjir“.
Á þeirri sömu þjóðhitíð var Þorbjörg Sveinsdóttir og dró þar að hún
Hvítbliinn, finann sem Ólafía Jóhannsdóttir saumaði eftir fyrirsögn Einars
Benediktssonar. Um blihvíta finann er kvæði Einars „Rís þú unga íslands
merki". Þættir eru um Þorbjörgu og Ólafíu í bókinni.
konur eiga að mótun, uppbyggingu
og framgangi íslensks samfélags.
Stundum er ég spurð á hverri
þeirra ég hafi mest dálæti og þá
svara ég eins og um afkvæmi væri
að ræða: ÖLLUM. Ég geri ekki upp
á milli konunnar sem lærði lög og
skýrði fyrir bændum í Breiða-
fjarðareyjum um aldamótin 1800;
þeirrar sem gerði sitt til þess með
sjálfstæðum verslunarrekstri að
sjö dótturbörn hennar mættu
menntast; þeirrar sem efndi það
heit sitt að reisa öðrum spítala ef
hún sjálf, i góðum efnum, kæmist
yfir veikindi sem hún átti við að
stríða; þeirrar sem kom gangandi
yfir Hellisheiði í byrjun aldarinn-
ar úr þúsund ára kyrrstöðu
bændasamfélagsins og gerðist for-
ingi í kjarabaráttu kvenna í land-
náminu við sjávarsíðuna; þeirrar
sem var alltaf söm og jöfn hvort
sem hún var kvenna ríkust af ver-
aldlegum efnum eða snauðust og
mætti svo lengi telja.
HEIMILDA VÍÐA
LEITAÐ
Fanga var víða leitað. í bókum,
tímaritum og blöðum, kirkjubók-
um og manntölum og öðru því sem
er að finna á söfnum. Mér er ofar-
lega í huga góð fyrirgreiðsla
þeirra sem störfum sinna á Lands-
bókasafni og Þjóðskjalasafni, oft
við erfiðar aðstæður. Sama gilti
þegar leit hófst að myndum á
Þjóðminjasafni, í Árbæjarsafni og
Ljósmyndasafninu og hjá einka-
aðilum, sem margir hafa góðfús-
lega léð myndir.
Nokkrir góðvina minna eru all-
lesnir og fróðir um menn og mál-
efni, við þá ræddi ég oft þegar ein-
hver kvennanna var að komast á
blað. Þannig fékk ég oft ábend-
ingar um hvar efni væri að finna.
Einnig ræddi ég við aðstandendur
þegar þeim var til að dreifa og
aðra sem þekktu til viðkomandi
kvenna.
SKEMMTILEGT
STARF
Þetta starf hefur verið
skemmtilegt og litli starfshópur-
inn í Bókrúnu notið gleði sam-
starfsins. Leiðir okkar hafa legið
inn á heimili í borginni, þar sem
gamlir munir geyma minningu
genginna kynslóða. Oft var það
ævintýri líkast að heyra sögu
þeirra.
Að lokum, svo ég hafi sama
háttinn á og Cató gamli, vil ég
grípa þetta tækifæri til enn einu
sinni að minna á merkingu
mynda. Á nokkra staði kom ég þar
sem fólk hafði raðað mannamynd-
um og atburða, sem það átti,
skipulega og merkt hverja einustu
mynd. Vil ég hvetja þá sem eiga
það ógert að merkja gamlar
myndir, sem þeir kunna að eiga,
að vinda bráðan bug að því — áður
en þeir eru úr leik sem vita af
hverjum myndirnar eru, hvenær
þær voru teknar, hvers vegna og
af hverjum.
Gripið niður í bókina:
Skáldkona á síðum Fjölnis
Guðný Jónsdóttir (1804—1836)
Guðný Jónsdóttir var fyrri
kona séra Sveins Níelssonar, þá
djákna föður hennar að Gren-
jaðarstað, síðar prests að Stað-
arstað. Þau bjuggu að Klömbr-
um í S-Þingeyjarsýslu. Eftir
fárra ára hjúskap slitu þau sam-
vistir og mun hún hafa tekið
skilnaðinn nærri sér. Andláts
hennar er getið í Fjölni árið
1837, var það nýlunda því lítt var
því haldið á loft í fjölmiðlum á
þeim tíma þótt íslenskar konur
færu af þessum heimi. Reikna
Fjölnismenn hin sársaukafullu
hjúskaparmál hennar og séra
Sveins inn í fráfall hennar.
Guðný Jónsdóttir skáldkona
frá Klömbrum fæddist árið 1804
og lést rúmlega þrítug að aldri.
Nafn hennar lifir þó enn í
hugskoti margra. Enda þótt ævi
hennar væri svo skammvinn
mætti líklega með réttu segja að
hún væri átakanleg eða að
minnsta kosti hefur almanna-
rómur, og ef til vill einnig þjóð-
sagan, gert hana svo. Guðný var
ljóðskáld og hefur skilið eftir sig
Ijóðperlur sem gefa sýn á harmi-
FJÖLNIR.
ÍIUUT IIA\I>\ l!»*I.K\l>Í\<;|T1
G,.öð ...
Ilrinjól\i l‘ji'tutkMiii, Jiíium llallgrims-iui.
Runrádi Ojúla.ini, Táiiw.i Siímunzsini.
|».ið.j4 iir . IMT
h tl P« tNK tHOllt.
•‘t.'.' i' I'.m J. J». Kti'ti, \i'l>.-|>rriu.r. «( »•••".
I b37
lostið hjarta og kramdar tilfinn-
ingar. Áf samtlð sinni var hún
leidd á skáldabekk þvi líklega er
hún eina konan sem ljóð hefur
birst eftir í tímaritinu Fjölni og
í uppsláttarriti um íslendinga
þar sem æviágrip hennar er að
finna er hennar getið sem skáld-
konu. Þar er þess ennfremur get-
ið að kvæði eftir hana séu til í
handriti á Landsbókasafni og að
þau hafi birst í Fjölni og Norð-
urfara.
Það var fyrst eitt hundrað og
fimmtán árum eftir dauða Guð-
nýjar að kvæði hennar voru gef-
in út. Hjá forlagi Helgafells í
Reykjavík kom út, árið 1951, bók
i litlu broti, hundrað og sextán
síður, sem nefndist þvi hógværa
nafni Guðnýjarkver og að undir-
titli „Kvæði Guðnýjar frá
Klömbrum”. Þess er getið að
Helga Kristjánsdóttir á Þverá
hafi búið þau til prentunar. Rit-
gerð eftir hana um ævi Guðnýjar
er framan við kvæðin tuttugu og
átta talsins. Þekktast þeirra er
án efa það sem hefst á þessa leið:
Endurminningin er svo glögg
um allt það, sem f Klömbrum skeði,
fyrir það augna fellur dögg
og felur stundum alla gleði.
Þú getur nærri, gæskan mín,
Guðný hugsar um óhöpp sfn.
SJÓNVARP
SUNNUDAGUR
18. nóvember
16.00 Sunnudagshugvekja
Séra Einar Eyjólfsson, frlkirkjuprestur
I Hafnarfiröi.
16.10 Húsiö á sléttunni
Fyrsti þáttur nýrrar syrpu. Bandarlsk-
ur framhaldsmyndafiokkur, framhald
fyrri þátta um landnemafjölskylduna
I HnetulundL Þýöandi Oskar Ingi-
marsson.
17.00 Með fiðlu I vesturvegi.
Norsk tónlistar- og heimildamynd frá
Þjóðlagahátlð á Hjaltlandi. Tom
Anderson fiðluleikari segir frá sðgu
Hjaltlands og tónlist og tengslum
Hjaltlendinga við Norðurlönd. Is-
lenskur texti Ellert Sigurbjörnsson.
18.00 Stundin okkar.
18.50 Hlé.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veöur.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Sjónvarp næstu viku
20.55 Tökum lagið
Fimmti þáttur. Kór Langholtskirkju,
ásamt gestum I Gamla blói, syngur
undir stjórn Jóns Stefánssonar. Þessi
páttur er tileinkaður haustlögum.
Umsjón og kynning: Jón Stefánsson.
Sfjórn upptöku: Tage Ammendrup.
21.40 Oýrsta djásnið
(The Jewel in the Crown)
Nýr flokkur. Fyrsti þáttur. Breskur
framhaldsmyndaflokkur I fjórtán
þáttum, gerður eftir sagnabálkinum
.The Raj Quartet" eftir Paul Scott.
Leikstjórn: Christopher Morahan og
Jim O’Brien. Leikendur: Peggy
Ashcroft, Charles Dance, Saeed
Jaffrey, Geraldine James, Rachel
Kempson, Rosemary Leach, Art
Malik, Judy Parfitt, Eric Porter, Sus-
an Wooldridge o.fl. Meöan breska
heimsveldið var og hét þótti Indland
mesta gersemin I rlki þess. Þar gerist
sagan á árunum 1942 til 1947 þegar
Indland öölaöist sjálfstæöi. A þess-
um árum stendur frelsisbaráttan sem
hæst meö Gandhi I broddi fylkingar
og heimsstyrjöldin hefur vlötæk
áhrif. I myndaflokknum er fylgsf með
örlögum nokkurra karla og kvenna af
bresku og indversku þjóöerni en þau
mótast mjög af þessum umbrotatlm-
um. Þýöandi Veturliöi Guönason.
23.20 Dagskrárlok.
MÁNUDAGUR
19. nóvember
1fli5 Aftanstund
Barnaþáttur með innlendu og er-
lendu efni: Tommi og Jenni, Sögurn-
ar hennar Siggu, Bósi, Sigga og
skessan, framhaldsleikrit eftir Herdlsi
Egilsdóttur.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Alfhóll
(Elverhöj)
Myndskreytt ævintýri eftir H.C. And-
ersen.
Lesari Asger Rehe.
Þýöandi Jóhanna Jóhannsdóttir.
(Nordvision — Danska sjónvarpiö).
21.00 Akstur I myrkri
Fræöslumynd frá Umferöarráöi.
Þýöandi og þulur Bogi Arnar Finn-
bogason.
21.15 I fullu fjöri
Þriöji þáttur.
Breskur gamanmyndaflokkur.
Þýöandi Ragna Ragnars.
21.45 Alandseyjar
Norsk heimildamynd um Alandseyjar
I Eystrasalti, sögu þeirra. atvinnu-
vegi, menningu (búanna og afstööu
þeirra til sambandsins viö Finnland.
Þýöandi Þórhallur Guttormsson.
(Nordvision — Norska sjónvarpiö)
22.15 íþróttir
Umsjónarmaöur Ingólfur Hannesson
22.50 Fréttir I dagskrárlok.
Flóttamannastofnun SÞ:
Tekur Norðmaður
við af Hartling?
TILKYNNT hefur verið, að sendi-
herra Noregs hjá Sameinuðu þjóð-
unum, Tom Vraalsen, verði í fram-
boði til embættis framkvæmdastjóra
Flóttamannastofnunarinnar.
Það var K&re Willoch forsætis-
ráðherra sem stakk upp á Vraals-
en á fundi sem hann átti i haust
með de Cuellar, aðalframkvæmda-
stjóra Sameinuðu þjóðanna. Nú-
verandi framkvæmdastjóri
Flóttamannastofnunarinnar,
Daninn Poul Hartling, lætur af
embætti næsta haust eftir átta
ára starf.
Tom Vraalsen hefur átt skjótum
frama að fagna innan utanrfkis-
þjónustunnar og hefur nú um eins
árs skeið verið sendiherra lands
síns hjá Sameinuðu þjóðunum.
Nýtur hann þar mikils alþjóðlegs
trausts og þykir einkar laginn að
leysa úr hvers kyns vandamálum,
stórum og smáum, sem koma til
úrlausnar hjá stofnuninni. —Það
eru ekki til þau mál sem Vraalsen
þekkir ekki út og inn eða getur
ekki fundið lausn á, þannig að all-
ir séu ánægðir, segja fulltrúar
annarra þjóða sem þekkja til
starfa Vraalsens.
Svíþjóð:
Ungur Eistlend-
ingur biðst hælis
StokkbólmL 15. ■évember. AP.
TÆPLEGA þrítugur eistlenskur
æskulýðsleiðtogi á vegum sovéska
kommúnistaflokksins hefur beðið
um hæli sem pólitískur flóttamaður í
Svíþjóð. Hann stökk frá samlöndum
sínum nokkrum sem voru á ferða-
lagi í Finnlandi. Laumaðist hann
þaðan til Svíþjóðar.
Eistlendingurinn, sem heitir
Hillar Raig, sagði að eina leiðin til
að geta flúið land hefði verið að ná
frama i flokknum og sigla þar
undir fölsku flaggi. Hann sagðist
hafa undirbúið flótta sinn i 4 ár og
ástæðuna fyrir honum sagði hann
vera þá að hann tryði ekki á
kommúnisma og það tæki hann
sárt að sjá landa sina verða smátt
og smátt æ heilaþvegnari af sov-
éskum stjórnarháttum.
Raig á foreldra í háum metorð-
um heima i Eistlandi, faðir hans
er landbúnaðarsérfræðingur, móð-
ir hans er læknir. Raig er annar
embættismaður úr kommúnista-
flokki Eistlands sem flýr sfðan i
ágúst, en þá flúði til Svíþjóðar
Valdo Randpere og eiginkona hans
Leila Miller, hann fyrrum aðstoð-
armaður ráðherra, hún söngkona.
Þau hjónin hafa síðan verið að
reyna að fá sovésk yfírvöld til að
afhenda þeim ársgamla dóttur
sína, en á það hafa Rússar ekki
fallist.
Stofuskápur á
60 millj. króna
lxtndon, 16. aÓTenber. AP.
STOFI SKÁPUR, sem Loðvík XVI
Frakkakonungur átti eitt sinn, var
nýlega seldur á uppboði f Monte
Carlo fyrir sem svarar tæplega 60
milljónum króna.
Sennilega er þetta hæsta verð
sem nokkru sinni hefur verið
greitt fyrir húsgagn. Kaupandinn
var franskur og vildi ekki láta
nafns síns getið.