Morgunblaðið - 29.11.1984, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1984
7
Grétar Ólafsson yfirlæknir um hjartaskurðlækningar á Landspítalæ
Vongóður um að þær geti
hafist á miðju ári 1986
Áhugavert tilboð þegar borist um samvinnu frá Gautaborg
Barnaljóð
Jóhannesar
úr Kötlum
MÁL OG MENNING hefur gefið út
9. bindið í Ijóðasafni Jóhannesar úr
Kötlum. Það nefnist Barnaljóð og
hefur að geyma Ijóð sem Jóhannes
orti handa börnum.
í frétt frá MM segir m.a.: „í bók-
inni hefur verift safnað á einn stað
öllum barnaljóðum Jóhannesar,
bæði litlu kverunum vinsælu: Jól-
in koma, Ömmusögum, Bakka-
bræðrum, Ljóðinu um Labbakút
og Vísum Ingu Dóru og ljóðum
sem birtust á víð og dreif í bókum,
t.d. elstu útgáfunum af Gagni og
gamni. Auk þess eru hér nokkur
áður óprentuð barnaljóð."
Bókin er 157 bls., unnin í
prentsmiðjunni Hólum hf. Eftir-
mála skrifaði Silja Aðalsteins-
dóttir.
Ráðstefna Varðar
á laugardaginn:
„Fjárfesting-
ar á íslandi
og þáttur þeirra
f lífskjörum
landsmannau
LANDSMÁLAFÉLAGIÐ Vörður boð-
ar til ráðstefnu nk. laugardag, 1. des-
ember. Ráðstefnan ber yfirskriftina
„Fjárfestingar á fslandi og þáttur
þeirra í lífskjörum landsmanna".
Dagskrá ráðstefnunnar verður
svohljóðandi: Dr. Vilhjálmur Eg-
ilsson hagfræðingur flytur erindi
sem ber heitið „Fjárfestingar at-
vinnuveganna og hins opinbera á
liðnum árum“. Dr. Pétur Blöndal
stærðfræðingur flytur erindi um:
„Orsakir fjárfestingamistaka".
Ölafur Björnsson prófessor (fyrrv.)
fjallar um „Afleiðingar fjárfest-
ingamistaka fyrir lífskjör á ís-
Iandi“. Lárus Jónsson bankastjóri
fjallar um „Fjárfestingar og
ábyrgð stjórnmálamanna". Og
Árni Árnason framkvæmdastjóri
flytur erindi sem ber yfirskriftina
„Á að ríkja opinber stjórnun fjár-
festingamála á íslandi". Á undan-
förnum árum hefur mikið verið
fjallað um þátt fjárfestingar f lífs-
kjörum landsmanna. Ennfremur
hefur ítrekað verið á það bent af
kunnáttumönnum að rangar fjár-
festingar hafi stórskaðað fslenskt
efnahagslíf með þeim afleiðingum
að lífskjör hafa verið lakari en efni
standa til. Með ráðstefnu sinni vill
Landsmálafélagið Vörður reyna að
varpa ljósi á þessi mál og greina
orsakir og afleiðingar rangra fjár-
festinga. Ennfremur munu fyrir-
lesarar benda á leiðir sem þeir
telja horfa til bóta í þessum efnum.
Eins og fram kemur að ofan hefur
stjórn Varðar fengið til liðs við sig
færustu menn á sviði fjárfestinga-
mála og má því ganga að þvf vísu
að erindin verði fróðleg.
Ráðstefnustjóri verður Inga Jóna
Þórðardóttir aðstoðarmaður
menntamálaráðherra. Ráðstefnan
hefst klukkan 13.30 f Sjálfstæðis-
húsinu ValhöII, Háaleitisbraut 1 og
er hún öllum opin.
(Fréttatilkynning)
„MEÐAL okkar er mikil ánsgja
með að við getum nú virkilega farið
að hugsa um þetta I alvöru. Ég er
mjög vongóður um að hjartaskurð-
lækningar geti hafist á Landspítal-
anum á miðju ári 1986,“ sagði Grét-
ar Ólafsson yfirlæknir brjósthols-
skurðlækningadeild Landspítala ís-
lands, er hann var spurður álits á
ákvörðun heilbrigðisráöherra um að
hafinn skuli undirbúningur að því að
framkvæma hjartaskurðlækningar á
Landspítala eigi síðar en á árinu
1986. Grétar sagði ennfremur, að nú
þegar hefði borist áhugavert tilboð
frá læknum við háskólasjúkrahús í
Gautaborg um samstarf og stuðning
við að hefja hér skurðlækningarnar,
en slíkt samstarf væri okkur nauð-
synlegt til að þjálfa og samþjálfa
starfsfólk.
Þórður Harðarson prófessor við
lyflækningadeild Landspítalans,
sem annst nú hjartasjúklinga
hérlendis, tók í sama streng og
Grétar og sagði starfsmenn mjög
þakkláta heilbrigðisráðherra fyrir
góðan stuðning í þessu máli og þá
ekki síður fyrir forgöngu í því að
byggja nýja aðstöðu til hjarta-
þræðinga við Landspitalann, en
byggingu þess húsnæðis miðar vel
að hans sögn. Grétar ölafsson
kvaðst vonast til að þegar í upp-
hafi næsta árs yrði hægt að hefja
undirbúning, og að hafist yrði
handa á þeim vettvangi, sem kost-
aði minnst fjármagn. Hann sagði
stjórnarnefnd ríkisspítalanna
taka ákvörðun um hvar aðstoðar
og samvinnu yrði leitað erlendis,
en tilboðið frá Gautaborg væri
mjög áhugavert.
Samkvæmt áliti nefndar, sem
nýverið hefur skilað áliti, er
kostnaður við tækjabúnað til
hjartaskurðlækninganna áætlað-
ur að upphæð um 5 millj. kr., en
með tollum, vörugjaldi og sölu-
skatti samtals að upphæð 15,8
millj. kr. Grétar sagði, að nú þeg-
ar væru fyrir hendi fjármunir til
að greiða þennan tækjabúnað að
hluta. í skýrslunni mun einnig tal-
ið, að ekki sé þörf á að bæta við
sjúkrarúmum, en að lagfæra þurfi
skurðstofugang. Við brjósthols-
skurðlækningadeild eru þegar
starfandi þrír skurðlæknar, sem
allir hafa reynslu af hjartaskurð-
lækningum, en í skýrslunni er tal-
ið, að bæta þurfi við níu hjúkrun-
arfræðingum með mismunandi
mikla sérmenntun, tveimur
meinatæknum, 1 Vi meinatækni og
1% lækni. Launakostnaður er
áætlaður um 6,2 millj. kr. á ári.
Á móti fyrrgreindum kostnaði
er reiknaður kostnaður, sem
greiddur er nú vegna hjartaskurð-
lækninga íslendinga erlendis. Þar
eru nefndar meðaltalstölur frá ár-
inu 1982, sem greiddur var af
Tryggingastofnun ríkisins, þ. e.
3.600 £ vegna þjónustu í Bretlandi
og um 20 þúsund $ í Bandaríkjun-
um. Þá eru ekki meðtalinn far-
gjöld sjúklinga eða fylgdarmanna,
né hótelkostnaður þeirra og bent á
þann gjaldeyrissparnað sem hlýt-
ur að fylgja heimflutningi hjarta-
aðgerðanna.
Þórður sagði, að hjartaaðgerð-
um á íslendingum hefði fjölgað
mjög ört á síðustu árum og senni-
lega færu upp undir 200 manns í
slíka aðgerð í ár. Hann sagði að
frá læknisfræðilegu sjónarmiði
væri því lítill vafi á að tími væri
kominn til að hefja þessar skurð-
aðgerðir hérlendis.
EGHJL
VILHJÁLMSSON HF
Smidjuvegi 4, Kópavogi. Simar 77200 - 77202.