Morgunblaðið - 29.11.1984, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 29.11.1984, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1984 43 Gunnar G. Schram um ISAL-samningiim: Mikill ávinningur fyrir hinn almenna raforkumarkað Gífurlegir fjármunir þegar farnir í súginn Meginatriði hins nýja viðauka- samnings við Alusuisse er hækkun raforkuverðs, sagði Gunnar G. Schram (S) er hann mælti fyrir nefndaráliti sjálfstæðismanna í iðnaðarnefnd neðri deildar um það mál. Þetta sést bezt af því að tekj- ur okkar í orkuverði af álverinu á þessu ári nema 20 milljónum Bandaríkjadollara en í sköttum 1,6 milljónum dala. Tvö- til þreföldun orkuverðsins, sem náðst hefur, þ.e. úr 6,5 millum í 12,5—18,5 mill, er því mergurinn málsins. Gunnar G. Schram vakti at- hygli á nokkrum efnisatriðum, sem þingmenn yrðu að hafa í hug, er afstaða væri tekin til þessa máls: • Ef hinn nýi samningur hefði gilt frá sl. áramótum hefði orku- verð til ÍSAL verið 13,8 mill, skv. upplýsingum frá Landsvirkjun. Þá hefði meðalverð til almenn- ings getað verið 19,8% lægra en ef orkuverðið til ÍSAL væri áfram 6,5 mill, eins og það var unz bráðabrigðasamkomulag var gert í september á sl. ári. • Hver vóru áhrif bráðabirgða- samnings við ÍSAL, sem núver- andi ríkisstjórn gerði í septem- ber 1983, stuttu eftir að hún var mynduð? Þá hækkaði orkuverðið til ÍSAL þegar um rétt tæp 50%. Þess vegna hefur verið hægt að halda orkuverði frá Landsvirkj- un óbreyttu að krónutölu frá 1. ágúst 1983, sem þýðir lækkun raunverðs til almennings um 15%. (Miðað við byggingarvísi- tölu.) • Ef hinn nýi samningur, sem við fjöllum nú um, hefði gilt frá 1979 hefði orkverð til ISAL verið á bilinu 12,5—16,5 mill (í stað 6.5 milla á Hjörleifstímanum). Við- bótartekjur Landsvirkjunar frá ÍSAL á þessum sex árum hefðu þá numið 55 milljónum dollara, eða þremur milljörðum og tvö hundruð milljónum króna með vöxtum talið, þ.e. 530 m.kr. á ári. Hér er verið að tala um gífurlega mikla fjármuni sem fara lang- leiðina í verðgildi nýrrar virkj- unar, eða tvöfalda fjárhæð sem þarf til að setja varanlegt slitlag á hringveginn allan, eða andvirði 2.000 nýrra íbúða. • Viðbótartekjur, vegna hins nýja samnings, næstu fimm ár- in, geta orðið 2.300 m.kr., miðað við líklega þróun álverðs. Gunnar G. Schram • Kostnaðarverð orku frá Búr- fellsvirkjun til stóriðju er nú 8,4 mill en frá öllum virkjunum Landsvirkjunar 9,6 mill til stór- iðju, en 12,7 mill ef allt flutn- ingskerfi landsins er reiknað inn í dæmið. Þessi samningur er því veru- legur áfangi sem ber að stað- festa. AIMAGI Fjárlög 1985 Innlausnarverð spariskírteina: 4,4 milljarðar króna ÁÆTLUÐ sala spariskír- teina ríkissjóðs 1985 er hóf- legri en á líðandi ári eða 550 m.kr. „Hitt er áhyggjuefni," sagði fjármálaráðherra í fjárlagaræðu, „að innlausn eidri bréfa getur orðið svo milljörðum skiptir. Heildar- innlausnarverð útgefinna spariskírteina nam í lok september 4,4 milljörðum króna, þar af eru einungis um 600 m.kr. sem eru kröfu- hæfar eftir árslok 1985. Sú innlausn sem á ríkissjóð get- ur fallið fram til áramóta í ár og á næsta ári nemur því alls um 3,8 milljörðum króna.“ I fjárlagafrumvarpi 1985 eru áætlaðar 650 m.kr. til innlausnar spariskírteina. „Hér ríkir mikil óvissa og augljóst að mikill vandi get- ur steðjað að ríkissjóði ef ekki kemst meira jafnvægi á fjármagnsmarkaðinn en nú er.“ I kvöld: Útvarp um ál Frumvarp til staðfestingar á ræðu í síðari þingdeild (efri samningi um hækkað raforku- deild) í kvöld. Umræðunni verð- verð til ÍSAL úr 6,5 millum í ur útvarpað að kröfu Alþýðu- 12,5—18,5 mill, og sátt um eldri bandalagsins. deilumál kemur til þriðju um- Erlendar fjárfest- ingar hérlendis Nýr þingmaður Magðalena Margrét Sigurð- ardóttir, Isafirði, hefur tekið sæti á Alþingi í veikindafjarveru Ólafs Þ. Þórðarsonar (F). Hún hefur ekki setið á þingi áður. Fjárlög Frumvarp til fjárlaga fyrir komandi ár var formlega af- greitt til fjárveitinganefdar í gær. Það kemur væntanlega til annarrar umræðu um miðjan næsta mánuð, en til stendur að afgreiða fjárlög næsta árs áður en þingmenn halda í starfshlé yfir jól og áramót. Erlend fjárfesting í atvinnufyrirtækjum Bjöm Líndal (F) flytur tillögu til þingsályktunar, þess efnis, að ríkisstjórnin „láti semja frum- varp til laga um fjárfestingar erlendra aðila hér á landi. Verk- efnið verði falið nefnd sem sé skipuð fulltrúum allra þing- flokka...“. I greinargerð er bent á að nýsköpun íslenzks atvinnulifs hljóti að byggjast að hluta á er- lendu fjármagni. Greiðslubyrði erlendra láni nemi þegar 23% útflutningstekna þjóðarinnar. Kanna þurfi, hvort heppilegt sé að erlent áhættufé taki þátt i at- vinnuuppbyggingu hér á öðrum sviðum en stóriðju. Nauðsynlegt sé að setja lög um þetta efni. Atvmnuréttindi starfsstétta Samgönguráðherra hefur lagt fram stjórnarfrumvörp: 1) um atvinnuréttindi skipstjórnar- manna á islenzkum skipum, 2) um atvinnuréttindi vélfræðinga, vélstjóra og vélavarða á íslenzk- um skipum. Neðri deild afgreiddi í gær til nefndar frumvarp um lögvernd- un á starfsheiti kennara. Bjórinn í nefnd Frumvarp um heimild til bruggunar og sölu meðalsterks öls gekk til nefndar í neðri deild í gær. Nýtt fiskverð í sjónmáli Stjórnarfrumvarp um Verð- lagsráð sjávarútvegsins, þ.e. ákvörðun fiskverðs fyrr en regl- ur standa til, vegna breyttra að- stæðna, var samhljóða samþykkt í efri deild Alþingis. Það verður væntanlega tekið til meðferðar á næsta fundi neðri deildar. FULL VERÐ- TRYGGING SPARISKÍRTEINI RÍKISSJÓÐS • FYRIRHAFNARLAUS • ÁN ALLRAR ÁHÆTTU • 8% FASTIR VEXTIR • RÍKULEG ÁVÖXTUN Með spariskírteinum í 3. ílokki 1984 sem nú eru til sölu býður Ríkissjóður betri ávöxtun en flestir aðrir á markaðinum. KYNNIÐ YKKUR VEL KJÖR SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.