Morgunblaðið - 29.11.1984, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1984
53
þungA
MIÐJAN
FINNBOGI MARINÓSSON
son saxófónleikari er góður og
eins og hjá Megasi víkkar hann
tónlistarsviö hljómsveitarinnar til
muna. Sá sem hins vegar á hvað
mestan þátt í aö gera Das Kapital
aö jafn skemmtilegri hljómsveit og
hún er, er Guömundur „Tappi“
Gunnarsson. Hann lemur hljóm-
sveitina saman meö einföldum en
kraftmiklum áslætti og hefur piltur-
inn aldrei passaö jafn vel inn i
sveitina eins og nú. Og vonandi
kemst þessi ásiáttur hans til skila á
plötunni.
Pass í Safari
Þaö þarf töluvert áræöi til aö
setja saman hljómsveit, byrja
aö æfa tónlist sem er fordæmd af
þorra manna, auglýsa sig undir
henni og halda síöan tónleika þar
sem tónlistinni er komiö á fram-
færi. Þaö sem átt er viö hér er aö
hljómsveitin Pass úr Mosfellssveit
hélt tónleika í Safari fyrir nokkru
sem þeir auglýstu sem Þunga-
rokkstónleika. Þeir sem síöan áttu
eftir aö mæta á svæöiö uröu vitni
aö þyngstu, í bókstaflegri
merkingu þess orös, tónleikum
sem haldnír hafa veriö hér í háa
herrans tíö. Hljómsveitin haföi
greinilega lagt töluveröa rækt viö
sköpun stna. I rúma klukkustund
spiluöu þeir af þvíltkum krafti aö
jafnvel höröustu rokkarar fölnuöu
og settu upp undrun og sakleysi í
andlitiö.
Tónlistin sem Pass spilaöi þetta
kvöld er í átt viö þaö sem Black
Sabbath og aörar hljómsveítir í
kringum og eftir 1970 voru aö
spila. Og þessa tónlist fluttu þeir
félagarnir á óaöfinnanlegan hátt.
Söngurinn kraftmikill og gersam-
lega óskiljanlegur. Gítarleikurinn
villtur, af og til laus viö aö fylgja
laglínunni (sem kom í hlut bass-
ans), kunni öll þau brögö sem
hlustendur vilja sjá og heyra en oft
aö gera hluti sem voru í engu sam-
hengi við lagiö sem þá var veriö aö
spila. Þungann og kraftínn í tón-
listina settu síöan ágætur bassa-
leikari og afbragös góöur trommu-
leikari. Samspil þeirra gott og oft
afar smekklegt.
En þrátt fyrir mikinn kraft og
gott hljóö skemmti ég mér þokka-
lega. Engin tilraun var gerö til aö
ná sambandi viö áheyrendur og
datt mér í hug aö þeir væru nánast
gagnsiausir. Þaö er ekki nóg aö
hljómsveitin geri þaö gott upp ó
sviöi og skemmti sér vel. Hún
veröur aö miöla þessu til áheyr-
enda. Stemmningin var engin
þetta kvöld. En meö góöum vilja
heföi Pass getaö náö upp rosa
stemmningu og sent hvern og einn
heim staöfastan í aö sjá Pass aft-
ur.
Góðir tónleikar
Síöastliöiö fimmtudagskvöld
hélt hljómsveitein Rikshaw
sina fyrstu tónleika í Safari. Hún er
stofnuö upp úr Boy’s Brigade og
er skipuö þanníg: Siguröur Hann-
esson (trommur), Dagur Hilmars-
son (bassi), Richard Scobie (söng-
ur/hljómborö), Siguröur Gröndal
(gítar) og Ingólfur Guöjónsson
(hljómborö). Þungamiöjan mætti á
staöinn um kl. 11 og var þá marg-
menni drifiö aö. Stuttu seinna hóf
hljómsvitin Mk viö ágætar undir-
tektir áheyrenda. Tónlist þeirra er
ekki ósvipuö Pax Vobis (báöar
munu þær vera undir áhrifum frá
Japan) en er þó öllu hraöari, þ.e.
a.s. meiri danstónlist. Helstu gallar
voru þeir aö gítarleikurinn heföi
mátt njóta sín betur og hljóm-
borösleikurinn var helst til tilbreyt-
ingalítill. Þrátt fyrir þessa minni-
háttar galla heppnuöust tónleik-
arnir nokkuö vel og höföaöi
hljómsveitin greinilega vel til
áheyrenda. Reyndi söngvarinn
meö þokkalegum árangri aö fá fólk
til aö dansa og voru þaö viöameiri
tilraunir en tíökast hafa hjá ís-
lenskum hljómsveitum til þessa.
Hljómsveitin var nokkuö lífleg, þó
var hljómborösleikarinn heldur
stífur. f stuttu máli sagt heppnuö-
ust hljómleikarnir nokkuö vel og
meö örlitlum endurbótum á Rik-
shaw örugglega góða framtíö fyrir
sér.
Big Country, Howard Jones, Dire
Straits o.fl. á nýrri safnplötu
Nýlega kom út í Bretlandí 11
laga safnplata meö áöur óút-
gefnu efni ýmissa listamanna s.s.
Big Country, Howard Jones og
Dire Straits. Platan, sem heitir
.Sometimes A Great Notion*, inni-
heldur bæöi ný lög og breyttar út-
gáfur eldri laga. Rytjendur eru: Big
Country, Howard Jones, Elvis
Costello, Tom Robinson, Dire
Straits, Peter Gabriel, Nick Hey-
ward, Pete Townsend, Eddy
Grant, Robert Fripp og Rupert
Hine. Kassettuútgáfan inniheldur
einnig lög meö Paul Yong og
Bruce Foxton. Lag Big Country
.All Fall Together” var uppruna-
lega samiö fyrir kvikmyndina
.Against All Odds“. Framlag How-
ard Jones er hljómleikaupptaka á
.Like To Get To Know You Well“
og Elvis Costello kemur meö
.Really Mystified*. Tom Roblnson
kemur meö .Loner Boy“, framlag
Dire Straits er upprunaleg
.demo“-upptaka á .Sultans Of
Swing“ og Peter Gabriel flytur .I
Have The Touch“ sem var tekiö
upp um svipað leytl og .Gabriel
IV“. Pete Townsend flytur lag frá
1981, .Scoop" og Eddy Grant
kemur meö .I Love You“ sem var
tekiö upp í stúdíói hans á Barba-
dos. Síöan koma Nick Heyward
meö .On A Sunday*, Robert Fripp
meö .Celebration" sem hann
samdi sérstaklega fyrir þessa
plötu, og aö lokum Rupert Hine
meö .One Man’s Posion“. Af
þessu má sjá aö hér er á ferö at-
hyglisverö plata, en ekki er víst aö
hún muni fást hér á landi þar sem
allur ágóöi á aö renna til Bresku
heyrnleysingjasamtakanna, sem
gefa hana út.
Nú er
tækifærið
Stór-aukið úrval
af kápum
á stór-góðu verði
• • •
f
KAPUSALAN
BORGARTÚNI 22 SÍMI 23509
Næg bílastæði.