Morgunblaðið - 29.11.1984, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 29.11.1984, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1984 35 simamynd/AF. Kaupskip í sundlaugina 230 feta kaupskip frá Venezúela rak stjórnlaust fyrir veðri og vindum I gífurlegu óveðri sem geysað hefur síðustu daga allt fró Miami til Jacksonville í Flórída. Gekk svo langt, að skipið stímdi á girðingu og sundlaug ríkmannlega hússins sem sjá má á myndinni. Allir sluppu skipverjarnir frá borði þurrum fótum, en unnið er að því að losa skipið. ____________________ Neil Kinnock: Chernenko væntir mikils af fundi Shulz og Gromykos Lundónum, 28. nóvember. AP. NEIL KINNOCK, leiðtogi breska Verkamannaflokksins, kom heim til Bret- lands á þriðjudagskvöldið eftir að hafa verið í opinberri heimsókn í Sovétr- íkjunum. Þar raeddi hann við ýmsa ráöamenn, þar með talinn Konstantin Cbernenko, forseta landsins og formann Kommúnistaflokksins. Sagði Kinn- ock við fréttamenn á Heathrow-flugvelli, að mikill hugur væri í Chernenko og öðrum ráðamönnum í Sovétríkjunum vegna fyrirhugaðra viðræðna við ið að miða á Bretland, ef Bretar á móti myndu losa sig við öll kjarn- orkuvopn á breskri grund og koma á stjórn undir forsæti Verka- mannaflokksins. Margareth Thatcher forsætisráðherra sagði við þessu, að svona nokkuð væri aldrei hægt að treysta á, sérstak- lega þar sem Sovétmenn ættu í hlut, ef svo færi að til stríðs myndi koma. Kinnock sagði þessa afstöðu Thatchers „barnalega" og hvatti hana til að hætta að setja sig á háan hest á sama tima og Bandaríkjamenn um afvopnunarmál. Utanríkisráðherrarnir George Shulz og Andrei Gromyko hittast i Genf í Svíss í janúar næstkomandi og sagði Kinnock að Sovétmenn væru önnum kafnir að undirbúa fundinn frá sinni hendi. „Ég varð þess áskynja að Sovétmenn leggja mikið upp úr því að viðr'æðurnar heppnist að einhverju leyti,“ sagði Kinnock. Kinnock flutti einnig þau tið- indi, að Chernenko hefði boðið að Sovétmenn myndu fækka mjög kjarnorkuvopnum og hætta alfar- Neil Kinnock aðrir þjóðarleiðtogar, þar á meðal Reagan Bandaríkjaforseti, virtust hafa í vaxandi mæli áhuga á því að ná samkomulagi um fækkun og útrýmingu kjarnorkuvopna. Vestræn popplaga- samkeppni í Shanghai Peking, 28. DÓvember. AP. RÚMLEGA 2.000 ungir Kínverjar hafa látið skrá sig í popptónlistar- samkeppni sem tónlistarstofnun Shanghai-borgar stendur fyrir í Shanghai á næstunni. 1 frétt 1 kfnverska dagblaðinu „Kína“ sem, kemur út á ensku, segir að hugmyndin sé að efla samskipti Kína og Vesturlanda, einkum þó menningarlega, en einnig til að kynnast betur er- lendum tungumálum, efla mann- leg samskipti við Vesturlönd og að læra að meta vestræna dægur- Þúsundir ungra Kínverja áhugasamir lagatónlist sem hefði marga góða kosti. í menningarbyltingunni í Kína á árunum 1966 til 1976 efndi tón- listarstofnun Shanghai einnig til slfkra samskipta, en mátti þá þola ofsóknir öfgasinnaðra bylt- ingarsinna, sem töldu nauðsyn- legt í krafti valds síns, að „endur- mennta" tónlistarmenn, skáld, rithöfunda og fleira fólk. Var fólkið lftilsvirt á fjöldafundum og það lokað inni f örlitlum glugga- lausum herbergjum þar sem því var gert að fást við ýmis handa- vinnustörf. Gekk þetta fram af mörgum og nfu réðu sér bana. Nú rfður tónlistarstofnunin f Shanghai aftur á vaðið og nú eru breyttir tfmar. Hugmyndin hefur mælst vel fyrir eins og þátttakan bendir til og ekki er reiknað með ofsóknum eða mótmælum, þvert á móti er búist við þvi að sam- keppnin geri stormandi lukku f Shanghai. Qveður í Bandaríkjunum: „Skyggnið ekki einn sentimetriu Su Fraacioto, Kmlifornfu, 28. aÓTenilwr. AP. VETUR konungur hefur nú heldur betur haldið innreið sína í Bandarfk- in, en mikil lægð herjar nú á norð- vesturhluta Bandaríkjanna og verst hefur veðrið verið við ströndina. Manntjón befur ekkert orðið svo vit- að sé, en rafmagnstruflanir og eignatjón mikið að sama skapi. „Skyggni nemur vart einum sentimetra," sagði talsmaður lög- reglunnar í Oregon, þar sem veð- rið var hvað verst. Þar lokuðust vegir og þúsundir heimila misstu rafmagn er ising sleit línur og veðurhæð felldi staura. Sums staðar náði vindurinn allt að 113 kílómetra hraða á klukkustund f mestu hviðunum og jafnfallinn snjór varð allt að 25 sentimetra djúpur. í San Francisco riðuðu há- hýsi í rokinu og regnhlífar fólks tættust í sundur f höndum þess. „Jihad“ teygir anga sína til V-Evrópu Rómarborg, 28. nóvember. AP. SPRENGJUTILRÆÐI við bandaríska sendiráðið í Rómaborg, sem fór út um þúfur, hefur verið rakið til „Jihad“, eða „heilags stríðs islams“, en það eru hryðjuverkasamtökin sem staðið hafa fyrir flestum af hrika- legustu hryðjuverkum í Miðausturlöndum hin síðari ár, m.a. sjálfs- morðssprengingunum við varðstöðvar franskra og bandarískra friðar- gæshiliða í Beirút, svo og við herstöð ísraelshers í Suður-Libanon, en hundruð manna létu lífið í þeim árásum Jihad og enn fleiri særðust. Þetta er í fyrsta skipti sem komist hefur verið á snoðir um aðgerðir Jihad-liða utan Miðausturlanda. ítalska lögreglan fletti ofan af tilræðinu áður en því var hrint í framkvæmd og handtók sjö unga Líbani sem viðurkenndu að vera félagar f Jihad. Talsmaður lög- reglunnar sagði sönnunargögn vera til reiðu og nóg af þeim. Sagði hann jafnframt að Lfban- irnir hefðu „ætlað að fara eins að og í Beirút". Hann fór ekki nánar út f þá sálma, en sérfræðingar segja það benda til að einhverjir úr hópnum hafi ætlað að aka vörubifreið fullri af sprengjum að sendiráðinu, sprengja hana i loft upp og sjálfa sig með. Það er sú aðferð sem notið hefur mestra vinsælda hjá Jihad og hryðju- verkamennirnir lftaá það sem leið til að sameinast guði. ónafn- greindur talsmaður Jihad í Lfban- on sagði í samtali við vestræna fréttastofu fyrr í þessum mánuði: „Ungu mennirnir okkar eru til í að ráðast að bandarískum mann- virkjum og Bandaríkjamönnum hvar sem er og hvenær sem er.“ Áður höfðu Jihad-menn látið í það skína að þeir myndu ekki endilega binda sig við aðgerðir í Miðaustur- löndum f náinni framtíð. Ófriður í fjöllun- um við Beirút Beirát, 28. nÓTember. AP. ÞRÍR létu lífið og níu særðust í skotbardögum milli kristinna og mú- hameðstrúarmanna fyrir sunnan Beirút í Líbanon, í Kharroub-fjöll- um. Vaxandi róstur hafa verið í Líb- anon að undanförnu á sama tíma og þjóðstjórnin í landinu hefur freistað þess að koma stjórnarhernum í eftir- litsstöður sem vfðast til að koma f veg fyrir skærur trúflokka. Rfkisstjórnin kom saman til fundar í dag til að ræða áformin varðandi stjórnarherinn, en þeim hefur þegar verið hrint í fram- kvæmd að hluta til. Það taldist til tiðinda á rfkisstjórnarfundinum, að Walid Jumblatt, leiðtogi drúsa, mætti, en hann hafði ekki látið sjá sig á sex stjórnarfundum i röð. Það eru einkum menn undir hans stjórn úr röðum drúsa sem erfitt eiga að sætta sig við valdatöku stjórnarhersins á vissum stöðum f fjöllunum umhverfis Beirút. Hafa reiðir drúsar hafið fallbyssuskot- hrið að stöðvum kristinna manna alloft í seinni tfð og þeir kristnu þá svarað í sömu mynt. Er mikil pressa á Jumblatt að halda mönnum sínum í skefjum. Bið í steininn Ó8k>, 27. nóvember. Frá Jan Enk Unré, fréttnrítnra MbL YFIR 5.000 Norðmenn bfða af- plánunar refsidóma og aldrei hefur biðröðin verið lengri en nú. Dómsmálaráðuneytið leitar nú ýmissa úrræða til að minnka biðröðina, m.a. með því að stytta lágmarksrefsingar úr 21 í 14 daga. Þá hafa afplánunarstofnan- ir, sem hingað til hafa aðeins hýst þá sem dæmdir hafa verið fyrir ölvunarakstur, nú verið teknar undir „venjulega" fanga, einkum þá sem hlotið hafa minni náttar fangelsis- dóma. ______ Klarískum !tJ6rnmálum &H2, Metsölutímaritið MANNLIF Tímaritiö Mannlíf er tvímælalaust eitt vandaöasta og efnismesta tímarit, sem út hefur komiö á islandi. Upplag annars tölublaös er nú senn á þrotum hjá útgáfunni, tryggiö ykkur eintak í tíma! Mannlíf fæst á næsta blaö- og bóksölustaö! Tímaritið * MANNLIF Höfðabakka 9, 110 Reykjavík. Símar 91-687474 og 687479.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.