Morgunblaðið - 29.11.1984, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 29.11.1984, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1984 Noregun Eþíópía: AF ERLENDUM VETTVANGI eftir GRAHAM TURNER Marxistastjórnin ber ábyrgð á hallærinu „Ef draga ber einhvern aðila til ábyrgðar i hungursneyðinni f Eþíópíu, þá er það ríkisstjórn landsins,“ segir dr. Keith GrifTin, prófess- or við Oxfordháskóla á Englandi. „Stjórnvöld í Eþíópíu bera höfuð- ibyrgð á því, sem þar hefur gerst. Löngu áður en hallærið varð sáu menn að hverju stefnd', gerðar voru tillögur um það hvernig mætti hindra það, en stjórnvöld skelltu skollaeyrum við þeim og aðhöfðust ekkert." Astæða er til að veita mál- flutningi Griffins athygli, með því að hann talar af meiri þekkingu um aðdraganda harm- leiksins í Eþíópíu, en flestir sem það mál ræða um þessar mundir. Árið 1982 var hann formaður 20 manna nefndar á vegum Alþjóða vinnumálastofnunarinnar, sem rannsakaði efnahag Eþfópíu og skilaði síðan viðamikilli skýrslu um það efni, sem nefnd var „Grasrótarsósíalismi". Þessari skýrslu var stungið undir stól, að líkindum vegna þess að hinni marxísku herstjórn landsins, sem Mengistu Haile Nariam er í forystu fyrir, féll ekki niðurstað- an. Ekki þurrkarnir, heldur röng stjórnarstefna Það er mat Griffins, að hung- ursneyðin í Eþíópíu stafi ekki fyrst og fremst af hinum miklu þurrkum f landinu, heldur rangri stefnu stjórnar Mengistu. Á svo yfirgengilegan hátt hefur hún vanrækt skyldur sfnar, að í stað þess að sjá um fæðu handa bændum landsins, sem eru 85% íbúanna, hefur hún í reynd svelt þá. Griffin segir að þetta hafi gerst með margvíslegum hætti. Það mikilvægasta sé, að stjórnin hafi ekkert skeytt um bændur og þarfir þeirra, heldur hafi drýgsta hlutanum af afrakstri þjóðarinnar verið veitt til iðn- þróunar, til þeirra sem búa í borgum og til að vígbúa herinn. Mesta áherslu hefði hins vegar átt að leggja á, að stöðva lang- varandi samdrátt f matvæla- framleiðslu. Að sögn Griffins hafa þeir fjármunir, sem varið hefur verið til landbúnaðar, farið til ríkis- rekinna búgarða, sem aðallega framleiða matvæli fyrir borg- arbúa og herinn, sem rfkisstjórn Mengistu byggir vald sitt á. „Bændurnir styðja ekki stjórnina," segir hann, „og þess vegna hefur hún ekki áhuga á þeim. Þeir hafa ekki með sér nein stjórnmálasamtök, og stjórnin vill ekki að þeir komi neinum slíkum samtökum á fót, því ef þeir gætu beitt sér á þeim vettvangi mundu þeir snúast gegn marxískum stjórnvöldum." Það er ekki nóg með að stjórn Mengistus vanræki bændafólkið, hún beitir það ranglæti, að sögn Griffins. Stjórnvöld leggja t.d. 30% skatt á útflutningsafurð eins og kaffi, sem bændur fram- leiða. Þeim tekjum hefur verið varið til að standa straum af kostnaði við þrjár borgarastyrj- aldir f landinu og til að hraða þéttbýlismyndun. Þá er gengi gjaldmiðils Eþíópfu (sem nefnist birr) skráð allt of hátt vegna þess að hann er tengdur banda- ríkjadal („sem hlýtur að teljast kaldhæðnislegt i rfki marxista," segir Griffin) og það leiðir til samdráttar i útflutningi land- búnaðarvara. „Auðvitað er fráleitt að miða birr við bandaríkjadal,“ segir Griffin. „í hvert skipti sem gengi dalsins hækkar, hækkar gengi birr. Þessi tengsl ætti að rjúfa. Griffin segir, að sú þunga byrði sem bændur í Eþíópfu þurfa að bera stafi ekki af þvf að Vesturlandabúar greiði of lágt verð fyrir afurðir þeirra. Ástæð- an sé skipulag verslunar og viðskipta í landinu sjálfu. Ekki fátækt land Er Eþiópía kannski svo fátækt land, að jafnvel athafnir stjórn- valda breyti litlu um lffskjör fólksins, sem þar býr? Því fer fjarri, segir Griffin. Tæknilega er ekkert því til fyrirstöðu að Eþíópía — og önnur lönd í Afr- íku, sem hrjáð eru af þurrkum — geti brauðfætt fleiri en þar búa nú, ef stjórnvöld fylgja skyn- samlegri stefnu. Þegar hið mikla flæmi gróðurmoldar í Eþfópfu er haft í huga sjá menn, að f raun- inni ætti landið „afar sjaldan" að þurfa á erlendri aðstoð að halda. En hvað hefur Griffin f huga þegar hann talar um „skynsam- lega stefnu"? Tvennt einkum, segir hann. í fyrsta lagi ætti að nota tækifærið, þegar uppskera er góð, til að koma á fót forða- búrum matvæla á þeim svæðum, þar sem hætt er við þurrkum. Síðan, þegar syrfi að, ætti að nota matvælin og úthluta þeim eftir ákveðnu kerfi, sem tryggði öllum tiltekin lágmarkskjör. Vesturlandabúar ættu ekki að standa straum af forðabúrunum, heldur stjórnvöld í Eþfópíu, seg- ir Griffin og bendir á, að ókeypis matvæli, sem berast frá Vestur- löndum, hafi letjandi áhrif á framleiðslu f landinu. Hann tel- ur ennfremur mikilvægt, að stjóm Mengistus haldi herfor- ingjum sínum og opinberum starfsmönnum í skefjum um hríð og byrji að framkvæma við- reisnaráætlun. Viðreisn efnahagsins, segir Griffin, þarf ekki að hafa f för með sér stórfelld fjárframlög, enda fjármagn af skornum skammti, heldur nægir að koma á skipulagi. Hann bendir á, að á þurrkatfmum er gífurlegur hóp- ur fólks á þurrkasvæðunum iðju- laus og hægt sé að beina starfs- þreki þess að vegalagningu og áveitugerð. Griffin segir að aðstoð Vestur- landa geti ekki snúið Afrfku af braut ógæfunnar. Hann bendir á hvað orðið hafi um þá aðstoð sem Eþíópíumönnum var veitt á árunum 1970—1981. Á þessu tímabili hækkaði hún úr 3% af þjóðartekjum í tæplega 6%; á sama tíma varð nánast engin aukning á fjárfestingum innan- lands, sparnaður dróst saman, en ríkisútgjöld — og með því er einkum átt við útgjöld til hersins — hækkuðu. Þróunaraðstoðin var m.ö.o. notuð til að reka borg- arastríðin í landinu. Og það er ekki nokkur leið að hindra að stjórn, eins og sú sem Mengistu er í forystu fyrir, misnoti hjálp- arféð, segir Griffin. Af þessu dregur Griffin þá ályktun, að hin erlenda aðstoð geri ástandið í Eþíópíu aðeins verra af þvf að hún viðhaldi og efli hina röngu stjórnarstefnu, sem þar er fylgt. Hvað eiga Vest- urlandabúar þá að gera? Það er skoðun Griffins, að það sé sið- ferðileg skylda okkar að fæða hina hungruðu og reyna að koma Eþiópiumönnum út úr heima- tilbúnum ógöngum. En þá er rétt að við vitum, að mikið af þeim matvælum sem við gefum til Eþíópíu lenda þar sem stjórn Mengistus vill að þau lendi. Keith Griffin vill einnig að Vesturlönd hætti að veita marx- istastjórninni fé, sem hún getur notað til að halda áfram borg- arastríðinu. Hann viðurkennir hins vegar, að jafnvel þótt þeir fjármunir færu ekki lengur í herkostnað, þá mundi aðeins lít- ill hluti þeirra fara til uppbygg- ingar í landbúnaði, ef tekið er mið af núverandi stjórnarstefnu. Það kann að þykja kaldhæðnis- legt, en er jafn rétt fyrir það, að mati Griffins, að ef stjórn Eþíópíu fylgir skynsamlegri stefnu þá þarf hún ekki á mikilli aðstoð erlendis frá að halda. Ef stjórnin aftur á móti fylgir óskynsamlegri stefnu, breytir öll heimsins aðstoð engu um örlög þegna hennar. Grabam Turner starfar fjrir Lundúnablaðið Tbe Daiiy Tele- grapb, þar sem þessi grein birtist í vikunni sem leið. Hungraðir Eþíópíumenn I grennd við bandaríska hjálparstöð I Alamata. Þar hafa hin marxísku stjórnvöld komið fyrir áróðursskilti með mynd af Lenín. Áhyggjur út af hærri EB-tolli Órfó, 28. BÓvembef. Frá Jan-Erik Lanré, frétUriUrm MbL BÚIST er við, að Evrópubandalagið (Efnahagsbandalagið, sem áður hét) ákveði að setja toll á innfluttar fisk- afurðir og af því hafa Norðmenn miklar áhyggjur. Reyna stjórnvöld nú hvað þau geta til að koma í veg fyrir, að þessi tollur verði settur á strax á næsta ári. Norska sendinefndin I Brússel átti í gær fund með fulltrúum EB um þetta mál án þess að komist væri að nokkurri niðurstöðu. EB hefur fullan rétt til þess sam- kvæmt eigin lögum að hækka tolla á saltfiski, skreið og flökum og til- laga um það liggur fyrir hjá ráð- herranefnd bandalagsins. Christian Berg-Nielsen, sendi- herra Norðmanna í Brússel, segir, að hærri tollar kæmu sér mjög illa fyrir norskan sjávarútveg. Norð- menn flytja út fisk til 10 EB-þjóða fyrir 600 millj. nkr. á ári, sem eru um 18% alls fiskútflutnings, og ef Spánn og Portúgal ganga i EB, hækkar sú tala í einn milljarð nkr. Thatcher til Kína Ludinm, 28. BÓrember. AP. TILKYNNT hefur verið, að Mar- grét Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, muni fara I opinbera beimsókn til Kína með viðkomu I Hong Kong dagana 18.—21. des- ember nestkomandi. Frú Thatcher mun ræða við ýmsa kínverska ráðamenn, þar á meðal Deng Xiaoping forsætis- ráðherra. Meðal þess sem Thatcher mun gera, er að undir- rita í Peking skjal þar sem Bret- ar skuldbinda sig til að skila til Kína nýlendu sinni Hong Kong árið 1997. Að því loknu mun hún fara til Hong Kong og hitta þar að máli ráðamenn. Gefið hefur verið í skyn að hún muni siðan halda til Washington til við- ræðna við Ronald Reagan, en það hefur eigi enn verið staðfest. Með Thatcher í för verður Geoffrey Howe utanríkisráð- herra Bretlands. Ítalía: Aðilar að „spaghetti- byltingunni“ sýknaðir Róm, 28. aÓTember AP ÁFRÝJUNARRÉTTUR í Róm hefur hrundið dómi yfir 46 hægrisinnuðum ofgamönnum, sem undirréttur hafði fundið seka um tilraun til valdaráns. Raunar var valdaráninu aflýst á sfn- um tíma vegna mikillar rigningar. Sjöunda desember árið 1970 læddust 200 vopnaðir menn, stuðningsmenn Junio Valerio Borghese prins, í átt að höfuðstöð- vum ítalska ríkisútvarpsins og hafði þá áður tekist að lauma nokkrum mönnum inn í innanrfk- isráðuneytið. Stóra stundin var sem sagt runnin upp, þegar hann fór allt i einu að rigna eins og hellt væri út fötu. Ákváðu þá byltingar- mennirnir, blautir og kaldir, að hætta við að ræna völdum að sinni. Þessi endalok urðu byltingar- mönnunum, sem allir eru gall- harðir fasistar, að sjálfsögðu mik- il vonbrigði, en Borghese bætti þeim það upp með mikilli veislu þar sem spaghetti var aðalréttur- inn. Síðan hefur valdaránstilraun- in verið kölluð „spaghetti-bylting- in“. í undirrétti voru 46 mannanna dæmdir í allt að tíu ára fangelsi fyrir samsæri gegn ríkinu, en áfrýjunarrétturinn sýknaði menn- ina og sagði, að valdaránstilraun- in hefði aldrei verið nema nafnið tómt. Borghese, sem var fasisti og striðshetja og afkomandi einnar elstu ættar Rómar, flýði á sinum tíma til Spánar þar sem hann lést árið 1974. Los Angeles: • Sakaður um að bera ábyrgð á fjöldamorðum Lm Aagcka, 28. aáTniber. AP. BANDARÍSKUR dómari dæmdi í dag Andrija Artukovic í gæsluvarð- hald meðan rannsókn fer fram á þvf, bvort framselja slnili hann til Júgó- slavíu, þar sem hann er ákærður fyrir að bera ábyrgð á dauða 750.000 manna undir nasistastjórninni f sfð- ari heimsstyrjöldinni. Artukovic, sem verður 85 ára seinna í vikunni, sat i hjólastól og var sveipaður inn i teppi þegar serbókróatíski túlkurinn útskýrði fyrir honum dómsúrskurðinn. „Þetta var mjög erfið ákvörð- un,“ sagði dómarinn, Volney Brown, eftir dómsuppkvaðning- una, „en i framsalsmálum heyrir það til algerra undantekninga að menn séu látnir lausir gegn trygg- ingu.“ David Nimmer, aðstoðarmaður saksóknara rfkisins, mælti á móti því að Artukovic yrði sleppt, þar sem vera kynni að honum yrði komið úr landi með aðstoð stuðn- ingsmanna. Júgóslavneska stjórnin kveður Artukovic ábyrgan fyrir fjölda- morðum á 750.000 gyðingum, Serbum og töturum i síðari heims- styrjöldinni, en þá gegndi hann ráðherrastarfi i leppstjórn nasista í Króatíu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.