Morgunblaðið - 29.11.1984, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1984
Mazda
323$
MEST SELDI
JAPANSKIBÍLUNN
í EVRÓPU,
og engin furða, því hann er:
★ Framdrifinn. Pað tryggir góða aksturseiginleika og
fróbæra spyrnu í snjó og hólku.
★ Rúmgóður. MAZDA 323 rúmar vel 5 fullorðna
ósamt farangri, og hann er miklu rýmri en svokallaðir
„smóbílar" og kostar samt svipað.
★ Vandaður. MAZDA 323 er þrautreyndur, vandaður
og vel smíðaður.
★ Eyðslugrannur. MAZDA 323 eyðir aðeins liðlega
5 lítrum ó hverja 100 kílómetra ó 60 - 90 km hraða.
★ 6 óra ryðvarnarábyrgð. MAZDA 323 er ryðvar-
inn með nýja ryðvarnarefninu WAXOYL og fylgir honum 6
ára ryðvarnarábyrgð.
Prátt fyrir gengisbreytingu, þá er
MAZDA 323 árgerð 1985 á ótrúlega
hagstæðu verði:
\ llllll i 1300 Hatchback
\# kr. gengisskr. 26.11.84
með ryðvörn og 6 ára ryðvarnarábyrgð.
mazoa
Mest fyrir peningana!
BÍLABORG HF.
Smiðshöföa 23 sími 812 99
Lýsið flýtur
ofan á þrónum
Fylgst með loðnulöndum og -bræðslu
líflegan sunnudag á Eskifirði
MYNDIR OG TEXTl: ÆVAR AUÐBJÖRNSSON '
Eskifirdi, 26. nóvember.
LOÐNAN flæðir á land þessa dagana og er nú svo komið að skipin þurfa að
bíða við bryggju í tvo til þrjá sólarhringa eftir að losna við aflann. Sumir taka
þann kostinn að sigla langt með aflann, norður, suður eða jafnvel til Færeyja
eða Danmerkur. Athygli vekur að loðnan sem veiðist er stór og svo er lýsið
mikið í henni að það flýtur ofan i í þ
í dag var verið að senda héðan 2
þúsund tonn af lýsi, 500 tonn af
mjöli og auk þess saltsíld til
Finnlands. Nærri liggur að verð-
mæti lýsisins og mjölsins sé um 30
milljónir króna. Sjálfsagt er svip-
aða sögu að segja úr mörgum öðr-
um útgerðarstöðum þessa dagana.
Sárt þykir sjómanninum að
þurfa að sigla í land og leggja
skipi sínu við bryggju þegar mok-
Friðrik Friðriksson starfsmaður í
loðnubræðslunni á Eskifirði síðan í
gosinu í Vestmannaeyjum.
veiði er, en hann hefur lokið við að
veiða þann skammt sem stóri
bróðir hefur skammtað. Aflamenn
fá ekki að njóta hæfileika sinna
eins og áður var, heldur er þeim
fjarstýrt úr landi.
Fólkið sem vinnur við loðnuna í
landi vinnur mikið. Unnið er á
átta tíma tvískiptum vöktum allan
sólarhringinn því bræðslurnar
stoppa aldrei. Geta má nærri að
slík uppgrip á fiski eru kærkomin
búbót í þeim bæjum þar sem afl-
inn berst á land.
ur og Einar Þórðarson, skipverjar
á Júpiter RE 161, en þeir voru að
landa 1100 tonnum af loðnu á
Eskifirði er fréttaritari hitti þá að
máli á sunnudag. Kváðust þeir
hafa byrjað veiðarnar 4. október
og mátt veiða 4.600 tonn, sem síð-
an var aukið í 9.600 tonn. Segjast
þeir hafa landað öllum sínum afla
á Eskifirði að undanskildum ein-
um túr, sem þeir fóru til Færeyja,
og 900 tonnum í Bolungarvík. 1200
tonn áttu þeir eftir að veiða á
sunnudag. Þeir vonuðust til að fá
að fara með þann afla til Dan-
merkur og ljúka vertíðinni þar.
Þeir voru ánægðir með síðustu
vikur, sem gengið hafa mjög vel
hjá þeim, en verðið fannst þeim
heldur lágt. Helzt var að nótin
hafði eitthvað verið að hrella þá.
Hluturinn fyrir þennan skammt
héldu þeir að myndi nálgast 200
þúsund krónur fyrir hásetann.
Júpiter er með stærstu loðnuskip-
unum og þar er því mest til skipt-
anna. Framundan, þegar loðnu-
H''
200 þúsund krónur
í hásetahlut
Þeir voru hressir þeir Árni Val-
Bjarni Heiðar og félagar hans í
bræðslunni skila flestir hverjir hátt í
100 tímum á viku.
Hressir strákar um borð f Júpiter, Árni Valur og Einar Þórðarson, vinna við
löndun á Eskifirði.
HAUSTHAPPDRÆTTI o.
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Vinningar: 1. Greiðsla upp í íbuö kr. 350.000. 2. Greiösla upp í íbuö kr. 300.000. 3. Bifreiöavinningur kr. 200.000.
Vinsamlega geriö skil sem allra íyrst Verömæti vinninga alls kr. 850.000
SÆKJUM — SENDUM Aöeins dregið ur seldum miöum Skrifstofa happdrættisins aö Haaleitisbraut 1 er opin fra kl. 9 — 22. Sími 82900.