Morgunblaðið - 29.11.1984, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1984
33
Eþfópíæ
„Þúsundir koma
á degi hverjum“
„HINGAÐ koma fleiri en þúsund
flóttamenn á hverjum degi. Það er
varla að við hofum undan,“ segir
Sigríður Guðmundsdóttir, hjúkrun-
arkona, í viðtali við bandaríska
vikuritið Time, sem fjallar I nýj-
asta tbl. mjög ýtarlega um hung-
ursneyðina f Eþfópíu.
Eins og áður hefur komið
fram hér i blaðinu er Sigríður
við hjálparstörf á vegum Rauða
krossins á þurrkasvæðunum f
Eþíópíu, og samkvæmt frásögn
Time er hún nú í hjálparstöð í
bænum Bati i norðurhluta lands-
ins. í vikunni sem leið lést fólk
þar unnvörpum úr hungri því
straumur flóttafólks var svo
18 manns
deyja á dag
MORGUNBLAÐINU hefur borist
bréf sem Sigríður Guðmundsdóttir
sendi Rauða krossi tslands. Hér
fer á eftir útdráttur úr bréflnu.
Þess má geta að Bati er 5.000
manna þorp í Eþíópiu:
„Er við komum til Bati voru
11.000 manns í búðunum. 1 dag
eru 18.000, það koma 800—1.000
manns daglega. Fólk er almennt
mjög illa á sig komið, bæði börn
og fullorðnir. Það dóu um 25
daglega er við komum en dánar-
talan hefur minnkað aðeins og
er nú um 18 daglega. Rauði
krossinn f Eþíópíu hefur unnið
mjög vel hér og er skipulagið
nokkuð gott.
Við, einn læknir og þrjár
hjúkrunarkonur, erum ábyrg
fyrir því að gefa fólkinu að borða
og einnig fyrir allri læknishjálp.
Læknirinn sér um læknishjálp-
ina en við hjúkkurnar um fæð-
ingar og matargjafir. Við höfum
nú 2.200 börn á okkar vegum og
fáum við um 300 ný börn dag-
lega. Þau eru öll mjög illa á sig
Neðra-Saxland:
— segir Sigríður
Guðmundsdóttir
hjúkrunarkona í við*
tali við bandaríska
tímaritið Time
hraður, að ekki reyndist unnt að
sinna þvf öllu. Er lýsing Time á
þeim aðstæðum, sem Sigríður og
annað hjúkrunarfólk vinnur við,
átakanlegur lestur. Segir þar
m.a. að óhugnanleg þögn grúfi
yfir búðunum i Bati. Haft er eft-
ir breskri hjúkrunarkonu. Janet
Sigríður Guömundsdóttir
komin og eru eins og lifandi
beinagrindur. Okkur til aðstoðar
höfum við 12 sjálfboðaliða frá
Rauða krossinum, sem öll eru
mjög góð. Við erum svo óheppin
að ein hjúkrunarkonan hefur
verið veik allan timann hér svo
við erum bara tvær sem höfum
unnið. önnur hefur tekið eldhús-
Harris, sem starfar við hlið Sig-
ríðar viö að sprauta fjörefnum
og saltvatni í æðar hungraðra
barna, að starf hennar sé niður-
drepandi og oft gagnslaust.
„Maður sér það á augum þeirra
hvort þau muni lifa þetta af eða
deyja. Það er enginn glampi f
augum hinna dauðadæmdu,"
segir hún.
Talið er að um 6 milljónir
Eþíópiumanna hafi orðið fórn-
arlömb hallærisins f landinu og
búi við alvarlegan fæðuskort. Er
óttast að allt að ein milljón
manna muni láta lffið fyrir árs-
lok þrátt fyrir hið umfangsmikla
hjálparstarf.
ið að sér og er að kenna innfædd-
um að elda graut og hita mjólk
en ég hef séð um að fæða börnin.
Við höfum nú 1.000 börn á okkar
vegum sem fá fjórar máltíðir á
dag. Þar af eru um 100 bðrn sem
eru að deyja úr þurrki, (de-
hydration) og fá þau sérstaka
meðhöndlun. 1.200 börn fá tvær
máltíðir á dag. Við finnum að við
getum ekki gert allt sem við vilj-
um en við reynum að gera okkar
besta. Við vinnum frá kl. 7 á
morgnana til 7 á kvöldin og ég
hleyp allan daginn i orðsins
fyllstu merkingu. En ég nýt
hverrar minútu hér, þrátt fyrir
að við sjáum ekki fyrir endann á
vinnunni hér. Þetta er mjög ólíkt
Wolatiga og held ég að það hafi
verið hálfgerðar „sumarbúðir"
miðað við ástandið hér. Hér er
heitt á daginn, samt ekki óþol-
andi, en næturnar eru kaldar.
Fólkið hér hefur litið sem ekkert
með sér, nokkrar „dulur“ sem
það breiðir ofan á sig yfir nótt-
ina. Við erum að reyna að koma
öllum fyrir í tjöldum en höfum
ekki ennþá nóg af tjöldum og er
erfitt að skilja hvernig fólk lifir
af næturnar hér, en hitinn er
ekki meiri en 5—10°C.“
Hjón flýja vestur yfir
Hannover, V-Þýsknlandi, 28. nóvember. AP.
ÞRÍTUGUR Austur-Þjóðverji og 21
árs gömul kona hans flýðu í nótt yfir
landamærin og komust til Vestur
Þýskalands heilu og höldnu. Skýrði
landamæralögreglan frá þessu í dag.
Hjónin gáfu þá ástæðu fyrir
flóttanum að þau hefðu ekki viljað
una lengur ástandinu ( Austur-
Þýskalandi, kúguninni og bágum
kjörum. Þau flýðu yfir til Neðra-
Saxlands en ekki var sagt nánar
frá flóttanum enda þykir augljóst,
að austur-þýsku landamæraverð-
irnir hafi ekki orðið hans varir.
Á landamærunum á þessum
slóðum eru mjög öflugar varnir til
að koma í veg fyrir, að þegnar
austur-þýska alþýðulýðveldisins
hlaupist á brott. Þar eru sjálfvirk-
ar flísabyssur, varðturnar, eftir-
litssveitir með hunda og ramgerar
girðingar.
Veriö
velkomin
ópavogsbúaT
athugið!
Við bjóðum alla almenna hársnyrtingu svo sem
Permanent, klippingu, lagningu, hárþvott, litun,
Jástur, strípur, skol, djúpnæringu o.s.frv.
i Opiö frá kl. 9—18 á virkum dögum.i
Lokaö á laugardögum í sumar.
Pantanir teknar í síma 40369.
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
ÞINGHÓLSBRAUT 19.
Kjarakaup
(..lAKWÖRlR
Blævængir kr. 49.-
Nálapúðar kr. 92,-
Úts. diskamottur kr. 52.-
Barnateppi kr. 145.-
Matarprjónar kr. 12,-
Dagbækur kr. 90,-
Armbönd kr. 55.-
Gleraugnahulstur kr. 94,-
Töskur kr. 67.-
Púðar kr. 254.-
Koddaver kr. 161,-
Herra hanskar kr. 135.-
Dömu leðurhanskar kr. 630,-
KÍNVI RSkl R NÁH KA I I'NADI I R
Barnanáttföt kr. 429.-
Barna sloppar kr. 438.-
Dömunáttföt kr. 659.-
Dömu sloppar kr. 721,-
JÓKAVÖRIR
Jólakort 5 stk. kr. 34.-
Jólakúlur kr. 15.-
Jólasveinar kr. 55,-
Jólaenglar kr. 85,-
Jólakerti frá kr. 48.-
KKIkKÖNÍ,
Föndursett kr. 90.-
Munnhörpur kr. 62.-
Kubbakassar kr. 60.-
Sindy baðsett kr. 39.-
Snyrtisett kr. 76.-
Bangsar kr. 36.-
Dúkkur kr. 99,-
Tré púsl kr. 188.-
Pílubyssur kr. 87.-
Einnig ódýr útsaumur í miklu úrvali.
Verslunin
Sjónval
Vesturgötu 11.