Morgunblaðið - 29.11.1984, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1984
57
aði Lionsklúbbinn Þór. Meðal
þeirra voru: Brynjólfur Jóhann-
esson, Friðfinnur Olafsson, Kjart-
an Sveinsson, Guðmundur J. Sig-
urðsson, Albert Guðmundsson og
Lúðvig Hjálmtýsson.
Haraldur var kjörinn fyrsti
formaður klúbbsins og var það
gæfa félagsins. Hann mótaði
starfið frá upphafi á sinn
skemmtilega hátt, og mörg þau
verkefni sem hann braut upp á þá
eru enn á dagskrá hjá okkur.
Haraldur var mjög áhugasamur
Lionsmaður og starfaði mikið
fyrir hreyfinguna meðan heilsa
hans leyfði. Hann var umdæmis-
stjóri Lions á íslandi árið
1964-65. Árið 1968 heiðruðu fé-
lagar hans hann með því að gera
hann að fyrsta heiðursfélaga
Lionsklúbbsins Þórs.
Fyrir hönd Lionsklúbbsins Þórs
votta ég fjölskyldu hans innilega
samúð.
Blessuð sé minning góðs drengs,
Haraldar Á. Sigurðssonar.
Ragnar Ólafsson, formaður.
Er okkur, hinum ungu Reykvík-
ingum, bárust tíðindin um að einn
af aðalleikurum bæjarins og
stórmeisturum leiklistargyðjunn-
ar, Haraldur Á. Sigurðsson for-
stjóri, væri fallinn frá, varð mér
hugsað til þeirra snillinga sem
sköpuðu hinar vinsælu revíur á
árunum fyrir síðustu heimsstyrj-
öld og héldu þeim við lýði styrj-
aldarárin með undraverðum ár-
angri. Eðlilega er manni þá efst í
huga Haraldur Á. Sigurðsson leik-
ari. Við minnumst einnig þeirra,
sem með honum voru á fjölunum í
Iðnó, t.d. Brynjólfs Jóhannessonar
og Alfreðs Andréssonar. Að öðr-
um ágætum leikurum ólöstuðum
fyrr og síðar tel ég að fáir menn
hafi veitt jafn mörgum, á öllum
aldri, jafn mikla gleði og þegar
þeir birtust saman á sviðinu. —
Og þeir verða okkur ógleymanleg-
ir, t.d. er þeir skemmtu á Bláu
stjörnu-revíunum í Sjálfstæðis-
húsinu. Mönnum eru enn í fersku
minni eftir öll þessi ár hlátra-
sköllin á þeim skemmtunum. Já,
það var með ólíkindum hve mikla
gleði og ánægju Haraldur Á. veitti
ásamt þeim Alfreð, Tómasi Guð-
mundssyni, Emil Thoroddsen að
ógleymdum Guðmundi Sigurðs-
syni. óskandi er að Reykjavík eigi
eftir að eignast slíka snillinga aft-
ur.
Fjölskyldu Haralds Á. Sigurðs-
sonar sendi ég blessunaróskir á
þessum degi.
Þorkell Valdimarsson.
SVAR
MITT
eftir Billy Graham
Víti til varnaðar
Ég er ekki orðin tvítug. Hinir raunverulegu foreldrar mínir
skildu, og móðir mín giftist aftur manni, sem er mjög truflaður á
sálinni. Hann drekkur, heldur fram hjá mömmu og gerir margt
annað, sem brýtur í bága við trúarskoðanir mömmu. Hvað er hægt
að gera, þegar svona stendur á? Mér finnst mamma ekki eiga
skilið, að allar þessar byrðar skuli lagðar á hana.
Við lifum í heimi þjáningar. Stundum tökum við
ákvarðanir í fljótræði og bætum gráu ofan á svart að
nauðsynjalausu, eins og móðir þín hefur gert. Hjóna-
band fá sorglegan endi, ef til þeirra er stofnað, án þess
að menn biðji Guð ákaft og leiti vilja hans. Ég er
eindreginn fylgismaður þess, að trúaður maður gangi
að eiga trúaða konu. Þegar farið er að stíga í vænginn
við fólk, sem á enga trúarlega sannfæringu, verða
endalokin oft þau, sem kallað er „helvíti á jörðu". Hér
er auðvitað um að ræða hið órjúfanlega lögmál um
sáningu og uppskeru, og það er skiljanlega erfitt viður-
eignar!
Ég vil þó hvetja móður þína til að lifa eins og góð og
guðhrædd kona með ósiðlátum eiginmanni sínum, svo
að honum verði óbærilegt að lifa í syndum sínum.
Þetta ætti að verða þér víti til varnaðar. Eflaust
kemur til þín einhver piltur, sem trúir ekki á Krist, og
vill, að þú verðir konan hans og alir honum börn. Þú
veizt, hverju þú átt að svara honum, því að betra er að
vera einhleypur alla ævi en láta ginnast til að ganga
undir „ósamkynja ok“, eins og henti móður þína. Held-
ur vildi ég vera barnlaus en eiga börn og ala þau upp
án Krists.
+
Eiginmaöur minn, faöir og fósturfaöir,
JÓHANNESJÓN8SON
fré Asparvfk,
Fannborg 1,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 30. nóvember
kl. 13.30.
Blóm og kransar vlnsamlegast afþakkaöir en þeim sem vildu
minnast hans er bent á hjúkrunarhelmillö Sunnuhllö, Kópavogi.
Sofffa Valgairsdóttir,
Ingl Karl Jóhannssaon,
Sólrún Aspar Elfaadóttlr.
t
Þökkum innllega samúö og hlýhug viö andlát og útför sonar mins,
bróöur okkar, mágs og frænda,
GUDMUNDAR ÁSGRÍMS BJÖRNSSONAR,
Drápuhlló 48.
Sofffa Björnsdóttir,
Halldóra G. Björnsdóttir, Páll Kristjánsson,
Grfmur S. Björnsson, Björg Jósapsdóttir,
Þorsteinn K. Björnsson, Ásdfs Arnardóttir,
Björn Á. Björnsson, Elfsabot Erlandsdóttir,
og systkinabörn.
+
Innilegt þakklæti fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
jaröarför
LÝÐ8 GUÐMUNDSSONAR
loftskaytamanns.
Guórún Siguröardóttir,
Siguröur Lýösson, Sasunn Gunnarsdóttir,
Guömundur B. Lýösson, Inga Ágústsdóttir,
og barnabörn.
+
Þökkum auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför fööur okkar,
tengdafööur og afa,
JÓNS ÞÓRARINSSONAR
bónda,
Sköróum.
Þórarinn Jónsson, Stafán Jónsson,
Ragnhaiöur Jónsdóttir, Þurfóur Jónsdóttir Hilla,
tangdabörn og barnabörn.
+
Okkar innilegustu þakkir til allra er sýndu okkur samúö og hlýhug
viö andlát og jarðarför fööur okkar, tengadfööur, afa og mágs,
GUOMUNDAR BRYNJÓLFSSONAR,
Elliheimilinu Garövangi, Garöi,
áöur Klapparstfg 16, Njarövfk.
Þórhanna Guómundsdóttir, Ólafur Jónsson,
Magna Guömundsdóttir, Melvin Pfaifar,
Hrefna Guómundsd. Millar,
Margrét J. Guömundsdóttir, Jón Friörík Ólafsson,
barnabörn og Jóhann B. Guómundsson.
Vegna jaröarfarar HARALDAR Á. SIGURÐSSONAR ver-
öa skrifstofur vorar lokaðar i dag frá kl. 13.00.
Hsildvsrslun Asgeirs
Sigurössonar
Aukjp málningar-
þjónusta
Viö höfum selt ýmsar málningarvörur og áhöld í 70 ár.
Nú bætum viö um betur og bjóöum fullkomna málningarþjón-
ustu fyrir heimili og atvinnuvegi.
ALLIR LITIR OG ÁFERÐIR
á veggi, gólf, glugga, vinnuvélar og skip
Hvaða
lit
viltu?
afsláttur af allri
málningu til jóla
Opið
á laugardögum
kl. 9—12.
Ánanaustum, Grandagaröi, sími 28855.