Morgunblaðið - 29.01.1985, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 1985
27
Hjúkrunarfólk
og hjálpargögn
til Eþíópíu
ÞOTA á vogum Arnarflugs hélt frá
Keflavíkurflugvclli í gær áleiðis til
Kþíópíu, fullhlaðin hjálpargögnum
frá Hjálparstofnun kirkjunnar.
Að sögn Guðmundar Einars-
sonar, framkvaemdastjóra
Hjálparstofnunar kirkjunnar,
sendi stofnunin með vélinni um
40 tonn af hjálpargögnum, svo
sem, mjólkurduft, kex, ýmis lyf,
teppi, og bifreið auk veiðarfæra,
sem eiga að fara til Erítreu við
Rauðahafið. En þar vinnur
Stanley Aðalsteinsson, á vegum
stofnunarinnar, við að kenna
innfæddum fiskveiðar.
í máli Guðmundar kom fram
að í næsta mánuði verða komnir
til hjálparstarfsins milli 20 og 30
íslendingar. Hér er um að ræða
hjúkrunarfólk og lækni ásamt
trúboðum. Þar af verða tveir
hjúkrunarfræðingar í sérverk-
efnum. Verða þeir meðal annars
við störf á svæðum, sem ekki er
hægt að komast um nema fót-
gangandi.
Ennfremur gat hann þess að
áframhald yrði á sendingum
hjálpargagna til hjálparstarfs-
ins, enda veitti ekki af.
Sérhönnuð bifreið, sem gefin var til hjálparstarfsins.
„Lítum starfið björtum augurn44
MEÐ flugvélinni sendi Hjálpar-
stofnun kirkjunnar í fyrsta skipti
hjúkrunarfræðinga, á eigin vegum til
hjálparstarfsins í Eþíópíu, en þar
verða þær næstu 6 mánuði. Blm.
Mbl. náði tali af hjúkrunarfræðing-
unum fjórum, þeim l’óru Hafsteins-
dóttur, af lyflækningdeild Landa-
kotsspítala, Pálínu Ásgeirsdóttur, af
slysadeild Borgarspítalans, Kristínu
Davíðsdóttur, af gjörgæsludeild
Borgarspítalans og Björgu Pálsdótt-
ur, Ijósmóður og hjúkrunarfræðing
af Fæðingardeildinni, áður en þær
fóru héðan til starfa.
„Við lítum væntanlegt starf
björtum augum og komum örugg-
lega til með að gera meira gagn
þarna, en við gerum hér heima,"
sagði Pálína, þegar þær stöllur
voru spurðar um hvernig starfið í
Eþíópíu leggðist í þær. „Engin
okkar hefur starfað við hjúkrun
erlendis áður,“ sagði Björg „en það
er alltaf gaman að taka að sér ný
verkefni og kynnast einhverju
nýju, sem maður hefur aldrei séð
áður.“
„Það var ekki laust við að fjöl-
skyldum okkar litist ekki á blik-
una í fyrstu, en þegar frá leið
studdu þær okkur af fremsta
megni og fengum við iðulega að
heyra það frá þeim, að þau mundu
fara sjálf ef þau gætu,“ sagði
Þóra.
„Þetta hefur verið annasamur
tími síðustu dagana, en það eru
ekki nema 12 dagar síðan við feng-
um að vita með vissu að við hefð-
um verið valdar til starfsins,"
sagði Kristín. „Yfirvöld þarna
niður frá eru greinilega ntikið
fyrir stimpla, svo að við erum með
fullt af vottorðum og stimplum til
að sýna þeim, allt niður í vottorð
frá barnaskólunum."
Þær stöllur voru sammála um
að allt væri frábærlega vel skipu-
lagt frá hendi Hjálparstofnunar-
innar en auk hjúkrunarfræð-
inganna hefur stofnunin nú þegar
sent tvo björgunarsveitarmenn
frá björgunarsveitinni í Vest-
mannaeyjum, til hjálparstarfsins
og eiga þeir að vera þeim til halds
og trausts í starfi.
Að lokum vildu þær stöllur
koma á framfæri þakklæti til
þeirra fyrirtækja sem hefðu
styrkt þær persónulega til farar-
innar auk þakklætis til vinnuveit-
enda þeirra hér á Iandi, sem
leyfðu þeim að fara með svo stutt-
um fyrirvara og halda stöðum
þeirra að auki þar til þær koma
heim aftur.
Áhöfn og farþegar Arnarflugsvélarinnar fyrir brottför til Eþíópíu. Frá vinstri Kristín Davíðsdóttir, hjúkrunarfræðingur, Pálína Ásgeirsdóttir, hjúkrunarfræð-
ingur, Erling Aspelund, stjórnarmaður Hjálparstofnunar kirkjunnar, Guðmundur Hilmarsson, flugstjóri, Örn Ingibergsson, flugvélvirki, Björg Pálsdóttir,
hjúkrunarfræðingur, Hrafn Oddsson, flugmaður, og Þóra Hafsteinsdóttir, hjúkrunarfræðingur.
Siglufjörður:
Sést til
sólar á ný
Siglufírði, 28. jmnúar.
Í GÆR sá í fyrsta sinn til sólar
á nýja árinu í Siglufirði. Sólin
sést fyrst 26. janúar, en stór-
hríð var í Siglufirði um helgina
en hefur nú birt til. Unnið hef-
ur verið að því að ryðja snjó af
götum en mikinn snjó setti nið-
ur. I tilefni þess að á ný sér til
sólar í Siglufirði, þá voru félag-
ar í Sjáífsbjörgu með pönnu-
kökusölu og gekk vel.
Fréttaritari
Mikil aukn-
ing á sæl-
gætisneyslu
Á SÍÐAffTA ári virðist hafa orðið
mikil aukning í sælgætisneyslu
landsmanna. Ekki hefur orðið
aukning í framleiðslu innanlands
og kcmur aukningin því öll fram
scm aukinn innflutningur á sæl-
gæti.
Ólafur Davíðsson, fram-
kvæmdastjóri Félags íslenskra
iðnrekenda, sagði í samtali við
Mbl. að á fyrstu níu mánuðum
síðasta árs hefði orðið gríðar-
iega mikil aukning á sælgætis-
neyslu. Þá hefði framleiðslan
innanlands og innflutningur
numið 2.130 tonnum sem er
rúmum 300 tonnum meira en á
sama tíma síðustu árin á und-
an. Ekki liggja fyrir tölur um
neysluna síðustu þrjá mánuði
ársins. Sagði ólafur að öll
aukningin hefði komið fram í
auknum innflutningi og hefði
markaðshlutdeild islensku sæl-
gætisframleiðslunnar því
minnkað sem væri öfugt við
það sem verið hefði undanfarin
ár. Árið 1983 hefði íslensku
framleiðendurnir haft um
helming markaðarins á móti
innflytjendum.
Mývetningar
halda
þorrablót
Mývatnflfiveit, 28. janúar.
Hér hefur verið stillt og bjart
veður undanfarið og allmikið
frost. Suma daga hefur frostið
farið um og jafnvel yfir 20 stig.
Ágæt færð er á vegum og að sögn
fólksbílsfæri austur á Hólsfjöll.
Mývetningar héldu þorrablót
í Skjólbrekku síðastliðið laug-
ardagskvöld. Mikið fjölmenni
var eða á þriðja hundrað
manns. Sumir komu um langan
veg. Kvenfélag Mývatnssveitar
stóð fyrir þessari samkomu nú
sem endranær. Álfhildur Sig-
urðardóttir setti þorrablótið og
var jafnframt kynnir. Margs-
konar góðgæti var á borðum og
ekki annað að sjá en að því
væru gerð hin bestu skil.
Skemmtiatriði voru flest
heimasoðin og mest af léttara
taginu. Síðast var dansað af
miklu fjöri fram eftir nóttu.
Hljómsveit frá Húsavík lék
fyrir dansinum.
— Kristján
Deila undirmanna
og VSÍ:
Fundur í dag
FUNDUR í deilu undirmanna
á farskipum og viðsemjenda
þeirra hefur verið boðaður
klukkan 9.30 í dag. t gær var
átta tíma langur fundur, en
samkvæmt heimildum Mbl.
miðaði lítt í samkomulagsátt.
Boðað verkfall undirmanna
kemur til framkvæmda klukk-
an 11 á morgun, ef samkomu-
lag næst ekki fyrir þann tíma.